Tíminn - 22.07.1982, Síða 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Simi (»11 T - i:> - 51,
HEDD HF.
(»1)7- 80-:!0.
Skemmuvegi 20
Kopuvogi
Mikiö úrval
Opið virka duga
9 19- Láugar-
dilga 10 16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
V
labriel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armúla 24
Simi 36510
með ferðamerm upp LagarfIjót:
„ÆTUORMURINNTAKI
ÞVÍ EKKI BARA VEL
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ
raett vid Þórhall Sigurdsson á Egilsstöðum
■ „Pað eru tíu ár siðan ég flutti hingað
að fljótinu, og mér hefur oft fundist það
skritið að menn skyldu ekki vera hérna
með báta. Að vísu hafa verið hér einn
eða tveir bátar, en lítið notaðir og ekkert
fyrir ferðamenn."
Við höfum á ferð um Egilsstaði hitt
að máli Þórhall Sigurðsson, trésmið,
sem er að hefja bátsferðir á Lagarfljóti
fyrir ferðamenn. Er þetta i fyrsta skipti
sem ferðamönnum gefst kostur á
skemmtisiglingu um Fljótið.
„Ég hef alltaf haft áhuga á að vera
með svona bát, þó að það hafi nú ekki
komist í framkvæmd fyrr,“ segir Þórhall-
ur. Hann segir að báturinn sé 18 feta
Shetlands-hraðbátur, er beri allt að átta
farþega í ferð.
„Hugmyndin er að fara föstudaga,
laugardaga og sunnudaga fyrri hluta
dags frá Lagarfljótsbrú (við Egilsstaði)
og upp í Atlavik (i Hallormsstaða-
skógi), og vera þar. Taka siðan
». m m M leigurúnta þaðan ef óskað cr eftir. Svo
förum við úr víkinni seinni hluta dagsins
og aftur til baka.“
Þórhallur áætlar að meginsiglingin
muni taka um 40 mínútur en báturinn
gengur 30 sjómilur á klukkustund.
Við spyrjum hvort það sé ekki mikið
fyrirtæki að koma upp aðstöðu fyrir
þessar siglingar? „Það er þónokkur
vinna og kostnaður sem liggur að baki.
Ég keypti bátinn sérstaklega til þessa.
Og svo hef ég komið upp flotbryggjum
- ef bryggjur má kalla - við brúna og i
víkinni.
„Þetta er nú reynslutími, sem fram-
undan er, og getur ýmislegt komið upp
á sem setur strik i reikninginn. Það er
dálitið vandamál með vatnsborðsmis-
mun i fljótinu, sem verður mestur um
þrí r metrar en er að mestu afstaðinn í
ár. £n þegar mikið hvessir getur orðið
talsverð alda. Lögurinn er nefnilega
heilmikið stöðuvatn, og er 111 'h metri
dýpst.“
En heldurðu að þetta tiltæki muni
ekki valda orminum ónæði?
„Nei það held ég ekki. Ætli hann taki
þessu ekki bara vel.“
- JSG.
■ Þórhallur Sigurðsson á bakka Lagar-
fljóts. Tímamynd JSG
fréttir
Þingflokkur Fram-
sóknarflokksins:
“Afgreiddum til-
lögur í efnahagsmál-
um“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson um
fund þingflokksins i
gær
■ „Við afgreiddum til-
lögur Framsóknarflokks-
ins í efnahagsmálum og
ráðherrum flokksins var
gefið umboð til að vinna að
framgangi þeirra í þeim
viðræðum sem fara fram í
ríkisstjórninni," svaraði
Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsókn-
arflokksins eftir þing-
flokksfund i gær.
Ekki fékkst Steingrímur
til að segja nánar frá til-
lögum flokksins, enda
verði lögð áhersla á að
hafa um þetta sem best
samstarf við aðra í rikis-
stjórninni. Raunar kvað
hann þessar tillögur ekki
neina úrslitakosti. „Við
hlustum á allt sem stefnir
að sömu markmiðum og
nær sama árangri. En
þessar tillögur fjalla um
þær leiðir sem við teljum
skynsamlegastar", sagði
Steingrímur. -HEI
Slysum fer fjölgandi í
umferðinni:
Þriðjungi fleiri slös-
uðust í júní núna en í
fyrra
■ Nær þriðjungi fleiri
slösuðust í umferðinni nú í
júnímánuði en á sama
tíma í fyrra. Þar af hlutu
27 meiri háttar meiðsli sem
er 11 fleira en á siðasta
ári. Þeir sem lagðir voru á
sjúkrahús voru nú tvöfalt
fleiri, auk þess urðu tvö
banaslys.
Alls áttu nú 77 ökumenn
(67 karlar og 10 konur)
aðild að umferðaslysum
með meiðslum, sem er 26
fleiri en í júní 1981.
Sem fyrr eru það yngstu
ökumennirnir sem í lang
flestum slysunum lenda.
Þannig voru alls 20 af
fyrrnefndum ökumönnum
á aldrinum 17 og 18 ára
-HEI
dropar
Kerfiskóng-
ar og
blaðamenn
■ Þegar hiirmulegir alburðir
eins og flugslysið í Esju gerast
þurfa margir aðilar að gegna
skyldustörfum sinum oft við
erfiðar aðstæður. Það á t.d.
við um björgunarsveitarmenn,
löggæslumenn og blaðamenn.
Eðlilegt er að samstarf allra
þessara aðila sé sem best, og
engin ástæða til að þar komi tii
árekstra. Af þeim sökum kom
það blaðamönnum óncitan-
lega á óvart i fyrrinótt með
hverjum hætti reynt var að
hindra eðlilega fréttaöflun
þeirra af flugslysinu i Kistufelli
samkvæmt fyrirmælum frá
ráðamönnum í rannsókna-
nefnd flugslysa, sem mun hafa
eytt mikilli orku í að hindra
blaðamenn og blaðaljósmynd-
ara i að komast á slysstaðinn.
Það er skylda blaðamanna
að flytja sem réttastar og
itarlegastar fréttir af atburð-
um sem þessum, og algjörlega
ástæðulaust af einhverjum
kerfiskóngum að leggja stein í
götu þeirra við þau skyldustörf
Hundrað-
földun á
tólf árum
■ Um þessar mundir geta
þeir, sem keyptu verðtryggð
spariskírteini rikissjóðs, 1.
flokk, árið 1970, innleyst þau
og þurfa reyndar að gera það
fyrir 15. september.
Það gefur nokkra hugmynd
um verðbólguna þessi tólf ár,
sem siðan eru liðin, hvert
innlausnarverð þessara verð-
tryggðu spariskírteina er nú.
Sá, sem keypti slík spariskír-
teini fyrir 10 þúsund gamlar
árið 1970, fær nú i dag rúmlega
tiu þúsund krónur nýjar (nán-
ar tiltekið 10.311 krónur).
Spariskírteinin hafa þvi eitt-
hundrað-faldast á siðustu tólf
Áfengis-
neysla
eykst
■ Á norðurlöndunum hefur
neysla vinanda á hvem íbúa
yfirleitt farið minnkandi á
undanförnum árum - nema á
íslandi.
■■I
I nýútkominni skýrslu um
þetta efni kemur i Ijós, að á
áranum 1975-1980 minnkaði
vínandaneysla á hvern ein-
stakling i Danmörku, Finn-
landi og Svíþjóð, en jókst í
Noregi, og á Islandi jókst þessi
neysla úr 4.04 litrum af
hreinum vinanda á íbúa i 4.33
lítra.
Krummi ...
...sér á greinum krataþing-
manna i dagblöðum að þeir
eiga erfitt með að átta sig á þvi
hver sé „hinn eiginlegi stjóra-
arandstööuflokkur". Það eru
sem sagt margir sem eiga erfitt
með að finna stjórnarand-
stöðuna...