Fréttablaðið - 23.01.2009, Side 10
10 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
Bláa lónið er opið alla daga frá kl. 10.00–20.00 • Sími 420 8800 • www.bluelagoon.is
Mótmælin halda áfram
Formenn aðildarfélaga ASÍ taka
í dag afstöðu til tillögu atvinnu-
rekenda um að fresta framleng-
ingu kjarasamninga fram í júní.
Upphaflega var stefnt að nokkurs
konar þjóðarsátt með aðkomu ASÍ,
SA, hins opinbera og ríkisstjórn-
arinnar en nú er lagt til að endur-
skoðun verði frestað og hefur mið-
stjórn ASÍ hvatt ríkisstjórnina til
að boða til kosninga í vor. „Sögu-
leg tíðindi,“ segir Kristján Gunn-
arsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, SGS.
Samkvæmt kjarasamningum
sem átti að endurskoða um miðj-
an febrúar er launahækkun 1.
mars og svo aftur 1. janúar 2010.
Atvinnurekendur vilja fresta
þessum dagsetningum þannig að
launahækkanir komi seinna og
kostnaðarlækkun framkallist hjá
atvinnulífinu. Kristján segir varn-
arviðbrögð að fresta samningum
frekar en að slá þá af.
„Atvinnurekendur hafa óskað
eftir viðræðum um meiri sveigj-
anleika með tímasetningar til að
efna ákvæði kjarasamninga en
þó þannig að á samningstímanum
reyni þeir að standa við innihaldið.
Þetta gera þeir vegna þess að fyr-
irtækin eru illa stödd. Við höfum
sagt að þetta komi til álita,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi bendir á að atvinnurek-
endur geti líka sagt samningun-
um upp. „Við erum að reyna að
búa okkur til tíma til að vinna úr
þessum erfiðu aðstæðum,“ segir
hann.
Forystumenn á vinnumark-
aði tilkynntu ríkisstjórninni
í nóvember að hún þyrfti að
treysta ímynd sína og endur-
nýja umboð sitt með uppstokk-
un. Hún væri rúin trausti. Gylfi
segir að ríkisstjórnin hafi ekki
viljað neina uppstokkun og því
sé komið að endalokum þess
sem hún geti staðið að. Verka-
lýðshreyfingin treysti sér ekki
til að ræða við ríkisstjórnina við
núverandi aðstæður.
„Við erum að ræða við ASÍ um
mögulega frestun samninganna
en Samtök atvinnulífsins hafa
hingað til ekki tekið afstöðu með
eða á móti ríkisstjórninni. Við
höfum alltaf unnið með ríkis-
stjórninni,“ segir Þór Sigfússon,
formaður SA.
„Að mínu viti hefur margt
gengið vel og margt gengið illa
líka. Ég hefði viljað sjá menn
bretta meira upp ermar núna,
það eru vonbrigði mín, en það
þýðir ekki að ég hefði viljað sjá
skipt um ríkisstjórn,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
Alþýðusambandið hefur
gefist upp á ríkisstjórninni
Verkalýðshreyfingin hefur gefist upp á því að ræða við stjórnvöld um þróun kjara samhliða endurskoðun
samninga. Formenn aðildarfélaga ASÍ ákveða í dag hvort viðræðum verði frestað í von um nýja ríkisstjórn.
SÖGULEGT „Söguleg
tíðindi,“ segir Kristján
Gunnarsson, formað-
ur SGS, um samþykkt
miðstjórnar um að boða
til kosninga.
BÚA TIL TÍMA „Við erum
að reyna að búa okkur
til tíma,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ.
BRETTA UPP ERMAR „Ég
hefði viljað sjá menn
bretta meira upp ermar,“
segir Þór Sigfússon,
formaður SA.
Blaðamannafélag Íslands lýsir
undrun á því hversu margir
fréttaljósmyndarar og tökumenn
urðu fyrir piparúða við aðgerðir
lögreglunnar í Alþingisgarðinum
20. janúar síðastliðinn.
Í ályktun félagsins segir að
margar myndir af vettvangi sem
og fjöldi þeirra sem urðu fyrir
úðanum bendi til þess að lög-
reglan hafi vísvitandi gripið til
aðgerða gagnvart þessum hópi
sem var einungis að sinna störf-
um sínum. Blaðamannafélagið
harmar ef þetta er til vitnis um
nýja stefnu lögreglunnar gagn-
vart fjölmiðlum og fer fram á að
málið verði rannsakað. - ovd
Blaðamannafélag Íslands:
Harmar nýja
stefnu lögreglu
ÁTÖK RÍKISSTJÓRNAR OG ASÍ
Ýmsar aðstæður hafa komið upp í
samskiptum verkalýðshreyfingar og
stjórnvalda en ekkert sambærilegt
við það sem er að gerast nú þegar
verkalýðshreyfingin vill fresta kjara-
samningum fram yfir kosningar.
1956 Vinstristjórnin hrökklaðist
frá völdum vegna þess að þing
ASÍ hafnaði þeirri efnahagsstefnu
sem stjórnin lagði fyrir ASÍ-þingið.
Nokkrum árum síðar hrökklaðist
stjórnin frá.
1977-1978 Verkalýðshreyfingin
gerði harða atlögu að ríkis-
stjórn Geirs Hallgrímssonar eftir
sólstöðusamningana 1977 og
inngrip ríkisstjórnarinnar í þá en
ríkisstjórnin þraukaði þó til loka
kjörtímabilsins 1978.
1990 Þjóðarsáttarsamningarnir.
Stjórnvöldum var boðið upp á það
að aðilar vinnumarkaðarins í sam-
vinnu við stjórnvöld, sveitarfélög,
banka og bændasamtök mótuðu
efnahags-, atvinnu- og kjarastefnu
til nokkurra ára.
Nokkrir Fésbókarhópar hafa sam-
einast um að efna til mótmæla
gegn ofbeldi og eignaspjöllum á
Lækjartorgi, sunnudaginn næsta
klukkan 15.
Júlía Helgadóttir kemur að
mótmælunum og segir hún þau
vera vettvang til að hvetja borg-
arana til að sýna stillingu og mót-
mæla með friðsamlegum hætti.
Beita eigi rödd og penna í stað
hnefa og grjóts.
Búast megi við fjölda fólks, því
í stærsta hópnum séu tæplega
9.000 félagar á netinu, segir Júlía.
Mótmælin séu ekki hugsuð sem
vettvangur fyrir fólk sem vilji
berjast gegn mótmælendum, það
er hvítliða. - kóþ
Hópur stofnaður á Fésbók:
Halda mótmæli
gegn ofbeldi