Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.01.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 23.01.2009, Qupperneq 16
16 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 62 Velta: 62 milljóni OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 319 -0,03% 863 -0,09% MESTA HÆKKUN BAKKAVÖR 9,04% ÖSSUR 0,52% MESTA LÆKKUN ALFESCA 2,26% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 -2,26% ... Atlantic Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 550,00 +0,00% ... Bakkavör 2,05 +9,04% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,30 +0,00% ... Føroya Banki 112,00 +0,00% ... Icelandair Group 13,26 +0,00% ... Marel Food Systems 66,20 +0,00% ... SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-Burðarás 1,22 +0,00% ... Össur 97,00 +0,52% Jákvæðar afkomutölur bandarískra tæknifyrirtækja á borð við Apple og IBM hífðu hlutabréfamarkað vestanhafs upp í fyrradag eftir skell daginn áður þegar S&P 500-hluta- bréfavísitalan féll um rúm fimm prósent. Menn eru almennt sammála um að skipan Timothys Geithners í stöðu fjármálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Bar- acks Obama og boðaðar björgunaraðgerðir hafi ýtt undir bjartsýni í röðum fjárfesta til skemmri tíma litið. Hagnaður Apple nam 1,6 milljörðum dala, jafnvirði 200 milljarða króna, á síðasta ársfjórðungi, sem er sá fyrsti í bókum Apple. Þetta er 30 milljónum dölum meira en árið á undan og þvert á spá Bloomberg-fréttaveitunnar um samdrátt upp á 21 prósent. Þá rufu tekjurnar tíu milljarða múrinn og hafa aldrei verið meiri í sögu fyrirtækisins. Þá nam hagnaður IBM 4,4 milljörðum dala á fjórðungn- um, sem er 57 prósenta aukning milli ára. Gengi hlutabréfa í báðum fyrirtækjum rauk upp um meira en níu prósent og tóku þau önnur tæknifyrirtæki með sér í uppsveiflunni. Við það fór S&P-vísitalan upp um rúm fjögur prósent. - jab Apple blæs á svartsýnisspár Héraðsdómur Reykjavíkur fram- lengdi í gær greiðslustöðvun Stoða (áður FL Group) til 6. apríl næst- komandi. Stjórn Stoða óskaði eftir greiðslu- stöðvun eftir yfirtöku ríkisins á Glitni í septemberlok í fyrra. Um leið var starfsfólki félagsins sagt upp. Sú greiðslustöðvun rann út í byrjun vikunnar. Stoðir voru kjölfestufjárfestir Glitnis banka með rúmlega 30 pró- senta hlut. Hlutirinn varð einskis virði við ríkisvæðinguna. Stærstu eignir Stoða í dag eru Trygginga- miðstöðin, drykkjarvörufram- leiðendurnir Royal Unibrew og Refresco. Þá eru ótaldar fjöldi smærri eigna. - jab Stoðir fá frest fram í apríl Straumur óskar eftir því að Seðlabanki og Fjármálaeft- irlitið skoði gjaldeyrisvið- skipti bankans. Starfsmenn hafa orðið fyrir áreiti vegna ásakana um brot á gjaldeyr- isreglum. Straumur hefur farið þess á leit við Fjármálaeftirlitið og Seðla- bankann að gjaldeyrisviðskipti bankans verði tekin til skoðunar og hefur látið allar upplýsingar um viðskiptin í hendur eftirlitsaðila. Bankinn er sakaður um að hafa keypt gjaldeyri á yfirverði af útflutningsfyrirtækjum bæði beint og óbeint í gegnum útibú hans erlendis og ekki skilað inn í land- ið eins og gjaldeyrisreglur Seðla- bankans um skilaskyldu gjaldeyr- is, sem Alþingi samþykkti í lok nóvember í fyrra, kveða á um. Við- skiptin hafi komið í veg fyrir eðli- lega styrkingu krónunnar. „Starfsfólk Straums hefur orðið fyrir áreiti af völdum þessara ásakana,“ segir Georg Andersen, framkvæmdastjóri upplýsinga- sviðs Straums. Áreitið tengist að nokkru leyti grun um að bankinn haldi gengi krónu lágu en ekki síst því að Björgólfur Thor Björgólfs- son er stjórnarformaður bankans og umsvifamestur hluthafa. William Fall, forstjóri Straums, segir í tilkynningu ásakanir í garð bankans alrangar enda hafi hann ávallt unnið samkvæmt reglunum. „Við höfum engu að leyna,“ segir hann. Straumur bendir á að bank- inn hafi keypt gjaldeyri fyrir 4,5 milljarða króna frá því gjaldeyris- reglurnar voru samþykktar, þar af hafi um helmingur gjaldeyrisvið- skipta átt sér stað utan landsteina, svo sem við sænska bankann SEB Enskilda og í gegnum skrifstofu Straums í Lundúnum í Bretlandi. Viðskipti sem eiga sér stað erlendis við erlendan eiganda gjaldeyris og koma aldrei hingað til lands eru ekki skilaskyld. Málið verður tekið til skoðunar, samkvæmt upplýsingum frá Fjár- málaeftirlitinu. Eftir því sem næst verður kom- ist úr bankageiranum eru viðskipti Straums innan ramma laganna. Upphæðirnar sem um ræði séu lágar og hreyfi ekki gengi krónunn- ar nema að litlu leyti, hugsanleg áhrif séu innan við eitt prósent. Mál manna er að framboð og eftirspurn ráði mun meiru um hreyfingar krónunnar. Innflutn- ingsfyrirtæki þurfi gjaldeyri til greiðslu á vörum auk þess sem ýmsir innlendir aðilar hafi keypt gjaldeyri til greiðslu lána. Þá sé beinlínis fátt sem hvetji útflutn- ingsfyrirtæki til að skila gjald- eyri heim. Nýti þau hann fremur til rekstrar erlendis. jonab@markadurinn.is Straumur biður um rannsókn WILLAM FALL Forstjóri Straums segir að bankinn hafi farið að lögum um gjaldeyris- viðskipti og hafi engu að leyna. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Veljum íslenskt í Bónus HEILSUFÆÐI Það fara fimm kíló af ferskum roðlausum og beinlausum ýsuflökum í að búa til eitt kíló af Gullfiski. Gullfiskur notar kælda framleiðsluaðferð, sem tryggir að ferskleiki og næringargildi vörunnar heldur sér þótt vatnið sé dregið úr henni. Langhollasti þorramaturinn VELJUM ÍSLENSKT Nýherji birtir í dag uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs og ríður með því að venju á vaðið, fyrst skráðra félaga. Með þessu er hafið tímabil ársuppgjöra, en næstu vikur tínast inn, eitt af öðru, ársuppgjör þeirra félaga sem enn eru skráð hér á markaði. Næst birta uppgjör Eimskip á fimmtudaginn eftir viku og Exista degi síðar. Í nýlegri umfjöllun IFS Greiningar um hlutabréfamarkaðinn og komandi uppgjör er útlit sagt fyrir erfiða byrjun á árinu. Þar spili inn í að horfur í efna- hagslífinu séu dökkar og það dragi úr væntingum, vextir innanlands séu háir og áhættulausir, afkomuhorfur hafi versnað og óvissa sé um stöðu einstakra félaga auk þess sem óvissa sé um þróun á erlendum mörkuðum. - óká Uppgjör hafin í kauphöll NASDAQ OMX KAUPHÖLLIN Fyrsta ársuppgjör félags sem hér er skráð í kauphöll birtist í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bretar óttaslegnir „Ef marka má það sem margir Bretar rita í athugasemdum við greinina mína í Guardian í gær [fyrradag] óttast þeir að samskonar hrun og hér hefur orðið geti brátt orðið þar í landi,“ segir Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur í bloggfærslu á Eyjunni í gær. Hann hefur fengið þó nokkur viðbrögð við grein sem hann ritaði í breska dagblaðið Guardian um ástandið hér á landi með fyrirsögninni „The heat is on“. Í gær- kvöldi voru komnar 70 færslur lesenda við grein- ina á vef Guardian. Einn segir allt stefna í sömu átt og á Íslandi í Bretlandi. „Löndin eru í skuggalega svipaðri stöðu: sprungin fasteigna- og lánabóla, hagkerfi þar sem mjög hefur verið dregið úr regluverki, stjórnvöld sem haga sér eins og höfuðlaus hænsn [...] Allt hljómar þetta kunnuglega, Bretland ætti að búa sig undir það versta.“ Útlendingar vilja Moggann Erlendir fjárfestar eru sagðir áhugasamir um að kaupa Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Þykir það nokkuð djarfur leikur af útlendingum að kaupa dagblað í taprekstri í landi þar sem þeir kannski þekkja lítið til og hefðu kannski átt að kalla til ráðgjafar einhvern sem reynslu hefur af slíkum ævintýr- um. Hér eru einhverjir sem enn svíður Nyhedsavisen. Svo getur náttúrulega verið að fjárfestarnir séu hér öllum hnútum kunnugir. Aldrei upplýstist hver var á bak við kaup á fimm prósenta hlut í í Straumi í ágúst í hittið- fyrra, en þau urðu tilefni rannsóknar hjá FME til að útiloka að yfirtökuskylda hefði myndast, eða reglur brotnar um flöggunar- skyldu. Peningaskápurinn ...

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.