Tíminn - 15.07.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 15.07.1982, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 15. JULI1982 fréttir Sala áfengis eykst ad magni — en norðlendingar virðast halda f vid sig í brennivfni ■ Áfengissala mánuðina aprG, mai og júni i ár nam samtals tæpum 144,5 milljónum króna, á móti tæpum 95,5 miUj. kr. á sama timabiU í fyrra. TU að átta sig betur á hve þetta er stór upphæð má t.d. nefna að fyrir hana hefði mátt kaupa t.d. 1.500 nýja bfla eða um 240 litlar ibúðir, eða jafnvel um 20.000 farseðla i dæmigerðar sólarlandaferðir. í krónum talið hefur salan aukist um 53,3% á þessu tímabili. Verðið er sagt hafa hækkað til samræmis við launa- hækkanir á timabilinu. Almennir verkamannataxtar hafa á hinn bóginn hækkað um 45,5% á þessum tíma, þannig að ætla má að menn hafi haft nokkru meiri raunum að drekkja i áfengi nú í vor en vorið 1981, a.m.k. sunnanlands. Söluaukningin er þó mismunandi yfir landið. Lang mest hefur hún orðið í Reykjavík nær 54% og-Keflavík um 50%. Á Norðurlandi hefur aukningin hins vegar orðið miklu minni, um 38,5% á Akureyri og um 40% á Siglufirði, sem þá mun þýða að minna hafi verið selt þar af áfengi en í fyrra, hverjar ástæður sem fyrir því kunna að vera. í öðrum áfengisútsölum, ísafirði, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum hefur söluaukningin orðið á bilinu frá 46% til 47,7%, eða rétt rúmlega eins og verkamannataxtinn hefur hækkað á sama tlma. - HEI Iðnrekendur telja þörf á gengisfellingu ■ „Iðnaðurinn getur ekki með nokkru móti tekið á sig þann kostnaðarauka sem samningar þessir (nýju kjarasamning- arnir) hafa i för með sér“, segir i ályktun almenns félagsfundar Félags ísl. iðnrekenda, sem jafnframt samþykkti þó nýgerða kjarasamninga VSÍ og ASÍ mótatkvæðalaust. Jafnframt sagði í ályktuninni, að ekki verði annað séð en að samningamir séu ávísun á aukna verðbólgu, samdrátt i innlendri framleiðslu og fækkun starfsfólks, verði ekki gerðar nauðsyn- legar ráðstafanir til að draga úr kostnaðarhækkunum vegna þeirra. Ennfremur þurfi að leiðrétta þá skerðingu á samkeppnisstöðu iðnaðarins sem hann hafi þurft að þola vegna hækkunar raungengis krónunnar gagn- vart öllum Evrópugjaldmiðlum. Með öðrum orðum sagt mun þetta þýða að FÍI telur þörf á gengisfellingu. - HEI 5 r Nyju FORD traktorarnir til afgreiðslu strax Getum afgreitt flestar stærðir nýju FORD traktoranna með stuttum fyrirvara. Kynnið ykkur hagstæð verð og greiðsluskilmála á FORD traktorunum Mmrmm BIJNAÐARBANKI ÍSLANDS er einn traustasti hornsteinn íslenzkra peninga- mála. Hann byggir á sterkri lausafjárstöðu og öfl- ugum varasjóði auk ríkisábyrgðar. Búnaðarbankinn velur ekki sérstök nöfn á lán- veitingar slnar. Hvers konar innlánsviðskipti við bankann á veltu- eða sparisjóðsreikningum skapa þá gagnkvæmni, sem er æskileg forsenda fyrir lán- veitingum. Búnaðarbankinn leggur áherzlu á hraða og öryggi í öllum afgreiðslum. Það er greiðfært með öll erindi i Búnaðarbankann. 9 afgreiðslustaðir I Reykjavlk og nágrenni. Viðtöl um lánveitingar og önnur viðskipti við útibú bankans I Reykjavík og nágrenni annast útibússtjórar (eða staðgenglar þeirra): Krlstinn Bjarnason Austurbæjarútibú við Hlemm Jóhanna Pálsdóttlr Melaútibú Hótel Sögu Stefán Thoroddsen Vesturbæjarútibú Vesturgötu Böðvar Magnússon Háaleitisútibú Hótel Esju Sigurður Nikulásson Miðbæjarútibú Laugavegi 3 Jón Sigurðsson Seljaútibú Stekkjarseli 1 Halldór Ólafsson Garðabæjarútibú Sveinatungu Viðtöl I aðalbanka annast bankastjórar og aðstoðarbankastjórar árdegis alla starfsdaga bankans. BUNAÐARBANKINN TRAUSTUR RANKI Moritz W. Sigurðsson Mosfellsútibú Varmá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.