Tíminn - 17.06.1982, Side 10

Tíminn - 17.06.1982, Side 10
10_____ 17. júnf FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982 ■ Þær Unnur Knudsen, Ragn- heiður Ævarsdóttir og Áslaug Jónsdóttir, sumarvinnustúlkur hjá kirkjugörðum Reykjavíkur voru að snyrta i kringum leiði Jóns Sigurðssonar, forseta, í Gamla kirkjugarðinum við Suð- urgötu þegar Tímamenn bar þar að. „Það er nú eiginlega búið að snyrta allt hér i kring. End a byrja hátiðahöld- in hérna,“ sögðu þær við blaðamann. - Ætlið þið að fylgjast með því? „Nei ætli það. En við ætlum örugglega að vera á útidansleiknum sem verður um kvöldið. Þar er fjörið". - Búist þið við fyllerii á unglingum? „Það verður ábyggilega fylleri en ekkert meira á unglingum en öðrum. Það er bara svoleiðis, að þegar unglingar fara á fyllerí þá ætlar allt vitlaust að verða. En svo mega fullorðnir vafra blindfullir um allan bæ.“ - Finnst ykkur viðeigandi að drekka áfengi á þjóðhátíðardaginn? „Nei, það er varla viðeigandi a.m.k. ekki óhóflega." ■ Unnur Knudsen, Ragnheiður Ævarsdóttir og Áslaug Jónsdóttir vinna í Gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Þær voru einmitt að snyrta til nálægt leiði Jóns Sigurðssonar þegar Tima- menn bar að. FJÖRIÐ ER fl ÚTIDANSLEIKNUM” Hún vitjar horfinna vina í sól og sumri. Tímamyndir GE f / „ÞJOÐHATIÐIN MÁ EKKI VERA EINSOG GRÍMUBALL” ■ „Mér finnst hátíðahöldin á sautj- ánda júní undanfarin ár hafa verið nokkuð öfgakennd. Ég kann ekki við þessar grimur, hatta, blöðrur og ýlur sem krakkarnir ganga með um bæinn. Þetta má ekki verða eins og grímuball," sagði María Heilmann Eyvindardóttir, húsmóðir úr Reykjavík. María var að snyrta leiði látinna vandamanna í kirkjugarðinum við Suðurgötu þegar Timamenn voru þar á ferð um daginn. „í gamla daga var aivara á ferðum á þjóðhátíðardaginn. Fólk minntist þeirra sem fremst stóðu í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Nú virðist mér ekkert hugsað um tilefni dagsins, eða lítið a.m.k.“ - Var sautjándi júni haldinn hátiðleg- ur fyrir lýðveldisstofnun? „Já. Ég man ekki betur en að fólk hafi gert sér dagamun. Ekki var þó um almennan frídag að ræða. Mig rninnir að það hafi verið undir atvinnurekend- um komið hvort þeir gáfu frí, sumir gerðu það, aðrir gáfu frí eftir hádegi og enn aðrir létu fólkið vinna allan daginn." sagði Maria. ■ „Auövitað tökum við þátt í hátíðahöldunum. Það gera allir. Þótt við séum kannski orðin of gömul til að fara í skrúðgöngu þá verðum við örugglega á ferli í bænum til að fylgjast með,“ sögðu hjónin Stefán V. Guð- mundsson og Jóna Erlingsdóttir þegar blaðamaður settist við hliðina á þeim á bekk við útitaflið og spurði hvort þau ætluðu sér að taka þátt í hátíðahöldunum í dag. Stefán og Jóna eru bæðin komin á áttræðisaldur og hafa alla tíð búið i Reykjavík. „Við höfum tekið þátt í hátíðahöldum á sautjánda júni eins lengi og við munum. Það var mjög miður þegar hætt var að dansa á götum úti. Hér áður iðaði Lækjargata, Lækjartorg og Austurstræti af lifi. Stundum voru fjórir útidansleikir í einu og fólk dansaði um allt. Það voru hljómsveitir á pöllum við Morgunblaðs- húsið, á torginu, við Miðbæjarskólann og á Arnarhóli.“ - Haldiði að sjálft tilefni hátíðahald- ■ Þægilegt að tylla sér niður á bekk við Bernhöftstorfuna i góða veðrinu. anna fari fyrir ofan garð og neðan hjá fólki? „Nei, það er að sjálfsögðu aðalatriðið. Fólk er að gera sér glaðan dag vegna lýðveldisstofnunarinnar og afmælis Jóns Sigurðssonar. Jón var maður sem íslenska þjóðin stendur i ævarandi þakkarskuld við og þótt börnin geri sér ekki grein fyrir þvi strax þá gera þau það seinna. Kannski einmitt vegna hátíða- haldanna." -Sjó „HÉR AMIR (DAÐI M»- BÆRINN A 17. JIÍNÍ”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.