Tíminn - 02.10.1982, Síða 16
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDD“
Skemmuvegi 20 - Kopavogi
Simar (91)7-75-51 & 7 80-30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labriel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armúla 24
Sfmi 36510
- segir Maitland Strobart,yfirmaöur skólamenntunardeildar Evrópu-
rádsins,sem heimsótti ísland til að kynna sérþessi málefni hjá okkur
■ „Mér fannst margt mjög athyglisvert
í menntunarmálum hérlendis, sérstak-
lega hve skólar hér eru vel tækjum búnir
og hve gæði námsgagna eru mikil, miðað
við smæð þjóðarinnar. Auk þess kom
mér stærð bekkja á óvart því þeir eru
yfirleitt mun stærri í öðrum Evrópu-
löndum" sagði Maitland Strobart yfir-
maður Skólamcnntunardeildar Evrópu-
ráðsins í samtali við Tímann en hann
heimsótti ísland til að kynna sér
menntunarmál hér í sambandi við
yfirgripsmikla könnun sem Evrópuráðið
skipaði á framhaldsskólanámsstiginu í
23 löndum Evrópuráðsins.
„Þessi könnun nær til nemenda á
aldrinum 14 til 19 ára í þessum löndum
og markmið hennar er aðallega það að
leita svara við því hvort skólar gefi
nemendum almennt nægilega góða
undirstöðu fyrir atvinnulífið. Þið íslend-
ingar eruð mjög heppnir að því leyti að
hér finnst varla nokkuð atvinnuleysi
ungmenna, en í öðrum löndum innan
Evrópuráðsins er atvinnuleysi þessa
hóps í kringum 25%, og fer í allt að 30%
í einstökum löndum og þá á ég við
atvinnuleysi fólks undir 25 ára aldri"
sagði Strobart.
„Þessi könnun okkar, eða verkefni, er
nú á lokastigi en bráðabirgðaálit verður
sent ráðherranefnd Evrópuráðsins
snemma á næsta ári en ráðherranefndin
er æðsta yfirvald Evrópuráðsins. Að því
loknu erum við svo með í undirbúningi
nýja áætlun, eða könnun, í svipuðum
dúr og þessi er og á hún að ná yfir
nemendur á aldrinum 6 til 12 ára og þá
er ætlunin að reyna að sjá hvert eigi að
vera hlutverk skóla, með nemendur á
þessu aldursskeiði, á níunda áratugnum
en miklar breytingar eru nú í aðsigi á
þessu sviði.“
Strobart heimsótti skóla og mennta-
stofnanir meðan hann dvaldi hér og á
honum mátti skilja að íslendingar væru
framarlega í menntamálum.
Hann lét þess sérstaklega getið að
heimsókn sín í Námsgagnastofnun hefði
verið ánægjuleg og honum hefði komið
á óvart mikil gæði námsefnis þar, auk
þess sem hann var mjög hrifinn af því
sem við höfum gert í skólamálum
þroskaheftra..." það er athyglisverð
þróun í gangi hér og þið íslendingar
ættuð að deila reynslu ykkar með sem
flestum, það er fyllilega þess virði“ sagði
Strobart. - FRI
■ „Þið íslendingar ættuð að deila
reynslu ykkar með sem flestum, það er
fyllilega þess virði“ segir Maitland
Strobart... Tímamynd GE
LAUGARDAGUR 2. 0KTÓBER 1982
bæjarstjora að afla upplysinga
um hvort reglugerðir um katta-
hald séu til í cinhverjum
sveitarfélðgum, en bæjarráð
er mjög inn á því að takmarka
kattahald með ákveðnum regl-
um til verndunar fuglalífi í
bænum.
Krummi ...
las i Víkurblaðmu að Húsvik-
ingar væru farnir að biðja um
snjómokstur til að komast á
skíði?
Margir vilja
á útvarpið
■ Eftir helgina rennur út
umsóknarfrestur um þrjár
fréttamannsstöður hjá útvarp-
inu. Tvær stöðurnar eru nýjar
og koma til vegna hins nýja
fréttaskýringarþáttar strax
cftir kvöldfréttir, en sú þriðja
er staða Stefáns Hafstein sem
nú tekur við morgunútvarpi.
Að vanda þegar auglýstar
eru lausar til umsóknar stöður
fréttamanna á útvarpi eru
margir um hituna. Talið er nær
víst að Einar Sigurðsson, sem
gegnt hefur starfi sumarafleys-
ingamanns á fréttaslofunni
undanfarin sumur, jafnframt
því sem hann hefur verið
fréttaritari þess í Lundúnum á
vetrum, verði ráðinn í stöðu
Stefáns Hafstein. Meira álita-
mál er hverjir hreppa hinar
stöðurnar, en þó er Ijóst að
einhverjir sumarafleysinga-
menn frá sl. sumri sækja um
og eru þeir öðrum líklegri.
Fleira fjölmiðlavant fólk mun
vera meðal umsækjenda, því
Dropar hafa heyrt að Katrín
Pálsdóttir, fyrrverandi ritstjóri
Lífs, sé þar í hópi.
Kettir bannað-
ir á Húsavík?
■ Hundahald í þéttbýli hefur
verið umdcilt í gegnum árin og
menn haft misjafnar skoðanir
á því. Sérstakar takmarkanir
ef ekki blátt bann hafa verið
lögð við því, hundaeigendum
sumum til mikils hugarangurs.
Kettir hafa yflrleitt getað
um frjálst höfuð strokið í
þessum efnum, þegar rætt er
um takmörkun. dýrahalds í
þéttbýli. Nú gæti hins vegar
svo farið að þeim verði einhver
takmörk sett. Húsvíkingar
ríða á vaðið því nýlega hefur
bæjarráðið samþykkt að fela
fréttir
Halldór Þ.
Jónsson nýr
sýslumaður
Skagfirðinga
■ Forseti íslands skipaði
hinn 28. september Hall-
dór Þ. Jónsson, bæjar-
fógeta, í embætti sýslu-
manns Skagafjarðarsýslu
og bæjarfógeta á Sauð-
árkróki frá 1. nóvember
1982 að telja.
Aðrir umsækjendur um
embættið voru: Barði Þór-
hallsson, bæjarfógeti, Erl-
ingur Óskarsson, dómara-
fulltrúi, Guðmundur Krist-
jánsson, aðalfulltrúi,
Gunnar Gunnarsson,
deildarstjóri, Hjörtur O.
Aðalsteinsson, dómara-
fulltrúi, Már Pétursson,
héraðsdómari og Þorbjörn
Árnason, dómarafúlltrúi.
Stálu morfíni
■ Hún var ljót aðkoman
þegar skipverjar á bátnum
Sandfelli GK 82 komu um
borð í bátinn á fimmtu-
dagsmorguninn. Lyfja-
þjófar höfðu verið á ferð
um borð. Skáru þeir í
sundur einn gúmbjörg-
unarbát og skildu hann
eftir sundurskorinn á
dekkinu. Úr honum náðu
þeir sex hylkjum af morf-
íni. - Sjó.
Islenska strengja-
sveitin varð í
fjórða sæti
■ íslenska strengja-
sveitin sem keppti í tón-
listarkeppninni í Belgrad í
Júgóslavíu, hafnaði í
fjórða sæti í úrslita-
keppninni.
Það var sveit frá Guild-
hall School of Music í
Bretlandi sem bar sigur úr
býtum en í öðru og þriðja
sæti urðu sveitir frá Ung-
verjalandi og Póllandi. ís-
lenska sveitin sem varð í
fjórða sæti hlaut um átta
þúsund krónur í verðlaun
fyrir frammistöðu sína, en
þrem fyrstu sveitunum á-
skotnuðust auk peninga-
verðlauna, ýmiskonar fríð-
indi svo sem boð um
hljómleikahald og ókeypis
upptökur. - ESE
dropar
Evrópurádid með viðamikla könnun á framhaldsskólamenntun:
„MflRGT ATHYGUSVERTI
MENNTUNARMflLUM HÉR”