Tíminn - 01.09.1982, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982
fréttir
Ört hækkandi verðlag á fasteignamarkaðinum í Reykjavík:
UTLAR iBÚÐIR NÚ HÆKK-
AÐ UM100% A ÐNU ÍRI
■ Nærri lætur að litlar íbúðir í
Reykjavík hafi hækkað um 100% á einu
ári, þ.e. á tímabilinu apríl 1981 til apríl
1982, samkvæmt útreikningum Fast-
eignamatsins úr öllum sölusamningum
þessara mánaða. Auk þess hækkaði
útborgunarhlutfall þessara íbúða úr
75% í 80% á tímabilinu. A sama tímabili
hækkaði hyggingarvísitalan um 48,8%.
Meðalverð allra seldra l-2ja her-
bergja íbúða í apríl 1981 var288 þús. og
útborgun á árinu 216 þús. (útb. 75%)
sem FM reiknar til 254 þús. kr.
staðgreiðsluverðmætis. Meðal söluverð
sama íbúðaflokks í apríl s.l. var 564 þús.
kr., útborgun 449 þús. (útb. 80%), sem
FM reiknar sem 521 þús. kr. stað-
greiðsluverð. Hækkunin milli ára miðað
við skráð söluverð er því 96%, en miðað
við staðgreiðsluverð (vegna hækkaðs
útborgunarhlutfalls) nemur hækkunin
105% á þessu eina ári.
Tekið skal fram að þær l-2ja herb.
íbúðir sem seldar voru í ár voru um 4
ferm. stærri að meðaltali en í fyrra (68
fm. á móti 64 fm.), en aftur á móti eru
einnig hlutfallslega fleiri af þeim eldri
íbúðir.
Af 3ja herbergja íbúðum er svipaða
sögu að segja. Meðalverð 3ja herbergja
íbúða seldra í apríl í fyrra var 367 þús.
kr., útb. 271 þús. eða 74%. Meðalverð
3ja herb. íbúða í apríl í ár var 706 þús.,
útb. 543 þús. kr. eða 77%
Marktækar upplýsingar um þróun frá
apríl s.l. liggja ekki fyrir hjá Fasteigna-
matinu.
-HEI
Efnahags-
ráðstöfunum
ríkisstjórnar-
innar
motmaett
■ MikiII fjöldi félaga hef-
ur að undanförnu sam-
þykkt mótmæli gegn hin-
um nýju efnahagsráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar,
sérstaklega varðandi fyrir-
hugaða verðbótaskerð-
ingu 1. desember n.k.
„Ekki fer á milli mála að við
margskonar vanda er að glíma í
íslenskum efnahagsmálum. Vandamál
þessi má ekki undir neinum kringum-
stæðum leysa á kostnað láglaunafólks",
segir í ályktun stjórnar Landssambands
iðnverkafólks. Jafnframt er því harðlega
mótmælt að enn cinu sinni sé gripið með
lagaboði inn í gerða kjarasamninga.
Félag bókagerðarmanna segir m.a. að
með bráöabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar séu kjarasamningar í raun ógiltir
og grundvellinum undir frjálsa samninga
varpað fyrir róða.
Fordæmir F.B. hinar síendurteknu
árásir á lífskjör fólks, og bendir á að á
sama tíma sé ekkert eftirlit haft tneð
gjaldeyrissóuninni í landinu.svo dæmi
sé tekið að hömlulaus innflutningur eigi
sér stað um leið og framleiðsla og
útflutningur dregst saman.
í sama streng tekur stjórn Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem bendir
jafnframt á að launataxtar fjölda fólks
sé um 8.000 kr. á mánuöi og séu ekki
orsök efnahagsvandans.
í ályktun Launamálaráðs BHM segir
m.a.: „Nú hefur vísitöluskerðingin sem
ASÍ samdi um frá 1. sept. verið lögfest
gagnvart öðrum launþegum og er ASÍ í
krafti stærðar sinnar þar með fenginn í
hendur samningsréttur fyrir alla aðra
launþega í landinu. Ríkisstarfsmenn
hafa þó ekki fengið þá launahækkun sem
ASÍ samdi um en hún er talin vera um
9,5%.“ Verði ekkert að gert telur
Launamálaráðið það hljóta að leiða til
uppsagna.
Mjög áþekk sjónarmið koma og fram
hjá Sambandi ísl. bankamanna, sem
fordæmir bau vinnubrögð að grípa til
svo harkalegra aðgerða án nokkurs
samráðs við launþega.
- HEI
Gunnlaugur
Briem, yfir-
sakadómari
■ Gunnlaugur Briem hefur verið
skipaður yfirsakadómari í Reykjavík.'
Hann tekur við sæti Halldórs Þorbjörns-
sonar, sem hefur verið skipaður dómari
við Hæstarétt.
Gunnlaugur Eggert Briem er fæddur
1922 á Sauðárkróki. Hann varð stúdent
frá menntaskólanum í Reykjavík árið
1943 og lauk lögfræðiprófi frá Háskólan-
um vorið 1949 og þá um haustið var
hann skipaður fulltrúi hjá sakadómaran-
um í Reykjavík. Hann stundaði fram-
haldsnám í Danmörku á árunum
1950-’51, en var skipaður sakadómari
árið 1961.
Hjördfs Ágústsdóttir er kona Gunn-
laugs og börn þeirra eru fjögur.
Rokk í Reykja-
vík á myndbandi
■ Hugrenningur sf. hefur nú gefið út
myndina „Rokk í Reykjavík" á mynd-
band og verður henni dreift í allar helstu
myndbandaleigur landsins.
Myndin er óstytt eða 90. mín. að
lengd og þeir sem áhuga hafa á að
eignast eintak geta hringt í síma 17646
eða 13339.
■ Frá hlaðamannafundi þar sem sagt var frá „Scandinavia Today“. F.v. Skúli Möller, Kristinn Hallsson, Tómas Karlsson,
Halldór Reynisson og Jónas Kristjánsson. Tímamynd Ari. mmm
Hlutur íslendinga stór við hátíðarhöldin vegna
„Scandinavia Today” í Bandarlkjunum:
VIGDÍS HELDUR AÐAL-
RÆÐUNA VIÐ OPNUNINA
■ Vigdís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, fer til Bandaríkjanna á laugar-
daginn. Þar mun forsetinn opna
norrænu menningarkynninguna „Scan-
dinavia Today“ (eða Norðurlönd nú-
tímans) í þremur borgum, Washington,
Minncapolis og New York, fyrir hönd
allra Norðurlandanna.
í ferðinni mun forsetinn m.a. heim-
sækja Ronald Reagan, forseta Banda-
ríkjanna í Hvíta húsið og verða
sérstakur gestur hans í Washington.
f fylgd forseta íslands verða Ólafur
Egilsson, sendiherra, Halldór Reynis-
son, forsetaritari og Vigdís Bjarna-
dóttir, deildarstjóri á forsetaskrifstof-
unni. Ennfremur verða í föruneytinu
Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra
og kona hans frú Auður Erlingsdóttir,
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri og
kona hans frú Sigríður Thorlacius,
Kristinn Hallsson, fulltrúi í mennta-
málaráðuneytinu og Tómas Karlsson,
sendifulltrúi.
Dagskrá ferðarinnar
Laugardaginn 4. september heldur
forsetinn til Washington DC. Við
komuna tekur Walter J. Stoessel,
aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna á móti forsetanum.
Sunnudaginn 5. september mun for-
setinn ásamt fylgdarliði sitja kvöld-
verðarboð sendiherra íslands í Washing-
ton Hans G. Andersen og konu hans frú
Ástríðar Andersen.
Mánudaginn 6. sept. Móttaka fyrir
íslenska þátttakendur menningar-
kynningarinnar á heimili sendiherra-
hjónanna.
Sjöunda september hcimsækir for-
setinn dótturfyrirtæki S.H., Coldwater
Seafood Corp. í Maryland. Síðdegis
efnir Islendingafélagið í Washington til
móttöku til heiðurs forsetanum. Um
kvöldið verður forsetinn við flugelda-
sýningu sem forráðamenn „Scandinavia
Today“ efna til.
Ronald Reagan heimsótt-
ur í Hvíta húsið
Áttunda september heldur forseti
íslands til fundar við Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu. Mun
Bandaríkjaforseti halda forseta íslands
hádegisverðarboð svo og öðrum þjóð-
höfðingjum Norðurlanda sem staddir
verða í Washington.
Síðla sama dag opnar Vigdís Finboga-
dóttir menningarkynninguna, „Scandi-
navia Today“, við hátíðlega athöfn í
Kennedy Center. Forsetinn heldur
aðalræðuna og karlakórinn Fóstbræður
syngur.
Um kvöldið verða tónleikar í „The
National Academy of Sciencis" þar sem
flutt verður tónlist frá öllum Norður-
löndum.
Föstudaginn 10. september verður
haldið til Minneapolis með sérstakri
flugvél Bandaríkjaforseta.
Vigdís mun flytja aðalræðuna við
opnun menningarkynningarinnar í
Minneapolis. Þar verður kynningin í
Guthrie Theater.
Laugardaginn 11. sept-hefst dagskráin
með hátíðarsamkomu á Metradome
leikvanginum, en hann rúmar 62 þús.
manns. Þar halda fulltrúar allra Norður-
landanna stutt ávörp.
Síðdegis verður forseti íslands við-
staddur sýninguna Icelandic Fashions,
sem fram fer í einu stærsta vöruhúsi
borgarinnar.
Sunnudaginn 12. sept. situr forsetinn
hádegisverðarboð ríkisstjórans í Minne-
sota. Einnig situr hún samkvæmi sem
íslendingasamtök fylkisins standa fyrir.
Síðdegis verður haldið til New York
Opnunarathöfn „Scandinavia Today“
íNew York verður 13. september og þar
mun forseti íslands flytja aðalræðuna.
Um kvöldið mun hún verða viðstödd
opnun þriggja listsýninga.
Þriðjudaginn 14. september verður
forsetin við opnun sýningarinnar „The
Scandinavian Touch“, sem utanríkisráð-
herra Finnlands opnar í Fashion
Technology Institute.
Um kvöldið efnir American Scandi-
navian Foundation til kvöldverðar.
15. september heimsækir forsetinn
Pierpont Morgan bókasafnið þar sem
sýning verður á íslenskum handritum.
Síðdegis verður forsetinn í móttöku
íslenskra útflutningsaðila á Hotel Pierre.
Fimmtudaginn 16. september heldur
Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra
norrænum fræðimönnum íBandaríkjun-
um hádegisverð. Síðdegis flytja þeir
Bjarni Guðnason, prófessor og Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður Árnastofn-
unar fyrirlestra um íslenskar fornbók-
menntir.
Síðdegis opnar forsetinn sýninguna
„New Dimensions in Scandinavian
Architecture".
17. september halda samtök íslend-
inga í New York forsetanum samkvæmi
honum til heiðurs.
Laugardaginn 18. september heldur
forsetinn og fylgdarlið til Seattle. Þar
verður dvalið þar til haldið verður heim
á leið 22. september. Sjó
VIDEOSPORT s/f
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 - Sími 33460 Höfum fengið mikið
af myndefni í V.H.S. með og án íslensks texta.
Opið alla
daga
kl. 13.00-23.00