Tíminn - 04.11.1982, Side 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
Skemmuvegi 20 - Kopavogi
Símar (91)7-75 51 & 7-80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir £2
Armúla 24
36510
Þing Landssambands mennta- og fjölbrautaskólanema nýafstaðið:
BARÁTTUMAL OKKAR ERU
HÚSNÆWS- OG SKÓLAMAE'
Rætt vid stjórnarmennina Svein Gfslason og Harald Jónsson
■ „Helstu baráttumál okkar eru hús-
næðismál skólanna, og menningarmál
framhaldsskólanema og þegar við segj-
um menningarmál þá notum við það orð
í víðasta skilningi."
Það eru þeir Sveinn Gíslason og
Haraldur Jónsson, sem svo mæla, en
þeir eru báðir í stjórn Félags mennta-
skóla- og framhaldsskólanemenda LMF,
Sveinn er formaður og Haraldur gjald-
keri. Ping þessara samtaka er nýafstaðið
og af því tilefni litu þeir inn á ristjórn
Tímans og við tókum þá tali.
Hvers konar samtök eru LMF?
Petta eru samtök nær allra nemenda
í menntaskólum og fjölbrautaskólum,
en þó eru til skólar sem standa utan við.
En samtals eru í samtökunum um 7000
manns. Þetta eru hagsmunasamtök, en
starfa á algerlega ópólitískum grunni,
flokkspólitískum að minnsta kosti.
Á þessu þingi okkar sem nú er að
Ijúka þá gerðum við ýmsar ályktanir. Ef
við byrjum á húsnæðismálunum, þá eru
þau afar misjafnlega á vegi stödd eftir
skólum, sumir eru vel staddir aðrir
hörmulega, bæði hvað varðar aðstöðu
fyrir nemendur innan skólanna og eins
hvað varðar til dæmis nemendur sem
þurfa að flytja að heiman, kannske
langan veg til að geta verið við nám. Þeir
eiga oft í miklum húsnæðisvand-
ræðum. Mötuneytisaðstaða er þar til
dæmis engin, nemendur verða að snæða
nesti sitt á göngum eða í fatahengjum.
Raunar hafa mötuneytismál verið mjög
á dagskrá hjá samtökunum undanfarið.
Við teljum að við alla skóla eigi að vera
starfrækt mötuneyti, þar sem nemendur
fá keypt fæði á kostnaðarverði en ríkið
greiði vinnulaun. Það má geta þess hér
að nú hefur nefnd, sem menntamála -
ráðuneytið skipaði á sínum tíma um
mötuneytismál skilaði nýverio áfanga-
skýrslu, en þar er aðeins fjallað um
grunnskólana.
Hvernig hyggist þið svo haga starfinu?
Það verður að segjast eins og er að
það hefur verið nokkur deyfð yfir
starfinu undanfarið, og við höfum fullan
hug á því að efla það: Við viljum fá
viðurkenningu á Landssambandinu sem
hagsmunasamtökum þeirra aðila sem að
því standa. Draumurinn er að ráða
framkvæmdastjóra í hálft starf, þannig
að alltaf sé einhver við á ákveðnum
tíma sem getur svarað fyrir samtökin og
gegnt erindum þess.
Annað sem við viljum gjarna geta um
er að við hyggjumst fara af stað með
ítarlega skoðanakönnun meðal nem-
enda í mennta- og fjölbrautaskólum.
Við hyggjumst kanna m.a. áfengismál,
fíkniefnamál og fleira. Þessi könnun
verður algerlega á okkar vegum, en
hugsanlega leitum við eftir einhvers
konar tæknilegri aðstoð, ef okkur þykir
þurfa. ( því sambandi má geta þess að
við flesta skólana eru samfélagsfræði-
deildir, sem hafa sérmenntuðum kenn-
urum á að skipa og ef til vill er eðlilegt
að við getum búist við aðstoð þeirra. Við
stefnum að því að niðurstöður könn-
unarinnar liggi fyrir áður en jólafrí
hefjast.
Hvernig fjármagnið þið starfsemi
ykkar?
Það er tekinn nefskattur af hverjum
nemanda í þeim skólum, sem eiga aðild
að landssambandinu, 15 krónur af
hverjum. En ef við ráðum starfsmann
þá er ljóst að það nægir ekki.
Hvernig gengur að samræma félags-
störfin náminu?
„Það er erfitt. Það má eiginlega segja
að það gangi ekki“ segja þeir félagar en
þó er sá háttur hafður á í sumum skólum
að nemendur fá punktafrádrátt vegna
mikilla félagsmálastarfa, enda er það
menntun eins og hvað annað.
JGK
F.v, Sveinn Gíslason formaður og Haraldur Jónsson gjaldkeri.
FIMMTUDAGUR 4. NÓV.1982
Fréttir
Nýtt sfldarverð
ákveðið í dag?
■ Fiskinefnd Verðlags-
ráðs Sjávarútvegsins kom
saman til fundar í gær til
að fjalla um þá ákvörðun
kaupenda að segja upp
verði á síld til frystingar.
Verður nýtt verð ákveðið í
þessari viku.
Verð á síld til frystingar
var í haust ákveðið það
sama og verð á síld til
söltunar, þrátt fyrir að
fyrir lægi að mun erfiðara
væri að losna við frystu
síldina. Var óskað eftir því
að síld yrði söltuð og fryst
jöfnum höndum, en af
skiljanlegum ástæðum
kepptust kaupendur fyrst
og fremst við að salta upp
í leyfilega kvóta, en ákvæði
voru um að segja mætti
upp verði á síld til frysting-
ar með fjögurra daga fyrir-
vara. Eins ogTíminn hefur
greint frá var verðinu sagt
upp sl. mánudag og gildir
því síldverðið aðeins fram
til föstudags.
Nýr fundur hefur verið
boðaður í fiskinefnd í dag.
-ESE
Þrír unglingar
játuðu
■ Þrír unglingspilatar
hafa játað að hafa brotist
inn í verslunina Kjöt og
fisk við Seljabraut í Breið-
holti. Þeir hafa allir verið
staðnir að innbrotum áður.
Piltarnir höfðu á brott
með sér mikið af tóbaks-
vörum, auk ávísanaheftis
og stimpils verslunarinnar.
Megnið af þýfinu fannst í
vörslu þeirra.
Lítið miðaði til
samkomulags
■ Samningar tókust ekki
í deilu starfsmanna í álver-
inu í Straumsvík og ís-
lenska álfélagsins í gær-
kvöldi, og miðaði lítið í átt
til samkomulags. Annar
fundur er boðaður í dag kl.
13.30 hjá ríkissáttasemjara
og náist ekki samkomulag
þar kemur til vinnustöðv-
unar á miðnætti í nótt.
dropar
Leigðíþrjúár-allt
fyrirfram
■ Það er sitt hvað em menn
leggja fyrir sig þegar þeir á
annað borð eru ákveðnir í að
gera bágindi meðbræðra sinna
sér að féþúfu. Þeir sem þekkja
til á leigumarkaði höfuðborg-
arinnar vita hversu erfiðlega
getur verið að komast undir
leiguþak, og kalla þó ekki aUt
ömmu sína í þessum efnum.
Vonandi eru þó kröfur um
jafnálitlegar leiguupphæðir og
koma fram í eftirfarandi smá-
auglýsingu úr DV einsdæmi,
en auglýsingin er á þessa leið:
„Til leigu góð 3ja herbergja
íbúð frá og með 15. nóvember
í 3 ár, fast verð 260 þús. (allt
fyrirfram), reglusemi áskilin."
.Láta mun nærri að mánaðar-
leigan fyrir þessa íbúð nái 7300
kr. á mánuði. Vonandi lætur
enginn bjóða sér þetta tilboð,
sem örugglega stenst ekki ef
litið er til húsaleigulaganna.
Jóhannesi tíðrætt
um höfðatöluna
■ Dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, var ekkert
að skafa utan af hlutunum í
sjónvarpsþættinum á
þriðjudagskveldið, þegar
saumað var að honum og bann
spurður um gang efnahags-
mála. Sérstaka athygli vöktu
orð sem hann lét falla um
skuldir íslenska þjóðarbúsins
gagnvart erlendum lánadrottn-
um, ekki síst fyrir þá sök að
Jóhannes taldi að íslendingar
skulduðu mest allra þjóða
miðað við höfðatölu, þ.e. á
hvem einstakling.
Venjulega þegar erlendar
skuldir em metnar er miðað
við þjóðarframleiðslu, en gár-
ungamir segja að seðlabanka-
stjóra hafi verið höfðatalan
svo hugleikin einmitt þetta
kveld, þvi fyrr um daginn hafi
hann eignast sitt fyrsta harna-
bam, og þar með verið orðinn
afi. Til hamingju Jóhannes.
Krummi ...
...leggur til að loðnuveiðiflot-
inn fái að fara á háhymings-
veiðar þar til loðnuveiðar
verða leyfðar að nýju.'