Tíminn - 10.11.1982, Qupperneq 12
16
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982.
EFTIRLAUN
TIL ALDRAÐRA
Athygli þeirra, sem kunna að eiga rétt til lífeyris samkvæmt lögum
nr. 97 1979 um eftirlaun til aldraðra, en njóta ekki slíks lífeyris, er
vakin á eftirfarandi.
Lög um eftirlaun til aldraðra kveða á um réttindi launþega og manna,
sem stundað hafa sjálfstæðan atvinnurekstur (um aldraða bændur
gilda fyrst og fremst ákvæði laga um Lífeyrissjóð bænda).
Skilyrði laganna um aldur og réttindatima eru sem hér segir:
Ellilífeyrir: Skilyrði fyrir rétti til ellilífeyris eru þau, að hlutaöeigandi
sé a. orðinn 70 ára og hafi lafið af störfum, eða sé orðinn 75 ára,
og b. hafi haft atvinnutekjur í a.m.k. 10 ár eftir 55 ára aldur, sem
þó reiknast ekki lengra aftur í tímann en til ársbyrjunar 1955.
Makalífeyrir: Skilyrði fyrir rétti til makalffeyris eru þau, að hinn
látni hafi verið fæddur árið 1914 eða fyrr, hafi fallið frá eftir árslok
1969 a.m.k. sextugur að aldri og hafi átt að baki eöa hefði við 70
ára aldur verið búinn að ná 10 ára réttindatíma.
Um örorkulífeyri er einvörðungu að ræða sem viðbótarrétt við lífeyri
úr Iffeyrissjóði að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Umsækjendum, sem aðild eiga að lífeyrissjóði, ber að snúa sér til
lífeyrissjóðs síns. Aðrir umsækjendur geta snúið sér til Tryggingast-
ofnunar ríkisins, umboðsmanna hennar eða beint til umsjónarnefndar
eftirlauna. Einnig hefur þeim tilmælum verið beint til lífeyrissjóða og
verkalýðsfélaga, að þessir aðilar veiti upplýsingar og aðstoð við
frágang umsókna.
Skrifstofa umsjónarnefndar er að Suðurlandsbraut 30, 3. hæð, 105
Reykjavík, sími 84113. Skrifstofan er opin kl. 10-16.
Umsjónarnefnd eftirlauna.
Kjarnaborun
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJÓÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborun sf.
Símar 38203-33882
íbúðir í verkamannabústöðum
Stjórn verkamannabústaða í Hafnarfirði mun á næstunni ráðstafa 8
íbúðum, sem eru í smíðum að Víðivangi 1. íbúðirnar eru 2ja og 3ja
herbergja.
Gert er ráð fyrir, að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar í okt.-nóv.
1983.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 47. gr. 1. nr. 51/1980 til að
koma til greina.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á félagsmálaskrifstofunni, Strand-
götu 67, og ber að skila umsóknum þangað eigi síðar en 1. des. n.k.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Hafnarfirði, 9. nóv. 1982.
Stjórn verkamannabústaða
í Hafnarfirði.
Cabína rúmsamstæða.
Dýnustærð: 200x90 cm.
Verð með dýnu kr. 6.950,-
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Tþróttir
GOMLU BRYNIN UNNU
— á Reykjavíkurmótinu í júdó um helgina
■ Það kom fátt á óvart í keppninni á
Reykjavíkurmótinu í júdó, sem fram fór
í íþróttahúsi Kennaraháskólans um helg-
ina. Það voru fastir liðir eins og
venjulega hverjir sigruðu í flokkum
fullorðinna, en mjög mikið fjör var í
keppni yngra fólksins á mótinu.
í léttasta flokki karla sigraði Halldór
Guðbjörnsson og lagði hann Rúnar
Guðjónsson JFR í úrslitum. Þriðji varð
Magnús Jónsson Ármanni.
í flokki undir 85 kílóum sigraði Kári
Jakobsson, eftir snarpa viðureign við
Níels Hermannsson Ármenning. 1 þriðja
sæti varð svo Egill Sigurgeirsson úr
Ármanni.
f flokki þeirra er vega yfir 85 kíló
sigraði Bjarni Friðriksson nokkuð ör-
ugglega. í öðru sæti varð Kristján
Valdimarsson og þriðji Runólfur Gunn-
laugsson, en þeir þrír keppa allir fyrir
Glímufélagið Ármann.
í yngri flokkunum urðu úrslit þau, að
í flokki 10-11 ára sigraði Ásgeir Thor-
oddsen Ármanni, annar varð Eyþór
Hilmarsson JFR og þriðji Ingimundur
Kárason JFR.
í flokki 12-13 ára, þar sem keppendur
voru undir 45 kílóum að þyngd sigraði
Friðgeir Eyjólfsson Ármanni, annar
varð Helgi Júlíusson Árman.'i og þriðji
Magnús Kristinsson Ármanni.
í flokki 12-13 ára yfir 45 kíló að (. vngd
varð Ástvaldur Sigurbergsson Ármanni
hlutskarpastur, en annar varð Guc-
mundur Magnússon Á og þriðji Jónas
Jónasson Ármanni.
í flokki 14-16 ára sigraði Guðmundur
Sævarsson, annar varð Viðar Utley, en
þeir eru báðir úr Ármanni og þriðji var
Stefán Hjörleifsson JFR.
■ Halldór Guðbjörnsson sigraði í léttasta flokknum á Reykjavíkurmótinu í júdó
um helgina. Hann er hér á myndinni til hægri ásamt Viðari Guðjohnsen, sem ekki
stundar æfingar í júdó um þessar mundir.
Gróði hjá BSÍ
— Rafn Viggósson endurkjörinn formaður
■ Það teljast vera meiri háttar tíðindi
þegar sérsamband innan ÍSÍ sýnir rekstr-
1 arhagnað af starfsemi sinni. Sú er raunin
hjá Badmintonsambandi íslands, en
ársþing þess var haldið 30. október s.l.
Að þessu sinni sátu þingið 55 fulltrúar
frá 7 aðildarfélögum.
Badminton er ört vaxandi íþróttagrein
á íslandi og kom m.a. fram í máli
fulltrúa ÍSÍ, sem sat þingíð, að BSÍ telst
nú vera orðið fimmta stærsta sérsam-
bandið innan íþróttahreyfingarinnar
hvað varðar iðkendafjölda. Þess má geta
að við stofnun BSÍ fyrir 15 árum, þ. 5.
nóvember 1967, taldist iðkendafjöldi
vera um 750 manns en nú iðka um 5200
manns badminton, svo sjá má að
fjöldinn hefur sjöfaldast á þessu tímabili.
Fram kom á þinginu, að þetta afmælis-
ár BSf, reyndist vera mesta góðæri frá
upphafi bæði hvað varðaði árangur
keppnismanna á erlendri grund svo og
hvað varðaði fjárhag sambandsins. Að
þessu sinni nam rekstrarhagnaður BSÍ
rúmum 97.000 kr. og mun það vera
einsdæmi hér á landi innan íþróttahreyf-
ingarinnar að ekki stærra sérsamband en
BSÍ skuli ná slíkum árangri.
Nokkrar lagabreytingar voru sam-
þykktar á þinginu, m.a. breytingar á
reglum landsliðsnefndar, breytingar á
reglum um deildarkeppni BSÍ svo og
nokkrar ályktanir. Loks var samþykkt
lagabreyting úm að framvegis verði
ársþing BSÍ haldin í maí mánuði í stað
október áður. Þykir það gefa verðandi
stjórnum betra starfssvigrúm m.a. vegna
keppnistímabils badmintonmanna sem
stendur frá september fram í maí.
Fram kom á þinginu að gengið hefur
verið frá endurráðningu Hrólfs Jónsson-
ar sem landsliðsþjálfara í vetur. Hrólfur
hefur starfað sem landsliðsþjálfari
undanfarna tvo vetur og skilað góðu
starfi. Hrólfur mun í vetur hafa sér til
aðstoðar You Zuorong sem vakti athygli
á dögunum fyrir frábæra frammistöðu
með TBR á Evrópukeppni félagsliða. Er
ljóst að þjálfaramálum landsliðs og
unglingalandsliðs er borgið fyrir yfir-
standandi keppnistímabil og væntir
stjórn BSÍ góðs árangurs keppnismanna
í vetur.
Fráfarandi stjórn voru færðar þakkir
fyrir frábært starf á s.l. starfsári, en að
þessu sinni gengu 3 stjórnarmenn af 5
úr stjórn og ný stjórn var kjörin. Rafn
Viggósson var endurkiörinn formaður
BSÍ til eins árs. Rafn hefur gegnt
formennsku frá 1976 og unnið mjög
lofsvert starf fyrir badmintoníþróttina.
Aðrir í stjórn voru kjörnir: Skúli
Sigurðsson gjaldkeri, Magnús Ólafsson
erl. bréfritari, Vildís Kristmannsd., var-
aformaður, Sigurður Kolbeinsson ritari.
í varastjórn voru kjörnir: Hallgrímur
Árnason, Elín Agnarsd. og Jóna
Barkan.
■ Rafn Viggósson.
Blaðafulltrúi BSÍ í vetur verður
Sigurður Kolbeinsson.
Þróttur vann
■ Á sunnudag léku Þróttur og
Víkingur í 1. deild karla í blaki.
Þróttarar sigruðu nokkuð örugglega
eða 3-0 og úrslit í einstökum hrínum
urðu: 15-4,15-11 og 15-10. Þetta var
frekar léttur leikur hjá Þrótturum og
lauk honum á 45 mínútum. Þróttarar
fara um næstu helgi til keppni í
Evrópukeppni meistaraliða í blaki
og keppa gegn BK Tromsö. Verða
báðir leikirnir leiknir í Noregi.
I 1. deiid kvenna lentu Þróttarar í
basli gegn Breiðablik, en tókst þó að
knýja fram sigur. Lokatölur urðu
3-2, en hrinurnar enduðu 15-5,15-7,
12-15, 4-15 og lokahrinan, sem var
úrslitahrina endaði 15-6 Þrótti í vil.
Þetta var mjög sveiflukenndur leikur
eins og sjá má af úrslitum í hrinunum.