Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982 5 ■ Fríðjón Guðröðarson sýslumaður. Árni Kolbeins- son lögfræding- ur í Fjármála- ráðuneytinu: „Flestar skatt- kröfur fyrnast á f jórum árumM ■ I Fjármálaráðuncytinu varð Arni Kolbcinsson lögfræðingur fyrír svörum og sagði að almenn ákvæði fyrninga- laga giltu um þetta atriði, laga nr. 14 frá 1905. Hann sagði að kröfur fymist almennt á fjórum árum, tíu árum eða tuttugu árum, eftir eðli þeirra. Flestar skattkröfur hafa lögtaksrétt og kröfur sem hafa lögtaksrétt fyrnast almennt á fjórum ámm, frá gjalddaga. Það á við um gjöld, sem hafa verið álögð samkvæmt réttu framtali og reglum sem þar að lúta. Komi hinsvegar upp annmarki á framtalinu, fyrnist réttur hins opinbera til að taka málið upp og endurmeta álagninguna, ekki fyrr en eftir sex ár. Hafi slíkt endurmat verið gert, fyrnast gjöldin sem þá voru lögð á fjórum árum eftir gjalddaga sem ákveðinn var við endurmatið. í þriðja lagi er svo fyrning á lögtaksréttinum. Hann fyrnist á tveim árum. Eftir að tvö ár eru liðin frá gjalddaga kröfunnar, hefur innheimtu- maður opinberra gjalda ekki heimild til að taka lögtaki í eigum manna, nema að undangengnum dómi. Honum er hins- vegar heimilt að gera kröfu í laun skuldarans, að því er Árni taldi. Við spurðum Árna hvort inheimtu- manni bæri að tilkynna skuldaranum um að hann hefði rétt til að bera fyrir sig fyrningu, fjórum árum eftir gjalddaga kröfunnar. Það taldi hann vafasamt. Fyrning táknar það að ekki er hægt að grípa til neinna innheimtuaðgerða, ef skuldarinn ber fyrir sig fyrningu, þá stendur það og krafan fæst ekki greidd með neinum lögfræðilegum leiðum. - Er þá ólöglegt að halda innheimuað- gerðum áfram eftir fjögur ár? „Það er spurning, en mönnum ber ekki skylda til að greiða skuldina. Og þá má spyrja hvort ekki sé eðlilegt að innheimtumaður veki athygli á því að ef þeir vilja bera fyrir sig fyrningu, þá komist þeir upp með það. Persónuleg skoðun mín er sú að það væri eðlilegt að innheimtumaður benti á að krafan væri fyrnd. Almennt held ég að ekki sé verið að innheimta kröfur, sem eru lagalega fyrndar." sagði Árni. En svo benti Árni á að til eru lög, sem rjúfa fyrningu hafi tilteknar aðgerðir verið hafnar. En það er töluvert flókið mál. fréttir Ríkisstjórnarfundur haldinn sfðdegis í dag um efnahagsmál: UlUUS FUNDAHðLD EN LÍTIÐ MIDAR AD IAUSN ■ „Það vantar ekki að mikið er unnið, en þó miðar bara ekki neitt“, sagði einn af stjómarþingmönnum í samtali í gær og var heldur dauft í honum hljóðið varðandi það, hvort takast mundi að lemja saman efnahagstillögur sem allir aðilar ríkisstjómarinnar geti sætt sig við. En framsóknarmönnum mun þykja heldur erfitt að fá alþýðubandalagsmenn til að fallast á nema ákaflega loðið og losaralegt orðalag á ýmsum mikilsverð- um atríðum, sem þeir telja aftur á móti nauðsynlegt að hafa alveg ótvíræð í lögum. Eftir mikil fundahöld hjá öllum aðilum í gærdag voru menn að vísu á því að mál hefðu skýrst nokkuð. „En hvort líkur á samkomulagi hafi batnað veit ég þó ekki“, eins og einn þingmannanna orðaði það í gær. Þeir sem í eldlínunni standa brjóta nú örugglega landslög daglega, þ.e. nýleg vinnuverndarlög, því fundir standa frá því í bítið á morgnana og fram yfir miðnætti á kvöldin hjá þeim sumum hverjum. í gærmorgun komu efnahags- nefndin og ráðherranefndin saman til fundar, eftir hádegi voru flokksfundirog aftur fundur hjá efnahagsnefnd. í gærkvöldi var framsóknarflokkurinn a.m.k. með annan þingflokksfund og að honum loknum átti efnahagsnefndin enn að koma saman til að fara í gegn um ýmiss atriði. Nú í morgunsárið átti ráðherranefndin að koma saman, en ríkisstjórnarfundur sá sem beðið hefur verið eftir þessa viku er fyrirhugaður eftir hádegið í dag. - HEI Tívolítækin flutt að Laugardalshöll. Tímamynd Ella Tæplega sjötugur breskur ofurhugi á sýningunni Heimilid ’82: Stekkur logandi úr 16 metra hæð niður í vaskafat — yfir 30 sinnum legið á sjúkrahúsi frá því hann hóf þetta starf ■ „Meðal þeirra atríða sem verða á sýningunni er breskur ofurhugi Roy Fransen, 68 ára gamall, en hans dirfska er fólgin í því að hann klifrar upp í 16 m hátt mastur, leggur elda að sér og stekkur niður í vaskafat" sagði Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri sýningarinnar Heimilið ‘82 sem hefst í Laugardalshöll á föstudag- inn. „Hann hefur starfað 30 ár í þessu og hefur legið 30 sinnum á sjúkrahúsi á þessum tíma, hann sagði mér að yfirleitt liðu 16-18 mánuðir á milli sjúkrahúsvist- anna". Fyrir utan Roy Fransen verða á sýningunni þrír listamenn frá Moskvu sirkusnum, tveir akróbatar og einn töfra- maður og svipað og 1980 verður tívoli til staðar. „Hér er um stærra tívólí að ræða en síðast með nýrri og fullkomnari tækjum" sagði Guðmundur. „Þarna verða tvær barnahringekjur, sveifluhringekja og stórt og voldugt tæki sem heitir kolkrabb- inn og notið hefur mikilla vinsælda. Á þessu tæki eru armar en niður af þeim körfur sem snúast andsælis örmunum sem svo aftur ganga upp og niður þannig að menn hafa nánast gleymt hvað þeir heita er þeir koma úr þessu tæki." Guðmundur sagði að nú yrði sýningin þríþætt. í anddyri yrði matvælakynning þar sem m.a. franska landbúnaðarsambandið myndi kynna frönsk matvæli en einnig væru íslenskir framleiðendur og innflytjendur með matvælakynningar. Hollenskir lírukassa- spilarar í midborginni ■ Hér á landi eru staddir hollenskir feðgar á vegum Arnarflugs, og munu þeir skemmta borgarbúum með spili á lírukassa í miðbænum næstu daga. Koma Hollendinganna tveggja er liður í kynningu Arnarflugs á Amsterdamferð- um félagsins, en ætlunin er að feðgarnir spili í bás Arnarflugs á sýningunni Heimilið82 í Laugardalshöll, og er það megin tilgangurinn með komu þeirra hingað. Auk þeirra verða í sýningarbás Arnarflugs demantaslípari að störfum og skósmiður að smíða tréskó upp á gamla mátann, en það má segja að þetta sé allt einkennandi fyrir Amsterdam. Einnig munu koma hingað til iands blómaskreytingamenn frá Floriade- blómasýningunni á vegum Arnarflugs í tengslum við sýninguna. ■ Hollendingar spiluðu á lírukassann í miðbænum í gær við góðar undirtcktir áheyrenda, en þeir munu skemmta borgarbúum næstu daga með spili í miðbænum þar til sýningin Heimilið ‘82 hefst. Þeir koma hingað á vegum Amarflugs til þess að auglýsa Amsterdamfcrðir félagsins. Tímamynd: Ari í aðalsal eru svo 70 fyrirtæki með heiminn á vegum Bandaríkjastjórnar cn á sýningarbása og í baksal ér bandarísk henni eru líkön af orkusparandi tækjum. orkusýning sem farið hefur víða um - FRI 1J «§0*^ V ; X i * ¥ * /ÆÍ3P:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.