Tíminn - 01.09.1982, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1982
5
fréttir
REKSTUR NEYÐARBILS
HAFINN f SEPTEMBER
— frá slysadeild Borgarspítalans,
með lækni um borð, en að
vísu aðeins á skrifstofutíma
■ „Það er búið að leysa úr þessu máli
- við erum búnir að fá aura - og
fyrirhugað er að hefja rekstur þessa
neyðarbíls 10. til 13. september, þ.e.
þegar búið er að ganga frá öllum málum
í þvi sambandi“, sagði Hrólfur Jónsson,
varaslökkviliðsstjóri í gær.
Ákveðið hefur verið að reka bílinn
frá slysadeild Borgarspítalans, og mun
Borgarspítalinn bera kostnað af
nauðsynlegri aðstöðu og læknisfræði-
legri hlið málsins. Bíllinn verður
mannaður einum lækni frá Borgar-
spítalanum og tveim mönnum sem
sendir verða frá Slökkvistöðinni. En
bíllinn verður til að byrja með aðeins
rekinn á tímabilinu kl. 8.00 til 17.00
virka daga.
Hin sérstaka fjárveiting borgarinnar í
þessu skyni nemur 60.000 krónum og
gerði Hrólfur ráð fyrir að hún myndi
duga til að mæta þeim kostnaði sem af
rekstrinum hlýst í um þrjá mánuði, eða
fram undir áramótin.
Á slökkvistöðinni í Öskjuhlíð eru 4 af
þeim 15 brunavörðum sem jafnaðarlega
eru á vakt skráðir til sjúkraflutninga á
tveim bílum. Sjúkrabflar Slökkvistöðv-
arinnar hafa að undanfömu framkvæmt
að meðaltali um 20 til 25 sjúkraflutninga
á sólarhring, þar af hafa neyðarflutn-
ingar verið um 4. -HEI
■ Þegar Hrefna Árnadóttir, Hverfisgötu 38, Hafnarfirði, ætlaði að kaupa Soda
Stream vél á sýningunni „Heimilið og fjölskyldan ’82“ s.l. mánudag, kom í Ijós, að
hún hreppti 100 vélina sem seld var á sýningunni.
Hrefna varð því sú heppna og fékk Soda Stream vélina ókeypis, og varð þar með
1100 krónum ríkari.
Áformað er að selja 150 vélina á kr. 550.00 og sá sem kaupir 200 vélina þarf ekki
að taka upp veskið.
Á myndinni sést hvar Ámi Ferdinandsson hjá Sól h.f. afhendir Hrefnu vélina.
Rauði krossinn útdeilir
fé úr sérverkefnasjóði:
Fjórar sjúkrabif
reiðar keyptar
■ Stjórn Rauða Kross Islands sam-
þykkti á fundi sínum nýlega að veita
samtals 1079,000,00 krónur úr sérverk-
efnasjóði félagsins til 12 deilda RKÍ.
Þrjár deildir fengu fé til kaupa á
fjórum sjúkrabifreiðum og ein til þess
að reisa skýli fyrir sjúkrabifreið, alls
679,000,00 krónur.
Átta deildir Rauða Krossins fengu fé
til þess að verja í þágu aldraðra, alls
400,000,00 krónur.
Helgarskák-
mót á Núpi
í Dýraf irði
■ Helgarskákmót á vegum Skáksam-
bands Vestfjarða, í samvinnu vi£/
Tímaritið Skák og Skáksamband ís-
lands, verður haldið að Núpi í Dýrafirði
um næstu helgi þ.e. dagana 3. til 5.
september.
Tefldar verða sex umferðir eftir
svissneska kerfinu. Hver keppandi hefur
1 1/2 klukkustund á 30 leiki og síðan 1/2
klukkustund til að ljúka skákinni.
Að venju verða flestir bestu skák-
menn íslands meðal þátttakenda. Glæsi-
leg verðlaun verða í boði. Verða þau
veitt þremur efstu keppendum mótsins
auk þess verða kvennaverðalun,
unglingaverðlaun og öldungaverðlaun.
- Sjó.
Reykjavíkurdeild fékk 362,000 til
kaupa á tveimur sjúkrabifreiðum.
Strandasýsludeild fékk 92,000 til kaupa
á sjúkrabifreið.
Húsavíkurdeild fékk 175,000 til kaupa á
sjúkrabifreið.
Árnessýsludeild fékk 90,000 v/dag-
vistunar fyrir aldraða.
A-Skaftafellssýsludeild fékk 50,000
v/elliheimilisins á Höfn.
Eskifjarðardeild fékk 50,000 v/elli-
heimilisins á Höfn.
Siglufjarðardeild fékk 50,000 v/lyftu-
búnaðar í Siglufjarðarkirkju.
Grundarfjarðardeild fékk 50,000 til
kaupa á húsbúnaði fyrir aldraða.
Ólafsfjarðardeild fékk 70,000 til
þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða.
Rangárvallarsýsludeild fékk 50,000
v/smíði bílskýlis fyrir sjúkrabíl.
Súgandafjarðardeild fékk 20,000 til
kaupa á leiktækjum fyrir börn.
Rauða Kross deildir á Vestfjörðum
fengu saman 20,000 v/orlofsdvalar
aldraðra.
Stjórn Rauða Kross íslands hafði fyrr
á þessu ári samþykkt fjárframlög til
deildar úr sérverkefnasjóði félagsins
fyrir alls 694,000 krónur og hefur því á
árinu verið veitt úr sérverkefnasjóði
RKÍ fjárhæð að upphæð ein milljón og
sjö hundruð sjötíu og þrjú þúsund
krónur samtals.
Snjóruðningstæki:
Framleiðum snjóruðnings'
tennur fyrir vörubíla og
dráttarvélar. Pantanir þurfa að
berast sem fyrst svo hægt
verði að afgreiða
þær fyrri part vetrar
Stáliækni sf.
Síðumúla 27, sími 30662
N
/
VAKA Á VEGI Á NÓTTU SEM DEGI
SVAR: Flestir hafa gert sér hugmyndir um það, hvað
verðbólga er. Allir verða varir við að vöruverð
hækkar. En nú hækka sumar vörur meira og
aðrar minna. Hvernig geta menn „mælt“ verð-
bólguna? Það er gert með vísitölum. Vísitala
framfærslukostnaðar mælir t.d., hvernig kostn-
aður breytist við framfærslu hjóna með tvö börn í
Reykjavík (vísitölufjölskyldu). Reiknað er, hve
mikið allar þær vörur, sem þessi fjölskylda notar
á mánuði, hækka og breytist framfærsluvísitalan
hlutfallslega eftir því. Byggingarvísitala mælir á
sama hátt, hve mikið kostnaður við að reisa nýja
íbúð hækkar. Ef byggingarvísitalan tvöfaldast,
þá segir það okkur, að nú getum við byggt eitt nýtt
hús fyrir sömu krónutölu og við byggðum tvö
áður.
Verðtrygging láns þýðir að eftirstöðvar sem og
allar greiðslur af láninu (vextir og afborganir)
hækka hlutfallslega jafnmikið og sú vísitala, sem
miðað er við, en það er oftast lánskjaravísitala.
Dæmi: Lánskjaravísitalan var 172 þ. 1. ág.
1980, en er nú 1. ág. 1982 387. Hún hefur því
hækkað um 125,0% á þessum tveimur árum.
Eftirstöðvar allra lána, sem verðtryggð eru miðað
við lánskjaravísitölu, hafa því á þessum sama
tíma einnig hækkað um 125.0%.
Lánskjaravísitalan er þannig uppbyggð, að 2/3
hlutar hennar eru vísitala framfærslukostnaðar
og 1/3 er vísitala byggingarkostnaðar.
SAMBAND ALMENNRA
LÍFEYRISSJÓÐA
ILANDSSAMBANDI
I LÍFEYRISSJÓÐA