Tíminn - 06.06.1982, Qupperneq 28
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
Uppgjörið
Alfreð Alfreðsson
segir hingað og ekki lengra
■ Bánk, bánk, bánk - þrisvar sinnum
bánk frá myrkvuðum glugganum.
„Ónei! Hann - einu sinni enn!“
Heyrði bánkarinn utan við gluggann
sagt hvellri kvenmannsröddu.
„Jess, pliiiis! Æ vill dæ!“ Kallaði hann
ámóti.
„Ég vil aldrei sjá þig framar, helvitis
ónytjungurinn!" hrópaði konan og var
nú búin að opna gluggann beint á nefið
á manninum. „Ekki eftir það sem þú
gerðir mig á Hótel City. Ef þú kemur
hingað einu sinni enn, þá læt ég nýja
manninn minn taka þig í gegn!”
Úfinn kollurinn á Arfi Kelta gægðist
yfir öxlina á Skass Holeman - þvi þetta
var hún. „Já, gerðu eins og konan segir,“
sagði hann með djúpri bassarödd.
„Snautaðu burt, segi ég. Þú ert búinn að
koma fimm sinnum i kvöld.“
Þau höfðu nefnilega gert áhlaup á og
síðan lagt undir sig kjallaraholu
Uxaskalla í Hlíðunum - Arfur Kelti og
hin nýja lagskona hans Skass Holeman,
en fengu engrar hjónabandssælu notið
fyrir sífelldum heimsóknum Cash
Holeman, löglegs eiginmanns kvensunn-
ar.
En hvar var Almannagjá, sú blíðlynda
stúlka? Það er von þið spyrjið. jú, Cash
Holeman hafði orðið leiður á henni og
framselt hana til vinar síns i
nasistabúningnum en sá þjáðist af
kvalalosta. Sakleysi hinnar hjartahreinu
stúlku úr Keflavík var svo algert að.
nasistinn fylltist skömm á henni, og lét
hana eftir vininum i jólasveinabúning-
num. Við látum vera að fjölyrða um
öfughneigðir hans. Á meðan ráfaði
Uxaskalli utan við sig og ástfanginn um
bæinn og var meira að segja farinn að
yrkja. eitt ljóða hans hafði birst í Lesbók
Morgunblaðsins:
„Ó Almannagjá,
ég vill þig fá,
vertu mér hjá,
og þá og þá..“
Lengra var hann ekki kominn en
ljóðið var talið betra fyrir vikið.
í Hlíðunum færðist Cash Holeman í
aukana.
„En Skass beibí, ég elska þig, fucking
elska þig. Ég er glataður maður ef þú
tekur ekki við mér, ég er búinn að læra
mína lexíu, nú skal ég fara á fucking
bilaverkstæðið."
Arfi Kelta vöknaði um augu af hinni
hreinu ást mannsins sem stóð hundvotur
úti í rigningunni í leðurjakka og
skyrtubol með áletruninni „Fuck the
system". Arfur þekkti ekki sannari
dæmi um ástina en að maður skyldi
reiðubúinn til að vinna á bifreiðaverk-
stæði til að sigra hvikult kvenmanns-
hjarta. En kvenmannshjartað haggaðist
aftur á móti ekki:
„Farðu! Éger búin að finna mér nýjan
mann, traustan og ábyggilegan. Hann
ætlar að vinna fyrir mér og láta mig
ekkert skorta."
„Hver er það“ spurði Arfur Kelti
forvitinn.
„Halt þú kjafti, ræfillinn þinn!“ sagði
konan höst og það rann ljós upp fyrir
Arfi Kelta. Honum rann kalt vatn milli
skinns og hörunds, kannski kæmist hann
aldrei burt? Allt i einu heyrðist söngl út
á götunni sem færðist nær og varð
greinilegra, og meðfylgjandi reykelsis-
ilmur sem lagðist eins og Lundúnaþokan
yfir sviðið. Það var eins og það væri
runnin upp þúsund og ein nótt, utan úr
rigningunni birtist ókemmilegt par, i
hvítum kyrtlum og með vefjarhnetti,
konan hringlaði bjöllum og maðurinn
barði bumbur. Hann sönglaði drafandi
röddu:
„Látið ekki hugfallast, látið ekki
hugfallast, þetta allt er ekki annað en
hluti af stærra prójekti, miklu stærra
prójekti sem umlykur kosmos þessa
heims og annars... Heimsendir er i
nánd. Vei! Vei!“
Almannagjá og komsóbíólógiski
maðurinn. Hafði jólasveinninn líka
gefist upp á að spilla Almannagjá?
En nú gat Uxaskalli, sem lá í leyni í
runna i garðinum, ekki setið á sér
lengur. „Almannagjá! Almannagjá!"
hrópaði hann og brölti á fætur. „Hvað
eru þeir búnir að gera við þig? Ég skal
sko sýna þessum durtum!" Og á sama
augabragði veltist hann um á jörðinni
með kuflmanninn undir sér. Frá honum
streymdu kosmóbfólógiskar sársaukast-
unur, hluti af stærra prójekti,
alheimssórsaukanum...
„Stillt íg Uxi, stillt' íg,“ heyrðist
valdsmannsleg rödd ofan úr nálægu
birkitré. Og á eftir kom eigandi
raddarinnar, lítill, pervisinn og refslegur
maður í grænum skógarmannajakka.
Hann gekk stillilega að poppstjörn-
unni, sem var eitthvað farin að missa
gljáann í rigningunni, og mælti: „Cash
Holeman, sjónarspil þitt er búið. Og
þú,“ hann beindi orðum sínum að
kuflmanninum sem nú var ataður for,
„skilaðu konunni til rétts eiganda. Cash,
þú færð fimm tíma til að hypja þig úr
landi með hyski þitt og pakk.
Annars er mér og minum mönnum að
mæta.“
Cash Holeman skimaði i kringum sig
eftir undankomuleið, en sá undir eins að
hér var við ofurefli að etja, Eddamir sex
höfðu slegið um hann hring, ávallt
reiðubúnir eins og endranær. Afsíðis
stóð Húnbogi, meistari i undirferlum,
og fylgdist ánægður með gildru sinni
smella í lás.
„Þú,“ sagði Alfreð Alfreðsson, og leit
hvasst á konuna sem nú var komin hálf
út um gluggann, „þú ferð með!“
„En ég sem var farin að kunna svo
ágætlega við mig hjá honum Arf
héddna..."
Arfur Kelti varp öndinni feginsam-
lega.
„En ég skal láta þig vita eitt áður en
ég fer, Mister Aldred Aldred, ef þú
stígur nokkum tima þínum fucking fæti
i Börmíngham, þá ferðu þaðan burt í
hjólastól, ef ekki bara í fucking likkistu.
Það sama gildir um fucking vini þína,“
sagði Cash Holeman að skilnaði og hvarf
út i regnið eins og barinn rakki.
Alfreð Alfreðsson hló sinum hvella
hlátri sem aldrei veit á gott.
Þannig atvikaðist það nú að Cash
Holeman poppstjama af Englandi og
félagar hans og eiginkona fóm af landi
brott við illan leik, óg em þau úr
sögunni.
Þegar þau komu aftur í laufskálann,
gamla gengið saman á ný, og allir fengu
óspart limonaði, blés Alfreð mæðinni og
sagði:
„Nú er nóg komið, strákar. Ég er
orðinn leiður á þessari sögu...“
Nýjustu fréttir herma að Glæsibæ-
jarmálið sé nú loks farsællega til lykta
leitt, dularfulli maðurinn í teinóttu
jakkafötunum bak við lás og slá og
Bóbó floginn vestur á Suðureyri með
Gunnari frænda að heimsækja mömmu
sina....
> *
BESTU KAUPINIAR
SLATTUÞYRLAN
Verð
aðeins
16.860
Klutningsslafta lrv88ft m,'ft öryKRis- ArvKKiskúplinK. staAsrlninK slattuhnlla
hunaiii.
LÁGMÚLI5
SÍMI81555
Er þú gistir
í Reykjavík þá býrð þú
í miðbænum
Borðið
Búið
Dansið
©
/•
Hótel Borg. s. 11440.
Umboðsmenn Tímans
IMorðurland
StaOur: Nafn og heimili: Simi:
Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson 95-1384
Ulönduós: ' Olga Óla Bjarnadóttir,
Arbraut 10! . 95-4178,
Skagastrpnd: Arnar Arnarson Sunnuvegi8 95-4646
Sauðárkrókurt ■„ Guttormur Óskarsson, 95-5200
Skagfiröingabr. 25 95-5141
Siglufjöröur: Friöfinna Simonardóttir, Aöalgötu 21 95-712*8
Olafsf jöröur: Skúii Friöfinnsson, *
Aöalgötu 48 96-62251
Dalvik: Akureyri: Brynjar Friðleifsson, Asvegi 9 Viöar Garöarsson, 96-61214
1 Kambageröi 2 96-24393
Húsavik: Hafiiöi Jósteinsson, Garöarsbraut 53 ••96-41444
Raufarhöfn: Arni Heiöar Gylfason, -
Sólvöllum .96-51258
Þórshöfn: Kristinn Jóhannsson. Austurveei 1 »6-81157'