Fréttablaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 46
42 3. janúar 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. kyrr, 6. í röð, 8. tala, 9. endir, 11.
spil, 12. dótarí, 14. bit, 16. samtök,
17. orlof, 18. dýrahljóð, 20. verkfæri,
21. krot.
LÓÐRÉTT
1. sía, 3. þys, 4. skvampa, 5. bjarg-
brún, 7. þegn, 10. óvild, 13. gras, 15.
seiði, 16. for, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. áb, 8. sjö, 9. lok,
11. ás, 12. drasl, 14. glefs, 16. aa, 17.
frí, 18. urr, 20. al, 21. riss.
LÓÐRÉTT: 1. sáld, 3. ys, 4. gjálfra, 5.
nös, 7. borgari, 10. kal, 13. sef, 15. síli,
16. aur, 19. rs.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Þrír.
2 Tíu prósent.
3 Til að nýta pappír auk þess sem
panta þarf hvítan pappír.
Skemmtikrafturinn Þórhallur Sig-
urðsson, Laddi, íhugar að höfða
skaðabótamál vegna ólöglegs niður-
hals á DVD-diski sínum Laddi 6-
Tugur sem var gefinn út fyrir jól.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa hátt í sex þúsund
manns hlaðið disknum niður af Net-
inu, þar á meðal af heimasíðunni
Viking Bay. „Ég vil endilega gera
eitthvað í þessu. Ef þetta er svona
mikið held ég að það sé grundvöllur
fyrir því að krefjast skaðabóta,“
segir Laddi, sem er staddur erlend-
is í fríi. „Ég ætla að tala við þá þegar
ég kem heim.“
Þegar Laddi frétti fyrst af niður-
halinu höfðu 1200 manns hlaðið
disknum niður á tiltölulega skömm-
um tíma. Hafði hann þá samband
við starfsmenn Viking Bay og krafð-
ist þess að þetta yrði stöðvað. Það
var gert í einn dag en niðurhalið
hófst svo aftur eins og ekkert hefði
í skorist. „Það er ótrúlegt að það
skuli ekki vera hægt að stoppa
svona lagað. Maður skilur þetta
ekki,“ segir hann. „Sex þúsund ein-
tök er gríðarlegt. Það þýddi alltaf
gullplata að ná fimm þúsund eintök-
um. Þetta er gífurlegt tap ef þetta
er svona mikið,“ segir hann og er
afar ósáttur við þessa þróun. „Ef
það er hægt að „dánlóda“ allri
músík eða því sem er í sjónvarpi þá
er þetta mjög slæmt. Þetta eru laun-
in okkar listamanna og ef það er
tekið af okkur svona þá er það ansi
slæmt. Það þarf að stoppa þetta af
og hafa eftirlit með þessu.“
Laddi 6-Tugur seldist í um 23 þús-
und eintökum fyrir jólin sem er met
í sölu á íslenskum mynddiski. „Ég
er búinn að vera í bransanum í hátt
í fjörutíu ár og hef ekki séð svona
tölur áður. Ég er óskaplega ánægð-
ur með það og ég óska þeim til ham-
ingju sem hafa „dánlódað“ þessu og
vona að þeir njóti vel.“
Konstantin Mikaelsson, yfirmað-
ur kvikmyndadeildar Senu sem
gefur út Laddi 6-Tugur, segir að
mikil óánægja sé með hið ólöglega
niðurhal. „Það hefur verið ákveðið
samkomulag um að hlaða ekki niður
íslensku efni en það hefur aldeilis
ekki verið með þetta. Þetta hefur
breyst mjög mikið og það er mjög
mikið um ólöglegt niðurhal á
íslensku efni,“ segir Konstantin.
Spurður segir hann ómögulegt að
segja til um hvort diskurinn hefði
selst í sex þúsund fleiri eintökum ef
honum hefði ekki verið lekið á
Netið. „Ég get ekki fullyrt um neitt
slíkt en auðvitað vitum við að niður-
hal er ekki af hinu góða, það er
alveg klárt mál.“
freyr@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON: SEX ÞÚSUND EINTÖKUM STOLIÐ Á NETINU
Laddi í skaðabótamál
vegna ólöglegs niðurhals
LADDI Mynddiskurinn Laddi 6-Tugur hefur verið vinsæll meðal netverja sem hafa hlaðið honum ólöglega niður mörg þúsund
sinnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Áramótaskaupið í ár kostaði 26 milljónir.
Þetta staðfestir Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri RÚV. Silja Hauksdóttir,
leikstjóri Skaupsins í ár, fékk því fjórum
milljónum minna til ráðstöfunar en Ragnar
Bragason í fyrra. Hann fékk þrjátíu. Þau
bæði höfðu hins vegar umtalsvert minna á
milli handanna en Reynir Lyngdal fyrir
tveimur árum, Skaupið í leikstjórn hans
kostaði þrjátíu og átta milljónir og eitt það
dýrasta frá upphafi. Því er um að ræða tólf
milljón króna niðurskurð á Skaupi á aðeins
tveimur árum.
En nú hefur kreppt að líkt og komið
hefur fram í fjölmiðlum. Þórhalli fannst
hann hins vegar ekki sjá þess merki að
lægri upphæðum hefði verið varið í þetta
Skaup en mörg undanfarin ár. „Mér fannst
það fínt en þegar 95 prósent þjóðarinnar
safnast saman fyrir framan sjónvarpstæk-
in og horfir á einn dagskrárlið þá er
náttúrulega viðbúið að ekki séu allir
sömu skoðunar,“ segir hann og bætir
því við að óvenju fáum rakettum hafi
verið skotið upp á meðan á Skaupinu
stóð. Slíkt þykir ágætis mælikvarði á
ágæti spéspegilsins.
Athygli vakti að óvenju fáir
leikarar komu við sögu við gerð
þessa Skaups. Í kringum þrjátíu
leikarar hafa borið uppi Skaup
síðustu ára en að þessu sinni voru
þeir aðeins níu; þau Brynhildur
Guðjónsdóttir, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir, Jóhannes Haukur
Jóhannesson, Guðjón Davíð
Karlsson, Kjartan Guðjónsson, Ilmur
Kristjánsdóttir, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Jón Gnarr og Þorsteinn
Bachmann. - fgg
Áramótaskaupið var ódýrt spaug
FÉKK MINNA FÉ Silja
Hauksdóttir fékk fjórum
milljónum minna til
Skaupsgerðar en forveri
hennar í starfi, Ragnar
Bragason. Þórhallur
Gunnarsson telur að
það hafi ekki komið
niður á gæðunum.
Aðeins níu leikarar báru
uppi Skaupið í ár en
tvö undanfarin
ár hafa þeir
verið í kring-
um þrjátíu.
„Jú, ég verð að játa að þetta fór á
köflum alveg úr böndunum. Sér-
staklega þegar gestirnir fóru að
munnhöggvast og leiðrétta
umsjónarmanninn. Ef það er ein-
hver regla í þessum þáttum er
hún sú að umsjónarmaður hefur
alltaf rétt fyrir sér,“ segir Karl
Th. Birgisson umsjónarmaður
útvarpsþáttarins Orð skulu
standa – spurningaþáttur um
íslenskt mál.
Skrautlegur þáttur verður á
dagskrá Rásar 1 í dag eftir fjög-
ur-fréttir. Orð skulu standa hefur
verið í loftinu í sjö ár og er til-
högun sú að tveir gestir koma í
þáttinn og setjast við hlið liðs-
stjóranna Hlínar Agnarsdóttur
og Davíðs Þórs Jónssonar til að
svara spurningum um íslenskt
mál. Nú bregður hins vegar
svo við að hátt í tuttugu gest-
ir koma við sögu.
„Við tókum þáttinn upp
um áramótin. Ætluðum að
hafa hann vandaðan eins
og áramótaþættir eiga að
vera og höfðum boðað til
okkar hámenntaða menn: dr.
Kára Stefánsson og dr.
Ármann Jakobsson. Þá
vildi svo til að í
útvarpshús-
inu var
landslið
íslenskra
poppara,
líklega í
einhverj-
um ára-
móta-
upptökum. Þeir sáu
hvað var gaman í
hljóðverinu og fóru
að tínast inn einn af
öðrum og vildu vera
með,“ segir Karl.
Fyrstur mun Björn
Jörundur hafa ruðst
inn í stúdíóið. Í kjölfarið fylgdu
Jakob Frímann, Megas, Egill
Ólafsson, Helgi Björns og „Bubbi
rak inn nefið svo ég nefni nokkra.
Og nokkrir rithöfundar sáu sér
leik á borði og vildu vera með í
partíinu. Ég nefni þá Guðberg
Bergsson og Þórarin Eldjárn“.
Aðspurður segir Karl að um
það megi deila hver hafi sýnt
mesta þekkingu á móðurmálinu.
„Þaulsætnastur var Kári Stef-
ánsson enda fyrirferðarmikill
maður. En ég játa að það kom
mér á óvart hversu sumir tónlist-
armannanna voru fróðir um
íslenskt mál. En það ætti svo sem
ekki að koma á óvart þegar menn
eins og Jakob Frímann eiga í
hlut,“ segir Karl Th. Birgisson.
- jbg
Stjörnustríð í útvarpsþætti um íslenskt mál
KARL TH. BIRGISSON
Óvænt tóku að birtast
þjóðþekktir menn
í stúdíóinu og
blönduðu sér
í leikinn um
íslenskt mál.
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Aldur: 28 ára
Starf: Leikari
Fjölskylda:
Maki er Rósa
Björk Sveins-
dóttir og
þau eiga litla
dóttur sem
hefur ekki enn
fengið nafn.
Foreldrar:
Það eru þau
Jóhannes
Haukur Hauksson og Ingibjörg Halla
Guttesen.
Búseta: Býr í Hlíðunum.
Stjörnumerki: Fiskur.
Jóhannes Haukur Jóhannesson lék í sínu
fyrsta áramótaskaupi á dögunum. Hann
lék meðal annarra forsætisráðherrann
Geir H. Haarde.
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður
Samfylkingarinnar, tilkynnir um það
á Facebook-síðu sinni að hún hafi
strengt hvorki meira né minna en
ellefu áramótaheit nú við komu
ársins 2009. Þeirra á
meðal er að hefja
sjósund á árinu. Er
hún þar með komin í
hóp með Siv Friðleifs-
dóttur, þingmanni
Framsóknar, sem
er með þekktari
sjósundhetjum
landsins.
Eins og Fréttablaðið hefur fjallað
um er almennt gott hljóð í útgef-
endum. Og Tómas Hermannsson
útgefandi hjá Sögum er þar engin
undantekning. Trompið hans var
bók Þráins Bertelssonar „Ég ef mig
skyldi kalla - seinþroska-
saga“ og seldist hún
í á milli fimm og sex
þúsund eintökum.
Þráinn dró vagninn
en þær voru reyndar
ýmsar bækurnar sem
Sögur gáfu út
sem seldust
vel. „Ripleys
– Ótrúlegt
en satt,
hið ótrúlega afhjúpað“ seldist
næstmest hjá Tómasi, þá „Trixin í
takkaskónum með Margréti Láru
og félögum“ og svo „Sólkross“
Óttars Norðfjörð sem seldist í um
þrjú þúsund eintökum.
Einhverjir urðu til að setja sig í
samband við Jakob Frímann
Magnússon miðborgarstjóra
með þá spurn hvort það hafi ekki
örugglega verið hann sjálfur sem
fór með textann í Áramótaskaup-
inu í hinni ágætu teiknimynd þar
sem Jakob í líki ofurmanns fór um
borgina og málaði yfir
veggjakrot. Svo mun
þó ekki vera heldur
var þar á ferð rit-
stjórinn Sigurjón
Kjartansson sem
síður en svo er
þekktur fyrir
eftirhermur
– fyrir utan að
sérhæfa sig í
Jakobi. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is