Tíminn - 09.09.1982, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982.
stuttar fréttir
VerAlaunaskjöldurínn sem Helga Guðmundsdóttir, Gilhaga hlaut fyrir
fcgursta blómagarðinn í sókninni. Tímamynd Róbert
Viðurkenning veitt úr minn-
ingarsjóði Símonar Dalaskálds:
Helga á Gilhaga med
fegursta blómagardinn
SKAGAFJORÐUR: „Hún Helga
var svo sannarlega vel að þessari
viðurkenningu komin því hún er
mikil blómaræktarkona og hefur
blómagarður hennar borið af í
sókninni um áratugaskeið,“ sagði
Axel Gíslason, bóndi í Miðdal cr
hann greindi blaðamanni Tímans frá
því að Helga Guðmundsdóttir,
Gilhaga í Lýtingsstaðahreppi hcfði
hlotið fyrstu viðurkenninguna sem
veitt er úr minningarsjóði Símonar
Dalaskálds, fyrir fegursta blómagarð
Goðdalasóknar.
Minningarsjóður Símonar Dala-
skálds var stofnaður fyrir allmörgum
árum í þeim tilgangi að hvetja
sveitafólk til þess að fegra umhverfi
sitt.
Axel sagði garð Helgu vera svo
fallegan og vel hirtan að hún hefði
allt eins getað fengið verðlaun fyrir
hann síðastliðin 20 ár.
Þriðjungur
kennara á
endur-
menntunar-
námskeiði
BLÖNDUÓS: Frá því á mánudag í
þessari viku hefur staðið yfir í
kvennaskólanum á Blönduósi nám-
skeið fyrir kennara yngstu barna
grunnskólans á vegum fræðslu-
skrifstofu Norðurlandsumdæmis
vestra. Þátttakendur eru 50 talsins,
eða rúmur þriðjungur fastra kennara
á svæðinu og níu leiðbeinendur, þar
af fjórir á vegum Kennaraháskóla
Islands. Er hér um viku námskeið að
ræða.
Ýmsar breytingar hafa verið gerð-
ar á fræðsluskrifstofunni á þessu ári.
Nýr fræðslustjóri tók við embætti 1.
ágúst sl,, Guðmundur Ingi Leifsson,
en Sveinn Kjartansson lét þá af
störfum. Hefur Sveinn verið fræðslu-
stjóri frá stofnun skrifstofunnar frá
1975. Guðmundur Ingi var áður
skólastjóri á Hofsósi en Sveinn
hverfur nú aftur að kennslu. Þá
hverfur Sigurður H. Þorsteinsson,
uppeldisfræðingur frá störfum og
tekur við stöðu skólastjóra við
þjálfunarskóla ríkisins í Kópavogi.
Námskeið það sem nú stendur yfir
á vegum fræðsluskrifstofunnar er hið
fyrsta sinnar tegundar þar sem
fræðsluskrifstofa úti á landsbyggð-
inni hefur forystu um stórt endur-
menntunarnámskeið á svæðinu í
samvinnu við kennaraháskóla ís-
lands.
Þess má geta að skólanefndum á
svæðinu verður boðið í heimsókn. á
námskeiðið ásamt þeim skóla-
stjórum sem ekki eru þátttakendur á
námskeiðinu, á milli klukkan 17.30
og 19 í kvöld, fimmtudaginn 9.
september. Um kvöldið verður svo
opið hús fyrir foreldra sjö, átta og
níu ára barna sem hefðu áhuga á að
kynna sér undirbúning kennara,
endurmenntun þeirra og nýja
kennsluhætti.
-SÞ/Blönduósi.
Nýtt Póst- og
símahús
tekið í notkun
Varmahlíð: Póstur og sími og
afgreiðsla Búnaðarbankans hafa
flutt í nýtt og vandað húsnæði í
Varmahlíð. Póstur og sími og
Búnaðarbankinn stóðu sameiginlega
að byggingu hússins sem er 218 fm
að stærð og er hlutur Pósts og síma
60% í byggingunni en Búnaðarbank-
inn á 40%.
í tilefni af opnun nýja húsnæðisins
hafði Póstur og sími boð fyrir
verktaka og aðra gesti um helgina.
Þorgeir Þorgeirsson framkvæmda -
stjóri umsýsludeildar ávarpaði gesti
og bauð þá velkomna og þakkaði
þeim sem að byggingunni stóðu fyrir
vel unnin störf.
Bæði húsið og lóðin í kringum það
eru fullfrágengin á fallegan og
smekklegan hátt.
Stöðvarstjóri verður frú Indríður
Indriðadóttir en í sjálfvirku símstöð-
inni eru 200 númer og hefur þeim
verið fjölgað um helming, en
möguleikar erufyrirallt 800 númer-
um.
Símstöð hefur verið í Varmahlíð
frá árinu 1933 en sjálfvirk símstöð
frá árinu 1975.
Meðal annarra sem fluttu ávarp við
þetta tækifæri var Ragnar Pálsson
bankastjóri.
GÓ. Sauða'rkróki
fréttir
Leikfélagsmenn bjartsýnir á uppbyggingu
Borgarleikhússins:
STAÐRAfiNIR ad hefja
SÝNINGAR ÞAR 1986
En þó að bíða verði með að færa alla vikna verður kjallarinn, sem þegar er
starfsemi LR í nýja Borgarleikhúsið til reistur, tekinn undir geymslur á munum
1986, verður þó hluti húsnæðisins félagsins, sem eru að sprengja núverandi
fljótlega tekinn í notkun. Innan fárra geymslur utan af sér. KL
■ Leikhússtjórar Leikfélags Reykjavíkur, Stefán Baldursson t.v. og Þorsteinn
Gunnarsson t.h., eru staðráðnir í þvi að flytja allt starf Leikfélagsins í hið nýja
Borgarieikhús á árínu 1986. (Tímamynd GE)
„Mjög viðunandi
samningur miðað
við þrönga stöðu”
— segir Valgeir Gestsson
formadur Kennarasambands
íslands um kjarasamning BSRB
■ Bygging Borgarleikhúss í Kringlu-
mýrinni gengur nú skv. áætlun og eru
þeir Leikfélagsmenn staðráðnir í að þar
verði farið að halda leiksýnir.gar á 200
afmælisári Reykjavíkurborgar 1986.
Þetta kom fram á fundi, sem leikhús-
stjórar Leikfélags Reykjavíkur héldu
með blaðamönnum.
Segja má, að stækkun húsnæðis sé
lífsspursmál fyrir LR, þvt að þótt aðsókn
sé góð í gamla Iðnó, að meðaltali um
94% á sýningu í fyrravetur, er borin von,
að reksturinn þar geri betur en rétt að
bera sig. Þessu veldur sætafæð, en sætin
eru ekki nema 230 í Iðnó. Uppfærsla
hverrar sýningar er hins vegar jafn dýr,
hvort heldur áhorfendur eru fleiri eða
færri, eins og gefur að skilja. Helsta
tekjuöflunarlind félagsins eru sýningar,
sem það heldur í Austurbæjarbíói, en
auk þess er það styrkt um helming
rekstarkostnaðar frá borg og ríki.
Breytingar hafa verið gerðar á salnum
í gamla Iðnó, sem þó ekki auka
sætafjöldann. Er það um að ræða
upphækkun aftast í sal, sem gerð var
fyrir sýningu á leikriti Kjartans Ragnars-
sonar, Skilnaði. Hefur hún í för með sér
aðra sætaskipan en áður var og verður
til þess, að áskrifendakerfið verður að
takast til _ endurskoðunar, þar sem
áhorfendur skv. því hafa sín föstu sæti
á sýningum leikhússins.
Skipuð stjórn
listskreytinga-
sjóðs ríkisins
■ Hinn 31. ágúst s.l. skipaði mennta-
málaráðherra stjórn listskreytingasjóðs
ríkisins samkvæmt 5. gr. laga nr.
34/1982. í sjóðstjórninni eiga sæti:
Samkvæmt tilnefningu Arkitekta-
félags Islands Guðmundur Kr. Guð-
mundsson, arkitekt, og varamaður hans
Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt.
Samkvæmt tilnefningu Bandalags ísl.
listamanna Ragnar Kjartansson, mynd-
höggvari og Hildur Hákonardóttir,
listvefari, og varamenn þeirra Gestur
Þorgrímsson, lektor og Ragnheiður
Jónsdóttir, listmálari.
Samkvæmt tilnefningu Sambands ísl.
sveitafélaga Magnús E. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri, og varamaður hans
Ölvir Karlsson, oddviti.
Formaður stjórnarinnar er Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri og vara-
formaður Hákon Torfason, deildar-
stjóri, báðir skipaðir án tilnefningar.
Skipunartími sjóðstjórnar er tvö ár
frá 31. ágúst 1982 að telja.
Tvö stórverk
í æfingu hjá
íslensku
óperunni
■ Nú er verið að æfa tvö verk hjá
íslensku óperunni, Litla sótarann eftir
Benjamin Britten og Töfraflautuna eftir
Mozart.
Litli sótarinn verður frumsýndur 1.
október n.k. Þórhildur Þorleifsdóttir
stjórnar uppsetningunni, leiktjöld eru
eftir Jón Þórisson en stjórnandi tónlistar
er Jón Stefánsson.
Töfraflautan verður frumsýnd 15.
október. Uppsetning hennar er einnig í
höndum Þórhildar Þorleifsdóttur, leik-
tjöldin gerir Jón Þórisson en Gilbert
Levine sér um tónlistarstjórnun.
María Guðrún Sigurðardóttir, við-
skiptafræðingur hefur verið ráðin
rekstrarstjóri íslensku óperunnar.
María er Reykvíkingur, fædd 1957. Hún
starfaði áður hjá Fjárlaga og hagsýslu-
■ „Við teljum þetta mjög viðunandi
samning miðað við þá þröngu stöðu sem
við vorum í og á ég þar við mjög ákveðna
fyrirvara ASI í sínum samningi um að
komi kjarabætur til BSRB hafi þeir
endurskoðunarréft á sínum samningi"
sagði Valgeir Gestsson formaður Kenn-
arasambands íslands í samtali við
Tímann er við spurðum hann um
viðhorfm til nýgerðs kjarasamnings
BSRB.
Valgeir sagði ennfremur að sú
meginbreyting hefði orðið í þessum
kjarasamningi að aðal - og sérkjara-
samningar voru gerðir samhliða þannig
að er upp var staðið vissu menn nokkurn
veginn hvaða kjarabætur hefðu fengist
en áður hefði sérkjarasamningur ávallt
verið óvissuþáttur.
„Aðalkjarasamningur gefur ekki
beinar launahækkanir en hann er gerður
innan ASI samkomulagsins. Þar kemur
til viðbótar lenging orlofs, og gagnvart
kennurum kemur það atriði fram sem
stytting á kennsluskyldu um eina stund
á viku. Það er stór þáttur hjá okkur auk
þess sem við höfum yfirlýsingu um það
að unnið verði að jöfnun kennsluskyldu
í grunnskólum. Hefur þetta lengi verið
baráttumál okkar og sjáum fyrir endann
á því nú. Eitt atriði enn í aðalkjara-
samningi er fjarvistarréttur foreldra til
að vera frá vinnu vegna veikinda barna.
Þetta nær ekki langt, má verja viku af
veikindaleyfi sínu í þetta en mikill sigur
er að fá þetta inn“, sagði Valgeir.
En hver er heildarkauphækkun hjá
kennurum ef lagðir eru saman aðal - og
sérkjarasamningur?
Valgeir sagði í þessu sambandi að
hann væri ekki tilbúinn að nefna
ákveðna prósentu. Þetta væri flókið
dæmi að reikna út vegna þess hve
hóparnir væru mismunandi innan sam-
bandsins.
„Úr aðalkjarasamningi kemur bein
kauphækkun um 4% mínus, 2,9% og
síðan 2,1% um áramót.
Misjafnt er hve kennarar færast til í
launaflokkum en ljóst að það er meira
en einn launaflokkur að meðaltali“ sagði
Valgeir. - FRI
Erlendur fyrirlesari á fundi
med lögfræðingum:
Ákvörðun bóta
fyrir líkamstjón
— í ýmsum ríkjum V-Evrópu
og samanburdur á
bótafjárhæðum
■ Síðdegis í dag verður haldinn
almennur fræðslufundur á vegum Lög-
fræðingafélagsins og Lagadeildar Há-
skóla Islands, þar sem Ungverjinn dr.
jur., dr. oec. Paul Szöllosy flytur erindi
sem hann nefnir: The Standard of
Compensation for Personal Injury.
ræða reglur um ákvörðun bóta fyrir
líkamstjón í ýmsum ríkjum Vestur-
Evrópu og gera samanburð á bótafjár-
hæðum fyrir slík tjón.
Fundurinn verður haldinn í stofu 101
í T nahf'rai hi'iKi' T aaaHpilHnr na hpfct