Tíminn - 06.06.1982, Qupperneq 13
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
■ Johan Cruyff fagnar marki með félögum sinum i Ajax,
þjálfarinn sem hafði sett þá Rivera
og Riva út úr liðinu vegna slæmrar
frammistöðu þeirra gegn Argentinu-
mönnum gat nú nagað sig í
handarbökin. ftalir sem höfðu lent í
öðru sæti í Mexíkó komust nú ekki
einu sinni í milliriðil vegna þess að
Argentínumenn unnu Haiti örugg-
lega, 4-1, þó Francillon stæði sig sem
fyrr eins og hetja. ítölsku áhorfend-
umir á leiknum gegn Pólverjum
vöktu mikla athygli er þeir gerðu
aðsúg að eigin mönnum svo þeir áttu
fótum fjör að launa.
Lokastaðan í riðlunum fjórum var
þvi á þessa leið:
l.riðill:
A-Þýskaland
V-Þýskaland
Chile
Ástralía
3 2 1 0 4-1 5
3 2 0 1 4-1 4
3 0 2 1 1-2 2
3 0 1 2 0-5 1
2. riðill:
Júgóslavía
Brasilia
Skotland
Zaire
3120 10-1 4
3 1 2 0 3-0 4
3 1 2 0 3-1 4
3 0 0 3 0-14 0
3. riðill:
Holland
Svíþjóð
Búlgaría
Uruguay
3 2 1 0 6-1 5
3 1 2 0 3-0 4
3 0 2 1 1-4 2
3 0 12 1-61
4. riðill:
Pólland
Argentína
Ítalía
Haiti
3 3 0 0 12-3 6
3111 7-53
3 111 5-4 3
3 0 0 3 2-14 0
Þjóðunum átta sem eftir voru var
nú skipt niður í tvö milliriðla eftir
fyrrnefndum reglum. í A-riðli voru
Hollendingar, Austur-Þjóðverjar,
Brasilíumenn og Argentínumenn,
en í B-riðli voru Pólverjar, Júgó-
slavar, V-Þjóðverjar og Svíar. f
A-riðli höfðu Hollendingar yfir-
burði. í fyrsta leiknum spiluðu þeir
Argentínumenn sundur og saman,
Cruyff stjórnaði liði sinu eins og
herforingi og skoraði sjálfur tvö
mörk en Johnny Rep og Rudi Krol
bættu tveimur við svo úrslit urðu
4-o. í sama riðli unnu Brassarnir
Austur-Þjóðverja með einu marki
gegn engu, Rivelino skoraði eftir
aukaspymu. Brasilíumenn virtust
nú óðum að taka sig á þvi i næsta
leik unnu þeir Argentínu örugglega,
2-1. Rivelino og Jarizinho skoruðu
mörkin. Á meðan unnu Hollending-
ar Austur-Þjóðverja 2-0.
Cruyff & Co., taka
Brasilíumenn í kennslu-
stund.
En þeir sem höfðu vonað að
Brasilíumenn færu nú að sýna gamla
takta urðu fyrir vonbrigðum i
síðasta leik riðilsins þegar Hollend-
ingar tóku heimsmeistarana i
kennslustund í fótbolta. Hollensku
leikmennirnir höfðu mikla yfirburði
í leikni og harkan sem Brasilíumenn
gripu til dugði engan veginn. Einn
þeirra, Pereira, var sendur af
leikvelli eftir að hafa fellt Neeskens
mjög gróflega. Neeskens stóð sig
reyndar mjög vel og átti sendingu á
Cmyff sem gaf fyrsta markið. Cmyff
skoraði einnig síðara mark Hollend-
inga en nú eftir sendingu frá Rob
Rensenbrink. Hollendingar höfðu
þannig unnið riðilinn mjög örugg-
lega og skyldu leika til úrslita um
heimsmeistaratitilinn. Brasilíu-
menn urðu í öðru sæti og fengu að
keppa um 3.-4. sætið. Viðbrögð
heimamanna í Brasilíu voru
ofsafengin, gengið var með
likkistur merktar leikmönnum liðs-
ins um götur og brúða í líki
þjálfarans brennd opinberlega.
í B-riðli byrjaði keppni á leik
Pólverja og Svia sem Pólverjar unnu
1:0 með marki Latos, en hann átti
eftir að verða markhæstur i keppn-
inni. Um sama leyti unnu Vestur-
Þjóðverjar Júgóslava 2-0. í þessum
leik notuðu Þjóðverjar Rainer
Bonhof i fyrsta skipti og hann
reyndist góð vítaminssprauta fyrir
leik Þjóðverjanna. Beckenbauer
stjórnaði liðinu af öryggi en Gerd
Muller sá að venju um að skora og
gerði hann bæði mörk þýska liðsins.
í næsta leik sinum áttu Þjóðverjar
við Svía að etja. Svíar náðu
forystunni í fyrri hálfleik og höfðu
1-0 yfir í leikhlé en í seinni hálfleik
lék þýska liðið frábærlega vel, sér i
lagi þeir Beckenbauer og Bonhof.
Á þriggjaminútna kafla stuttu eftir
leikhlé voru skoruð þrjú mörk en
leiknum lauk 4-2 fyrir Vestur-Þjóð-
verja. Sama dag unnu Pólverjar
Júgóslava 2-1 með mörkum Deyna
og Latos og því ljóst að siðasta
umferðin réði úrslitum um hverjir
færu i úrslitaleikinn, Pólverjar eða
Vestur-Þjóðverjar.
Y-Þjóðverjar sýna
klærnar
Leikur þeirra varð æsispennandi.
Tomaszewski varði víti frá Holzen-
bein en Sepp Maier i þýska markinu
varði tvisvar á ótrúlegan hátt frá
Lato og Gadocha sem stappaði
stálinu í Þjóðverja. Beckenbauer
stýrði vörn þeirra mjög vel og á
miðjunni náðu Bonhof, Hoeness og
Wolfgang Overath smátt og smátt
undirtökunum gegn snillingunum
Deyna og Kasparcak. í síðari
hálfleik skoraði Gerd Muller eina
mark leiksins og Þjóðverjar voru
komnir í úrslitin gegn Hollending-
um. Pólverjar kepptu um 3.-4. sætið
við heimsmeistara Brasilíu og unnu
góðan sigur enda þótt aðeins eitt
mark væri skorað, þar var Lato á
ferðinni. Á meðan unnu Svíar
Júgóslava 2-1 í skemmtilegum leik
sem einkenndist ekki síst af snilldar-
markvörslu þeirra Hellströms og
Maric. Lokastaðan í milliriðlunum
var því þessi:
A-riðill:
Holland
Brasilía
Austur-Þýskaland
Argentina
3 3 0 0 8-0 6
3 2 0 1 3-3 4
3 0 12 1-41
3 0 1 2 2-7 1
B-riðiII:
Vestur-Þýskaland
Pólland
Svíþjóð
Júgóslavia
3 3 0 0 7-2 6
3 2 0 1 3-2 4
3 1 0 2 4-6 2
3 0 0 3 2-6 2
Úrslitaleikurinn milli Hollands og
Vestur-Þýskalands var háður í
Múnchen og liðin sem gengu inn á
völlinn voru þannig skipuð:
V-Þýskaland: Maier í markinu,
Vogts, Schwarzenbeck, Becken-
bauer og Breitner í vörninni, Bohof,
Hoeness og Overath á miðjunni og
í framlínunni Grabowski, Múller og
Holzenbein.
Holland: þar stóð Jongbloen í
marki, Suurbier, Rijsbergen, Haan
og Krol voru til varnar, Jansen,
Neeskens og Van Hanegem voru í
miðið en fremstir fóru þeir Johnny
Rep, Johan Cruyff og Rob Rensen-
brink.
Víti á fyrstu mínutu
dugði ekki!
Leikurinn var varla hafinn þegar
afar umdeilt atvik átti sér stað.
Innan einnar mínútu hafði enski
dómarinn Jack Taylor dæmt viti á
þýska liðið, en þá hafði enginn
Þjóðverji snert boltann, hvað þá
meira! Neeskens skoraði úr vitinu
og staðan var 1-0 fyrir Holland.
Næstu 25 mínútur léku Hollend-
ingar ánægðir á milli sin og reyndu
vart að ógna Þjóðverjum sem trúðu
ekki sinum eigin augum. En á 26.
mínútu fengu Þjóðverjar víti er
Jansen brá Holzenbein innan víta-
teigs og Paul Breitner jafnaði fyrir
Þýskaland. Rétt fyrir hálfleik var
svo Gerd Múller á ferðinni og kom
Þjóðverjum i 2-1 og Hollendingum
var hætt að lítast á blikuna. í seinni
hálfleik sóttu þeir stíft en tókst ekki
að skora mörk. Þar réði án efa mestu
að Berta Vogts tókst mjög vel að
halda Johan Cruyff niðri og það
hafði slæm áhrif á leik Hollendinga.
Cruyff var alveg efunarlaust besti
sóknarleikmaðurinn á sinni tíð og
spil Hollendinga byggðist mjög á
honum. Eftir að sjálfstraust Þjóð-
verja óx og Frans Beckenbauer
hafði tekist að koma skipan á
vörnina áttu Hollendingar ekkert
svar. Þeir léku snilldarlega úti á
vellinum, en tókst ekki að koma
knettinum i markið. Rene Van der
Kerkhof kom inn á i staðin fyrir
Rensenbrink er það breytti engu
og timinn leið, að lokum flautaði
dómarinn til leiksloka. V-Þjóð-
verjar voru heimsmeistarar við
gifurlegan fögnuð sinna manna.
Hollendingar sátu eftir með sárt
ennið, það lið sem að flestra dómi
hafi leikið skemmtilegustu knatt-
spyrnuna í keppninni, og raunir
þeirra voru ekki á enda. 1978
töpuðu þeir úrslitaleik heimsmeist-
arakeppninnar fyrir Argentinu og
nú 1982, eru þeir ekki einu sinni
með. Skitt!
13
LÁGMÚLI 5. SlMI 81555
"////£^"////Á
Fella TH 520 Vinnslubreidd 5,20 m.
Vélin hefur fjórar snúningsstjörnur og sex
arma á hverri stjörnu. Dreifir þvi mjög
vel úr múgunum og tætir heyið. Kastar frá
skurðbökkum og fylgir vel eftir á ójöfnum.
Afkastamikil heyþyrla sem hentar flest-
um.
Lang hagstæðasta verðið á markaðnum
Tryggið ykkur vélar úr
fyrstu sendingu
6 armá Ostjörnu heyþyrla með
6,7 m vinnslubreidd. Hagnýtið ykkur nú-
tima tækni og vinnuhagræðingu.
Tryggið ykkur eina þeirra.
Verð aðeins 24.900,-
Umboðsmenn Tímans Suðurnes
Staöur: «; ♦ Nafn og’heimili: ,Simi:
Grindavik: Ólina Ragnarsdóttir, . -
Asabraut 7 »2-8207
Sandgerði: Kristján Kristmannsson,
Suöurgötu 18 1)2,7455
Keflavik: Éygló Kristjánsdóttir,'
Dvergasteini Erla Guftni undsdóttir. »2-1458
Greniteig 45 %2-1165
Ytri-Njarövik: Sigurbjörg Kristjánsdóttir,
Brekkustig 29 92-3424
Hafnarfjöröur: Hulda Siguröardóttir,
Klettshrauni 4 j 91-50981
Garöabær: Helena Jónasdóttir,
Holtsbúö 12 91-44584
— KMt.Víi'ifczáSS
'/& v'/JT^
'/
heyvinnuvélar
frá TéUa
Sú afkastamesta á markaðnum
Verð aðeins 33.600,-