Fréttablaðið - 03.01.2009, Page 23

Fréttablaðið - 03.01.2009, Page 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Helgi P. er nýkominn ofan úr Hellisheiðarvirkjun þegar haft er samband við hann. Þar segir hann gestagang mikinn og gaman að vera enda stöðin opin alla daga fyrir þá sem vilja líta inn. „Það voru komnar átta rútur fyrir klukkan ellefu í morgun með yfir 250 manns í heimsókn,“ segir hann og telur erlenda ferða- menn kunna vel að meta vist- væna orkuöflun okkar Íslend- inga. En hvað skyldi vera fram undan hjá honum þessa síðastu helgi í jólahaldinu? „Í dag ætlar einn ömmubróðir barnanna í ættinni að gangast fyrir jólaballi. Hann hefur aðgang að sal og þar kemur saman margt fólk sem hefur ekki hist lengi. Ég veit að það verður gaman,“ segir Helgi og heldur áfram glettnislega. „Í fjölskyld- unni eru músíkantar og menn með jólasveinareynslu svo reynt verður að tjalda öllu sem hægt er.“ Annars kveðst Helgi hafa haft það notalegt um hátíðarnar, slak- að á og lesið. „Ég lýk eflaust við einhverjar bækur um helgina,“ segir hann og nefnir meðal ann- ars Ofsa eftir Einar Kárason sem hann sé langt kominn með. „Einar er snillingur,“ segir hann. „Reyndar er ekki langt síðan ég las ferðasögu skáldanna um þjóð- veg 66 og hafði mjög gaman af henni líka,“ bætir hann við. Sunnudeginum ætlar Helgi líka að verja í göngutúr og velta fyrir sér því sem fram undan er. „Nú er partíinu lokið í bili og kominn tími til að jafna sig á kjötsviman- um,“ segir hann og kveðst aðspurður eiga sér eftirlætisstað. „Ég geng mikið í Heiðmörkinni. Bý í Garðabænum og get labbað þangað upp eftir og tekið góðan hring. Það er yndislegt á hvaða árstíma sem er.“ gun@frettabladid.is Kominn tími á að jafna sig á kjötsvimanum Eins og vænta má af manni sem heitir Helgi hefur Helgi Pétursson almannatengill hjá Orkuveitunni ýmis áform fyrir helgina. Hæst ber jólaball, bóklestur og Heiðmerkurgöngu. „Í dag ætlar einn ömmubróðir barnanna í ættinni að gangast fyrir jólaballi. Hann hefur aðgang að sal og þar kemur saman margt fólk sem hefur ekki hist lengi,“ segir Helgi Pétursson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÆRÐIN hefur verið með betra móti og um að gera að nýta tækifærið og fara í bíltúr út í sveit með gítarinn í skottinu. Bregða sér svo út í laut, tralla nokkur vel valin lög og hugsa hlýtt til vorsins. Á vefsíðunni www.gitargrip.is má finna réttu gripin. Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.