Fréttablaðið - 31.12.2008, Síða 8

Fréttablaðið - 31.12.2008, Síða 8
MARKAÐURINN H A U S 30. DESEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR8 V I Ð Á R A M Ó T J ón Sigurðsson, forstjóri Össurar, stendur fyrir það sem farsæll stjórnandi á að gera. Allar ákvarðan- ir sem hann tekur aðlagar hann að stefnu fyrirtækisins til langs tíma gagnstætt því sem algengt er á Íslandi. Hann fer ekki hátt með himinskautum þegar vel gengur en stendur í lappirnar þegar blæs í móti. Össur er að skila einu besta ári í sögunni mitt í kreppunni á grundvelli langtímastefnu sem er til mikillar fyrirmynd- ar. Aukinheldur þykir Jón með betri yfirmönnum og helst vel á lykilfólki. Jón Sigurðsson er viðskiptamaður ársins að mínu mati,“ segir einn af álitsgjöfum Markaðarins, enda fór það svo að Jón varð fyrir valinu. Í umsögnum kemur einnig fram að Jón hafi lagt mikla áherslu á gildi og hugmynda- fræði í uppbyggingu fyrirtæk- isins þar sem saman fer góður árangur og viðleitnin til að láta gott af sér leiða vegna eðlis þeirrar vöru og þjónustu sem Össur hafi að bjóða. Þá hafi frammistaða Ólympíufaranna sem nýti sér stoðtæki Össurar verið frábær. Jón er þó sjálfur hógvær að vanda þegar að því kemur að meta eigin stöðu og fyrirtæk- isins í ljósi þessa vals á manni ársins í viðskiptalífinu 2008. „Kannski er orðið fátt um fína drætti á þessum síðustu og verstu tímum,“ gantast hann, en kveðst um leið ánægður með að hafa orðið fyrir valinu. „Við erum ánægð með stöðu og þróun fyrirtæksins og þann ár- angur sem náðst hefur.“ FINNA LÍTIÐ FYRIR KREPPUNNI Jón segir langtímaárangur hins vegar skipta mestu máli fyrir Össur. „Við fylgjum fastri stefnu og þessi áföll sem núna ríða yfir heiminn breyta henni ekki í raun. Eðlilega mun þó ytri vöxtur væntanlega minnka, en það hefur ekki bein áhrif á rekstur fyrirtækisins. Össur er vel fjármagnað fyrirtæki og við erum að greiða niður skuldir. Greiðsluflæðið er mjög sterkt og það er jú það sem skiptir máli í árferði sem þessu,“ segir Jón, en kveðst þó tæpast trúa því að samdráttur í heiminum í kjölfar áfalla í fjármálaheim- inum muni engin áhrif hafa á fyrirtækið. „Við erum jú í alheimskreppu, en um leið er alveg ljóst að við finnum minna fyrir þessu en flestir aðrir.“ Hann bendir á að landfræði- lega sé starfsemi Össurar mjög dreifð, en fyrirtækið starfar í einum fjórum heimsálfum, Norður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Eyjaálfu, auk þess sem fyr- irtækið búi að mjög dreifðri vörulínu. „Hins vegar er þetta allt inni á sama markað, en nánast allar okkar vörur eru gegn um endurgreiðslukerfi af einhverju tagi. Notendur borga fyrir mjög lítinn hluta af vörum okkar, heldur eru það fremur tryggingafélög eða ríkisstjórn- ir sem greiða, eða endurgreiða sjúklingum kostnað.“ Þá segir Jón að þótt Össur standi í fremstu röð í framþró- un á sviði stoðtækja þá standi sala fyrirtækisins ekki og falli með nýjustu og dýrustu tækni. Ef gripið er til líkinga úr bíla- máli þá er „Porche“ ekki nema lítill hluti vörulínunnar. „Það vill gleymast í umræðunni. Þótt „Porchinn“ sé á forsíðunum þá er 90 prósent af vörulínu fyrir- tækisins eitthvað annað.“ VERULEG VANDKVÆÐI FYRIR ALÞJÓÐAFYRIRTÆKI HÉR Jón hefur hins vegar greinilega meiri áhyggjur af þróun mála hér heima fyrir hvað varðar rekstrarumhverfi stærri fyr- irtækja eftir nýliðna atburði í efnahagslífi þjóðarinnar. „Að mörgu leyti höfum við verið mjög ánægð með umhverf- ið sem Össuri hefur hér verið búið. Skattar eru lágir á fyrir- tæki og stjórnvöld hafa á marg- an hátt sýnt atvinnulífinu skiln- ins. En núna er hins vegar svo komið að það er verulegum vandkvæðum bundið að reka alþjóðafyrirtæki á Íslandi.“ Þar segir hann aðallega koma til áhrif af gengiskreppunni, en ekki megi gleymast að yfir 40 prósent hluthafa Össurar séu erlendir. „Þeir eru núna brunnir inni með sína fjármuni hér á Íslandi og vita í rauninni ekki sitt rjúkandi ráð. Það er okkar helsta áskorun um þess- ar mundir,“ segir Jón og bætir við að þar ofan á bætist að þótt fyrirtækið eigi nú um margt gott samstarf við Nýja Kaup- þing þá sé óvíst að sá banki geti verið aðalbanki fyrirtækisins þegar til lengri tíma sé litið. „En svo getur líka vel verið að bankinn stækki, en það verður að koma í ljós.“ Á fyrri hluta næsta árs telur Jón að þurfi að liggja fyrir hvaða umhverfi fyrirtækjum á borð við Össur verði boðið upp á hér á landi. Hann segir ljóst að fyrirtæki sem hafi megnið af starfsemi sinni utan landstein- anna ekki fá búið við núverandi ástand og bendir á að innan við hálft prósent af tekjum Öss- urar eigi uppruna sinn innan- lands. „Slík starfsemi getur ekki farið fram í landi þar sem gjaldeyrishöft eru jafnvíðfem og á Íslandi í dag,“ segir hann, en kveðst þó ekki vilja deila á setningu gjaldeyrishaftanna sem sjálfsagt hafi verið nauð- synleg í ljósi aðstæðna. ÖSSUR ÞARF AÐRA MYNT „Ég held það sé hins vegar alveg ljóst að við verðum að tengjast einhverju stærra gjaldmiðla- svæði og þar tel ég evruna vera eina kostinn,“ segir Jón og telur að að öðrum kosti muni fyrir- tæki sem séu alþjóðleg í eðli sínu fara úr landi. „Nú er ég ekki að spá því að við munum gera það og vona að til þess muni ekki koma. Við höfum náttúrulega einhvern aðlögun- artíma og þótt útlitið sé svart núna þá held ég að við komumst fyrr út úr þessu ástandi en við gerum okkur grein fyrir.“ Þegar árið 2003 segir Jón að Össur hafi farið fram á að fá að skrá hlutabréf sín í erlend- um gjaldmiðli, en það leyfi hafi hingað til ekki fengist og sé það mjög miður. „Það er erf- itt að benda á einn umfram annan sem staðið hafi á móti því. Þetta hefur hins vegar alltaf verið eins og að berjast við tvíhöfða þurs að fást við kerfið í þessu máli. Við hins vegar mættum miklum skiln- ingi stjórnvalda þegar að því koma að gera upp í erlendri mynt og áttu að ég tel mestar þakkir skildar þar Valgerður Sverrisdóttir og Geir Haarde. Þegar hins vegar kom að því að færa hlutafé í erlendri mynt svo fyrirtækin mættu vera hér til langs tíma þá mætti það ekki skilningi, hverju sem sætir.“ Gjaldmiðillinn er hins vegar að mati Jóns helsti ásteytingar- steinninn í að skapa fyrirtækj- um með alþjóðlegan rekstur ásættanlegt rekstrarumhverfi hér á landi. „Nú vitum við ekki hvað við komumst hratt út úr þessari gjaldeyriskreppu,“ segir hann og telur að ástand- ið hafi kastað mikilli rýrð á Ís- land sem vænlegt land til fjár- festinga. „Taka mun mörg ár að komast út úr því og verður erf- iðara að fá erlenda fjárfesta að íslensku atvinnulífi nema að til komi ákveðin stefnumótun í hvernig við ætlum að haga hér málum í framtíðinni, svo sem ef fyrir lægi ákvörðun um að taka hér upp evru og ganga í Evrópusambandið.“ ERUM RÍK OG SVELTUM EKKI Þá er Jón vantrúaður á að hægt verði að leysa úr gjaldeyris- vanda þjóðarinnar öðru vísi en með samningaleiðinni. „Ég er náttúrulega enginn sérfræð- ingur, en á erfitt með að sjá að við getum tekið hér ein- hliða upp aðra mynt, án þess að tengjast með myntsamráði með formlegum hætti. Gjaldmið- ill er náttúrulega ekki annað en lítið skuldabréf á stjórnvöld viðkomandi lands og erfitt að sjá að hægt verði að koma bak- dyramegin inn í gjaldeyrissam- band. Hugsanlega væri hægt að taka upp dollar, en það þýðir þá að við höfum ekkert á bak við okkur.“ Jón telur jafnframt að minni gjaldmiðlar komi til með að eiga undir högg að sækja og bendir á að núna halli á stærri gjaldmiðla en krónuna, svo sem breska pundið og svissneska frankann. „Samt er allt betra en krónan,“ segir hann kankvís. Dæmi einhliða upptöku Svartfjallalands á evru segir Jón vera slæmt. „Svartfjalla- land var að brotna undan ann- arri ríkisheild og af pólitískum ástæðum vildu þeir ekki vera í myntsamstarfi við þá sem þeir álitu kúgara sína fyrrver- andi. Þá blandast í að þeir voru búnir að taka að einhverju leyti upp þýska markið og kemur þar líka inn ákveðinn sameig- inleg sektarkennd Evrópusam- bandsins vegna ástandsins á Balkan skaganum yfir höfuð. Að bera þetta saman við Ís- land, sem þrátt fyrir allt er þróað hagkerfi þar sem býr rík þjóð. Það hefur enginn samúð með okkur hvað það varðar. Við sveltum ekki og höfum það ágætt þannig lagað.“ Jóni þykir því tal um einhliða upptöku annarrar myntar vera til að drepa málum á dreif, en áréttar um leið að vitanlega tali hann um þessi mál út frá þröng- um hagsmunum þeirra fáu fyr- irtækja hér á landi sem talist geta alþjóðleg. „Til lengri tíma litið munu þessi félög fara úr landi, þótt það verði ekki alveg á næstunni. En núna eigum við eftir að sjá hvernig þessi gjald- eyrishöft munu leika okkur.“ Hvað næsta ár varðar kveðst Jón vera nokkuð bjartsýnn. „Spurningin er hversu stór og þung þessi alþjóðakreppa verð- ur. Við teljum okkur hjá Össuri hafa einna besta möguleika á að komast frá henni eins ósködduð og hægt er. Fjárhagur félagsins er góður, greiðsluflæði mikið og hagnaður góður,“ segir Jón og leggur sérstaka áherslu á orðið „góður“ í þessu samhengi. „Það er hugtak sem við ættum kannski að temja okkur í meira mæli í framtíðinni og velta fyrir okkur hvaðan hagnaðurinn er kominn. Enskurinn talar um quality of earnings, eða gæði hagnaðarins, hvort hann byggi á traustum grunni.“ Þótt Össur hafi líka hagnast á eignasölu þá segir Jón langmestan hluta hagnaðarins til kominn af sölu á þeim varningi sem fyrirtækið þrói sjálft og framleiði. „Þessa hluti tekur langan tíma að þróa og langan tíma tekur að byggja upp markaði. Þar af leiðandi tekur vonandi langan tíma að missa það aftur. Þarna spretta gæðin og gæði félagsins. Góðir hlutir gerast hægt,“ segir Jón og vitnar í visku viðskiptajöfra vestanhafs sem haft hafa eftir- farandi á orði: Overnight succ- ess takes about ten years. „Og þannig á þetta að vera,“ segir hann. SAMÞJÖPPUN FYRIRSÉÐ Össur starfar í samkeppnisum- hverfi, en Jón segir fyrirtækið næststærst í framleiðslu stoð- tækja, en í þriðja til fjórða sæti hvað stuðningstæki varði. „Það á hins vegar mikil samþjöpp- un eftir að eiga sér stað á þess- um markaði. Hún hefur náttúr- lega staðnað núna og gerir það meðan þessi fjármálakreppa varir, en svo heldur hún áfram og við verðum vel í stakk búin til að taka þátt í henni þegar tekur að hægjast um á fjár- málamörkuðum.“ Hann segir hins vegar ljóst að nokkur tími muni líða þar til þetta ferli hefst á ný, jafnvel tvö ár. „En okkur liggur í sjálfu sér ekkert á. Við erum með fínt fyrirtæki og gengur ágætlega og búum okkur bara undir komandi tíð.“ Fyrirtækið er líkt og áður segir með starfsemi sína nokk- uð dreifða um heiminn og segir Jón engra stórbreytinga að vænta. Hann segir þó verið að hagræða í framleiðsluferl- inu. „Við erum á óþægilega mörgum stöðum, sem kemur af öllum þessum fyrirtækja- kaupum og erum að samhæfa þennan rekstur eins hratt og við treystum okkur til gagnvart kostnaði, því hann er allnokk- ur þótt sparnaður komi á móti. En auðvitað þarf að gera þetta allt í réttri röð.“ Þannig segir hann efnahagskreppu heimsins á nokkurn hátt vinna með fyr- irtækinu sem sinnt geti innri málum án þess að þurfa að slást í miklum yfirtökum og sam- runum á meðan. „Okkur veitir ekkert af þessu andrými og við nýtum það bara vel.“ Hvað skuldastöðu varðar segir Jón Össur vera í ágætri stöðu og vafamál hvort eftir- sóknarvert sé fyrir fyrirtæki í rekstri að greiða niður allar sínar skuldir. „Ætli við værum ekki í um þrjú ár að greiða niður allar okkar skuldir,“ segir hann og tekur undir að vissu- lega sé það um margt öfunds- verð staða að geta greitt niður skuldir sínar á ekki lengri tíma. „En í þessari stöðu þurfa fyr- irtæki náttúrlega að vera. Þótt menn geti endalaust fengið lán þá er ekki víst að endilega sé rétt að gera það.“ ÖSSUR ER ÚTRÁSARVÍKINGUR Útrásarvíkingur er nokkurs konar skammaryrði um þess- ar mundir eftir hrakfarir bank- anna og sumra fjárfestingar- fyrirtækja sem farið hafa mik- inn á síðustu árum. Fyrirtæki á borð við Össur og Marel og for- svarsmenn þeirra hljóta samt líka að falla í þennan flokk út- rásarvíkinga og því samsinn- ir forstjóri Össurar. „Ég hef samt aldrei skilið þessa svo- kölluðu útrás, í sjálfu sér. Við erum bara í viðskiptum og sinn- um þeim þar sem þau eru hag- kvæm innan okkar markaðar. Út úr þeim markaði höfum við aldrei farið, þekkjum hann út og inn og ætlum okkur ekki annars staðar að vera.“ Jón segir útrás sem slíka aldrei hafa verið markmið í sjálfu sér hjá Össuri og vissu- lega væri þæglegra að geta bara verið í Reykjavík og losn- að við þau miklu ferðalög og annað umstang sem fylgir al- þjóðlegum umsvifum. „Það er hins vegar ágætt að halda því hér til haga að við höfum notið þess að gamla Kaupþing var okkar banki og studdi við okkur með ráðum og dáð. Af þeim banka er mikil eftirsjá fyrir okkur og við verðum að koma okkur upp öðrum banda- samböndum. Margt var mjög vel gert og þyngra en tárum taki hvernig fór. Hina bank- ana þekki ég ekki og legg ekki mat á þá, en Kaupþing held ég hafi verið mjög góður banki, þótt kannski séu fáir sem sjá það núna. Bankinn á hins vegar bæði þakkir og heiður skilinn fyrir að standa dyggilega við bakið á okkur.“ Línur skýrist á fyrri hluta komandi árs Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjaframleiðandans Össurar, er maður ársins í viðskiptalífinu 2008 í kosningu Markaðarins. „Jón hefur stýrt fyrirtækinu vel og fest það sessi sem helsta stoðtækjafyrirtæki heims,“ er meðal þess sem um hann segir í tilnefningum. Óli Kristján Ármannsson settist niður með Jóni og ræddi við hann um fyrirtækið, efnahagslífið og framtíðina. Jón segir Evrópusambandsaðild verða að komast á dagskrá, auk þess sem búa verði þannig um hnútana að alþjóðleg stórfyrirtæki fái hér starfað. Að öðrum kosti fari þau annað. Um þá þróun kunni næstu mánuðir að ráða úrslitum. JÓN SIGURÐSSON Jón, sem er forstjóri Össurar, segir að eigi hér á landi að starfa og hafa höfuðstöðvar stór alþjóð- leg fyrirtæki á borð við Össur og Marel og bankana áður þá verði landið að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evru. Hann segir einhliða upptöku annarrar myntar gagnslitla. MARKAÐURINN/GVA Össur í Kanada, Vancouver, Kanada Albion, Michigan Paulsboro, New Jersey Össur í Bretlandi, Manchester, England Össur, Norðurlönd, Uppsalir, Svíþjóð St-Etienne Trévoux, Lyon Össur í Asíu, Sjanghæ Össur Asíu-Kyrrahafi, Sidney, Ástralíu Ameríkuskrifstofa Össurar, Kalífornía Össur hf, Reykjavík, Íslandi Höfuðstöðvar Össur í Evrópu, Eindhoven, Hollandi Össur skiptir heiminum í þrennt í greiningu á starfsem- inni eftir heimshlutum, en hún fer raunar fram í fjórum heimsálfum, Norður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Líkast til felst í skiptingunni að starfsemin geti vaxið enn án þess að hafi áhrif á heimshlutaframsetninguna. Í skiptingu Össurar á heiminum langsum niður hnött- inn falla N- og S-Ameríka í Ameríkuflokkinn; Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka í svokallaðan EMEA-flokk; og undir Asíuflokk falla bæði Asía og Eyjaálfa. Ö S S U R S T A R F A R U M A L L A N H E I M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.