Tíminn - 09.09.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.09.1982, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982. FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982. 10 11 ■ ■ Hér mislekst Ómari Torfasyni að skora hjá þýska markverðinom á 8. mín. fyrri hálHeiks ( g*r. ■ Sigurdur Grétarsson og Guðmundur Þorbjömsson virðast ekki vera ánægðir með ■ Sigurður Grétarsson á hér í höggi við þijá vamarmenn austnr-þýska landstiðsins endalok sóknarinnar. '' v-'C' „Viðætlum okkurudd” Oddur í úrslitum segir Þorleifur Ananíasson, fyrirlidi handknattleikslids KA Við höfum æft fimm sinnum í viku knattleiksliðs KA er við spjölluðum við i um miðjan júlí, og það er óhætt hann. KA féll sem kunnugt er í 2. deild gja það að það er mjög mikill hugur s.l. vor, og þá strax var ráðinn nýr ;ur, og við erum staðráðnir í því að þjálfari sem leysir Birgi Bjömsson af rheimta sæti okkar í 1. deild“ sagði hólmi. Birgir hefur þjálfað liðið undan- ;ifur Ananíasson fyrirliði hand- farin ár, en hyggst flytja búferlum suður áður en langt um líður. „Nýi þjálfarinn okkar er Jan Larsen sem er kunnur þjálfari í Danmörku. Okkur líkar mjög vcl við hann og það sem hann er með á æfingum. Við byrjuðum að æfa úti í sumar en fluttum 1 okkur svo inn i Skcmmuna fyrir skömmu og æfum grimmt." Tveir Danir leika með liði KA í vetur, HHs.’Aka annar þeirra Hemming Bevensee er um tvítugt en hinn Kjekl Mouritsen er 27 ára og lék í fyrra með ilanska liðinu Ribe þar sem L.arsen var þjálfari. I’að lið missti naumlega af sæti t 1. tleild. „I’etta ^ eru góðir leikmenn á okkar mælikvarða, ■ báðir eru ntiklir spilarar og styrkja lið okkar mikið" sagði f’orleifur. Allir JHEHh* helstu leikmenn KA frá í fyrra verða H áfrant með liðinu, nema óvíst er með HlflHPI/.'l Aðalsteinn Jóhannsson markvörð sem er meiddur. gk-Akureyri | VOI.VÖ sínu allra besta í gær. En það er þrátt fyrir allt góður árangur að komast í úrslit í jafn sterkri keppni og þessi keppni er. Þátttöku íslendinga á Evrópu- mótinu í frjálsum íþróttum er lokið að þessu sinni. Pórdís Gísladóttir, sem keppti í hástökki á þriðjudag komst ekki í úrslit, stökk aðeins 1,80 metra. Til að komast í úrslitin hefði hún þurft að bæta íslandsmet sitt, sem er 8.85 m og það tókst henni ekki að þessu sinni. Óskar Jakobsson sem valinn var til keppni í Aþenu mætti ekki til leiks og stafaði það af óánægju hans með árangurinn að undanförnu. Taldi hann sig ekki eiga erindi til að keppa í Aþenu. Þetta er athyglisverð og óvenju- leg afstaða hjá íþróttamanni, en alls ekki einstæð. Danskur spjót- kastari sem náði lagmarksárangri til þátttökunnar gerði hið sama. Hann sat heima, var ekki viss um að hann gæti náð góðum árangri. 1 Úrslitin í 400 metra hlaupi itarla á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Aþenu fóru fram í gær. Oddur Sigurðsson KR ávann sér rétt til þátttöku í úrslitunum með frábæru hlaupi í fyrradag, en í gær gekk ekki jafn vel hjá Oddi. Hann hafnaði í 16. sæti og hljóp á 47:35 sek., sem er talsvert frá hans besta tíma. í undankeppninni gekk betur hjá Oddi. Hann hafnaði í fjórða sæti í sínum riðli, en komst í úrslitakeppnina þar sem hann náði bestum tíma þeirra hlaupara sem ekki urðu í einu af þremur efstu sætunum í riðlakeppninni. Þá hljóp Oddur á nýju íslandsmeti 46.63 sek., en það er einum hundraðasta úr sekúndu betri tími en fyrra metið, sem hann átti sjálfur. í undankeppninni átti Oddur tólfta besta tímann, þannig að ljóst er að hann hefur ekki náð ■ Hefði heppnin fylgt íslenska landsliðinu í leik þess gegn Austur-Þjóðverj- um á Laugardalsvellinum í gærkvöldi hefði það átt að taka forystu í leiknum strax á 8. mínútu fyrri hálfleiks. Þá fékk Sigurður Grétars- son knöttinn og sendi hann á Ómar Torfason, sem var einn á auðum sjó og mark- vörðurinn einn til varnar. En Rudwaleit markvörður varði skotið af öryggi. Annars byrjaói leikurinn frekar rólega. íslenska liðið var seint í gang ef undan eru skilin fjörbrotin á 8. mínútunni. Margir voru á þeirri skoðun að leikurinn yrði íslendingum erfiður, einkum með hliðsjón af fjarveru allra atvinnumannanna að einum undanskildum. En það virtist ekki valda liðinu verulegum vandkvæðum því í gær kom í Ijós að hér á landi er stór hópur leikmanna sem standa fyllilega fyrir sínu í leikjum gegn sterkum erlendum liðum. Þjóðverjarnir byrjuðu af krafti og á 4. mínútu átti Schnuphase skot á markið en framhjá. I landsleiknum gegn Hollend- ingum fyrir viku varð Janus Guðlaugsson að yfirgefa völlinn á 13. mínútu og Gunnar Gíslason kom þá inná í hans stað. Gegn Austur-Þjóðverjunum meiddist Gunnar Gíslason á 13. mínútu og varð að yfirgefa völlinn og í hans stað kom Ragnar Margeirsson og lék mjög vel. En hætt er við að Gunnar Gíslason verði ekki með KA-liðinu gegn Breiðabliki á laugardag. Á 21. mínútu átti skotfastasti leikmaður Þjóðverjanna Pommerenke skot að marki íslands en framhjá. Mínútu síðar átti Pétur Pétursson svo gott skot að marki, en rétt yfir. Stuttu seinna átti Pétur svo -endingu á samherja í vítateig Þjóðverjanna, en knötturinn rataði ekki rétta leið og því var hættan úr sögunni. Þjóðverjar skora ■Á 30. mínútu fengu síðan Þjóðverjar aukaspyrnu rétt utan við vítateig íslend- inga. Það var Joachim Streich sem framkvæmdi aukaspyrnuna og sendi gott skot í bláhornið framhjá Þorsteini Bjarna- syni frábærum markverði íslenska liðsins. En í það sinn náði hann ekki að forða marki. Þremur mínútum síðar átti Sigurður Grétarsson góða sendingu sem var ætluð Pétri Péturssyni, en hann náði ekki til knattarins. Skömmu síðar átti svo Ómar Torfason hörkuskot sem Rudwaleit varði og rétt á eftir var Ómar aftur á ferð með hjólhestaspyrnu eftir sendingu Ragnars Margeirssonar frá hægri. Fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks kom hár bolti fyrir íslenska markið. Þorsteinn og einn Austur-Þjóðverjinn börðust um að ná sendingunni og hafði Þjóðverjinn betur, en vörnin var á sínum stað og bægði hættunni frá. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks átti svo Ragnar Margeirsson skot að þýska markinu en langt framhjá. Tækifæri til að jafna í upphafi síðari hálfleiks kom Ólafur Björnsson inná fyrir Trausta Haraldsson, sem átti við einhver meiðsli að stríða að því er virtist í lok fyrri hálfleiks. Og það var ekki liðin sema ein mínúta af síðari hálfleiknum þegar Islendingar fengu sann- kallað dauðafæri. Pétur sendi þá knöttinn fyrir markið á Sigurð Grétarsson, sem var í færi þar sem ætla mætti að auðveldara hefði verið að skora úr en ekki. En frá markteig skaut Sigurður yfir markið. Annað frábært tækifæri fór þar fyrir lítið og sannast sagna er erfitt fyrir lið sem ekki skorar úr svona tækifærum að vinna leiki. Og þremur mínútum síðar átti svo Ómar Torfason skot rétt yfir mark Þjóðverja. Tveimur mínútum síðar lenti svo Þorsteinn markvörður í kröppum dansi, er hann var einn á móti Hause, en Þorsteinn hafði betur og bjargaði. Snörp sókn þýskra Og Þjóðverjarnir tóku að sækja öllu meira að íslenska markinu og Pomm- erenke átti hörkuskot að marki, en Þorsteinn varði snilldarlega. Þetta var erfitt skot sem Þorsteinn réð þó við. Og þvínæst komst Pilz einn inn fyrir og Þorsteinn bjargaði í horn. Sóknin varþung hjá Þjóðverjum á þessu tímabili. Á 12. mínútu var Riediger í dauðafæri og enn varði Þorsteinn. Og nú fóru Islendingar að láta heldur meira að sér kveða, en þeim gekk illa að skapa sér marktækifæri. Þó átti Guðmundur Þorbjörnsson skot sem risinn í þýska markinu varði og þá átti Sigurður Grétarsson skot í tvígang, sem bæði fóru yfir markið. Þjóðverjar áttu fræbært færi á 22. mínútu er Riediger skallaði í samskeyti marksins og sami maður átti nokkrum mínútum síðar neglingu á markið sem fór rétt fyrir slána. Hann átti góðan skalla að íslenska markinu af stuttu færi, sem Þorsteinn varði vel. Ennþá einu sinni reyndi á snilli Þorsteins þegar Dörner átti gott skot að marki sem Þorsteinn varði. Síðasta umtalsverða marktækifærið í leiknum átti svo Pommerenke og var það hörkunegling utan vítateigs, sem Þorsteinn varði. Gott skot hjá þessum skotfasta leikmanni og Þorsteinn setti punktinn yfir i-ið á góðri markvörslu er hann varði. Liðin Það voru margar jákvæðar hliðar á þessum landsleik íslendinga. í Ijós kom, að strákarnir scm leika hcr á landi standa alveg jafnfætis mörgum af atvinnumönn- unum og til dæmis má nefna, að Pétur Pétursson var alls enginn yfirburðamaður í liöinu. Bestur var Þorsteinn Bjarnason markvörður, sem varði á stundum hreint snilldarvcl og kom í vcg fyrir stærra tap. Félagi hans úr Keflavíkurliðinu sem kom inná á 13. mín. lék einnig mjög vel og var bcstur útispilara liðsins. Þá sýndu Sigurður Lárusson og Viðar Halldórsson góöan leik í vörninni. Ómar Torfason er mjög sterkur miðsvæðisleikmaður, en var klaufi að skora ckki í leiknum. Það sama má raunar segja um Sigurð Grétarsson, en hann sýndi þrátt fyrir það takta sem sýna og sanna, að hann cr frábær miðherji. Pétur var frekar daufur, en tók þó inn á milli góðar rispur. Ólafur Björnsson sýndi einnig ágæta takta og barðist vel, en Sigurjón Kristjánsson sem kom inná er 15 mínútur voru til leiksloka komst aldrei í takt við leikinn. Erfitt er að taka nokkurn út úr austur-þýska liðinu. Það er skipað jöfnum leikmönnum og er mun betra lið en það hollenska sem lék hér á EM. Leikskipulag allt er í föstum skorðum og fátt um mistök. Þeir Pommerenke, Streich og Riediger voru samt hvað bestir og eins og fyrr segir er skotharka Pommerenke með ein- dæmum. Leikinn dæmdi danskur dómari Frick- mann að nafni og stóð hann sig frábærlega. Var varla hægt að setja út á eitt einasta atriði varðandi dómgæslu hans. Er hann mun betri sending en sá er dæmdi Hollandsleikinn á dögunum. Línuverðir voru Magnús V. Pétursson og Óli Ólsen. Örn Óskarsson varnarmaðurinn sterki úr ÍBV meiddist í nára á landsliðsæfingu í fyrrakvöld og gat því ekki leikið með íslenska landsliðinu í gærkvöldi. 1 hans stað valdi landsliðsnefndin Ágúst Má Jónsson KR í landsliðshópinn og sat hann á varamannabekknum í leiknum. ■ Jan Larsen, þjálfari handknatt- leiksliðs KA. ' Mikill hugur er nú í mönnum því mörg verkefni eru fyrirliggjandi. Fyrst er þriggja landa keppni sem hefst 23. september nk. Þar verða leiknir lands- leikir við Færeyjar og Grænland. Þá mun liðið fara á norðurlandamót í nóvember og taka þátt í Helvetia Cup í janúar. „Binda menn miklar vonir við landsliðið í vetur, . eftir mjög góða frammistöðu í Þýskalandi í apríl sl.“. segir í frétt frá Badmintonsambandi íslands. You Zou Rong er kínverskur bad- mintonþjálfari, sem hingað er kominn á vegum Badmintonsambands íslands. ■ Undirbúningur landsliðs og ung- lingalandsliös í badminton er nú þegar haflnn af fullum krafti. Um næstu helgi verða æflngabúðir á Selfossi frá föstu- dagskveldi til sunnudagskvelds. Þar verða við æfingar u.þ.b. 24 keppendur og úr þessum hópi verður síðan valinn kjarni til æflnga í vctur. Hrólfur Jónsson nýráðinn landsliðs- þjálfari hefur skipulagt æfingarbúöirnar ásamt þeim You Zou Rong og Helga Magnússyni og munu þeir þrír stýra æfingum um helgina. Þeir Hróflur og You Zou Rong munu síðan sjá um æfingar landsliðanna t vetur. Mun hann vinna við þjálfun hér á landi í vetur. Auk þess að þjálfa landsliðið verður hann við þjálfun hjá þremur félögum: TBR, Val og Víkingi. Hefur kínverska badmintonsambandið og senidráð Kína hér á landi verið mjög hjálplegt við að fá hann hingað. Hann starfaði einnig hér í sex mánuði á síðasta ári. ■ Helgi Magnússon, You Zou Rong og Hrólfur Jónsson, sem standa að æfingabúðunum um helgina. Tímamynd: G.E. ■ Þorsteinn Bjarnason sýndi frá- bæran leik í marki Islands í gær. Badmintonmenn fá kínverskan þjálfara

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.