Tíminn - 09.10.1982, Blaðsíða 9
Nokkur augnablik á bryggjunni í Grindavlk, eða...
■ Búið er að byggja yfir háhymingalaugina við Sædýrasafnið og eins og sjá má er þetta orðin hin reisulegasta bygging
■ Háhymingamir þrír komnir í laugina við Sædýrasafnið, þar sem þeir tóku smá snndsprett fyrir Ijósmyndara Túnans
Tímamynd G.E.
En það var allt í þessu stakasta og
háhymingamir fengu því bara vítamín
og góðar óskir frá lækninum.
Það var ekki nóg með að fjöldi
innfæddra fylgdist með komu dýranna
til Grindavíkur.FulItrúar Tímans og
aðrir fulltrúar heimspressunnar, í líki
amerískrar fréttakonu og myndatöku-
manns hennar, vom þar lfka og ekki var
annað að sjá en að hið vesturheimska
fólk sem alið er upp við „grænfrið" með
móðurmjólkini, kynni vel að meta
hvemig háhymingarnir vom „han ter-
aðir“. Reyndar höfðu sú ameríska og
sá ameríski verið með í túrnum og að
sögn skipverja orðið gáttuð á íslenskri
gestrisni, lopapeysum og bláum vídeó-
i myndum. Höfðu þau á einu augnabiiki
turnast til Islandsvina og áttu víst ekki
nógu sterk orð til að róma landið,
sjóinn, háhymingana og áhöfnina á
Guðrúnu, að Jóni Gunnarssyni,
forstjóra Sædýrasafnsins meðtöldum,
Megum við því gera því skóna að ísland
fái góða auglýsingu vestra á næstunni.
Sprengjan og háhyrningar
Annars er það skrýtið hvernig þetta
með háhyrningsveiðarnar hefur farið
fyrir brjóstið á mörgum. Hér áður fyrr
á ámnum, líklega í kringum 1956, eða
um þær mundir er undirritaður var í
þennan heim borinn, þá vom þrír
hermenn gráir fyrir járnum settir á hvern
síldarbát og dagskipunin var - Skjótið
helv... háhyrningana í klessu. I>á
eyðilögðu nefniiéga háhyrningarnir
reknetin fyrir „síldveiðiævintýrinu" og
það gera þeir reyndar enn. En það var
ekki nóg að skjóta á þessi grey.
Flugvélar með sprengjur innan borðs
vom sendar á stúfana, eh hvort þær hittu
háhyminganakann ég ekki að segja til
um. Ólíkt eru þær samt skárri í dag
viðtökumar sem háhymingamir fá, þó
að þeir skemmi ennþá blessuð netin
þjóðarinnar. - ESE
VIKUR
— þegar sprengjum var hent á
háhyrningana og þeir skotnir í
klessu íþágu Vysíldarævintýrsins”
■Háhymingamir þrir á dekkinu á Guðrúnu GK - Skipsverjar búa sig undir að hífa stærsta hahymingúin frá borði
■ Háhymingar þykja einar greindustu
skepnur jarðarinnar og segja þá margir
að þar sé mannskepnan meðtalin. Hvað
sem því h'ður er Ijóst að háyrningamir
standa framarlega á þróunarfarautinni í
vitsmunalegum skilningi og því ekki
furða að þeir séu eftirsóttir í alls kyns
dýrðagarði og sædýrasöfn þar sem þeir
leika listir sínar fyrir gesti og gangandi.
Fræg em hljóðin sem háhymingamir
gefa frá sér og hafa vísindamenn komist
að því að háhyrningarnir getir haft
samband sín á milli með þessum hljóðum
Hvað fór háhyrningunum þrem á milli
sem áhöfnin á vélbátnum Guðrúnu GK
færði til hafnar í Grindavík í fyrradag,
veit ég ekki en þetta voru a.m.k. ekki
hávaðasöm dýr. Fjandakornið ef þau
kvörtuðu bara nokkuð þó þau hefðu
verið hrifin frá heimkynnum sínum á
öldutoppum Héraðsflóa.
-Nú eru þau að tala saman, sagði
maður sem stóð við hliðina á mér á
bryggjunni í Grindavík. Og mikil ósköp,
háhyrningarnir sendu frá sér sitt
óskiljanlega tungu- eða réttara sagt
blástursmál, sem í flestum tiifellum
virtist samanstanda af einsatkvæðisorð-
um, Varla held ég þó að þar hafi verið
um neinar svívirðingar í garð fangavarð-
anna að ræða.
Heimspressan og háhyrn-
ingarnir
Háhyrningamir virtust vera dasaðir,
enda áttu þeir að baki um 36 stunda
siglingu vestur með öllu íslandi og þá er
nú mikið sagt. En það var rjómalogn og
Austfjarðaþokan virtist ekki hafa hrinið
á þeim á leiðinni. Enda vom þeir
smurðir eftir öllum kúnstarinnar reglum
og á bryggjunni beið dýralæknirinn með
sprautumar á lofti ef eitthvað amaði að.
ÞEGAR HAHYRNING
■ ...Nú er búið að hífa eins hátt og hægt er og Jón Gunnarsson, forstjóri Sædýrasafnsins og félagar búa sig undir að
koma háhymingnum fyrir í kassanum... og fúlltrúar heimspressunnar fylgjast með
Fyrsti getraunaseðillinn
Hvert er stærsta sveitaríélag á íslandi?
Q Reykjavík
□ Vestmannaeyjar
□ Siglufjörður
Nafn Nafnnúmer Hér kemur fyrsti getraunaseðillinn í glæsi- legri áskrifendagetraun Tímans. Dregið verð- ur fyrsta sinni fimmtudaginn 4. nóvember
Heimilisfang Q'' Ég er áskrifandi að Tímanum 0 Ég vil gerast áskrifandi að Tímanum næstkomandi um 25 þúsund króna vinning - húsgögn frá Nýform. Svarið spurningunni hér að ofan, útfyllið meðfylgjandi seðil og sendið síðan úrklippuna til Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík, hiðfyrsta.
Undirskrift
Áskrifendagetraun Tfmans:
Gerist áskrffendur
og takið þátt í
glæsilegri getraun
■ Fyrsti seðillinn í áskrifendagetraun Tímans er
hér endurbirtur. Þátttakendur í getrauninni eiga
að svara spurningunni, sem þar er sett fram, útfylla
meðfylgjandi seðil og senda svo úrklippuna til
Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík.
Allir þeir, sem eru skuldlausir áskrifendur
Tímans þegar dráttur fer fram - en það er í fyrsta
sinn fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi -
geta tekið þátt í getrauninni. Þeir, sem ekki eru
nú þegar áskrifendur að blaðinu, en vilja taka
þátt í getrauninni, verða því að gerast
áskrifendur. Það geta þeir gert með því að útfylla
seðilinn sem fylgir getraunaseðlinum hér til
hliðar, eða með því að hafa samband við
afgreiðslu Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík,
símar 86300, eða umboðsmenn úti á landi.
Vinningarnir í áskrifendagetraun Tímans eru
fjórir:
Fyrst, eða fimmtudaginn 4. nóvember, verður
dregið um 25.000 króna vinning, húsgögn frá
Nýform
Oðru sinni verður dregið fimmtudaginn 2.
desember. Vinningurinn þá er Sharp myndband
og sjónvarp að verðmæti um 50.000 krónur.
Þriðji vinningurinn, sem dreginn verður út
fimmtudaginn 3. febrúar, er NAD hljómflutn-
ingstæki fyrir um 25.000 krónur.
Og rúsínan í pylsuendanum er svo bifreið,
Daihatsu Charade 1983, að verðmæti um
133.000 krónur, sem dreginn verður út 3. mars.
Þeir, sem eru með í getrauninni frá byrjun,
hafa mesta möguleika á að hljóta vinning í
áskrifendagetraun Tímans. Dragið því ekki að
gerast áskrifendur og senda útfylltan getrauna-
seðil til blaðsins.
Gerið það strax í dag!
Forstöðukona
Ölfushreppur óskar eftir að ráða forstöðukonu við
leikskólann í Þorlákshöfn.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 30. okt. n.k.
Æskilegt er, að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
99-3800 og 99-3895.
Sveitarstjóri Ölfushrepps.
Nýir bílar — Notaðir bílar
LeitiÖ
upplýsinga
ÞÚ KEMUR -
OG SEMUR
BÍLASALAN BUK s/f
SlÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK
SlMl: 86477
Landvari
Félagsfundur verður haldinn að Hótel Esju
íimtudaginn 14. okt. n.k. og hefst kl. 20.00.
Fundarefni: Almenn félagsmál og talstöðvarmál.
Stjórn Landvara.