Tíminn - 06.06.1982, Qupperneq 12
12
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
KEISARINN
06 CRUYFF
Stiklað á stóru um
heimsmeistarakeppn-
inaí knattspyrnu 1974
■ Það hafa, segir fróður maður um
ýmis mál, verið skrifaðar margar
bækur um það hvers vegna fólk
hefur gaman af knattspyrnu. Niður-
staðan er auðvitað engin. Fólk hefur
bara gaman af knattspyrnu, sumt
fólk alla vega. Og nú er gaman i
vændum, heimsmeistarakeppnin
hefst innan skamms. Okkur og ef til
vill öðrum til skemmtunar rifjum við
hér upp heimsmeistarakeppnina
1974 sem fræg varð hér sem annars
staðar og bauð bæði upp á mikla
spennu, góðan fótbolta og litríka
einstaklinga. Svoleiðis á það víst að
vera. Þessi keppni verður áreiðan-
lega lengi í minnum höfð, ha?
f næstu viku munum við kynna
liðin sem i sumar leika á Spáni og
ef til vill gera eitthvað fleira okkur
og öðrum til skemmtunar...
Heimsmeistarakeppnin í Vestur-
Þýskalandi árið 1974 var að líkind-
um athyglisverðust fyrir þá yfirburði
sem evrópsk knattspyrnulið höfðu
þar yfir hin suður-amerisku. Lands-
lið frá Evrópu röðuðu sér t.a.m. í
þrjú efstu sætin en það var mikil
breyting frá síðustu keppni sem
hafði verið haldin í Mexíkó árið
1970. Lengst verður keppninnar 74
þó áreiðanlega minnst fyrir ósvikið
einvigi tveggja manna sem þar fór
fram: þeirra Franz „Keisara" Beck-
enbauer, Þýskalandi, og Johans
Cruyff, Hollandi. Þeir sem kepptu
ekki aðeins um að leiða lið sín til
sigurs í úrslitaleiknum heldur
kepptu þeir einnig um hvor skyldi
teljast besti knattspyrnumaður
heims.
Árið 1974 voru keppnisþjóðirnar
aðeins sextán og var í upphafi skipt
í fjóra riðla. í fyrsta riðli lentu báðar
þýsku þjóðirnar Austur- og Vestur-
Þjóðverjar, ásamt Chilemönnum og
Ástralíubúum. í öðrum riðli voru
heimsmeistarar Brasilíu með Júgó-
slövum, Skotum og Zaire-mönnum.
f þriðja riðli komu Hollendingar,
Svíar, Búlgarir og Uruguaymenn,
og í þeim fjórða voru ftalir,
Argentínumenn, Pólverjar og
Haití-menn. Skipulag keppninnar
var á þann veg að tvær efstu
þjóðirnar komust áfram í milliriðla,
þannig að efstu þjóðirnar í fyrsta og'
þriðja riðli kepptu við þær sem
höfðu lent í öðrum og fjórða riðli,
og efstu þjóðirnar i öðrum og fjórða
kepptu við þá sem voru númer tvö
í fyrsta og þriðja.
Fyrirfram þótti sýnt að Brasilíu-
menn, heimsmeistarar frá 1970,
myndu eiga i miklum erfiðleikum
með að verja titil sinn. Pele var
horfinn á braut og þó enginn drægi
i efa að Brassarnir ættu mjög marga
hæfileikamenn voru margir efins um
að það dygði. ítalir, sem höfðu lent
i öðru sæti 1970, komu til álita sem
sigurvegarar en flestir munu liklega
hafa hallast að Vestur-Þjóðverjum.
Þeir kepptu á heimavelli sem alltaf
hefur gefist vel í þessari keppni og
undanfarinn áratug eða svo hafði
■landslið þeirra sífellt verið að
styrkjast. Þeir höfðu lent í öðru sæti
á Englandi 1966, þriðja sæti i
Mexikó 1970 og 1972 höfðu þeir
unnið Evrópumeistaratitilinn næsta
örugglega. Ymsir höfðu að visu trú
á Hollendingum og allir vissu að á
HM komu venjulega einhverjar
þjóðir reglulega á óvart, en það voru
sem sé Vestur-Þjóðverjar sem taldir
voru liklegastir til að sigra.
Heimsmeistararnir í
vörn
Keppnin hófst þann 13. júli i
Frankfurt, er heimsmeistarar Brasi-
líu mættu Júgóslövum. Það kom á
óvart að Brassarnir léku stifan
varnarleik en þeir áttu lika um sárt
að binda. Þeir höfðu misst Pele sem
fyrr sagði og þar að auki voru þeir
Gerson, Tostao og Clodoaldo allir
meiddir svo að úr heimsmeistaralið-
inu voru nú aðeins Riveline og
Jairzinho eftir. Styrkur liðsins var
vörnin og Leao reyndist betri en
enginn i markinu. Braslíumenn áttu
hættulegar skyndisóknir en létu
Júgóslava annars um að sækja,
markalaust jafntefli var niðurstað-
an. Júgóslavar þóttu sýna góðan
leik einkum þeir Maríé í markinu,
Buljan i vörninni og Acimovic í
sókninni.
Næsti leikur heimsmeistaranna
var einnig markalaus en i þetta sinn
gegn Skotlandi sem hafði sigrað
Zaire 2-0 í fyrsta leik sínum. Fyrstu
tuttugu minútur leiksins virtust
suður-amerísku meistararnir ætla að
leika Skota sundur og saman, en
þeir siðarnefndu tóku sig saman i
andlitinu og brátt var svo komið að
Billy Bremner réði lögum og lofum
á miðjunni. David Hay var við hlið
hans og báðir áttu mjög hættuleg
marktækifæri en skot þeirra fóru
nokkrum sentimetrum framhjá.
Hotlon og Buchan héldu Jairzinho
algerlega niðri, Lorimer og Morgan
áttu báðir góðan leik en Skotum
tókst ekki að sigra. 0-0 í leik sem
flestum fannst að Skotar hefðu átt
að vinna.
Sama dag og þessi leikur fór fram
malaði júgóslavia lið Zaire sem hafði
komið mjög á óvart gegn Skotum.
Úrslit urðu 9-0 og í leik sinum gegn
Júgóslövum urðu Skotar þvi að sigra
til að komast áfram í milliriðil eða
vona að Brössunum tækist aðeins að
vinna Zaire með eins marks mun.
Þessir leikir fóru fram á sama tíma
og i hálfleik var útlitið ekki slæmt
fyrir Skota, ekkert mark hafði verið
skorað í leik þeirra og Brasilíumönn-
um hafði aðeins tekist að skora einu
sinni gegn Zaire. En er siðari
hálfleikur var hálfnaður þrumaði
Riveline vinstrifótar skoti i mark
Zaire og stuttu siðar bætti Valdo-
miro því þriðja við. Og í leik Skota
sjálfra hallaði á ógæfuhliðina. Kar-
asi sem kom inn á sem varamaður
fyrir Júgóslava skoraði með skalla
rétt fyrir leikslok og Skotar þurftu
því að skora tvö mörk á sjö
minútum. Það tókst ekki en Joe
Jordan tryggði Skotum jafntefli með
marki á siðustu minútu. Júgóslavar
komust áfram á hagstæðari marka-
tölu og Skotar gátu nagað sig i
handarbökin fyrir kæruleysið gegn
Zaire.
Töpuðu V-Þjóðverjar
viljandi?
í fyrsta riðlinum hófst keppni með
leik gestgjafanna gegn Chile. Chile-
búar voru komnir i keppnina eftir
Franz Beckenbauer. Paul Breitner við öllu búinn.
undarlegri leið. Þeir höfðu þurft að
keppa við Sovétmenn um sæti i
úrslitakeppninni, náðu markalausu
jafntefli í Sovétrikjunum en þá
gerðu hægrisinnaðir herforingjar
uppreisn gegn Allende Chileforseta
og Sovétmenn neituðu að leika
siðari leikinn. Chilemenn stóðu sig
að visu gegn stjörnuliði Vestur-
Þjóðverja sem hafði innan sinna
vébanda menn á borð við Franz
Beckenbauer, Gerd Múller, Paul
Breitner o.fl. Chilebúar börðust af
hörku en höfðu ekki erindi sem
erfiði, töpuðu leiknum en að vísu
aðeins 1-0. Þeir náðu síðan jafntefli,
1-1, gegn hinum sterku Austur-Þjóð-
verjum sem höfðu unnið Ástrali 2-0
i fyrsta leik sínum. Vestur-Þjóð-
verjar höfðu á hinn bóginn unnið
Ástralíu 3-0 svo fyrir siðustu um-
ferðina höfðu bæði þýsku liðin
tryggt sér sæti i milliriðli. Spurningin
var aðeins hvor þjóðin sigraði i
þessum riðli en þess má geta að
leikur Austur- og Vestur-Þjóðverja
í siðustu umferðinni var fyrsti lands-
leikur þessara aðila frá því Þýska-
landi var skipt í tvennt eftir seinni
heimsstyrjöld. Austur-Þjóðverjar
unnu með einu marki gegn engu og
var almælt að Vestur-Þjóðverjar
hefðu tapað þessum leik viljandi.
Þeir þvertóku fyrir það en með því
að lenda i öðru sæti i riðlinum
komust þeir hjá því að mæta hinum
ógnvænlegu Hollendingum fyrr en i
fyrsta lagi i úrslitaleiknum.
Hollendingar í ham
Og Hollendingar voru vissulega
ógnvænlegir. Undir stjórn hins
fræga Rinus Michels höfðu þeir
auðveldlega tryggt sér sæti i
miiliriðli.enda auðvelt fyrir lið sem
hafði í röðum sínum bakverði á borð
við Suurbier og Krol, miðvallarspil-
ara eins og Neeskens og Van
Hanegem fyrir utan sjálfan Johan
Cruyff sem að margra mati var besti
knattspyrnumaður heims og skyggði
á sjálfan Beckenbauer. Hollending-
ar léku mjög skemmtilega knatt-
spyrnu sem færði þeim sigur, 2-0,
gegn Uruguay i fyrsta leiknum.
Uruguay-menn voru að visu ekki
upp á marga fiska og virtust aðallega
treysta á ruddaskap og grófan leik
til að vinna sigur. Þrir leikmenn
voru bókaðir í leiknum við Hollend-
inga og einn rekinn út af og hinir
einu sem sýndu snefil af getu voru
markvörðurinn Mazurkiewicz og
miðvailarleikmaðurinn Rocha.
Þetta lið gerði síðan jafntefli við
Búlgari, 1-1, og tapaði siðan 0-3
fyrir Svíum og það var þungt hljóðið
i Uruguay-mönnum er þeir héldu
heim. Þjálfarinn, Roberto Porta,
var rekinn en hann kvaðst dauðfeg-
inn að losna: „Við höfum aldrei
spilað verri fótbolta. Þetta er
þjóðarhneyksli."
Sviar komu reyndar á óvart í
keppninni. Þeir byrjuðu á þvi að
gera markalaust jafnrefli við Búlg-
ara - sem var miðlungs lið ef ekki
hefði verið fyrir Panev - og síðan
héldu þeir Hollendingum i skefjum,
aftur 0-0, en unnu sem sagt öruggan
sigur á Uruguay í siðasta leiknum.
Það var ekki sist Ronnie Hellström,
snillingurinn í sænska markinu, sem
kóm liði sínu i milliriðil en Grahn
og Bo Larsson á miðjunni og
markaskorarinn Ralf Edström stóðu
sig einnig mjög vel. Svíar fylgdu þvi
Hollendingum, sem slátruðu Búlg-
örum 4-1, upp i milliriðil. Tvö af
mörkum Hollendinga skoraði Johan
Neeskens úr vítaspyrnum.
Fyrsta markið hjá Zoff
í 1.143 minútur
Þá á aðeins eftir að greina frá
fjórða riðli sem hófst með keppni
ítala og Haitibúa. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en i upphafi
þess siðari gerði Haiti-leikmaðurinn
Sanon sér litið fyrir og renndi
knettinum framhjá Dino Zoff i
italska markinu. Þetta var fyrsta
markið sem Zoff hafði fengið á sig
í 1.143 mínútur í landsleikjum og
áhorfendur veltu nú fyrir sér hvort
þama væm að verða óvæntustu
úrslit i heimsmeistarakeppni siðan
Bandarikin unnu England árið 1950
og Norður-Kóreumenn unnu ítali
66. En svo fór ekki. ítalir tóku sig á
og þó markvörður Haiti-manna,
Francillon, stæði sig frábærlega vel
dugði það ekki gegn itölsku
framlinunni sem skoraði að lyktum
þrjú mörk. Eftirmáli þessa leiks var
sorglegur. í lyfjaprófun eftir leikinn
kom i ljós að einn varnarmanna
Haiti, Ernest Jean-Joseph, hafði
tekið örvandi lyf fyrir leikinn. Hann
átti refsingu yfir höfði sér fyrir það
en Haiti-yfirvöld ákváðu sjálf að sjá
um refsinguna. Samkvæmt sérstök-
um skipunum Jean-Claude Duvali-
er, sonar „Papa Doc“, var Jean-Jos-
eph misþyrmt hræðilega, hann siðan
sendur heim og hefur ekki til hans
spurst eftir það.
Sama dag og Haitibúar velgdu
ftölum undir uggum léku Pólverjar
gegn Argentinumönnum. Pólverjar
höfðu orðið ólympíumeistarar árið
1972 og réðu yfir mjög skemmtilegu
og öflugu liði sem m.a. hafði komið
i veg fyrir að Englendingar kæmust
i heimsmeistarakeppnina að þessu
sinni. Lubanski var að visu meiddur
og gat ekki leikið en Pólverjar áttu
að því er virtist nóg af öðrum
frábærum leikmönnum. Deyna var
einhver snjallasti miðvallarspilarinn
i heiminum, Zmuda og Gorgon voru
mjög kraftmiklir varnarmenn og
allir markverðir höfðu ástæðu til að
óttast framlínumennina Lato og
Szarmach. Þeir skoruðu líka báðir
mörk i 3-2 sigri Póllands gegn
Argentínu, og samanlagt skoruðu
þeir fjögur mörk er Pólverjarnir
tættu Haiti í sig, 7-0, þrátt fyrir
snilldar markvörslu Francillons sem
einn kom i veg fyrir að mörk
Pólverja yrðu hátt á annan tug.
Pólverjar sýna snilldar
takta
Sama dag gerðu Argentina og
ítalia jafntefli, 1-1, i skemmtilegum
leik. Af 72 þús. áhorfendum voru 50
þúsund ftalir en þeir áttu engu að
síður i vök að verjast - markaskorar-
inn Riva og tengiliðurinn Rivera
voru í slæmu formi og þjálfarinn
Valcareggi gerði þau mistök að láta
sóknarleikmanninn Capello gæta
hættulegasta sóknarmanns Argen-
tínumanna, Housemans. Capello
tókst ekki betur til en svo að
Houseman skoraði fallegt mark og
eina mark ítala var sjálfsmark
Argentínumannsins Perfumo. Það
nægði ítölum til jafnteflis og þeir
þurftu þvi aðeins annað jafntefli
gegn Pólverjum i síðasta leiknum til
að komast áfram. En Pólverjar voru
ekki á því. Þeir unnu 2-1 en þær
tölur lýsa gangi leiksins illa.
Pólverjar höfðu nefnilega algera
yfirburði á vellinum og þó Mazzola
og Facchetti léku vel af hálfu ftala
dugði það ekki gegn þvi pólska
miðvallartríóinu Deyna, Kasper-
czak og Maszczyk en séðastnefndi
Pólverjinn var besti maður leiksins
og skoraði annað markið. ftalski