Tíminn - 15.06.1982, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982
Innréttingahúsið býður:
Innréttingar
f öll herbergi
■ Innréttingahúsið hf. flytur inn
innréttingar frá þeim frægu framleið-
endum HTH kökkener i Danmörku.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins og
einn af meðeigendum er Sigurður
Karlsson. Við báðum hann að segja
svolitið frá fyrirtækinu.
„Við erum búnir að flytja inn
innréttingar í fjögur ár. Fyrst vorum
við með umboð fyrir norskar
innréttingar, en hættum við þær og
tókum þessar dönsku á síðasta ári.
Við erum meðal þeirra stærstu í
innréttingainnflutningi, fluttum á
síðasta ári inn milli þrjú og
fjögurhundruð eldhúsinnréttingar.
Við urðum að hætta við þær norsku
vegna þess að gengi norsku krónunn-
ar er óhagstætt og norsk framleiðsla
verður því dýr.
Þetta danska fyrirtæki er mjög
gott að eiga viðskipti við. Það er í
mjög örum vexti, veltan hjá því
hefur tuttugu og þrefaldast á siðast
liðnum átta árum. Það er mjög
athyglisvert, þar sem mjög mikill
samdráttur er i dönskum bygginga-
iðnaði. Fyrirtækið er rekið af
tveimui*bræðrum, sem byrjuðu fyrir
15 árum í smáskúr en eru núna með
fyrirtæki sem veltir 300 milljónum
danskra króna á ári og hefur nær 500
starfsmenn.
Þetta fyrirtæki hefur lagt mikla
áherslu á að bjóða aðlaðandi vöru
og góða og hefur bæði „Varefakta"
og „Möbelfakta” viðurkenningar.
Þetta eru raunar einu innréttingarn-
ar, sem seldar eru hér á landi, sem
Enginn efast
umgæðinfra
Gener
Þvotturinn þinn á aðeins skilið það besta
ÞVOTTAVÉL — tekur allt að 9 kg. og tekur inn á sig
heitt og kalt vatn.
Stillanlegt vatnsmagn í samræmi við þvottinn hverju sinni.
ÞURRKARI — tekur allt að 7 kg. af þurrum þvotti.
Meðal þurrktími 60-70 mín. 3 mismunandi hitastillingar.
hafa báðar þessar viðurkenningar.”
- Hvernig stendur þetta á íslensk-
um markaði?
„Vegna þess að gengi íslensku
krónunnar hefur ekki verið látið sfga
í takt við innlendar kosnaðarhækk-
anir, er tiltölulega auðvelt að selja
þetta hér. Nýleg verðkönnun sýndi
að þetta eru meðal ódýrustu
innréttinga á markaðnum hér.
Hinsvegar hefur Viðskiptaráðun-
eytið sett á okkur innborgunarskyldu
sem er i gildi á þessu ári. Innborgun-
arskylda er þannig að þegar varan er
greidd i banka þarf að greiða 35%
af upphæðinni inn á geymslureikning
með lágum vöxtum og þar er það
geymt i 90 daga. Þannig getur
fyrirtækið orðið að liggja með stórfé
á lágum vöxtum inni á geymslureikn-
ingi, en á i erfiðleikum með að fá
jafnvel helminginn af þeirri upphæð
að láni í bönkum með miklu hærrí
vöxtum. Af þessu hlýst bæði
vaxtatap og verulegir greiðsluerfiðl-
eikar.”
- Hver er hlutur innfluttra
innréttinga á markaðnum hér?
„Um 35% en var fyrir þrem árum
10-15%. Ef miðað er við þyngd, er
aukningin í fyrra frá árinu áður um
100% og virðist ætla að verða eins
mikil í ár.”
- Á þessi framleiðsla, sem þið
seljið, velgengni sína að þakka
einhverjum sérstökum svip?
„Nei, þetta fyrirtæki stílar uppá
mikla sölu og framleiðir þvi margar
útlitsgerðir, svo flestir geti fundið
þar það sem þeim líkar. Við bjóðum
innréttingar með átta mismunandi
möguleikum á útliti, frá hvítmáluðu
í harðvið af mismunandi gerðum.“
- Og þið bjóðið innréttingar í öll
herbergi?
„Við höfum eldhúsinnréttingar,
baðherbergisinnréttingar, fataskápa
innréttingar í þvottaherbergi, barna-
herbergi o.fl.“
-Hvemir starfið þið með hús-
byggjendum?
„Þeir sem em að byggja eða
endumýja koma hingað með hug-
myndir sinar, eða teikningar. Sfðan
skipuleggjum við eða teiknum út frá
því. Ef svo ber undir og þess er þörf,
þá komum við á staðinn og mælum
upp húsnæðið og geram nákvæmt
tilboð. Hjá okkur starfar stulka sem
er f námi í innanhússarkitektúr og
sér um þessa hlið málanna.
Hver innrétting er sérpöntuð og
það tekur um 6-8 vikur að fá hana,
frá pöntunardegi. Afgreiðslutimi
hjá okkur er mjög svipaður þvi sem
er hjá fslenskum framleiðendum.
Við útvegum svo menn til að setja
innréttingamar upp.
Kjörin era þannig að við pöntun
er borgaður þriðjungur verðsins og
svipað við afhendingu, en síðasta
þriðjunginn lánum við í 4-6 mánuði,
„sagði Sigurður Karlsson.
-SV.
„OFNAR NÁ-
CRANNANS
OKKAR BESTA
AUGLÝSING”
— segir Bjarni Kristinsson,
framkvæmdastjóri Funaofna
■ „Funaofnar” f Hveragerði vora
stofnaðir árið 1978 á grandvelli
fslenskrar uppfínningar f ofnasmfði
og sá vfsir sem þá óx úr grasi hefur
vaxið og dafnað, svo nú á fyrirtækið
mikil viðskipti f öllum landshlutum
og sú auglýsing sem hefur orðið því
drýgst era „ofnamir f húsi nágraim-
ans”, eins og Bjami Kristinsson,
framkvæmdastjóri, orðaði það f
samtali við okkur, en hann rekur
fyrirtækið ásamt Indriða bróður
sfnum.
Bjami sagði, þegar við ræddum
við hann, að fýrirtækið hefði orðið
fyrir talsverðum örðugleikum f byrj-
un, vegna þess að húsnæði þess
brann seinnipart árs 1978. En þá var
strax hafist handa við byggingu nýs
húsnæðis, sem flutt var í fyrir
tveimur áram. Er það mjög hentug
450 fermetra bygging.
„Hér starfa 12-15 manns,” segir
Bjami, „en framleiðslan hefur aukist
ár frá ári. Sem áður segir er þetta
alfslenskur ofn, sem ekki byggir á
neinu einkaleyfí erlendis frá og með
vaxandi eftirspum höfum við komið
okkur upp æ betri vélakosti, svo sem
vél sem sýður stálið sjálf, en við
búum ofnana til úr finnsku stáli, sem
valsað er í Danmörku. Þetta era
prófilrör, sem við fáum í sex metra
lengjum og bútum niður sjálfír.
Rörin era sett þannig upp að þau
stýra rennslinu fram og til baka í
ofninum, sem veldur mjög góðri
nýtingu á vatninu. Er það sérlega
hagkvæmt, þar sem hitaveitur era
tiltölulega hitalitlar. Þessir ofnar era
viðurkenndir af Iðntæknistofnun og
f bréfi frá þeim segir að þessir ofnar
séu þeir sterkustu sem þeir hafa
prófað. Þeir reyndust þola 35 kg.
þrýsting og ef til vill meira, því þá
voru þeir enn ekki famir að leka.
Venjulegur þrýstingur á ofíium er
um 2 kg.
í fyrra var framleiðsla Funaofna
um 7 tonn á viku, eða um 300 tonn á
ári. Lengd röra f þessu magni er 150
km.
Bjami sagði allt benda til vaxandi
sölu í ár, því söluaukning frá
áramótum er veraleg.
Fyrirtækið er nú að fara af stað
með afkastahvetjandi launakerfi, og
hefur maður frá Félagi fsl. iðnrek-
enda þegar útbúið prógramið.
Auk ofnanna framleiða Funaofnar
rafhitunarkatla og var mikil fram-
leiðsla á þeim á siðasta ári. Með því
hve rafmagn er nú orðið dýrt að
tiltölu samanborið við olíu dróst
salan hins vegar saman f ár, en með
umræðum á þingi um að minnka
þennan óeðlilega mun, hefur eftir-
spum aftur farið í gang. - AM.