Tíminn - 02.10.1982, Page 5
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
5
erlent yfirlit
■ í Moskvu var vel tekið á móti Indiru Gandhi er hún var þar í heimsókn fyrir rúmri viku. Hér stendur hún á milli
Gromykos utanríkisráðherra og Brésnjevs forseta m.m.
Stefnubreyting hjá Indverjum
Taka upp nánari
samskipti
við Bandarfkin
■ Kurteisisheimsókn Indiru Gandhi til
Moskvu nýlega vakti ekki mikla athygli,
enda hafði heimspressan í mörg horn að
líta á meðan hún stóð yfir. Það þykir
ekkert sjálfsagðara en að indverskur
forsætisráðhcrra heimsæki stórveldi,
sem kaupir 40 af hundraði af útflutningi
Indverja, selur þeim meira en nokkur
önnur þjóð og leggur meira fram til
þróunaraðstoðar í Indlandi en nokkurt
annað ríki. Þar að auki undirrituðu
þjóðirnar 10 ára friðar- og vináttusamn-
ing 1971. Það er því ekkert eðlilegra en
að leiðtogar ríkjanna hittist að máli
svona annað slagið.
En hitt veltist fyrir mönnum hvað
samband Indlands og Sovétríkjanna er
í rauninni náið og vináttan jafn einlæg
og látið er í veðri vaka. Mörgum þótti
sem svarið kæmi fram í afstöðu lndverja
til innrásarinnar í Afganistan um
áramótin 1979-80. Sendiherra Indlands
hjá Sameinuðu þjóðunum gaf þá út
yfirlýsingu um, að Indland hefði fengið
sannfærandi upplýsingar um að afskipti
sovéska hersins af málefnum Afganistan
væru gerð að ósk stjórnarinnar í Kabúl
og að engin ástæða væri til að tortryggja
góðan vilja Sovétríkjanna gágnvart
Afgönum. Til skamms tíma hefur
indverska stjórnin ekki tekið aðra
afstöðu opinberlega en þarna kom fram,
og lítur því út fyrir á yfirborðinu að
minnsta kosti, að Indland sé áreiðanleg-
asti stuðningsaðili Sovétríkjanna meðal
landa þriðja heimsins.
En það er ekki allt sem sýnist. í
fyrrasumar hugðust leiðtogar Sovétríkj-
anna halda upp á 10 ára afmæli friðar-
og vináttusamningsinsvið Indverja og
sjálfsagt hafa þeir viljað endurnýja
hann. Indira Gandhi var á öðru máli, og
hátíðarhöldin fórust fyrir. Um svipað
leyti hófu Indverjar að kaupa vopn frá
ýmsum vestrænum ríkjum þrátt fyrir
óhagstæðari kjör en Sovétríkin bjóða
vopn sín til Indlands. Það er greinilegt
að Indverjar vildu ekki vera um of háðir
sovéskum vopnum, þrátt fyrir þau
kostakjör sem þeim er boðið upp á.
Fyrir nokkru lét utanríkisráðuneytið í
Nýju Delhi frá sér heyra um Afganistan
og setti fram þá kröfu að sovéski hcrinn
ætti að hverfa út úr Afganistan og hætta
afskiptum af innanlandsmálum þar. í
Moskvu ítrekaði Indira Gandhi þessa
kröfu og lagði áherslu á að útlendingar
ættu ekki að blanda sér í innanlandsmál
Afgana.
Samtímis hefur orðið vart nokkurrar
stefnubreytingar af Indlands hálfu gagn-
vart hefðbundnum höfuðfjendum, sem
eru Pakistan og Kína. Það að Indland
skyldi ekki taka afstöðu með Argentínu
í Falklandseyjadeilunni, vakti mikla
athygli, bæði meðal kommúnistaríkja og
ríkja þriðja heimsins. Það fór ekki fram
hjá þeim, sem með málum fylgjast, að
Indira Gandhi heimsótti Reagan í
Washington s.l. sumar, áður en hún fór
til Moskvu. Var það fyrsta heimsókn
indversks þjóðarleiðtoga til æðstu
manna risaveldanna síðan 1971. En þá
kólnaði mjög andrúmsloftið milli lnd-
lands og Bandaríkjanna er Nixon tók
afkstöðu með Pakistan í deilunni um
Bangladesh. Og það var fleira sem olli
stirðri sambúð ríkjanna, svo sem
öryggismál, tæknimál varðandi kjarn-
orkuver og lán frá Alþjóðabankanum.
Það fór vel á með þeim Reagan og
Indiru Gandhi er þau hittust í Washing-
ton í júlí s.l. Samið var um að
Bandaríkjamenn létu Indverjum í té
eldsneyti í kjarnorkuver þeirra við
Bombay, og ekki var á þeim að heyra,
að neinir örðugleikar væru á stjómmála-
Oddur Ólafsson
skrifar
sambandi ríkjanna. Þau Reagan og
Gandhi voru sammála um að þau væru
leiðtogar „tveggja fjölmennustu lýðræð-
isríkjanna" í heiminum og bæri að hafa
góð samskipti sín á milli.
Samband Indlands við Vesturveldin
og sér í lagi Bandaríkin kólnaði mjög á
áttunda áratugnum, þegar Bandaríkja-
menn tóku upp nánara samband við
Pakistan og Kína. Indverjar Iíta á sig
sem stórveldi í Asíu, og líta með
tortryggni til voldugra granna sinna í
sunnanverðri álfunni. Það var því
kannski eðliiegt að þeir tækju upp
nánara samband við Sovétríkin sem
andsvar við gælum Nixons og Kissingers
við Pakistan og Kína. Þegar Bandaríkin
hófu hernaðaraðstoð við Pakistan í
stórum stíl sömdu Indverjar við Sovét-
ríkin um hernaðaraðstoð, og Rússar létu
ekki á sér standa að semja um vopnasölu
og gera friðarsamning.
Indverjar hafa litið hervæðingu
•Pakistans og aukna samvinnu Banda-
ríkjanna og Kína alvarlegri augum en á
útþennslustefnu Sovétríkjanna í Asíu
fram til þessa. En mörg teikn eru á lofti
um að þetta sjónarmið sé að breytast,
eins og hér hefur verið talið upp. Eru
Indverjar því að losa um vináttuböndin
við Sovétríkin en taka upp meiri og
nánari samskipti við Vesturveldin. En
Indverjar eru mjög á verði um
hlutleysisstefnu sína, enda grundvallast
stórveldisdraumar þeirra á henni. Þeir
munu því halda risaveldunum í hæfilegri
fjarlægð og varast að verða öðru hvoru
þeirra of háðir.
FJALA
kötturinn
Tjarnarbíó Sími 27860
Celeste
Fyrsta mynd Fjalakattarins á þessu misseri er
Celeste, ný vestur-þýsk mynd sem hlotiö hefur
einróma lof.
Leikstjóri: Percy Adlon
Aðalhlutverk: Eva Mattes og Jurgen Arndt.
Laugardag: sýnd kl. 3, 5 og 7
Sunnudag: sýnd kl. 3, 5, 7 og 9
Mánudag: Sýnd kl. 5 og 9
Niðjamót
Niöjar Páls Brekkman Einarssonar og Guðfinnu
Siguröardóttur frá Sjóbúö Eyrarsveit, Grundarfirði
halda ættarmót í Félagsheimili Seltjarnarness
laugardaginn 16. okt. 1982.
Húsiö opnað kl. 14.00.
Upplýsingar í síma 17118.
Atvinna
Rafmagnsveitur
ríkisins óska aö ráða fulltrúa í innkaupadeild til
að annast innlend innkaup fyrir vinnuflokka og
rafveitustjóra.
Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist starfsmannastjóra, fyrir 16. október n.k..
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
Atvinna
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráða ritara.
Starfiö er fólgið í vélritun og almennum
skrifstofustörfum. Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun, aldur og fyrri störf sendist
starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík
Dagvistarmál - Störf
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftirtaldar stöður:
1. Staða aðstoðarmanns við uppeldisstörf við dagheimilið
Furugrund. Fullt starf.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 41124.
2. Staða fóstru á leikskólann Kópahvol (50% starf f.h.) Upplýsingar
gefur forstöðumaður í sima 40120.
3. Starfsfólk óskast til afleysingastarfa á dagheimilið Kópastein.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 41565.
Félagsmálastofnun Kópavogs.