Tíminn - 13.07.1982, Blaðsíða 1
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Þriðjudagur 13. júlí 1982
156. tbl. - 66. árgangur.
Landsmótid
á Vindheima4
melum:
Glódar-
steikur
— bls. 10
1-ang-
dregin
flækja
— bls. 23
Tom
O’Connors
— bls. 2
Umdeild-
ir dómar
— bls. 16-17
Þjófar láta greipar sópa í Gullverslun Þorgríms Jónssonar:
stAlu guumumum fyr-
IR HUNDRUÐ ÞUS. KR.
■ „Það var öllu stoUð úr búðinni
nema örfáum silfurmunum og því sem
læst var inni i rammgerðum peninga-
skáp. Ég hef enn ekki tekið saman
hvað þessir hlutir kosta en mér sýnist
Ijóst að verðmæti þeirra nemur
hundruðum þúsunda,“ sagði Þorgrim-
ur Jónsson, gullsmiður i samtaii við
Tímann i gær.
Einhvemtima um helgina vom
innbrotsþjófar á ferð i verslun Þor-
grims við Laugaveg 20 b. Komust þeir
inn um lítinn glugga sem snýr að
húsasundi við hlið hússins. Virðist
nokkuð ljóst að þjófamir hafi notað
nýtt kúbein til að spenna gluggann
upp, því á veggnum mátti sjá bláan lit
eftir verkfærið. Þegar inn kom létu
þjófarnir greipar sópa og stálu öllu
sem í hillum og sýningargluggum
verslunarinnar var, nema örfáum,
tiltölulega ódýmm silfurskartgripum.
„Hvort hér var um þaulskipulagt
innbrot að ræða er erfitt að segja,“
sagði Þorgrímur. „Hins vegar er það
ljóst að þeir skildu aðeins það ódýrasta
sem var i versluninni eftir, svo
eitthvert vit hafa þeir á skartgripum,“
bætti hann við.
- Ekkert þjófavamarkerfi er í
versluninni. Hvers vegna?
„Það var brotist inn hjá mér fyrir tíu
árum og stolið talsverðu af skartgrip-
um. Eftir það setti ég rimla fyrir
sýningargluggana og tvöfalda læsingu
á hurðina. Ég taldi það hreinlega nóg
og mitt tryggingarfélag var ánægt með
það,“ svaraði Þorgrimur.
- Var allt tryggt?
„Já, ég var með allt tryggt í topp og
geri mér vonir um að fá þetta tjón sem
ég hef orðið fyrir bætt að fullu.“
Glugginn sem innbrotsþjófamir fóm
inn um er 25x44 sentimetrar að stærð.
Sem fyrr segir snýr hann að húsasundi.
Til að komast inn i sundið þarf að fara
yfir háa veggi. Svo Ijóst er að þjófamir
þurftu talsverðan tíma til að athafna
sig.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur
nú að því að upplýsa þetta mál,- Sjó.
Sjá nánar bls. 4 og 5.
■ Glugginn sem farið var inn um þegar brotist var inn i Gullsmiðaverslun Þorgrims Jónssonar um helgina. Þjófamir höfðu á brott með sér skartgripi fyrir hundruð
þúsunda króna. Glugginn er 25x44 sentimetrar að stærð. Timamynd: Róberi.
Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra: uu
LEGGUR FRAM TILLOGUR
— á fundi ríkisstjórnarinnar ídag um lausn vanda togaraútgerðarinnar
■ „Ég mun ræða ákveðnar tillögur
vegna vanda togaranna á ríkisstjómar-
fundi á morgun,“ svaraði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráðherra
spurður þar að lútandi i gærkvöldi.
Um efni tillagnanna vildi hann aftur á
móti ekkert segja.
í gær sendi sjávarútvegsráðuneytið
hins vegar frá sér greinargerð sérstakr-
ar nefndar er ráðherra skipaði til að
gera yfirlit um afkomu togaranna á
árinu og hugsanlegar leiðir til að bæta
hana. Þar kemur m.a. fram að
rekstrarhallinn fyrstu 5 mánuðina
hafi numið samtals 126 millj. kr. Til
úrbóta er einkum talin heppileg leið
að bæta útgerðunum tekjutapið i
gegnum aflatryggingarsjóð og miða
þær þá við fasta krónutölu á hvem
úthaldsdag.
Siðari hluta ársins er aftur á móti
einkum lagt til að tekjumar verði
hækkaðar, t.d. með sérstakri fisk-
verðshækkun, eða útgjöldin Iækkuð,
t.d. með niðurgreiðslu á olíu. Nánar
er sagt frá greinargerðinni á bls. 4.
- HEI.