Tíminn - 17.06.1982, Síða 11
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
11
Umsjónarmaður útitaflsins, Ólafur Lárusson.
OfT TEFLDAR
HÖRKUSKÁKIR
segir umsjónarmaður
útitaflsins, Ólafur Lárusson
■ „Hér eru oft tefldar hörkuskákir. Á
góðviðrisdögum er ásóknin svo mikil að
taflmennirnir eru á hreyfingu næstum
hverja einustu minútu,“ sagði Ólafur
Lárusson, sumarstarfsmaður hjá skrúð-
görðum Reykjavikur og umsjónarmað-
ur útitaflsins við Bernhöftstorfu.
-Verður teflt á þjóðhátiðardaginn?
„Já. Ég reikna með því. Að minnsta
kosti ef veðrið verður þokkalegt"
-Ert þú í fullu starfi við að sjá um
taflið?
„Nei.nei. Langt í frá! Ég kem hingað
annað slagið og lít eftir. Annars geri ég
allt mögulegt, er í gróðursetningu og
alhliða hreinsun á skrúðgörðum borgar-
innar.“
-Er mikið að gera hjá ykkur núna
vegna sautjánda júní?
“Það er nóg að gera allt sumarið. En
auðvitað aðeins meira fyrir sautjánda
júni en aðra daga. Það verður jú allt að
vera hreint og fínt,“ sagði Ólafur.
„FÖRUM ÁBYGGI-
LEGA I BÆINN
■ „Við erum að keppast við að fylla öll beð af blómum fyrir
sautjánda júní,“ sögðu stöllurnar Rúna Alexandersdóttir og Rut
Áslaugsdóttir þegar Timamenn trufluðu þær við vinnu sina á
Austurvelli í gær.
-Verður búið að ganga frá öllu?
„Já, við reiknum með að það takist.
Þótt Austurvöllur hafi allur verið
sundurgrafinn fyrir örfáum dögurn."
-Verðið þið svo með i hátíðahöldun-
um?
„Við förum ábyggilega í bæinn. En
Allt skal vera frágengið á 17. júni
það er óvist hvort við tökum uppá því
að fara að dansa á götum úti. Það fer
eftir veðrinu."
—Haldiði að fólk almennt hugsi um
tilefni hátiðahaldanna?
„Nei. Það er sjaldgæft. Fólk er fegið
að fá fri og tilbreytingu eins og á öðrum
hátíðisdögum. Það er ekkert sérstaklega
að hugsa um Jón Sigurðsson eða
lýðveldisstofnunina,“ sögðu stúlkurnar.
Fornminjar finnast hjá Mið-Sandfelli f Skriðdal:
■ Heiðin gröf, kuml, frá 10. öld, en þó
hugsanlega eldri, fannst fyrir nokkrum
dögum hjá Mið-Sandfelli í Skriðdal á
Héraði, þegar verið var að vinna við
lagningu vegar í dalnum. Urðu vega-
vinnumenn varir við bein undir tönn
jarðýtunnar sem notuð var við verkið,
þegar verið var að ýta jarðvegi úr
brbkkunni fyrir neðan eyðibýlið Mið-
Sandfell.
Var verkið þá stöðvað og við nánari
athugun fundust fleiri bein þarna í kring. •
Ekki var um mannabein að ræða heldur
hrossabein og fannst beislismél hjá
þeim. Þjóðminjasafninu var tilkynnt um
beinafundinn, og fór Guðmundur Ólafs-
son, safnvörður, austur til að rannsaka
staðinn nánar. Leiddi sú rannsókn i ljós
að þarna var fundin heiðin gröf, kuml,
þar sem sá látni hafði fengið með sér i
gröfina skartgripi og hest.
„Því miður hafði jarðýtan afmáð nær
öll verksummerki um gröfina en til allrar
hamingju voru fáeinir sentimetrar eftir
niður á grafarbotn. Þar fundust nú
kringlótt næla úr silfri, mikil gersemi,
skreytt fléttumunstri, og fjórar litaðar
glerperlur. Engin mannabein fundust
hjá skartgripunum, annað en litið brot
af glerungi einnar tannar. Hjá hestinum
sem lagður hafði verið til fóta hins látna
fannst einnig gjarðahringja.
Skartgripirnir benda til þess að þarna
sé um konugröf að ræða, sem telja má
að sé mjög ríkulega búin. í heiðnum sið
var einnig algengt að leggja hesta i grafir
höfðingja, bæði karla og kvenna.
Kringlóttar nælur voru notaðar með
kvenbúningi vikingaaldar og hafa áður
fundist níu þannig nælur hér á landi.
Nælan frá Mið-Sandfelli er þó iburðar-
mest þeirra allra og merkilegur fundur",
sagði Guðmundur Ólafsson, hjá Þjóð-
minjasafninu, í samtali við Timann í
gær.
-Kás
■ Guðmundur Ólafsson, safnvörður i Þjóðminjasafninu heldur á silfumælunni
góðu, og tveimur glerpcrlum sem fundust í hinni heiðnu gröf. Timamynd:G.E.
Heidin gröf
frá 10. öld
JÚIÍ
S M Þ M F P L
1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
AGUST
S M Þ M
2 3
9 10 11
1
8
15 16 17
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
F F L
5 6 7
12 13 14
19 20 21
Brottfarardaíar i vetraráœtlun
Dússeldorf alla miðvikudaga
Zurich alla sunnudaga
L
1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
AfíUST
S M ÞM F F L
12 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25
29 30 31
S M ÞM F.F
u j> n j
O Brottfarardagar í vetraráætlun
ARNARFLUG
Lágmúla^ sími 84477
ANNAR VALKOSTUR - ALLRA HAGUR