Tíminn - 17.06.1982, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
2________________________________Mímvm
í spegli tímansk^: -- umsión: B.St. og K.L.
Hundur prestsins
vill syngja með!
■ „Þetta eengur ekki svona".
■ „Petta gengur ekki svona".
sagði organistinn við prestinn
„þú verður að skilja hundinn
eftir heima þegar við höldum
söngæfingu”.
Það gekk ekki vel að fá
samhljóm i sálmasönginn i St.
Mark kirkjunni. i Southend-
on-Sea i Essex. Englandi. þvi
að hundurinn „Henry". sem
sr John Clowes sóknarprestur
er eigandi að. varð svo ein-
mana þegar presturinn fór á
söngæfingu. að prestur tók
hann eitt sinn með sér á
æfinguna. l'm leið og farið var
að syngja kom Henrv og stillti
sér upp með söngfólkinu og
söng hæst allra. Liklega hefur
Henrv ekki gott söngevra (þótt
eyru hans séu stór og mvndar-
leg). þvi að hætta varð sálma-
söngnum, Henrv var gefið
hein og leiddur fram i anddvri
til að biða þar. en þar tók hann
undir með kómum lika. Æf-
ingm fór alveg út um þúfur og
prestur lofaði að koma ekki
með hundinn aftur á soneæf-
■ Þama syngur hver með
sínu nefi.:.
«*r
A vísum sfað
■ Flestir kannast við það.
hvað oft getur orðið tafsamt að
finna blýant til að skrifa með
símanúmer eða skilaboð i flýti
Hjá þessum herramanm.
sem á heima i frumskógum
Brasilíu, er það ekkert mál að
leita að skriffæri. Honum var
gefinn blýantur, og hann stakk
honum bara í evrað á sér. en
þar hafði áður verið einhver
tréstautur til skrauts. Blýant-
urinn \ar miklu fallegri. svo
hann prýðir nú eyra skógar-
búans. Nú er bara að vita.
hvort honum kemur að nokkru
gagni að hafa skriffærið alltaf
\ið höndina. Ekki þarf hann
að taka við skilaboðum i sima.
þvi að þarna er enginn simi -
nú. ng svo er Ifklegast að hann
kunm alls ekki að skrifal
DANSflR-
REYEV
F NYJA
F N? -
■ Nýlega sáum við i islenska
sjónvarpinu viðtal við dansar-
ann Nureyev, sem fyrir 20
árum kaus að flytjast til
Vesturlanda og halda áfram
dansfcrli sínum þar. Hann
hefur dansað víða um lönd og
er talinn einn færasti ballett-
dansari heims. Þegar hann sem
ungur maður dansaði fyrst i
Covent Garden i London varð
hann meðdansari hinnar
heimsfrægu Margot Fonteyn.
Fonteyn hafði fengið aðalstign
i Bretlandi fyrir afrek sin á
sviði, leikið i mörgum kvik-
myndum og verið „prima-
donna“ i breskum ballett árum
saman. Þau dönsuðu svo sam-
an i mörg ár, eða þar til hún
hætti að koma fram á sýning-
um sökum aldurs, en hún var
mörgum árum eldri en Nur-
eyev. Sögur gengu af þvi, að
þau væru meira en dansfélag-
ar, þrátt fyrir aldursmuninn,
en hvað sem i þvi er. hæft, þá
er það víst að sjaldan hafa
leikhúsgestir séð fullkomnari
og betur samæfðan dans.
í sjónvarpsviðtalinu sagðist
Nureyev svo frá, að hann hefði
verið litinn hornauga af öðrum
efnilegum dönsurum í Covent
Garden, sem biðu eftir tæki-
færi til að dansa sólódans með
Margot Fonteyn, en hún sá
engan nema Nureyev. „Ég var
■ Bryony skálar fyrir framgangi sinum á listabrautinni. Vinur
hennar og dansfélagi, Ashley Page, óskar til hamingju.
sæmilega liðinn við leikhúsið
vegna hennar, en þegar Marg-
ot hætti fannst mér andrúms-
loftið ekki nógu gott, svo ég
flutti mig til Bandaríkjanna“,
sagði meistari Nureyev.
Nú kom hann aftur til
Covent Garden, og ætlaði að
dansa þar sem gestur. Hann
valdi þá unga og óþekkta
dansmeyju til að verða með-
dansari sinn. Hún heitir Bry-
ony Brind og er 21 árs, og
hefur stundað listdans árum
saman. Nureyev sagðist hafa
fylgst með henni síðan hún var
17 ára dansnemi, en þá valdi
hann Bryony úr konunglega
ballettskólanum til að dansa í
„Raymonda", sem Fonteyn,
dansaði áður. „Hún hefur
alveg sérstaka hæfileika sem
dansari, og þar að auki dugnað
og úthald , sem er nauðsyn-
legt fyrir þá, sem ætla að ná
langt í ballett", sagði Nureyev,
þegar hann kynnti á blaða-
mannafundi ungu ballerinuna,
sem hann hafði valið til að
dansa á móti sér í La
Bayadére-ballettinum.
Gagnrýnendum í Bretlandi
ber saman um að Bryony
Brind, unga stúlkan frá Kent,
sé alveg frábær, og dans
hennar i Svanavatninu nýlega
hafi verið stórkostlega áhrifa-
mikill og danstækni hennar og
sviðsframkoma gefi ekki eftir
mestu dansstjörnum heims,
lifs og liðnum.
Nureyev og nýja ballerínan Bryony Brind.