Tíminn - 01.09.1982, Síða 1
Islendingaþættir fylgja bladinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 1. september 1982
197. tbl.-66. árgangur
Bandaríkja-
stjórn:
KSögumáB
rádherra
— bls. 7
Auðleyst
vandamál
— bls. 23
Syngur á
10 málum
bls.
Getrauna-
leikurinn
— bls. 15
Búist við að aðalkjarasamningur BSRB og ríkisins
yrði undirritaður í nótt:
FORMAÐUR BSRB UNDIR
í SAMNINGANEFNDINNI
— vildi ekki
■ Uppkast að aðalkjarasamningi
BSRB og fjármálaráðuneytisins var
tilbúið til undirritunar á miðnætti í
gærkveldi. Samkvæmt því féllst BSRB
á tilboð ráðuneytisins fráí fyrradagum
4% grunnkaupshækkun frá 1. ágúst sl.
og 2.1% hækkun frá nk.áramótum.
Gert var ráð fyrir 14 mánaða
samningstíma. Snurða hljóp á þráðinn
rétt áður en til stóð að undirrita
uppkastið, en vonir stóðu til að úr
þeirri flækju tækist að greiða síðar um
eftir 1.4% af hækkuninni um áramótin
nóttina, þannig að undirritun gæti
farið fram.
„Það er langt í frá að ég sé ánægður
með þetta samningsuppkast", sagði
Kristján Thorlacíus, formaður BSRB
í samtali við Tímann um miðnætti í
gærkveldi. Kristján var á „hörðu
línunni" í samningaþrefinu og var t.d.
á móti því að falla frá kröfunni um
launaflokkahækkun fyrir alla meðlimi
BSRB um áramót.sem hefði þýtt 1.4%
grunnkaupshækkun umfram 2.1%
sem samningsuppkastið gerir ráð fyr-
ir. „Harða línan“ varð undir í
atkvæðagreiðslu innan samninga-
nefndar BSRB laust eftir hádegið í
gær.
Þegar BSRB féll frá kröfunni um
launaflokkshækkunina - um áramót,
fengust ýmsar aðrar kröfur félagsins
samþykktar. Vóg þar þyngst að
laugardagar teljast ekki lengur til
orlofsdaga samkvæmt uppkastinu.
Búist var við, ef af undirritun
samninga yrði, að farið yrði að ræða
við einstök félög innan BSRB um
ófrágengnar sérkröfur, þ á m.röntgen-
og meinatækna, sem lögðu niður störf
á miðnætti.
„Ég reikna með að allt verði gert til
að samningar gangi saman í nótt. Það
er mjög lítið sem ber á milli og mér
kæmi alls ekki á óvart þótt samningar
tækjust", sagð Guðrún Árnadóttir,
formaður í'élags meinatækna.í samtali
við blaðainann Tímans í gærkveldi. Sjó
■ Ragnar Amalds fjármálaráðherra heimsótti „karphúsið" í gær og hér sést hannræðamálin,yfirkaffibolla,viðaðilaaðkjaraviðræðumríkisinsogBSRB.
Tímamynd GE
Kaupendur og oddamaður yfirnefndar ákváðu 16% hækkun fiskverðs:
ðTGERBARMENN HðFNIKNI
20% HÆKKIIN FISKVERDS
■ „Ég bauð Krístjáni að reyna að fá
fram samkomulag um 20% hækkun,
en hann hafnaði því alfarið og taldi það
hvergi nærri nóg,“ sagði Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráðherra í
viðtali um nýtt fiskverð, sem var
ákveðið í gær að skyldi hækka um 16%
frá þvi sem gilti til ágústloka.
Fiskiverðsákvörðunin var tekin af
Ólafi Davíðssyni oddamanni yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins
og fulltrúum kaupenda, Eyjólfi ísfeld
Eyjólfssyni og Friðriki Pálssyni. Full-
trúar seljenda voru á móti ákvörðun-
inni, þeir Ingólfur Ingólfsson og
Kristján Ragnarsson. Kristján lét
bóka mjög harðorð mótmæli við
þessari ákvörðum, þar sem segir m.a.:
„Eftir þessa fiskverðshækkun er staða
útgerðarinnar verri en hún var í
sumar, þegar sjávarútvegsráðherra
taldi þörf aðgerða." Og í lok bókunar
Kristjáns segir: „...mun á það reyna
næstu daga, hvort útgerðin lætur slíkt
yfir sig ganga.“
„Ég trúi ekki öðru,“ svaraði Krist-
ján Ragnarsson þegar Tíminn spurði
hann hvort lokaorð hans í bókuninni
þýði að flotinn muni stöðvast. „Ég trúi
því ekki að menn láti þetta yfir sig
ganga. En það hefur verið boðað til
fundar á fimmtudaginn, til að taka
afstöðu til þess.“
Steingrímur Hermannsson sagði að
fyrst Kristján hafi hafnað samkomu-
lagi um 20% hækkun, hafi ekki verið
annarra kosta völ en að semja við
fiskvinnsluna, sem ekki vildi sam-
þykkja meiri hækkun en 16%.
SV