Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 27
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI?
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGSVERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2009
Til greina koma allir sem hafa lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins
að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina,
jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök eða þjóðþekktir karlar og konur sem hafa
með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
Samfélagsverðlaunin eru veitt í fimm flokkum.
1) Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð
eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
2) Frá kynslóð til kynslóðar
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir uppfræðarar sem skarað hafa fram
úr á einhvern hátt. Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum metnaði og alúð.
3) Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.
4) Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra samfélagi.
5) Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum
til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll.
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun
með tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar innsendar til lögur
til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í febrúar.