Tíminn - 05.06.1982, Page 4
4
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1982
stuttar fréttir
íiiiii
r ■ ■ «
__$§§11____r.____
■ Héraösskólinn á Laugarvatni. Tímamynd Róbert.
Alls 98 nemendur
í Héraðsskólanum
á Laugarvatni
Laugarvatn: „Einn eftirminnileg-
asti viðburður vetrarins var þegar
allir nemendur og kennarar
Laugarvatns fjölmenntu til
Reykjavíkur 5. nóv. á fund
stjórnvalda til að knýja á um bygg
ingu langþráðra og bráð nauðsyn-
legra íþróttamannvirkja á
Laugarvatni. Lítur nú út fyrir
að sú framkvæmd eigi í raun og
veru loksins að hefjast", segir
m.a. i frétt frá skólaslitum Hér-
aðsskólans á Laugarvatni sem
fóru fram 22. mai s.l.
f skýrslu skólastjóra, Bene-
dikts Sigvaldasonar kom fram að
alls voru nemendur skólans 98 í
vetur, 62 í grunnskólabekkjum
og 36 í framhaldsdeildum.
Áfangakennsla sem tekin var
upp í framhaldsdeild 1. árs
þótti gefa góða raun. fþrótta-
kennaraskólinn annast íþrótta-
kennslu við Héraðsskólann en
kennsla í heimilisfræði er sótt í
Hússtjórnarskóla Suðurlands að
Laugarvatni.
Þess var getið að nemendur
iþróttabrautar sóttu skíðanárrv
skeið á Siglufirði en grunnskóla
nemendur í 9. bekk fóru í starfs-
kynningu hjá ýmsum skólum og
fyrirtækjum, einkum í Reykja
vík.
Prófum í fornámsdeild lauk
29. janúar og var þar hæst Þóra
Karen Þórólfsdóttir frá Fáskrúðs-
firði. Prófum í grunnskólabekkj-
um lauk 11. maí. Langbestum
árangri í 8. bekk náði Jónína
Guðrún Kristinsdóttir á Laugar-
vatni, en í 9. bekk Margrét
Sveinbjörnsdóttir frá Heiðarbæ i
Þingvallasveit. Próf i framhalds-
deildum voru haldin 12. til 22.
mai. Á fyrra ári íþróttabrautar
náði Guðbjörg Albertsdóttir frá
Skíðabakka í A-Landeyjum best-
um árangri. Á síðasta ári iþrótta-
brautar varð langhæst Svava
Albertsdóttir frá Höfn í Horna-
firði. Fengu þær báðar verðlaun
frá skólanum svo og frá sendiráð-
um Danmerkur og V-Þýskalands
fyrir góðan árangur í dönsku og
þýsku. -HEl
Trjám
plantað við
nýja sjúkra-
húsið
Sclfoss: Skógræktarfélög Árnes-
inga og Selfoss hafa ákveðið að
nota daginn í dag til að planta
trjám við nýja sjúkrahúsið á
Selfossi. „Þetta er m.a. gert í
tilefni 40 ára afmælis Skógræktar-
félags Árnesinga, sem var árið
1980, en þá var ákveðið að gefa
plöntur að sjúkrahúsinu. Það er
nú nýlega tilbúið, þannig aðjietta
er kjörið tækifæri“, sagði Oskar
Þór Sigurðsson, á Selfossi. Einn-
ig kvað hann daginn valinn með
tilliti til þess að Skógrækt rikisins
hefur valið þennan dag, 5. júni,
sem skógræktardag.
„Því er líka beint til fólks að
koma um tvöleytið i dag og
fylgjast með þessu. Þvi verður
um leið leiðbeint um meðferð og
val á plöntum", sagði Óskar.
Þetta sýnist þvi tilvalið tækifæri
fyrir þá að fræðast, sém hyggja á
plöntun í eigin görðum.
Ekki sagði Óskar enn búið að
ganga frá lóð Sjúkrahússins
nema þessum reit sem nú verður
plantað í, en hann er sunnan við
húsið, þ.e. næst götunni. Þessi
trjálundur ætti strax að geta
orðið hið mesta augnayndi, þar
sem þarna verður plantað allt
upp i eins metra háum plöntum
af mörgum tegundum, m.a. ösp,
sitkagreni, viðitegundum og
fleiri. „Það er reynt að hafa þetta
fjölbreytt", sagði Óskar.
Aðspurður kvað hann mikið
um trjárækt og garðrækt yfirleitt
hjá íbúum Selfoss, sem tekist hafi
mjög vel hjá mörgum. „Ég hygg
jafnvel að það séu fáir staðir á
Suðurlandi þar sem gróska er
jafn mikil“, sagði Óskar. Enda
hafi meginverkefni Skógræktar-
félagsins á Selfossi verið að
leiðbeina fólki í þeim efnum. Að
lokum má geta þess að Óskar
sagði nú allan gróður hafa tekið
vel við sér í blíðviðrinu undan- >
farið, blómin þjóti upp og tré öll
að springa út. HEI
412 luku
prófi
Reykjavik: Alls 280 iðnnemar
luku í vetur burtfararprófi með
fullnægjandi árangri frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og því til
viðbótar 101 úr framhaldsdeild-
um og endurtökuprófsfólk. Auk
þess hafa 31 nemi lokið prófum
úr tækniteiknaraskóla af 1. og 2.
önn, þannig að samtals hafa 412
lokið prófum á þessum vetri.
Stærstu iðngreinahóparnir sem
útskrifuðust á árinu eru: húsa-
smiðir 67, bifvélavirkjar 41,
rafvirkjar 28 og úr hárgreiðslu og
hárskurði 20 úr hvorri grein.
Nemendafjöldi í Iðnskólanum
í Revkjavík í vetur var 909 á fyrri
önn og 847 á hinni síðari. -HEI
fréttir
Sjómannadagurinn í Reykjavík:
Fjölbreytt skemmtidagskrá
■ Sjómannadagurinn i Reykjavik
verður með hefðbundnu sniði að því
undanskildu að hóf sjómanna á
Hótel Sögu verður á laugar-
dagskvöld, i stað sunnudagskvölds
áður, og hefst með borðhaldi kl.7.30.
Fánar verða dregnir að hún á skip-
um i Reykjavíkurhöfn kl. 8 á sunnu-
dagsmorguninn, og síðan verður
minningarathöfn og guðsþjónusta í
Dómkirkjunni kl. 11, og verður þar
minnst drukknaðra sjómanna.
Útihátíðahöld hefjast í Naut-
hólsvík kl. 1.30 e.h. með leik Lúðra-
sveitar Reykjavíkur, og síðan
verður samkoman sett og flutt
ávörp.
Skemmtanir dagsins eru fjöl-
breyttar og má þar nefna kapp.
siglingu á seglbátum, kappróður og
stakkasund, og einnig gefst sam-
komugestum tækifæri til að spreyta
sig i koddaslag.
Sjómanna-kvenfélagskonur sjá
um veitingasölu og strætisvagnaferð-
ir verða frá Lækjargötu og Hlemmi
frá kl. 1 á 15. mín fresti. SvJ
■ Uppdráttur af Breiðholti U. Punktalínan sýnir hvar gengið verður um
byggðina.
Spássítúr með arki-
tektum um Breiðholt III
íþróttir
■ íslenska landsliðið i knattspyrnu
leikur i dag við Möltu i Evrópu-
keppni landsliða og fer leikurinn
fram á Sikiley. Vegna þessa lands-
leiks verður ekkert leikið í 1. deild
en í dag verður heil umferð í 2.
deildinni. Þeir leikir eru:
Húsavikurvöllur kl. 14 Völsungur
Þróttur R.
Kaplakrikavöllur kl. 14 FH-Þór
Laugardalsvöllur kl. 16 Fylkir -
Njarðvík
Neskaupstaðarvöllur kl. 14 Þróttur
- Skallagrímur
Sandgerðisvöllur kl. 14 Reynir-Ein-
herji
Hafnfirskir
sjómenn taka
forskot
á sæluna
■ Sjómannadagurinn verður hald-
inn hátíðlegur i Hafnarfirði að venju
núna á sunnudaginn. Sjómenn i
Hafnarfirði munu þó taka aðeins
forskot á sæluna á laugardeginum
með hófi í Snekkjunni og hefst það
kl. 19.30.
Á sunnudagsmorguninn verða
fánar dregnir að húni kl. 8, en síðan
hefst dagskráin með sjómanna-
messu i kapellu Hrafnistu. Klukkan
eitt eftir hádegi verður skemmtisigl-
ing með börn út á Hafnarfjörð og
klukkan tvö hefjast útihátíðarhöld
við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Þar verða fluttar ræður og
aldraðir sjómenn heiðraðir, og þyrla
Landhelgisgæslunnar og Björgunar-
sveit Fiskakletts sýna björgun úr sjó.
Magnús Ólafsson og Þorgeir Ást-
valdsson skemmta og farið verður i
ýmsa leiki.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur á
hátiðarsvæðinu og kaffisala verður í
Hrafnistu í Hafnarfirði frá kl. þrjú til
fimm og þangað mun lúðrasveitin
koma klukkan hálf fjögur og leika
fyrir vistmenn og gesti.
ffByggjum
kirkju í
Árbæjar-
sókn”
■ Að undanförnu hefur farið fram
almenn fjársöfnun meðal ibúa Ár-
bæjar- og Seláshverfis undir kjör-
orðinu „Byggjum kirkju i Árbæjar-
sókn“.
Er stefnt að því að kirkjan, sem
byggð verður ofan á safnaðarheim-
ilið og grunninn norðan þess, verði
reist á þessu ári og árið 1986 hyggjast
Árbæingar hafa lokið við kirkju-
bygginguna, en hún er teiknuð af
arkitektunum Þorvaldi Þorvaldssyni
og Manfreð Vilhjálmssyni.
I frétt frá byggingar- og fjáröfl-
unarnefnd, kemur fram að til að
ljúka kirkjunni að utan þarf um 2
milljónir króna, þannig að hvert
heimili þyrfti að gefa um 500 krónur
til þess að þvi marki væri náð. Nú
um helgina verður gengið i hús i
Árbæjarsókn og fé safnað og er
þeim sem gáfu fé á kjördag, en þá
var einnig safnað, bent á að setja
kvittanir sínar á útidymar eða annan
áberandi stað, til þess að ekki verði
knúið dyra hjá þeim.
■ í fyrramálið, sunnudag kl. 10
stendur Listahátið i samvinnu við
Framfarafélag Breiðholts að göngu-
ferð um Breiðholt III undir leiðsögn
arkitekta.
Gangan hefst við Shell bensin-
stöðina við Norðurfell. Gengið
verður sunnan við fjölbýlishúsin við
Æsufell og Asparfell um verslunar-
miðstöðina að Fellaskóla, síðan um
svæðið milli Vesturbergs og Austur-
bergs. Farið verður undir Vestur-
bergið við Straumnes í brekkuna
vestan við Vesturbergið. Loks verð-
■ Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, Hrafnista i Reykjavik er 25
ára á sjómannadaginn, en það var
opnað á sjómannadaginn 1957.
í tilefni afmælisins verður opið
hús að Hrafnistu og handavinna
vistfólks til sýnis og sölu frá 14-17
nk. sunnudag, sjómannadaginn.
Lúðrasveit Reykjavíkur kemur kl.
14.30 og leikur létt sjómannalög og
kaffisala verður frá 14-17, og rennur
allur ágóði af henni til búnaðar
kapellu og samkomusalar á Hrafn-
istu.
Vistmenn á Hrafnistu eru nú um
■ Einhversstaðar á leið sinni í
vinnslu hefur grein Sigurbjörns
Bárðarsonar i Landfara á föstudag-
inn lent í höndum starfsmanns, sem
hefur talið áhrifameira að bera
stjórnarformann LH fyrir ákveðn-
ur gengið norður að háhýsunum við
„Hólana".
Göngunni er hagað þannig að
sem heillegust mynd fáist af Breið-
holti III. Færi mun gefast á að ræða
við höfunda skipulagsins um skipu-
lagsforsendur og hvernig til hefur
tekist um úrvinnslu. í Breiðholti III
má sjá nánast allar gerðir íbúðar-
húsa.
Einkennandi fyrir svæðið er þétt
byggð, aðgreindar göngu-og aksturs-
leiðir og þjónusta, skólar, útivistar-
og iþróttasvæði í sem beinustum
tengslum við gönguleiðir.
400 og eru álika margir á biðlista hjá
heimilinu.
Starfsemi Hrafnistu er skipt í 3
deildir, vist, þar sem vistmenn sem
eru við sæmilega heilsu dveljast. Á
hjúkrunardeildum eru svo þeir sem
meiri umönnun og hjúkrun þurfa og
á sjúkradeild eru þeir sem veikir eru
svo og langlegusjúklingar. Þegar
Hrafnista var opnuð var þar rými
fyrir 130 vistmenn, síðan hafa fjórar
ibúðaálmur bæst við, en siðasta
stórframkvæmdin í Reykjavik var
bygging hjónaíbúða við Jökul-
grunn. SvJ
um ummælum, heldur en óbreyttan
stjórnarmann. Það rétta .er þó að
það var sá óbreytti, sem greinarhöf-
undur vitnaði i og við biðjum
viðkomandi formann að sjálfsögðu
að taka þessi mistök ekki illa upp.
SvJ
Hrafnista 25 ára
Stjórnarformaður var það ekki