Tíminn - 09.09.1982, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982.
5
fréttir
Flugstödvarbyggingin stöðvuð í ríkisstjórninni:
ALÞÝÐUBANDAIAGSMENN
BEITTU NEITUNARVALN
Ríkisstjórnin fer fram á að framlag
Bandaríkjamanna verði framlengt
Varðhald
frans lengt
um þrjár
vikur
■ Gæsluvarðhald íra þess sem braust inn
í nokkrar skartgripaverslanir í höfuð-
borginni hefur verið lengt um 3 vikur en
hann var upphaflega úrskurðaður í 3ja
vikna varðhald.
Uppi voru getgátur um það að hann
tengdist að einhverju leyti IRA sam-
tökunum á Irlandi en fátt hefur komið
upp sem bendir til beinna tengsla þar á
milli.
FRI
■ Höggvið var á hnútinn varðandi
flugstöðvarbygginguna á Keflavíkur-
flugvelli á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un. Þar var málið tekið fyrir og afgreitt.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins beittu
neitunarvaldi og lögðust gegn því að
flugstöðin yrði reist samkvæmt þeim
áætlunum sem fyrir lágu.
Ólafur Jóhannesson gerði það að sinni
tillögu, að samþykkt yrði tillaga meiri-
hluta þeirrar nefndar sem hann skipaði
á sínum tíma, þeirra Jóhanns Einvarðs-
sonar og Edgars Guðmundssonar. Með
því voru framsóknarmenn og sjálfstæðis-
menn í ríkisstjóminni, með tilvísun til
bókunar sem þeir lögðu fram.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
beittu neitunarvaldi sem þeir hafa í
málinu samkvæmt stjórnarsáttmálanum.
Bæði ráðherrar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks vildu að reynt yrði að
fá framlengt heimildinni um fjárframlög
■ Bræðurnir Aðalsteinn og Guðjón Skúlasynir, taka fyrstu skóflustunguna að nýju
dvalarheimili fyrir aldraða í Dalasýslu sem rísa á í Búðardal.
Tímamynd: Krístinn
Dalasýsla:
Hafin bygg-
ing dvalar-
heimilis
fyrir aldraða
■ Mánudaginn 6. september sl. komu
oddvitar allra hreppa Dalasýslu saman í
Dalabúð í Búðardal. Á þessutn fundi var
samþykkt að hefja þegar byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða í Dalasýslu
og skal það rísa í Búðardal. Er við það
miðað að vinnu við grunn Ijúki fyrir
næstu áramót.
í fyrsta áfanga sem verður 800-900
fermetrar verða fjórar hjónaíbúðir og
átta einstaklingsíbúðir ásamt sameigin-
legu rými fyrir föndur, sameiginlegan
borðsal og setustofu.
Að loknum fundi var tekin fyrsta
skóflustungan að dvalarheimilinu en
hana tóku bræðurnir Aðalsteinn og
Guðjón Skúlasynir en þeir hafa sýnt
þessu máli mikinn áhuga. Viðstaddir
athöfnina voru oddvitar og sýslumaður,
bygginganefnd og læknar heilsugæslu-
stöðvarinnar.
til byggingarinnar frá Bandaríkjunum,
en alþýðubandalagsmennirnir voru á
móti.
„Ég mun beita mér fyrir því að
framlagsheimildin verði framlengd,"
sagði Ólafur Jóhannesson utanríkis-
ráðhena, við Tímann í gær. Gagnvart
því hafa alþýðubandalagsmennirnir
ekkert neitunarvald.
Fyrir liggur að ríkisstjórnin vill að
eftir því sé óskað, þótt minnihlutinn sé
þar á annarri skoðun.
„Og það verður reynt,“ sagði Ólafur.
„En á þessu stigi um hvort að það tekst
eða ekki, það er undir Bandaríkjamönn-
um komið.“
Ljóst er að ekkert verður úr
framkvæmdum við flugstöðvarbyggingu
í bili. Ef ekki kemur til nein ný ákvörðun
frá Bandaríkjunum fellur fjárframlag
þeirra niður.
Svavar Gestsson félagsmálaráðherra
sagði í Þjóðviljanum í gær, að ekkert
lægi fyrir um framkvæmdir í Helguvík
og að það sé langur vegur frá skipulagi
til framkvæmda og að skipulag þyrfti að
leggja fyrir ráðuneyti hans til samþykkt-
ar eða synjunar áður en framkvæmdir
hefjast. Ólafur var spurður um þessi
ummæli félagsmálaráðherra.
„Það er hans óskhyggja sem þar
kemur fram,“ svaraði utanríkisráð-
herra. Það verður ekkert lagt fram til
samþykktar varðandi það. Að sjálf-
sögðu verður ríkisstjórnin látin fylgjast
með þeim málum, en það er ekkert sem
fyrir liggur til samþykktar."
Tveir í
15 daga
gæslu-
varðhald
■ Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í 15
daga gæsluvarðhald grunaðir um fíkniefna-
misferli. Gísli Björnsson fulltrúi í fíkni-
efnalögreglunni sagði í samtali við Tímann
að mcnnirnir hefðu verið handtcknir hér í
Reykjavík í fyrradag en gæsluvarðhalds-
úrskurðurinn var kveðinn upp í gær. Að
öðru leyti vildi Gísli ekki tjá sig um málið
að svo stöddu.
FRI
LANfra
UFEYRIS
ISJOÐUM
BORGAR SIG AÐ SPARA?
SVAR: Þarfir nútímamanna eru margvíslegar allt frá
húsnæði og klæðum,til bíla, vídeótækjaog skíða-
útbúnaðar. Sumar þessar þarfir eru manninum
lífsnauðsynlegar, aðrar ekki. íslendingar hafa
búið við það undarlega ástand í yfir 40 ár, að þeir
sem veittu sér allt sem hugurinn girntist þurftu
ekki að greiða fyrir það fullu verði, heldur voru
hinir. sem neituðu sér um munaðinn, látnir greiða
fyrir þá að hluta með rýrnun á sparifé sfnu. Erekki
að furða þó aö svo löng reynsla hafi sett svip sinn
á afstöðu manna til sparnaðar. En nú hefur veriö
snúið við blaði. Sparifjáreigandanum hefur verið
tryggt að hann fái verðgildi aura sinna til baka og
reyndar örlitla vexti aö auki. Þetta er gjörbreyting.
Nú ættu allir aö hugleiða, hvort þeir geti ekki
frestað einhverjum þörfum sínum um smátímaog
keypt sér hlutina síöar og þá fyrir eigið sparifé í
stað þess að taka mjög dýr lán til kaupanna.
Eigið sparifé er auk þess hluti af sjálfstæði
manna. Maður sem á t.d. sex mánaða laun á
sparisjóðsbók er miklum mun frjálsari en hinn,
sem er búinn meö mánaðarlaunin um miðjan
mánuðinn og á ekkert upp á að hlaupa. Þetta ættu
menn að hugleiða vel áður en þeir steypa sér í
miklar fjárfestingar.
ILANDSSAMBAND SAMBAND ALMENNRAITO
ILÍFEVRISSJÓÐA LÍFEYRISSJÓÐA
VIDEO SPORT s/f
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 - Sími 33460 Höfum fengið mikið
af myndefni í V.H.S. með og án íslensks texta.
Opið alla
daga
kl. 13.00-23.00