Tíminn - 17.06.1982, Qupperneq 5
5
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
fréttir
■ Nú er verið að opna nýjan veitingastað vestur í Santa Barbara i Kaliforniu. Það
er i sjálfu sér ekki i frásögur færandi nema fýrir það að eigendur staðarins eru allir
Islendingar, enda mun staðurinn bera nafnið Valhöll. Hann verður opnaður með
pompi og pragt í dag, 17. júni. Við opnunarathöfnina mun HaUa Linker, ræðismaður
Islands i Kalifomiu afhenda borgarstjóranum í Santa Barbara, sem er kvenmaður,
mynd af fyrsta lýðræðislega kjöma kvenforsetanum i heiminum, Vigdisi
Finnbogadóttur.
A meðfylgjandi mynd em þeir Gisli Gunnarsson i Arko, sem sá alfarið um hönnun
staðarins, Magnús Bjömsson, veitingamaður og Auðunn Sæberg framkvæmdastjóri.
Kokkurinn, Bjöm Erlendsson var ekki viðlátinn þegar myndinni var smellt af.
Ljósmynd: Anna Sigurdardóttir. Brooks Institute.
Allar klær úti til að selja kindakjötid:
NORÐMENN NEYDD-
IR TIL AD KAUPA
UM 600 TONN
■ Nú i júnímánuði hefur tekist að
neyða Norðmenn til að kaupa héðan um
600 tonn af kindakjöti samkvæmt
gömlum samningi, en að vísu aðeins
fyrir 14.00 kr. norskar á kíló, sem er
verðlækkun úr 18,50 kr. i fyrra.
Norðmenn eru að vísu að kikna undan
eigin kjötfjalli og buðu því fram
skaðabætur ef þeir mættu verða lausir
við að kaupa þetta kjöt. En íslendingum
þótti betra að losna við það fyrir þetta
lága verð, en að sitja uppi með kjötið,
auk þeirra birgða sem enn eru til óseidar.
Til viðbótar eru til um 1.000 tonn af
dilkakjöti og 600-800 tonn af ærkjöti,
sem þarf að selja úr landi, en ekki hefur
tekist að fá neinn til að kaupa. Takist að
selja þessar birgðir fyrir svipað verð og
í Noregi mun vöntun útflutningsbóta í ár
nema um 80-90 millj. kr., sem er þá um
20.000 kr. á hvern bónda að meðaltali.
Útflutningur til þessa hefur aðeins
numið 2.240 t. á móti 3.830 tonnum í
fyrra að sögn Gunnars Guðbjartssonar.
Verðið sem fengist hefur fyrir útflutt
kjöt að undanförnu gerir ekki meira en
að borga slátrunar-, geymslu- og flutn-
ingskostnað, þannig að bændurnir fá
ekkert í sinn hlut, að sögn Gunnars.
Spurður hvort hugað hafi verið að
kjötútsölu (svipað og á smjörfjallinu um
árið) kvað Gunnar ekki svo vera, enda
talið vonlítið að það auki neysluna. Fólk
myndi sjálfsagt birgja sig upp en siðan
seldist þeim mun minna á eftir.
Smjörfjall sagði hann hins vegar úr
sögunni, aðeins til um mánaðarbirgðir
og engin vandræði væru út af ostabirgð-
um.
„Ekki til-
skipun
frá mín-
um yfir-
mönnum”
— segir Jóhanna
Sveinsdóttir,
sem átti
frumkvæðið
að undir-
skriftasöfnun
gegn verkfalli
hjá VR-fólki
■ „Sannleikurinn er sá, að það er ég
sem er upphafsmaður þessara undir-
skrifta, en það hefur ekki komið
tilskipun frá minum yfirmönnum um að
hrinda henni i framkvæmd. Égerað visu
ritari fyrir framkvæmdastjórana hjá
Eimskip, en ég hef ekki talist til æðstu
starfsmanna fyrirtækisins fyrir það“,
sagði Jóhanna Sveinsdóttir, ritari hjá
Eimskip, í samtali við Timann í gær.
Eins og kom fram i Tímanum í gær var
Verslunarmannafélagi Reykjavikur af-
hent á þriðjudag undirskriftarlistar með
nöfnum á þriðja hundrað félagsmanna
VR þar sem krafist er þess að boðuðu
verkfalli verði aflýst hið fyrsta. Var haft
eftir heimildum innan VR að undirskrift-
arlistana mætti að hluta til rekja til æðstu
starfsmanna innan Flugleiða og Eim-
skips.
„Ég er forgöngumaður þessara undir-
skrifta hjá Eimskip, og hringdi til
kunningjakvenna minna í hópi ritara
hjá Flugleiðum, Heimilistækjum og
Heklu, og sagði þeim frá þvi hvað ég
væri að gera í minu fyrirtæki, þ.á.m. til
Vilborgar einkaritara Sigurðar Helga-
sonar hjá Flugleiðum. Ég tel að ekki séu
skilyrði fyrir hendi í þjóðfélaginu i dag
til að fara i verkföll, og þar fyrir utan
hef ég engan hitt og marga spurt, sem
hafa viljað fara i þetta verkfall. Þvi var
það að ég reyndi að koma minni
sannfæringu á framfæri með þessum
undirskriftum, en vissi hins vegar ekki
hvort þær myndu hafa einhver áhrif.
Auðvitað er til láglaunafólk i þessu
þjóðfélagi sem vissulega hefði ekkert
veitt af launahækkunum. En ef fólk sem
vinnur á skrifstofum sem margt er
yfirborgað telur sig ekki hafa efni á þvi
að fara í verkfall, hvernig hefur þá
láglaunafólk efni á þvi?“, sagði Jóhanna
Sveinsdóttir.
Stórbætt þjónusta við
GOÐA
FOSS
Útibú Kaupfélags Svalbarðseyrar við
GOÐAFOSS
veitir ferðamönnum margvíslega þjónustu:
Opið kl. 9-21
Helga daga
kl. 11-21 yfir
sumartímann
Vistleg og rúmgóð kjörbúð
Viðlegubúnaður
Veiðibúnaður
Heitar pylsur — Kaffisala
Snyrting
(0) BENZÍN OG OLÍUR
kaupfélag Svalbarðseyrar
- Kás.