Tíminn - 15.06.1982, Side 11
10
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982
11
í orkuspamaði
Plastþakrennurnar eru sérstæðar að því leyti til,
að öll samskeyti eru límd og brædd saman án allra
pakkninga, en þessi aðferð eykur varanleikann
verulega.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 SÍMl 82033
VERSLUNIN 82180 SÓLUMENN 82060 TfMBURSALAN ARMULI 29 82242
GUFUBÖÐ
Við flytjum inn frá Finnlandi tilbúin sauna-böð frá
hinu þekkta fyrirtæki S. Lagerholm AB.
Til boða eru margar gerðir af baðstofum, en vinsæl-
astar hafa þótt SISU og JOUTSEN. SlSU-baðstofur
eru frekar litlar og nettar, búnar til úr einföldum
þilplötum úr finnskri furu og auðvelt að setja upp.
JOUTSEN er úr sérlega völdum við og höfð í
hefðbundnum, finnskum stíl. Báðar þessar tegundir
eru framleiddar í mörgum stærðum. Einnig hefur
Lagerholm úrval af baðstofuofnum eftir þörfum
hvers og eins. Ekki er nóg að hafa baðstofu og ofn
því það eru aukahlutirnir, sem fullkomna sauna-
umhverfið, svo sem hitamælir, saunaburstar og
margt fleira.
LAGERHOLM
BAÐHERBERGISTÆKI
Stöðugt eru gerðar meiri og meiri kröfur til bað-
herbergja. Það sem þótti íburður í gær, þykir
sjálfsagður hlutur í dag.
Sambandið hefur um áratugaskeið svarað þessari
eftirspurn með innflutningi frá hinu þekkta, sænska
Gustavsberg fyrirtæki, sem m.a. er heimsþekkt
fyrir framleiðslu á listmunum í háum gæðaflokki.
Hreinlætistækin frá Gustavsberg hafa notið fádæma
HÚSAKLÆÐNING
Augu manna hafa opnast fyrir því, að nauðsyn er á góðri
einangrun húsa hér á landi.
Lausnin er GLAVA
Glava-einangrun er framleidd úr glerþráðum (glassfiber)
sem eru fléttaðir saman og þar á eftir formaðir eftir því
sem óskað er. Fyrir bragðið verður eðlisþyngd ein-
angrunarinnar mjög lítil og má nefna að glerullin frá
GLAVA hefur meiri einangrunareiginleika (varma og hljóð-
leinangrun) á massaeiningu, en önnur glerull.
vinsælda hér á landi og nú er svo komið að mark-
aðshlutdeild þeirra hér á landi er um 65%, þ. e.
2 af hverjum 3 tækjum sem flutt eru til landsins
eru frá Gustavsberg. Skýringin á þessu háa mark-
aðshlutfalli er sú að Gustavsberg hreinlætistæki
eru sniðin eftir þörfum og ströngum kröfum
Norðurlandabúa.
Þegar nýja baðherbergislínan frá Gustavsberg er
barin augum sést vel að listamenn Gustavsberg-
verksmiðjanna eru engir aukvisar á sínu sviði. Með
hinu nýja ávala, rétthyrnda formi hefur Gustavsberg
tekist að sameina fallegt útlit og þægindi.
Hvort sem þú ert að þyggja eða endurnýja þá hefur
Gustavsberg réttu hlutina. Möguleikarnir eru nær
ótakmarkaðir.
Gustavsberg er merkið sem þú athugar fyrst þegar
um val á hreinlætistækjum er að ræða. Gustavsberg
sænsk gæðavara.
PLASTVARA
Everlite a/s er danskt fyrirtæki, sem framleiðir
margs konar húshluti úr plasti, akryl og skildum efn-
um, svo sem þakrennur og niðurflöl, ýmiss konar
ofanljós, gegnsæjar og litaðar báruplastplötur,
reyklúgur og margt fleira.
Nýr ,,fasadpanel“ utanhúss fyrir nýbyggingar og til
endurklæðningar á gömlum húsum. ,,Fasadpanel“
er veðurvarin trefjaplata til utanhússnotkunar.
Klæðningin kemur grunnmáluð í stöðluðum stærð-
um: 1200x2745 mm og 11 mm þykk. Einnig fáanleg
eftir máli. Rakaþenslan er 0,7%. Ending er meiri
en á timbri, og því mjög hentug sem ysta klæðning
fyrir sumarbústaði, einbýlishús, skemmur og birgða-
stöðvar.
BLÖNDUNARTÆKI
Damixa framleiðir margvíslegar tegundir af sturtu-
búnaði og má hér nefna tvær tegundir. Fyrst ber
að kynna Damixa variant handsturtukerfið. Með því
einu að snúa arminum í festipunkti sínum færist
hann í allar mögulegar áttir. Sturtubúnaðinum er
auðvelt að koma fyrir og er einungis festur með
einni skrúfu.
Damixa blöndunartæki er fullkomið sett af blönd-
unartækjum í baðherbergi, fyrir vaskinn, skolskál-
ina, baðkerið og sturtuna. Hér er boðið blöndunar-
tæki með veggfestingum. Með þeim er hægt að fá
mikið úrval af stútum og úðurum. Einsarma- blönd-
unartæki þurfa, eins og nafnið bendir til að hreyfa
arminn, sem stýrir rennsli og hitastigi vatnsins.
Veggblöndunartækin er hægt að festa í lóðrétta
stöðu og fást þau með margvíslegum stútum og úð-
unarútbúnaði.
Damixa hefur í mörg ár verið þekkt fyrir einsarms-
blöndunartækið en kynnir nú einnig tvíarmablönd-
unartæki.
Tvíarmablöndunartækin eru samt ekki byggð á hinni
venjulegu þrýstingsminnkun, heldur á teflonhúð-
uðum loka, sem rennur létt og auðveldlega á móti
stýriseiningu blöndunartækisins og gefur langan
endingartíma. Stýringin létt og auðveld og ræðst
rennslis- og hitastýringin á fjórðungi úr hring.
m,
oT o
1L | Jf
BAÐKLEFAR
Huppe Duscha teg. 2000 er einfaldur í sniðum og
stílhreinn. Stór, þrískipt rennihurð rúllar létt og auð-
veldlega á hjólum með kúlulager. Hreyfing hurð-
arinnar er dempuð og lokast hún mjúklega og fyrir-
hafnarlaust. Efnið í hinum smekklegu listum er ál
með sérlega gott tæringarþol og yfirborð, sem
auðvelt er að þrífa. Sporin sem hurðin rennur á eru
opin og án allra skora, þar sem óhreinindi gætu
safnast fyrir og því ýtrasta hreinlætis gætt.
Huppe Duscha teg. 3000 er stolt fyrirtækisins í
framleiðslu baðklefa, enda nálgast hann fullkomnun.
Það þýðir ekki aðeins, að hann uppfylli allar kröfur
um þægindi, heldur er hann einnig stórglæsilegur
útlits og sker sig úr í Húppe Duscha framleiðslunni.
Nýjarog mótandi hugmyndir, góður efniviður, natni
í öllum smáatriðum og verðlaunuð hönnun er ein-
kenni Húppe Duscha framleiðslu.
Huppe
[Duschaj