Tíminn - 02.09.1982, Blaðsíða 11
■ „Ég vil kannski ekki segja cð ég
sakni stóru fallbyssanna en ..." segir
Bent H. Jensen.
Bent
HJorth
Jensen
komm-
andör
um
borð í
Danne-
brog
snekkju
dönsku
kon-
ungsfjöl
skyld-
unnar:
■ Dannebrog, snekkja dönsku konungs-
fjölskyldunnar lá hér í Reykjavíkurhöfn
um helgina og fram á þriðjudag en hingað
kom skipið á leið sinni frá Grænlandi til
Danmerkur en í Grænlandi var skipið
notað sem híbýli konungsfjölskyldunnar
og gesta meðan á hátíðahöldunum stóð
vegna 1000 ára afmælis komu Eiríks rauða
til landsins.
Kommandör, eða skipherra, á Danne-
brog er Bent Hjorth Jensen, gamall í
hettunni og hefur áður þjónað m.a. á einu
stærsta herskipi flotans í Danmörku.
„Þetta er gott skip og traustbyggt,
smíðað eftir gömlum hefðum og því
níðsterkt" sagði Bent H. Jensen í samtali
við Tímann er við litum um borð í skipið
meðan það lá hér við bryggju.
„Skipið er smíðað úr tré, 1300 tonn að
stærð, og með 58 í áhöfn að öllu jöfnu en
áhöfn fjölgar nokkuð er meðlimir konungs-
Tímamyndir ARI
Varðmaður um borð í Dannebrog
■ Dannebrog í Reykjavíkurhöfn!
fjölskyldunnardveljaumborðþvíþauhafa Skipið varbyggt 1932ogþávar jafnframt tekið eftir gömiu dönsku riddarareglunni
sitt sérstaka aðstoðarfólk. gamla Dannebrog lögð niður en nafnið er og skipið tilheyrir danska flotanum.
■ Kommandör Bent H. Jensen t.v. í káetu sinni ásamt Kölle foringja.
Nútíma búnaður
í máli Bent H. Jensen kemur fram að
nýlega voru öll siglingartæki um borð
endurnýjuð og er það nú búið öllum
nýtísku siglingartækjum... „Það má segja
að við höfum byggt skip innan í gamla
skrokknum", segir Bent.
Skipið er auk þess útbúið nýtískuvélum
og tveimurskipsskrúfum en þær liggja utar-
lega á skrokknum og vegna þess urðu erf-
iðleikar vegna íss á siglingu skipsins til
Grænlands því skipsskrokkurinn varði
ekki skrúfurnar nógu vel.
Bent H. Jensen segir að hann hafi undan-
farin tvö ár verið kommandör á Danne-
brog. Hann hafi þó verið kunnugur því
áður því hann þjónaði um borð á árunum
1958-1961. Á milli þess var hann á ýmsum
skipum danska flotans, þ.á.m. einu af
stærstu herskipum hans.
„Ég vil ekki segja að ég sakni stóru
fallbyssanna en...“ segir hann, smellir
saman höndunum og brosir angurvært.
Mitterrand um borð
Dannebrog er aðeins í notkun yfir sum-
artímann og ef það er ekki að sigla með höfn í Danmörku. Vinsælt er að bjóða ir Bent að síðast er Mitterrand Frakklands-
konungsfjölskylduna þá liggur það við erlendum þjóðhöfðingjum um borð og seg- forseti var í heimsókn í Danmörku var
■ í vinnuberbergi Margrétar drottningar um borð.
honum boðið um borð í Dannebrog.
Er danska konungsfjölskyldan ferðast á
milli staða í Danmörku notar hún iðulega
skipið. Næsta ferð þess utan Danmerkur
verður til Ósló á næsta ári í tilefni 25 ára
afmælis Ólafs Noregskonungs í konungs-
stól.
Gamlir munir
Tímamönnum gafst kostur á skoðunar-
ferð um skipið en í því er að finna margt
merkra og gamalla muna, m.a. muna
sem voru í eigu Kristjáns 10. Danakon-
ungs. Þannig hangir t.d. sjónauki Kristjáns
á einum veggnum. Um borð er lítið
bókasafn og velur Margrét Danadrottnig
bækur í það í upphafi hverrar ferðar. Er
við komum um borð var til dæmis mjög
mikið af bókmenntum um Grænland í
bókasafninu.
Margrét Danadrottning hefur sérstakt
vinnuherbergi um borð í Dannebrog og
sagði fylgdarmaður okkar Kölle sjóliðs-
foringi að drottningin notaði það mikið á
ferðum því hún vill hafa hönd í bagga með
öllu hvað varðar dagskrár slíkra ferða eins
og til Grænlands.
- FRI
■ Áttavita af þessari tegund má finna
víða í skipinu.