Tíminn - 09.09.1982, Síða 19
I
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982.
19
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornid
Heimsfræg ný óskarsverðlauna-
mynd sem hvarvetna hefur hlotið
mikið lof.
Aðalhlutverk: Kathrine Hepburn,
Henry Fonda, Jane Fonda.
Leikstjórí: Mark Rydel
Þau Kathrine Hepbum og Henry
Fonda fengu bæði Óskarsverð-
launin í vor fyrir leik sinn í þessari
mynd.
Sýnd kl. 3-5,30-9 og 11.15
Hækkað verð
Himnaríki má bíða
ms,-^
Bráðskemmtileg og fjörug banda-
rísk litmynd, um mann sem dó á
rðngum tima, með Warren Beatty
- Julia Christie-James Mason
Leikstjóri: Warren Beatty
íslenskur texti
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05,
11.15
Morant liðþjálfi
»VŒL...
Urvatemynd, kynnið
kynnið ykkur blaðadóma.
Sýndkl. 3.10,5.10,7.10,9.10 og
11.10.
Morðin í Líkhúsgötu
JMurdent
JZS&e
Spennandi og duladull bandarisk
litmynd með Jason Robards -
Herbert Lom - Christine Kauf-
mann.
íslenskur texti
Bönnuð innan 16 ára
Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15,
9.15,11.15
Nýjasta mynd
Ken Russell:
Tilraunadýrið
(Altered States)
Mjög spennandi og kyngimögnuð,
ný, bandarísk stórmynd í litum og
Panavision.
•Aðalhlutverk: William Hurt - Biair
Brown.
Leikstjóri: Ken Russell, en mynd-
ir hans vekja alltaf mikla athygli
og umtal.
Islenskur texti.
Myndin er tekin og sýnd í DOLBY
STEREO.
Bönnuð innban 16 ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Þjóðleikhúsið
Gestaleikur
| Veraldarsöngvarinn
eftir Jón Laxdal Halldórsson.
Einleikur á þýsku
Jón Laxdal Halldórsson
sýning sunnudaginn 12. sept. kl.
10.
Aðelns þetta eina sinn.
Sala á aðgangskortum stendur yfir
og frumsýningarkort eru tilbúin til
afhendingar.
Miðasala 13.15—20. Simi 1-1200.
-■3*16.444
Soldier Biue
soldierblue
Hin frábæra bandaríska Pana-
vision-litmynd spennandi og vel
gerð, byggð á sönnum viðburðum
um meðferð á Indiánum.
Candice Bergen
Peter Strauss
Donald Pleasence
Leikstjóri: Ralph Nelson
Islenskur texti
Bönnuð innan 16 ára
Sýndkl. 6, 9 og 11.15
Stórkostleg og áhrifamikil mynd
sem allstaðar hefur hlotið metað-
sökn.
Sýnd I Dolby Stereo.
Leikstjóri: Wolfgang Petersen
Aðalhlutverk: Júrgen Prochnow
Herbert Grönmeyer
Bönnuð Innan 14 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5 og 7.30.
Dávaldurinn
Frisenetty
■ilkl'KIAC;
KliYKIAVÍKUK
I Aðgangskort
| Sala aðgangskoda á ný verk-
I efni vetrarins stendur nú yfir.
| Þau eru:
| 1. Skilnaður eftir Kjartan
Ragnarsson.
Ein var sú borg (Translations)
eftir Brian Friel.
3. Forsetaheimsóknin eftir Régo
og Bnjnau.
I Úr lífi ánamaðkanna (Frán
regnormamas liv) eftir Per
Olof Enquist.
| 5. Guðrún eftir Þónrnni Sigurðar-
dóttur.
Miðasala í Iðnó kl. 14-19
sími 16620.
Heimsfræg ný, amerísk stórmynd
um hugsanlega atburði, þegar
venrr frá öðnrm hnötfum koma til
jarðar. Yfir 100,000 milljónir
manna sáu fyrri útgáfu þessarar
stórkostlegu myndar. Nú hefur
Steven Spielberg bætt við stór-
fenglegum og ólýsanlegum at-
burðum, sem auka á upplifun fyrri
myndarinnar.
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss,
Francois Truffaut, Mellnda Dill-
on, Gary Guffey o.fl.
Sýnd kl. 2.30, 5,7.30 og 10.
B-salur
Valachi skjölin
Hörkuspennandi amerisk stor-
mynd um llf og valdabar- •
áttu i Mafíunni í Bandaríkjunum.
Aðalhlutv.: Charles
Bronson
Endursýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Islenskur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Þröngt á þingi í löskuðum kafbátnum.
skur kaf-
átur í stridi
KAFBÁTURINN (Das Boot). Sýningarstaður: Háskólabíó. Leikstjóri og
höfundur handrits: Wolfgang Petersen. Byggð á bók eftir Lothar Gunther
Bucheim. Aðalhlutverk: Júrgen Prochnow, Herbert Grönemeyer og Klaus
Wennemann. Myndataka: Jost Vacano. Tónlist: Klaus Doldinger.
Framleiðandi: Bavaria Atelier, þýsk 1981.
■ Mikill fjöldi leikinna kvikmynda
hefur verið gerður um síðari heims-
styrjöldina, en ekki í Þýskalandi. Nú
hefur Wolfgang Petersen bætt úr því
“Kafbáturinn“ er einmitt vestur-
þýsk kvikmynd um kafbátahernaö-
inn í síðari heimsstyrjöldinni, og
fyrsta meiriháttar myndin sem Þjóð-
verjar senda frá sér um það stríð.
„Kafbáturinn“ er einnig um ýmis-
legt ólík hefðbundnum stríðsmynd-
um, þar sem hetjur vinna stórfengleg
afrek gegn Ijótum óvini. Hérer fylgst
með hópi sjóliða, 40-50 talsins. Þeir
eru áhöfnin á kafbátnum U-%, sem
er ■ árásarferð á Atlantshafi árið
1941.
í orustunni miklu um Atlantshafiö
beittu Þjóðverjar fyrst og fremst
kafbátum til þess að skjóta niður
birgðaskip og flutningaskip banda-
manna. í upphafi þcssarar myndar
segir frá því, að af 40 þúsund
sjóliðum, sem mönnuðu kafbátana,
hafi aðeins 10 þúsund lifað af stríðið.
Samkvæmt skýrslum misstu Þjóð-
verjar í allt 782 kafbáta í stríðinu, en
bandamenn misstu hins vegar í allt
rúmlega 23 þúsund skip. Mjög mörg
þeirra urðu kafbátum að bráð.
En Petersen er sem sagt ekki að
gera hefðbundnar stíðshetjur úr
sjóliðunum, þótt ýmsir þeirra sýni
vissulega mikið hugrekki og dug í
myndinni. Það cr honum meginmál
að sýna daglegt líf sjóliðanna í
kafbátnum - fyrst við friðsamlegar
aðstæður á meðan báturinn er á leið
út á „rniðin", og síðar bæði þegar
ráðist er að skiptalest með tundur-
skeytum og eins þcgar hcrskip
bandamanna snúa vörn í sókn og
ráðast að kafbátnum. Þcir kaflar
myndarinnar, sem gerast innan í
lokuðum kafbátnum djúpt í hafi
stundum innan um djúpsprengjur
frá tunduspillum bandamanna, eru
kjarni hennar; vel gerðir og leiknir,
raunsannir og spennandi. Petersen
tekst þar að sýna okkur inn í
sérstæða veröld kafbátalífsins. Lýs-
ingar hans eru fyrst og fremst
sannferðugar; þar er sýndur veru-
leikinn sjálfur, eftir því sem slíkt er
yfirleitt hægt með sviðsetningu, og
forðast er að búa til fegraða og þar
með falska mynd af þýska sjóhcrn-
um.
Því er hins vegar ekki að leyna, að
sum önnur atriði myndarinnar eru of
augljóslega sviðsett; þetta á einkum
við þegar katbáturinn ei sýndur
ofansjávar og yfirmenn í brúnni í
ólgusjó, sem augljóslcga er búinn til
í vatnstanki. Það hcfði farið mun
bctur á að fækka þeim atriðum
verulega cn leggja enn meiri áherslu
á lífið í kafbátnum sjálfum.
Hægt er að skrifa margt og mikið
um pólitíkina, eða réttara sagt skort
á pólitík, í myndinni. Svovirðist sem
sjqliðarnir séu lítt hrifnir af nasist-
um, og sumum leyfist jafnvel að gera
grín aö Hitler - og það árið 1941,
þegar Þjóðverjar litu á Hitler sem
bjargvætt og glæstan sigurvegara. Og
yfirleitt er hvergi vikið að stríðs-
rekstrinum ncma að því leyti sem
sncrtir bátinn sjálfan.
En þótt þannig sé hægt að finna að
vissum atriðum myndarinnar drcgur
það ekki úr áhrifamiklum lýsingum
Petcrsens á innilokunarkenndu and-
rúmslofti í kafbátnum og á mann-
legum dug og dugleysi. Lokaatriði
myndarinnar er hárréttur og undir-
strikað mjög sterklega tilgangslcysi
styrjaldar og tilviljanakennd.
„Kafbáturinn" er ein af þeim
myndum, sem gert hefur vcstur-
þýskum kvikmyndamönnum kleift
að brjótast inn á stóru markaðina í
nágrannalöndunum, þar meö talið í
Bandaríkjunum, en það er forsenda
þess að hægt sé að fjármagna dýrar
myndir eins og þessa og árangurinn
verður vafalaust margar fleiri góðar
vestur-þýskar myndir á næstu árum.
Elías
Snæland
Jónsson
skrífar
Kafbáturinn
Tilraunadýrið
Close Encounters
Breaker Morant
Nútímavandamál
Pósturinn hringir alltaf tvisvar
Okkarámilli
Síðsumar
Amerískur varúlfur í London
Hvellurinn
Lögreglustöðin
Framísviðsljósið
Fame
Stjörnugjöf Tímans
* * * * frábær • * ■» * mjftg góö • * * góö • * sæmlleg ■ O léleg