Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
3
fréttir
Harmleikur f Oræfasveit þegar frönsk stúlka var myrt og systur hennar misþyrmt:
ARASARMANNINUMIGÆR
■ Um klukkan eitt í fyrrínótt kom flutningabflstjóri
að Skaftafelli og sagði frá að umferðarslys hefði orðið
úti á Skeiðarársandi. Hann sagðist hafa komið að þar
sem fólksbfll stóð á veginum og stúlka, mikið blóðug
hafí verið við bflinn. Hann sagðist hafa stoppað, en þá
kom maður til hans og sagðist vera bflstjóri á fólksbflnum
og hann hefði keyrt á stúlkuna. Hún væri mikið slösuð
og hann bað flutningabflstjórann að hraða sér að
Skaftafelli og sækja lækni og lögreglu.
Tveir verðir í Skaftafelli, sem eru þar
á vegum Náttúruverndarráðs, Þorbcrg-
ur Jónsson og Lára V. Helgadóttir settu
sig í samband við lögreglumann sem býr
á Svínafelli, Ólaf Sigurðsson. Pau þrjú
fóru á staðinn, en þá var þar enginn
maður og bíllinn var horfinn. Pau fóru
þá lengra, vestur að Gýgjukvísl, en
sneru þar við. Þegar þau koma aftur að
staðnum, þar sem slysið átti að hafa
skeð, það er á móts við sæluhús
Slysavarnafélagsins, er þar á veginum
stúlka, alblóðug í andliti og mikið sár,
m.a. með fimm skurði á höfði.
Hún var mjög óróleg sagði þó
ótrúlega skilmerkilega frá miðað við
aðstæður, að sögn þeirra sem komu að.
Henni sagðist svo frá að hún hefði
verið búin að koma sér fyrir til gistingar
ásamt systur sinni í sæluhúsinu, þegar
þangað kom maður, sem vildi flytja þær
til Hafnar í Hornafirði. Þær systur vildu
ekki fara og til átaka kom milli þeirra
og mannsins. Hún sagðist hafa fengið
höfuðhögg og orðið hálf rænulaus en
heyrt þó óminn af átökum systur sinnar
og mannsins. Hún hélt sig jafnvel hafa
heyrt skothvell.
Stúlkan, sem er frönsk og heitir Maríe
Luce Bahuaud, var flutt í Skaftafell og
gert þar að sárum hennar, til bráða-
birgða, en síðan var hún flutt á
Borgarspítalann í Reykjavík, þar sem
gerð var höfuðaðgerð á henni. Hún er
ekki talin vera í lífshættu.
Eftir að þetta gerðist var hafin leit að
bílnum og fólkinu, sem flutningabíl-
stjórinn hitti á veginum. Bíllinn fannst
um klukkan 9.15 í gærmorgun við
Neskvísl, uppundir Svínafellsjökli. í
bílnum fannst lík hinnar systurinnar.
Hún hétYvette Marie, tuttugu og eins
árs gömul. Líkið var illa leikið og á baki
þess voru skotsár.
Ökumaður bílsins var hinsvegar
hvergi sjáanlegur. Að sögn Friðjóns
Guðröðarsonar sýslumanns í Höfn, er
lögreglunni kunnugt um hver ökumað-
urinn er og hans var leitað í allan
gærdag, en án árangurs. Slysavarnar-
félagsmenn leituðu svæðið umhverfis
þar sem bíllinn fannst, og síðan var
fengin þyrla frá Landhelgisgæslunni til
að leita. Hún flaug yfir svæðið lengi
dags, en án þess að finna manninn. Þá
var fenginn hundur Hjálparsveitar skáta
í Hafnarfirði, til að leita. Hann kom á
staðinn um klukkan 19 í gærkvöldi.
Hann tók strax stefnu á jökulinn, en
þegar síðast fréttist í gærkvöldi hafði
leitarhundur rakið slóð árásarmannsins
að 50 til 100 metra djúpum jökulgíg í
Svínafellsjökli. Ætlunin var að síga ofan
í gíginn. Reyndist það ekki unnt. Hvort
tveggja var, að farið var að rökkva og
leitarmenn höfðu ekki meðferðis heppi-
legan búnað til sigsins.
Leitarmenn héldu sig þó við gíginn og
að sögn Friðjóns Guðröðarsonar, sýslu-
manns, var áætlað að sækja góðan
sigbúnað til Hafnar í Hornafirði og síga
svo í gíginn strax í dagrenningu. w
■ Hér má sjá hið óhrjálcga sæluhús á Skeiðarársandi þar sem kom til átaka á milli
árásarmannsins og frönsku stúlknanna í fyrrínótt, en stúlkumar höfðu komið sér þar
fyrir fyrr um kvöldið. Tímaraynd: Ari
Hræðiiegt
að sjá
stúlkuna”
— segir Lára V.
Helgadóttir,
starfsmadur
Náttúru-
verndarráðs
■ „Það var hræðilegt að sjá stúlkuna,
þegar við komum að henni á veginum,“
sagði Lára V. Helgadóttir, starfsmaður
Náttúruverndarráðs í viðtali við Tím-
ann, en hún var ein þcirra þríggja sem
komu að stúlkunni. „Hún var alblóðug
í andliti svo það sást aðeins í augun á
henni og hún var með fímm skurði á
höfðinu. Fötin voru hinsvegar heil og
það em engin merki annars en að hann
hafí barið hana í höfuðið með barefli og
svo reynt að binda þær með vír.
Þegar hún fór að tala um byssu og
byssuhvelli, hélt ég að hún væri með
óráði, því að við höfðum bara heyrt að
þarna hefði verið keyrt á stúlku," sagði
Lára.
SV
■ Lára V. Helgadóttir Tímamynd Ari
Vett-
vangur
atburd-
anna
„Vildi binda þær
með rafmagnsvír”
— segir Þorbergur Jónsson, landvörður
í Skaftafelli, sem taladi fyrstur vid
frönsku stúlkuna sem komst Iffs af
■ Þorbergur Jónsson vörður Náttúm-
vemdarráðs í Skaftafelli var einn þeirra,
sem komu að Maríe Luce Bahuaud á
veginum og það kom mest í hans hlut
að taia við hana. Honum sagðist svo frá
í viðtali við Tímann:
„Ég sat hjá henni í bílnum og talaði
við hana á leiðinni og ég verð að segja
»að hún hafi furðu góða stjórn á sér
miðað við það sem hafði gerst, og sagði
okkur frá því sem gerðist á mjög
skilmerkilegan hátt.
Hún lýsti þessu þannig að fyrr um
daginn hefðu þær systur hitt manninn
um það bil kílómetra frá Höfn í
Hornafirði. Hann bauð þeim far og
sagðist vera yfirvald á staðnum. Síðan
ók hann með þær að Jökulsá á
Breiðamerkursandi og sýndi þeim jökul-
lónið.
Síðan sagði hún að þær hefðu viljað
gista í Slysavarnafélagsskýlinu þar, en
hann sagði þeim að það væri fullt og
ekkert pláss fyrir þær þar. Hinsvegar
vissi hann um annað hús og bauðst til
að flytja þær þangað. Hann flutti þær þá
í skýlið á Skeiðarársandi og þangað var
komið um klukkan 20 um kvöldið. Þær
bjuggu sig til svefns í skýlinu og
maðurinn fór.
Um klukkan 23 um kvöldið kom hann
aftur og vildi fá þær með sér út á Höfn,
að því er hann sagði. Þær voru heldur
óhressar með það. Hann fór þá út í
bílinn að því er hún hélt til að sækja
sönnunargögn fyrir því að hann væri
yfirvald. Hinsvegar kom hann inn með
spotta af rafmagnsvír og vildi binda þær
með honum og einnig hafði hann þá
byssu meðferðis. Þær streyttust á móti
og Marie Luce lenti í átökum við
manninn, en systir hennar hljóp út.
■ Til vinstri á landabréfínu má
sjá kross þar sem sæluhúsið á
Skeiðarársandi er, en þar kom til
átaka á milli árásarmannsins og
frönsku stúlknanna. Fyrir miðju
kortinu er Skaftafell þaðan sem
leitinni var stjórnað í gær, en
lengst til hægri er kross við vestan-
verðan Svínafellsjökul þar sem
bifreið árásarmannsins fannst í
gærmorgun með líki annarrar
stúikunnar innanborðs.
■ Þorbergur Jónsson Túnamynd Ari
Hann sló hana þá niður og hún
vankaðist. Hún hélt þó að hún hefði
heyrt skothvell og hróp í systur sinni og
síðan ekki meira.
Eftir það fór hún niður á veg og hitti
okkur,“ sagði Þorbergur. SV