Tíminn - 04.11.1982, Side 3
■ „Nokkuð margir hafa sýnt áhuga á
að nýta þetta glæsilega hús. Við höfum
fengið töluvert af umsóknum, eða
kannski réttara sagt óskum um nánari
viðræður og upplýsingar. I flestum
tilvikum - raunar öllum nema einu - hafa
menn í huga einhverskonar hótelrekstur,
hressingar- eða hvildarheimili. Enn sem
komið er get ég ekki sagt hvað raunhæft
á eftir að koma út úr þessu, en ég vona
sannarlega að það reynist grundvöllur
fyrir menn að hugsa um þetta frekar“,
sagði Salóme Þorkelsdóttir, alþm. og
Ólympíu-
skákmótið:
Rússar
og
Tékkar
efstir
■ Nokkrar biðskákir eru enn ótefldar
úr fjórðu umferðinni á ólympíumótinu í
Luzern. Þar ber hæst tvær biðskákir þar
sem toppþjóðirnar, Sovétmenn og
Júgóslavar eigast við. Þar eigast annars
vegar við Karpov og Lijboevic á 1. borði
og er sú staða talin jafnteflisleg þótt
lengst af hafi þar hallað á heimsmeistar-
ann. Á 4. borði eiga Tal og Ivanovic
ólokið skák og þar stendur Tal verr að
vígi. Kasparov sigraði Gligoric á öðru
borði, en Beljavskí og Kovacevic gerðu
jafntefli. Allar líkur eru því á að jafntefli
verði niðurstaðan.
Eftir fjórar umferðir er þá staðan
þannig að Tékkar eru efstir með 13
vinninga, næstir koma Sovétmenn með
12 vinninga og tvær biðskákir, Svisslend-
ingar með 12, V-Þjóðverjar hafa 111/2
vinning og tvær biðskákir, Júgoslavar
hafa 101/2 vinning og tvær biðskákir,
Englendingar hafa 11 og sömuleiðis
íslendingar. Svíar töpuðu illa fyrir
Tékkum í fjórðu umferð 3 1/2: 1/2 og
hafa 10 vinninga, en hafa mætt mun
sterkari þjóðum en íslendingar.
Samkvæmt þessu er líklegt að íslend-
ingar mæti Englendingum í dag, a.m.k.
er ljóst að mótherjar þeirra verða úr
röðum hinna sterkustu.
JGK/U Luzera
Stúlkurn -
ar í sókn
■ Eftir slæma byrjun í Luzern hafa
íslensku stúlkumar sótt nokkuð í sig
veðrið. í fyrstu umferðinni töpuðu þær
öllum skákunum, 3:0 en í þeirri næstu
unnu þær með sömu tölu. 1 þriðju
umferð virtist blasa við tap gegn Finnum
þegar tekið var til að tefla biðskákir.
Sigurlaug hafði tapað sinni skák, Áslaug
unnið og Guðlaug átti biðskák, sem að
flestra dómi varjafnteflisleg. Guðlaug
gerði sér lítið fyrir og sneri skákinni sér
í vil og vann. Hún hvíldi í fjórðu
umferðinni, en þá tefldu íslensku stúlk-
urnar við Skota og lyktaði þeirri viður-
eign með jafntefli, 1 1/2:1 1/2. í þessari
umferð tefldi Ólöf Þráinsdóttir, Sigur-
laug Friðþjófsdóttir og Áslaug Kristins-
dóttir.
Kínversku stúlkumar höfðu fomstu
framan af í kvennaflokki, en nú eftir
fjórar umferðir hafa þær sovésku komist
fram fyrir þær. Innbyrðis keppni þessara
sveita lyktaði með sigri sovésku stúlkn-
anna.
formaður Sambands sveitarfélaga í
Reykjaneskjördæmi er hún var spurð
um viðbrögð manna við augiýsingu á eitt
sinn fyrirhuguðum Krisuvíkurskóla, til
leigu eða sölu.
Salóme var spurð hvort ekki þurfi
* mikið fyrir húsið að gera áður en það er
hæft til notkunar, og hvort það hafi
ekkert verið skemmt af völdum veður-
guðanna og jafnvel manna.
- Jú, mjög mikið, segja má að húsið
sé ekki nema rúmlega fokhelt. Á sínum
tíma var það tilbúið undir tréverk. En
■ „Þetta er merkur áfangi í útgerðar-
sögu Húsavíkur,“ og allir bæjarbúar
vænta sér mikiis af þessu fyrirtæki,“
sagði Hafliði Jósteinsson á Húsavík í
samtali við Tímann í gær, en Húsvíking-
ar tóku nýja dráttarbraut, þá fyrstu sem
byggð er á staðnum, í notkun í
gærmorgun. Þá var tekinn upp 50 tonna
bátur, Kristbjörg ÞH 44, í eigu útgerðar-
félagsins Korra h/f á Húsavík. Nýja
dráttarbrautin er í eigu hafnarsjóðs
Húsavíkur og ríkissjóð og þar veður
hægt að taka upp báta allt að 100
tonnum að stærð.
„Það má segja að þetta mál hafi
komist á rekspöl fyrir nokkrum árum
þegar ungur skipasmiður, Þórður Har-
síðan hætt var að hita það upp hefur
eðlilega allt farið í niðumíðslu. Eftir að
húsið fékk mikla umfjöllum í fjölmiðlun
á sínum tíma, m.a. sjónvarpi, skeði það
t.d. að allir ofnarnir voru hirtir úr því
og hefur lögreglu ekki tekist að upplýsa
það mál. Einnig hefur töluvert verið
brotið af rúðum, þó við höfum reynt að
láta setja nýjar í jafn óðum.
Stóra málið er kannski að þarna er
ekkert rafmagn. Hins vegar ætti að vera
auðvelt að virkja hitann og raunar hef
aldsson setti á laggirnar verkstæði þar
sem unnt var að gera við minni báta og
einnig var þar unnið við nýsmíði á
bátum. Þórður heldur áfram að reka sitt
verkstæði jafnframt því sem hann verður
framkvæmdasstjóridráttarbrautarinnar.
„Þetta fyrirtæki kemur til með að
veita atvinnu til bæjarins, jafnframt því
sem tryggt verður að það fjármagn sem
varið er til viðhalds og viðgerða fer ekki
út úr bæjarfélaginu, en megnið af
viðgerðum hefur hingað til þurft að
sækja til Akureyrar. Við gerum okkur
einnig vonir um að nágrannaplássin,
Raufarhöfn, Þórshðfn og Kópasker not-
færi sér þá þjónustu sem dráttarbrautin
okkar getur veitt. Það ætti að verða
ég á tilfinningunni að þeir sem áhuga
hafa sýnt séu yfirleitt með það í huga að
nýta orkuna sem er þama á staðnum og
þá möguleika sem hún gefur.
Salóme tók fram að ríkið á 75% í
húsinu á móti 25% eign SASÍR. „En
það má þó segja að við berum siðferði-
lega ábyrgð á húsinu því það var byggt
vegna óska sveitarfélaganna á sínum
tíma“.
hagstæðara fyrir þau, því það er dýrt að
sigla alla leið til Akureyrar til að sækja
þessa þjónustu.
Húsvíkingar almennt hafa sýnt þessu
máli mikinn áhuga, ég get nefnt sem
dæmi að eitt fyrirtæki, vélaverkstæðið
Foss h/f seldi mikla vinnu við uppbygg-
ingu dráttarbrautarinnar undir kostnað-
arverði og sýnir það hvern hug
bæjarbúar bera til fyrirtækisins.“
Fastir starfsmenn dráttarbrautarinnar
eru fimm í byrjun en allmargt manna
tengist starfsemi hennar í meira eða
minna mæli. Mikil bátaútgerð er frá
Húsavík og getur dráttarbrautin því
veitt verulegum hluta af flota Húsvík-
inga þjónustu. Jí/K
Óráðið
hvort
íslendingar
mótmæla
hvaiveidi-
banninu
■ -Við höfum 3. mánaða frest til
að mótmælaþeirri ákvörðun Alþjóða
hvalveiðiráðsins að banna hvalveiðar
frá 1986. Ríkisstjórnin hefur ekki
tekið endanlega ákvörðun í málinu,
en vandlega er fylgst með hver
viðhorfm eru, sagði Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráðherra
á Alþingi í gær, er hann svaraði
fyrirspum frá Matthíasi Bjamasyni
um hvort íslendingar ætluðu að
mótmæla banninu eða ekki, en
margar hvalveiðiþjóðir hafa þegar
mótmælt. Kvaðst Matthías vilja mót-
mæla og að íslendingum veitti ekkert
af að halda áfram að veiða hval.
Steingrímur sagðist sammála fyrir-
spyrjanda, en að mörgu væri að
hyggja í þessu sambandi. Banda-
ríkjastjórn hefur hótað að beita
innflutningshömlum á vörur frá
hvalveiðiþjóðum. Sjávarútvegsráð-
herra hefur rætt það mál við sendi-
herra Bandaríkjanna, og sagðist
hann ekki óttast að opinberir aðilar
mundu framfylgja slíkum aðgerð-
um. En hafa verður í huga hvernig
almenningsálitið og þrýstihópar
bregðast við, en þeir em öflugir
vestan hafs og geta haft áhrif á
sölumöguleika á ísl. sjávarafurðum.
Steingrímur kvaðst hafa haft sam-
band við útflutningsaðilana sem
flytja flsk til Bandaríkjanna, og voru
þeir áður fyrr óragir við hugsanlegar
aðgerðir slíkra hópa en núna er
komið annað hljóð í strokkinn og
hafa viðhorf til þessara mála breyst
og er full ástæða til að huga nánar að
hvaða afleiðingar það kann að hafa
að mótmæla hvalveiðibanninu.
Byggdastefn-
an og
stada
hennar
Vesturland: Byggðastefnan - staða
hennar og framtíð verður aðalefni
aðalfundar Samtaka Sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi, sent haldinn
verður í Munaðarnesi dagana 5. til
6. nóvember. Fundinn sækja 50 - 60
fulltrúar frá 39 sveitarfélögum, auk
gesta.
Nýkjörinn formaður Sambands ísl.
sveitarfélaga, Björn Friðfinnsson
flytur ávarp á fundinum. Sturla
Böðvarsson, v.form. samtakanna,
Guðjón Ingvi Stefánsson, fram-
kvæmdastj:, sr. Jón Einarsson, form.
Fræðsluráðs og Ólafur Sveinsson,
iðnráðgjafi munu flytja skýrslur um
starfsemina á liðnu starfsári. Nefndir
munu fjalla um helstu hagsmunamál
Vestlcndinga í hinum ýmsu mála-
flokkum.
Stjórn SFVK telur nauðsynlegt að
samstaða sé um skilgreiningu á þeim
markmiðum sem heilbrigð byggða-
stefna felur í sér til jafnréttis og
Framsögumenn um þau málefni
verða Bjami Einarsson, fram-
kvæmdastj. Byggðadeildar Fram-
kvæmdastofnunar og Eggert
Jónsson, borgarhagfræðingur.
-HEI
JGK/U Luzera