Tíminn - 04.11.1982, Síða 7
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1982
7
erlent yfirlit
■ Mynd þessi var tekin, þegar Brésnjef flutti hina umtöluðu raðu sína á dögunum. Á bak við hann standa þeir Chemenko
(lengst til hægri), Andropoff og tveir hershöfðingjar.
Chernenko ekki
eins harðorður
og Brésnjef
Tbilisi ræða hans vekur athygli
■ ÞAÐ HEFUR vakið verulegt umtal
meðal fréttaskýrenda, að daginn eftir að
Brésnjef flutti í sambandi við hersýningu
í Moskvu hina harðorðu ræðu sína um
utanríkisstefnu Reagans, hélt annar
forustumaður Sovétríkjana, Konstantin
U. Chemenko, ræðu á fundi í Tbilisi,
höfuðborg Georgíu, þar sem tónninn í
garð Bandaríkjanna var aðeins mildari,
og jafnframt lýst yfir því, að það væri
enn óbreytt stefna Sovétríkjanna að eiga
sæmilega sambúð við Bandaríkin.
Chemenko sagði, að Sovétríkin væm
mótfallin frekari spennu í samskiptum
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Sovétríkin eru sterk, sagði hann og geta
beðið, ef Washington heldur áfram
stefnu ógnana. Sovétríkin hræddust
hvorki refsiaðgerðir á hemaðarsviðinu
eða herskáa afstöðu. Við trúum því,
sagði hann ennfremur, að fyrr eða síðar
muni almenn skynsemi sigra og koma í
veg fyrir styrjaldarhættuna.
Að öðm leyti var Chemenko álíka
harðorður í garð stefnu Reagans og
Brésnjef. Hann tók einnig undir ummæli
Brésnjefs um Kína. Hann sagði, að
Sovétríkin vildu koma á eðlilegum
samskiptum við Kína. Við emm sann-
færðir um, sagði hann, að bæði Kína og
Bandaríkin myndu græða á því, svo og
málstaður friðar í heiminum.
RÆÐA CHERNENKOS hefur vakið
sérstakt umtal sökum þess, að hann er
nú talinn annar þeirra manna, sem sé
líklegastur til að hljóta sæti Brésnjefs,
þegar hann lætur af fomstunni.
Hinn er Juri Andropoff, sem áður var
yfirmaður leynilögreglunnar (KGB), en
lét af því starfi á þessu ári og tók við
störfum sem einn af helztu íramkvæmda-
stjórum flokksins.
Athygli vakti, að þegar Brésnjef flutti
áðumefnda ræðu sína, stóðu þeir And-
ropoff og Chemenko hlið við hlið á bak
við hann.
Sumir fréttaskýrendur segja, að það
geti verið einhver vísbending, að Chern-
enko stóð nær Brésnjef og hafi staðið
næstur honum við háborðið hægra
megin. Ustinoff vamarmálaráðherra
stóð vinstra megin við Brésnjef.
Chemenko hefur um langt skeið verið
■ Chemenko
nánasti samverkamaður Brésnjefs. Brés-
njef er talinn hafa átt mestan þátt í því,
að Chemenko fékk sæti í framkvæmda-
nefnd flokksins. Það þykir sennilegt að
Brésnjef myndi tilnefna Chemenko
eftirmann sinn, ef hann gæti ráðið því.
Hins vegar þykir líklegt, að ýmsir
aðrir í framkvæmdanefndinni kjósi And-
ropoff heldur. Meðal erlendra frétta-
skýrenda er það álit almennara, að
Andropoff verði hlutskarpari.
En hvor þeirra, sem verður fyrir
valinu, munu brátt aftur verða manna-
skipti í sæti flokksforingjans. Chemenko
er orðinn sjötugur og Andropoff 68 ára.
Þess vegna er þegar farið að stinga
saman nefjum, hver taki við af þeim.
EN SVO aftur sé vikið að ræðu
Chernenkos, hefur það orðið umræðu-
efni fjölmiðla síðustu daga, að blærinn
var nokkuð annar á ræðu hans en ræðu
Brésnjefs.
Fréttaskýrendur velta vöngum yfir
því, hvort ræða Brésnjefs hafi þótt of
hörð og lokað um of leiðum til bættrar
sambúðar við Bandaríkin, og því hafi
Chernenko verið látinn gera bragarbót,
eða hvort það hafi verið skipulagt
fyrirfram, að líklegur eftirmaður Brésn-
efjs hagaði máli sínu nokkuð á annan
veg.
Sumir fréttaskýrendur hallast að þeirri
skoðun, að orsök þess, að Brésnjef var
eins harðorður og raun varð á, sé
óánægja innan hersins vegna þess að
hann fái ekki næg framlög til að efla
vígbúnaðinn til jafns við vígbúnaðarfyr-
irætlanir Reagans. Brésnjef hafi með
ræðu sinni viljað draga úr þessari
óángæju og m.a. þess vegna lofað því,
að Bandaríkin yrðu ekki látin fá
yfirburði á hernaðarsviðinu.
Sumar heimildir herma, að innan
hersins sé andstaða gegn ýmsum yfirlýs-
ingum Brésnjefs í afvopnunarmálum,
eins og t.d. þeirri yfirlýsingu, að Sovét-
ríkin muni ekki beita kjamavopnum að
fyrra bragði. Ýmsir hershöfðingjar eru
sagðir óttast, að þetta gæti ýtt undir, að
árás yrði gerð á Sovétríkin.
Sennilega gildir það jafnt um Sovét-
ríkin og Bandaríkin að þar takist á
haukar og dúfur, en munurinn er sá, að
þessi átök gerast bak við tjöldin í
Sovétríkjunum en á opnu sviði í
Bandaríkjunum.
Sé þetta rétt, mætti skilja ræður þeirra
Bresnjefs og Chemenkos á þann veg, að
verið væri að jafna slíkan ágreining og
gera bæði haukum og dúfum nokkuð til
geðs.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
■ Kosningaúrslitin munu valda Reagan erfiðleikum
Kosningaúrslit-
in áfall fyrir
stef nu Reagans
■ Kosningamar í Bandaríkjunum
í fyrradag valda því að staða Reagans
forseta hefur versnað mjög. í full-
trúadeildinni unnu demókratar 25 sæti
og hafa þar andstæðingar Reagans
að líkindum meirihluta. Reagan
forseti verður því að semja við
andstæðinga sína um framgang efna-
hagsmálafrumvarpa sinna í deildinni
Hann kveðst sjálfur ætíð hafa gert
ráð fyrir því að þurfa að semja við
demókrata um ýmis atriði, en hann
muni í engu hvika frá meginstefnu-
miðum sínum.
Demókratar unnu einnig á í
kosningum til öldungadeilarinnar,
en þar hafa þó repúblikanar enn
meirihluta. Ýmsir af 'ahrifamestu
andstæðingum forsetans unnu stórsigra
í sínum fylkjum, má þar nefna
Edward Kennedy í Massachusettes.
Talið er að kosningarnar verði e.t.v.
til þess að Reagan neyðist til að
draga úr fyrirhuguðum útgjöldum til
hermála og auka útgjöld til félags-
mála. Spumingin um hvort
Bandaríkin ættu þegar í stað að leita
samninga við Sovétmenn um gagn-
kvæma stöðvun alls kjamorkuvígbún-
aðar var ofarlega á baugi síðustu daga
kosningabaráttunnar, en leitað var
skoðunar kjósenda sérstaklega á því
í mörgum fylkjum. Kennedy hefur
verið sérlegur talsmaður fyrir gagn-
kvæmri stöðvun og búist er við því
að úrslitin í fyrradag auki verulega
líkur hans á að hljóta útnefningu sem
forsetaefni demókrata í forsetakosn-
ingunum 1984.
50-60 MANNS
HALDIÐ
í GÍSLINGU
■ Allmargir vopnaðir menn réðust
í gær inn í byggingu tyrknesku
ræðismannsskrifstofunnar í Köln í
Vestur Þýskalandi. Allmargir særð-
ust af skotsárum er þeir réðust inn
og margir gíslar voru teknir. Mörgum
þeirra var sleppt en milli 50-60
manns voru í haldi þegar síðast
fréttist, þ.á.m. ræðismaðurinn
sjálfur. Byggingin] var þegar í stað
umkringd af lögreglu og tyrkneskur
diplómat var í símasambandi við
Pólverjar fá
gjaldfrest
■ í gær sömdu pólskir stjórnarer-
indrekar og fulltrúar lánardrottna
Pólverja á vesturlöndum um
greiðslufrest á 2.4 milljónum dollara
sem Pólverjar höfðu tekið að láni og
áttu að standa skil á nú á þessu ári
Þessir samningar voru undirritaðir
í Vinarborg í gær og voru það alls
um 500 lánastofnanir sem eiga aðild
að þeim, flestar þýskar, en það hefur
valdið v-þýskum bönkum miklum
vandkvæðum hve skuldseigir Pól-
verjar hafa verið undanfarið. Gierek
stjórnin í Póllandi tók mikið af
lánum þar á valdatíma sínum og var
þeim ætlað að koma fótum undir
nýjan útflutningsiðnað Pólverja, en
þess í stað hefur þjóðarframleiðsla
tilræðismennina og reyndi að komast
að samkomulagi við þá. Allir til-
ræðismennirnir eru félagar í vinstri
öfgasamtökum, og eiga allir yfir
hófði sér dóma í heimalandi sínu
vegna hryðjuverka. Þeir hrópuðu
slagorð gegn herforingjastjórninni í
Tyrklandi, sem nú er búist við að
framlengi valdatíma sinn um 7 ár
eftir stjómarskrárbreytinguna í land-
inu.
Pólverja dregist saman eftir því sem
hin pólitíska kreppa þar hefur færst
f aukana.
Handtekinn
fyrir tilræðið
við páfa
■ Vestur - þýska lögreglan hefur
handtekið tyrkneskan ríkisborgara,
sem grunaður er um að hafa verið
með í ráðum, þegar reynt var að ráða
Jóhannes Pál páfa 6. af dögum í
fyrrasumar. Einn maður var handtek-
inn eftir tilræðið og situr hann nú í
lífstíðarfangelsi. Grunur hefur leikið
á því frá upphafi að fleiri hafi verið
með í ráðum um að ráða páfa af
dögum.