Tíminn - 15.07.1982, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1982
í&^.
brautir og :
Ármúla 32
■WV# Sími 8660:
VERSLUN • SAUMASTOFA - VICRSLUN
Einfaldar, tvtífaldar uff (mrfaldar
Kardinulirnutir.
Mikið úrval af
eldhúsgardínuin og
gardinuefni, m.a.:
Velúr, damask o.m.fl.
Allar smávörur fyrir gluggann.
(ionnar. hringir. hjúl. akrúfur o.m.fl.
Tökum múl, srijum up|> uj* saumum.
Senduni um allt land.
HÁÞRÝSTI-
l>VOTTAT/EKI
Rafknúin
1. og 3ja fasa
eða fyrir úrtak
dráttarvélar.
Allt að 150 kg.
þrýstingur.
Útbúnaður fyrir
sandþvottl
Dönsk gæðavara
Guöbjörn
Guðjónsson
helldverslun
Kornagárðl 5 Slmi 35677
Stærsti samningur sem gerdur hefur verið um
fyrirframsölu á saltaðri Suðurlandssíld:
RUSSAR KAUPA NU
r
150 MIS. TUNNUR
■ Rússar kaupa af okkur 150 þúsund
tunnur af léttsaltaðri sild i ár, samkvæmt
samningi, sem var undirritaður i fyrra-
kvöld. Að sögn Gunnars Flóvenz fram-
kvxmdastjóra Síldarútvegsnefndar voru
samningarnir erfiðir, enda fóru Rússar
fram á miklar tilslakanir, svo sem
niðurfellingu tilfærsluréttar milli stærð-
arflokka, i upphafl viðræðnanna. Þegar
upp var staðiö hafði þó dæmið snúist við
og tilfærslurétturinn verið aukinn, en á
móti lækkar verðið frá samningnum í
fyrra um 4,5% miðað við bandarikja-
dollar. Þetta er stærsti samningur, sem
gerður hefur verið um fyrirframsölu á
saltaðri Suðurlandssfld.
Áður hafði tekist samningur við Svia
um kaup á 40-50 þúsund tunnum af
saltsild. Samtals hefur þvi tekist að selja
um 200 þúsund tunnur, en það jafngildir
25-30 þúsund tonnum upp úr sjó.
Bjartsýnir menn vonast til að selja megi
um 15 þús. tonn af frystri sild, en það
e'r þó með öllu óráðið ennþá, því enginn
samningur hefur verið gerður. Eins og
kunnugt er hefur verið heimiluð veiði á
50 þúsund tonnum af sild í haust og er
þvi ennþá verulegu magni óráðstafað
enn.
-Að sögn Gunnars Flóvenz er hugsan-
legt að rætt verði um frekari sölu til
Rússa, með haustinu.
Gunnar segir að Efnahagsbandalagið
sé lokað fyrir saltaða sild, vegna hárra
tolla og saltsíldin er niðurgreidd í ein-
hverju formi i samkeppnislöndum okk-
ar. Sú staðreynd, ásamt verðbólgunni
hér heima veldur því að við stöndum illa
að vigi á þeim mörkuðum. SV
■ í byrjun þessa mánaðar
komu Samhygðarfélagarnir þau
Helga Óskarsdóltir, Methusa-
lem Þórisson og Sigrún Jó-
hannsdóttir heim frá New York
úr vel heppnaðri Víkingaferð.
Þau félagar kynntu hug-
myndir Samhygðar fyrir fjölda
manns og fór kynningin að
mestu leyti fram á götum úti i
4 hverfum borgarinnar, m.a. í
hlökkumannahverfi.
Markmið ferðarinnar var að
mynda kjarnahóp Samhygðar,
sem myndi vinna sjálfstætt að
áframhaldandi Samhygðarstarfi
í New York, þ.e., að gera New
York mennska. Hópurinn mun
þó vinna i tengslum við hreyf-
inguna í íslandi.
Jafnréttisráð telur símamálarád-
herra hafa brotið jafnréttislög:
Ekki ákvedid
hvort ég kæri
— segir Lilja Jakobsdóttir
■ „Ég hef ekki ákveðið hvort ég kæri
stöðuveitinguna þótt Jafnréttisráð hafl
komist að því að hún sé ólögleg," sagði
Lilja Jakobsdóttir, önnur konan sem
Jafnréttisráð telur að Steingrimur Her-
mannsson, samgönguráðherra, hafi
gengið ólöglega framhjá við veitingu
stöðu stöðvarstjóra Pósts og sima á
Isafirði.
Jafnréttisráð hefur nú fjallað um
þessa stöðuveitingu og kemst það að þvi
að ekki verði annað séð, en um hafi
verið að ræða mismunun vegna kynferðis
þegar samgönguráðherra skipaði i stöð-
una og sé það brot á 3. grein laga um
jafnrétti kynjanna.
Sex umsækjendur voru um stöðuna
þegar hún var auglýst, 4 konur og 2
karlar. Við umfjöllun í starfsmannaráði
Pósts og síma fengu þrír þeirra sem sóttu
um stöðuna atkvæði. Lilja Jakobsdóttir
fékk fjögur atkvæði, Inga Þ. Jónsdóttir
eitt og Kristmann Kristmannsson eitt.
Kristmann fékk síðan stöðuna.
í greinargerð Jafnréttisráðs segir, að
þær Inga og Lilja hafi haft yfir 30 ára
starfsreynslu hjá Pósti og sima, þar af
hefði Inga starfað sem stöðvarstjóri í 20
ár og Lilja í 4 ár sem fulltrúi á skrifstofu
umdæmisstjóra á ísafirði. Kristmann
hafði tæpra tuttugu ára starfsreynslu hjá
fyrirtækinu, þar af fjögur ár sem póst-
fulltrúi á ísafirði.
Sjó.
ísafjörður:
Sjúkrahúsinu afhent minningar
gjöf um Guðnýju Sveinsdóttur
■ Ættingjar Guðnýjar Sveinsdóttur
frá ísafirði afhentu í gær sjúkrahúsinu á
ísafirði að gjöf vandað píanó tfl
minningar um Guðnýju, sem í gær hefði
orðið 100 ára, en hún lést á sjúkrahúsinu
á sl. ári. Var það dóttursonur
Guðnýjar, Magnús Reynir Guðmunds-
son, sem afhenti gjöfina, en Einar
Hjaltason, yfirlæknir, veitti henni við-
töku fyrir hönd sjúkrahússins.
Guðný fæddist á Tjörn á Vatnsnesi
þann 14. júli 1882. Hún var kona
Magnúsar Dósóþeussonar, sem fórst á
vélbátnum Leif frá ísafirði árið 1925.
Stóð hún þá uppi ein með sjö dætur
þeirra hjóna á heimili þeirra i Aðalvik
og kom þeim öllum til mennta og manns.
Til ísafjarðar fluttist hún síðar og var í
25 ár starfsmaður við sjúkrahús ísa-
fjarðar. Bjó hún i einu herbergi í
kjallara hússins með aleigu sína sem
einkum var bókasafn hennar, því hún
var kona mjög fróð, ljóðelsk og
bráðgáfuð að sögn allra sem henni
kynntust. Voru störf hennar í því fólgin
að hún annaðist viðgerðir á öllum
fatnaði starfsfólks, svo og rúmfatnaði og
fleiru. Þótt þetta væri geysilegt verk,
vann hún einnig sem vökukona yfir þeim
sjúklingum sem gengist höfðu undir
aðgerðir og sinnti þeim af natni og alúð.
Var því við brugðið hve glaðsinna hún
var og hafði góð áhrif á þá sem hún
umgekkst.
A efri árum fluttist hún til Bergþóru
dóttur sinnar í Keflavik og var þar
meðan heilsan leyfði, en fór þá aftur til
ísafjarðar og var sjúklingur á sjúkra-
húsinu þar í nokkur ár, uns hún lést. Var
hún ákaflega hraust kona og starfsþrek
hennar með afbriðgum.
Er gjöfin var afhent i gær voru þær
viðstaddar dætur Guðnýjar, Bergþóra,
Hrefna og Þorbjörg.
Átla
manna
hasspartý
handtekið
■ Átta manns, sex íslendingar og
tveir kóreanskir sjómenn, voru
•handtekin i hasspartíi í húsi einu i
miðborg Reykjavikur i fyrrinótt.
Við leit i húsinu fundu lögreglumenn
eitthvað af mariuana. Við yfirheyrslur
kom í ljós að sjómennimir höfðu
smyglað efninu til landsins. Ennfremur
kom i Ijós að þeir höfðu selt talsvert
af efninu áður en lögreglan komst í
spilið.
Málinu var lokið með dómsátt hjá
sakadómi i ávana og fíkniefnamálum
í gærmorgun. - Sjó.
Bflekið
á barn
íkerrú
■ Lítið barn var flutt á slysadeild
eftir að það varð fyrir bíl á
gatnamótum Austurstrætis og Pósthús-
strætis fyrir hádegið i gær.
Að sögn lögreglunnar I Reykjavík
var bamið í kerru sem móðir þess ýtti
á undan sér þegar bil bar að og ók á
kerruna. Meiðsii barnsins em ekki
talin alvarleg. - Sjó,
Níu ára
drengur
fyrir bfl
■ Niu ára gamall drengur var fluttur
á slysadeild eftir að hann varð fyrir bil
á Fjarðargötu i Hafnarfirði á nitjánda
timanum i gær.
Að sögn lögreglunnar i Hafnarfirði
eru meiðsli drengsins ekki alvarleg.
- Sjó.
Kaþólskt
mót
22-29 júlf
■ Dagana 22.-29. júlí verður haldið
í Reykjavík mót kaþólskra manna frá
Norðurlöndum og Hamborg. Um það
bil 100 manns sækja mótið, sem verður
haldið i Háskóla íslands, hvað talað
orð snertir. Á mótinu mun verða flutt-
ur fjöldi erinda, m.a. mun Gunnar F.
Guðmundsson cand mag. ræða um
upphaf kaþólskrar kristni hér á landi
eftir siðaskipti og Halldór Laxness
talar um Maríu sögu. Starfshópar
munu ræða efni fyrirlestranna frá
félagslegu, siðrænu, bókmenntalegu
og sögulegu sjónarmiði og trúarlegu
viðhorfi. Þá verða sungnar messur i
Kristskirkju og þann 25. júlí verður
sungin biskupsmessa með þátttöku
Thomas O’Fiaich, kardinála frá
írlandi og allmargra prcsta. í þeirri
messu meðtaka tveir prestnemar
djáknavigslu. Sama dag kl. 15 mun
kardinálinn flytja crindi um írska
trúboða i Evrópu.
Leidrétting
■ Ranghcrmt var í blaðinu á
fimmtudag, að Erlendur Árnason,
bóndi á Skíðbakka, hefði sagt sig úr
sýslunefnd Austur-Landeyjahrepps.
Hið rétta er að Erlendur baðst undan
þvi fyrir kosningar að verða kosinn i
nefndina. Enda hefur hann setið i
henni 140 ár og þar af var hann oddviti
í 36 ár. í vor hlaut hann Fálkaorðuna
fyrir farsæl störf að sveitarstjómarmál-
um.
Erlendur hlaut hins vegar glæsilega
kosningu i sýslunefnd Rangán'alla-
sýslu.
Erlendur er beðinn velvirðingar á
þessu ranghermi. _ sjó.