Tíminn - 28.08.1982, Page 1
Droplaugarstadir - vidtöl bls. 8 og 9
Blað 1 Tvö blöð í dag
Helgin 28.-29. ágúst 1982 194. tbl. - 66. árgangur
Síöumúla 15—Pósthólf 370 Reykjavik—Ritstjórn 86300 — Auglýsingar 18300 — Afgreiðsla og áskrift 86300 — Kvöldsímar 86387 og 86392
kvikmynda-
hornid:
Vídeó-
myndir
— bls. 15
Framvinda
efnahags-
e
álanna
bls.6-7
Barbra
fékk sér
2
■fosid
iá
ýskum
— bls. 5
Ríki og Reykjavíkurborg með glaðning til opinberra starfsmanna:
EINHUÐA AÐ
■ Eldur kom upp í Kúbu, einni af
verbúðum Fiskiðjunnar Freyju á
Suðureyri skömmu eftir miðnættið
aðfaranótt föstudagsins. Tveir menn
voru í húsinu, þegar eldurinn kom
upp, hvor í sínu herbergi, en aðrir
íbúar hússins voru að heiman.
Annar mannanna, sem voru heima,
hafði sofnað mjög fast og töldu
slökkviliðsmenn að hann hefði haft
mikil samskipti við Bakkus fyrr um
kvöldið. Eldurinn kom upp í herbergi
hans, en varð ekki mjög mikill, en
aftur á móti varð mikill reykur.
Marianna Jensen, húsmóðir á Suð-
ureyri var á leið heim til sín, þegar hún
fann mikla brunalykt, en hún býr
skammt frá Kúbu. Hún hélt fyrst að
eldur væri í hennar húsi, og vakti son
sinn. Hann varð þess fljótt var að
eldurinn var í Kúbu og setti bruna-
lúðurinn í gang. Slökkviliðið kom
fljótt á vettvang og reykkafarar fóru
inn í herbergið þar sem eldurinn kom
upp. Þeir vöktu manninn og komu
honum út og tókst að slökkva eldinn
með handslökkvitækjum. Þegar íbú-
inn var vel vaknaður í hreina loftinu
fyrir utan, vildi hann fara aftur inn til
að sækja eigur sínar.
Hinn maðurinn bjó á efri hæðinni
og var að gista sína fyrstu nótt á
Suðureyri, hafði komið til starfa hjá
Freyju þann sama dag. Hann leit fram
á ganginn þegar hann varð var við
umganginn og sá að mikill reykur var
í stiganum. Hann varð þá felmtri
sleginn, braut rúðu í herberginu, fór
út um gluggann og klifraði upp á þak,
þaðan sem honum var síðan bjargað
af slökkviliðsmönnum. Hann hafði þá
ekki enn jafnað sig af óttanum sem
greip hann. Hann skarst nokkuð á
höndum, við gluggabrotið.
Báðir mennirnir voru fluttir á
sjúkrahúsið á ísafirði.
SV.
■ Herbergið þar sem eldurinn kom
upp var mikið skammt af eldi og reyk.
Tímamynd Þorkell Diego
GREIÐA LAUNAUPPBOT
■ Ríkið og Reykjavíkurborg hafa
einhliða ákveðið að veita starfs-
mönnum BSRB 2,9% uppbót á laun
nú um mánaðamótin svo vísitöiu-
skerðingin sem þessu nemur kemur
ekki til með að hafa áhrif hjá BSRB
mönnum.
Þetta kom fyrst upp hjá fjár-
málaráðuneytinu fyrir um hálfum
mánuði en aftur á móti var gengið frá
þessu af hálfu Reykjavíkurborgar á
borgarráðsfundi í gær. Þröstur Ólafs-
son aðstoðarmaður fjármálaráðherra
hafði þetta að segja um ákvöröunina:
„Þetta er ekki launauppbót. Þannig
er að þegar ákveðið var að gera þessar
breytingar sem felast í bráða-
birgðalögunum, setja það í lög að
2,9% verða tekin af vísitölunni í
samræmi við samninga ASf og VSÍ
voru þau rök færð að allir yrðu að sitja
við sama borð hvað snertir vísitölu í
landinu . Hinsvegar hefur ekki nema
hluti af starfsmönnum innan BSRB
fengið þessa 4% grunnkaupshækkun
sem ASÍ samdi um og var hluti af
þeirra samningi sem leiddi af sér þessa
vísitöluskerðingu l.sept.
Nú hafa hvorki starfsmenn ríkis né
bæja fengið þetta og til þess að þeir
sitji við sama borð og ASÍ þótti rétt,
þótt ekki væru komnir fram samning-
ar, að borga upp í væntanlega
kjarasamninga 2,9%. Þannig hafa þeir
fengið af þessari 4% hækkun sem ASÍ
samdi um, 2,9% og þá er talið að þeir
sitji við sama borð.
-FRI
Eldur í verbúd
á Sudureyri:
Tveimur
mönnum
bjargað