Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 1
Harmleikur í Öræfasveitinni:
FRÖNSK STÚLKA MYRT OG
Árásarmannsins, íbúa úr Öræfasveit, á fertugsaldri, ákaft leitað á Svínafellsjökli
■ Mikill harmleikur átti sér
stað í slysavarnarskýli á Skeið-
arársandi í fyrrinótt. Tuttugu
og eins árs gömul stúlka,
Yvette Marie Bahuaud, frá
Frakklandi, var myrt og systir
hennar, Marie Luce Bahu-
aud, tuttugu og níu ára gömul
varð fyrir líkamsárás og hlaut
af mikla höfuðáverka.
Fjörutíu og eins árs gamall fjölskyldu-
maður, búsettur í Öræfasveitinni, er
grunaður um að hafa framið þessi
ódæðisverk. Snemma í gærmorgun
fannst bifreið hans við Neskvísl við
Svínafellsjökul. Er komið var að henni
var maðurinn á brott en í farangurs-
geymslunni fannst lík frönsku stúlkunn-
ar.
Systir hinnar iátnu var flutt á
slysadeild Borgarsjúkrahússins í
Reykjavík og gekkst hún þar undir
höfuðaðgerð í gær. Að sögn lækna var
líðan hennar eftir atvikum. Talið var að
hún væri úr lífshættu.
Leitað var að meintum árásarmanni í
allan gærdag. Undir kvöld hafði spor-
hundur rakið slóð hans að jökulgíg,
50-100 metra djúpum. Ætlunin var að
láta leitarmenn síga í gíginn, en vegna
myrkurs, sem var að skella á, og skorts
á góðum sigbúnaði, var því frestað þar ■ Bifreið árásarmannsins fannst í gxrmorgun við jaðar Svínafeilsjökuls í Öræfasveit, en hún er af Mercedes Benz-gerð, græn að lit. Hann var þá á bak og burt en
til í dagrenningu. 1 farangursgeymslu bifreiðarinnar fannst lík Yvette Marie Bahuaud, 21 árs. Á myndinni má sjá farangur stúlknanna vinstra megin við bifreiðina, en auk þess sést
SV/SjÓ. — Sjá nánar bls. 3 Hvar snnrhiinHnr Hifllnflnvpifar ckófa í HafinorfírAi or oA lannía af c«n% ncnm« -: ...H A _ ‘
hvar sporhundur Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði er að leggja af stað ásamt umsjónarmanni sínum upp á jökulinn.
Tímamynd: Ari
íslendingaþættir fyigja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Miðvikudagur 18. ágúst 1982
186. tbl. -66. árgangur.
SYSTUR HENNAR MISÞYRMT
í spegli
Sharif í
vanda
— bls. 2
Innheimtumenn opinberra gjalda taka mismunandi áfyrndumkröfum:
SKATTGREIÐENDUM
MIINAÐ EFTIR UMDÆMUM
— „Fráleitt að tilkynna gjaldandanum hvaða rétt hann á til að
bera fyrir sig fyrningu”, segir gjaldheimtustjórinn f Reykjavík
■ Opinber gjöld fyrnast á fjórum
árum og rétturmn til að taka eignir
manna lögtaki vegna vangoldinna
opinberra gjalda fymist á tveim árum.
Sumir innheimtumenn opinberra
gjalda krefja menn um gamlar skuldir
af fullum þunga og hóta lögtaki, vegna
pkulda sem orðnar em fimm ára eða
meira að því er virðist í skjóli þess að
gjaldandinn þekkir ekki rétt sinn.
Aðrir líta á það sem skyldu sína að
leiðbeina ólöglærðum gjaldcndum um
rétt þeirra. Þannig sitja ekki allir
landsmenn við sama borð gagnvart
kröfum þess opinbera.
„Við þurfum ckkert að vera að vara
borgarann við því að hann ætti að fyrra
bragði eitthvað að fara að hafa sig í
frammi gagnvart okkur,“ sagði gjald-
heimtustjórinn í Reykjavík, þegar við
ræddum málið við hann. Hann sagðist
einnig telja fráleitt að tilkynna gjald-
andanum hvaða rétt hann á til að bera
fyrir sig fyrningu. Sigurður Gizurarson
sýslumaður á Húsavík var gjald-
heimtustjóra sammála í þessu og taldi
gjaldanda auk þess vanvirðu í að bera
fyrir sig fyrningu til að fá gjöld sín felld
niður.
Á allt öðru máli voru Friðjón
Guðröðarson sýslumaður í Höfn og
Jóhannes Árnason sýslumaður á
Patreksfirði. Þeir telja það skyldu sína
að tilkynna gjaldanda um rétt sinn og
Friðjón sagði: „Það er alveg á hreinu
frá mínum bæjardyrum að þetta eru
eðlilegar reglur í þjóðfélaginu, af því
að við vitum að það má ekki ganga
þannig að fólki í skattheimtu, að það
beinlínis lami þrek fólks svo það sjái
ekkert nema vonleysi og skuldabasl."
Sjá nánar bls. 4-5
SV
Bf&l
wm