Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 26
22 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Það er ljóst að Stjarn-
an valdi heldur betur réttan val-
kost í desember þegar liðið bauð
Teiti Örlygssyni að taka við liðinu.
Þá hafði hvorki gengið né rekið hjá
liðinu sem sat þess utan í fallsæti í
Iceland Express-deildinni.
Stjörnuliðið hefur blómstrað
undir stjórn Teits, vinnur hvern
leikinn á fætur öðrum og á sunnu-
daginn tryggði liðið sér sæti í
úrslitum bikarsins í fyrsta skipti
í sögu félagsins þegar Stjarnan
lagði Njarðvík sem Teitur þjálfaði
á síðustu leiktíð.
„Það er búið að ganga vel og
þetta hefur verið svakalega
gaman. Við erum þess utan hvergi
nærri hættir. Menn mega ekki
sofna núna því þá eru menn fljót-
ir í botnsætið aftur,“ sagði Teitur
brattur og augljóslega enn í sigur-
vímu eftir Njarðvíkurleikinn.
Teitur vill þó ekki eigna sér allan
árangurinn.
„Ég ætla ekki að eigna mér eitt
né neitt af þessu. Það eru magnað-
ir strákar í þessu liði, hörkuseigir
sem lið og menn vilja leggja mikið
á sig,“ sagði Teitur hógvær en
eitthvað hefur hann gert til þess
að koma liðinu á slíka siglingu.
„Ég hef ekki hugmynd um hvað
það er,“ sagði Teitur og minna orð
hans um margt á ummæli Harry
Redknapp, stjóra Spurs, á dögun-
um þegar afar vel gekk hjá Spurs
eftir að hann tók við.
Teiti var sagt upp störfum hjá
Njarðvík eftir síðustu leiktíð og
hann var ekki sérstaklega sátt-
ur við þá uppsögn. Hann er þar
af leiðandi afar kátur að koma til
baka með slíkum krafti og raun
ber vitni.
„Það er voða gaman að fá þessa
athygli eftir það sem á undan er
gengið. Ég neita því ekkert en
strákarnir eiga þetta allt saman,“
sagði Teitur en hvernig var eigin-
lega tilfinningin að slá út Njarðvík
í undanúrslitum? Félag sem honum
þykir afar vænt um og félag sem
sparkaði honum í fyrra?
„Persónulega var þetta mjög
skrítið fyrir mig. Margir halda
eflaust að ég hafi fagnað eins og
enginn væri morgundagurinn.
Að þetta væri einhver fullnæging
fyrir mig að vinna Njarðvík en það
var alls ekki svoleiðis. Ég átti fullt
af vinum hinum megin á gólfinu og
að sjá þá í sárum tók á fyrir mig,“
sagði Teitur.
Eitt helsta vandamál Stjörnu-
liðsins framan af vetri var að
klára leiki, vinna jafnar viður-
eignir. Teitur var mikill sigurveg-
ari sem leikmaður og honum hefur
eðlilega tekist að miðla af þeirri
reynslu sinni.
„Þegar Njarðvík komst yfir
í leiknum undir lokin þá tók ég
leikhlé. Þá var rífandi stemn-
ing í húsinu og hreinlega hægt að
skera spennuna í loftinu. Þá var
ekki farið yfir neina taktík held-
ur spurði ég þá að því hvort þetta
augnablik væri ekki nákvæmlega
ástæðan fyrir því að þeir væru í
íþróttum? Fá að spila svona leiki?
Hvað er skemmtilegra en þegar
allir horfa á mann spenntir og
sveittir í stúkunni. Þá vill maður
skipta máli og komast í fyrirsagn-
irnar. Ef eitthvað er í menn spunn-
ið á þá að langa það. Þá eiga menn
ekki að fara inn á völlinn og fela
sig.“
Teitur sér ekki eftir því að hafa
tekið tilboði Garðbæinga. „Þetta
tækifæri kom bara á hárréttum
tíma fyrir mig. Rétt lið á réttum
tíma og ég þurfti bara að hugsa
mig um í fimm mínútur enda hef
ég svakalega gaman af þessu,“
sagði kraftaverkamaðurinn Teit-
ur Örlygsson.
henry@frettabladid.is
Hef ekki hugmynd um
hverju ég hef breytt
Teitur Örlygsson hefur gjörbreytt gengi Stjörnunnar í körfubolta eftir að hann
tók við liðinu um miðjan desember. Liðið hefur unnið sex af þeim sjö leikjum
sem Teitur hefur stýrt og er þar að auki komið í bikarúrslitin í fyrsta skipti.
NÆR VEL TIL LEIKMANNA Teitur Örlygsson hefur blásið nýju lífi í Stjörnuliðið. Hann
vill lítið hrósa sjálfum sér og hrósar frekar strákunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ALLT ANNAÐ STJÖRNULIÐ
Stjarnan án Teits:
Leikir: 11
Sigrar: 3
Töp: 8
Sigurhlutfall: 27%
Stjarnan með Teiti*
Leikir: 7
Sigrar: 6
Töp: 1
Sigurhlutfall: 86%
STJARNAN FARIN AÐ VINNA
JÖFNU LEIKINA
(10 stiga munur eða minna)
Án Teits:
Leikir: 8
Sigrar: 1
Töp: 7
Sigurhlutfall: 13%.
Með Teiti:*
Leikir: 4
Sigrar: 4
Töp: 0
Sigurhlutfall: 100%
JUSTIN OG JOVAN
BLÓMSTRA HJÁ TEITI
Stig í leik án Teits:
Justin Shouse: 19,7
Jovan Zdravevski: 17,3
Samtals: 37,0
Stig í leik með Teiti:*
Justin Shouse: 25,7
Jovan Zdravevski: 20,5
Samtals: 46,2
> Stelpurnar mæta Englandi og Danmörku
Kvennalandslið Íslands í fótbolta leikur tvo vináttulands-
leiki í júlí, gegn Danmörku annars vegar og Englandi
hins vegar, en þetta var staðfest á heimasíðu KSÍ í gær.
Leikurinn við Dani verður 16. júlí og átti
upphaflega að fara fram í Kaupmannahöfn
en hefur verið færður til Englands og
seinni leikurinn við Englendinga fer einn-
ig fram í Englandi 19. júlí. Allar þrjár
þjóðirnar verða meðal keppenda á
EM í Finnlandi sem hefst 23. ágúst.
Næsta verkefni kvennalandsliðsins
er Algarve Cup sem hefst með leik
gegn Noregi 4. mars.
Hádegisfundur ÍSÍ 30. jan.!
E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl.
12.00 - 13.00. Tomas Peterson prófessor frá Svíþjóð
fjallar um tengingu þjóðfélags og íþrótta í Svíþjóð.
Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn á meðan
húsrúm leyfir.
Sjá einnig á www.isi.is
Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun
Skuggabankastjórn Markaðarins
rýnir í hagstærðir og ráðleggur
um aðgerðir í efnahagsmálum.
Hver er staða Seðlabankans í raun?
Aðgerðir og aðgerðaleysi í fjármálakrísu.
Í Markaðnum á morgun
Nýjasta landsliðskonan í útrás er framherjinn
Rakel Hönnudóttir hjá Þór/KA sem mun skoða
aðstæður og æfa með sænsku félögunum
Gautaborg og Kristianstad næstu vikurnar. Rakel
stefnir á að dvelja í Svíþjóð fram að Algarve Cup,
æfingamóti sem kvennalandsliðið tekur þátt í, sem hefst
í byrjun mars.
„Ég ætlaði upphaflega að fara til Danmerkur og
skoða aðstæður og æfa með Bröndby en svo féll
það dæmi upp fyrir og mér bauðst þá í staðinn að
fara til Gautaborgar. Ég heyrði svo í Betu [Elísabetu
Gunnarsdóttur, þjálfara Kristianstad] og sagði
henni frá því að ég væri að fara til Gautaborgar
og þá vildi hún einnig bjóða mér að æfa með
Kristianstad og ég þáði það að sjálfsögðu. Ég
byrja að æfa með Gautaborg klukkan níu í
fyrramálið [í dag] og hlakka bara mikið til,“ segir
Rakel sem hittir svo fyrir nokkra liðsfélaga sína úr
landsliðinu hjá Kristianstad en Erla Steina Arnar-
dóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru á
meðal leikmanna sænska liðsins.
Rakel fór hreinlega á kostum með Þór/KA í Landsbankadeild-
inni síðasta sumar og skoraði þá tuttugu mörk í sautján leikjum
með norðanstúlkum sem náðu sínum besta árangri í efstu deild
eða fjórða sæti og Rakel hlaut silfurskóinn fyrir mörkin tuttugu.
Rakel var einnig valin Íþróttamaður Þórs og Íþróttamaður
Akureyrar árið 2008 en hún skrifaði nýverið undir nýjan
tveggja ára samning við Þór/KA og kveðst ekki vera á
förum frá félaginu í bráð.
„Ég er fyrst og fremst að fara út til æfinga hjá
þessum félögum til þess að æfa við toppaðstæður
og fá líka að kynnast því hvernig þetta er þarna úti.
Ég er nýbúin að skrifa undir samning við Þór/KA
og er búin að lofa félaginu að ég spili með því
næsta sumar og ég ætla mér að sjálfsögðu að
standa við það. Ég mun svo bara flýta mér hægt í
þessu hvað framhaldið varðar.“
RAKEL HÖNNUDÓTTIR: ER FARIN ÚT TIL ÆFINGA HJÁ SÆNSKU FÉLÖGUNUM GAUTABORG OG KRISTIANSTAD
Búin að lofa Þór/KA að ég spili áfram næsta sumar
FÓTBOLTI West Ham gekk í gær
frá kaupum á Savio Nsereko frá
ítalska b-deildarfélaginu Bres-
cia. Kaupverðið hefur ekki verið
staðfest en BBC Sport fullyrð-
ir að hann sé dýrasti leikmaður
í sögu West Ham en áður hafði
Craig Bellamy verið dýrasti leik-
maður sem félagið hafði keypt
þegar hann kom frá Liverpool á
7,5 milljónir punda. Flest bresku
dagblaðanna telja að Nsereko
hafi kostað á bilinu 9-10 milljón-
ir punda.
Hinn nítján ára gamli Nsereko
er fæddur í Úganda en er með
þýskt ríkisfang og hefur getið
sér gott orð með U-19 ára lands-
liði Þýskalands og var meðal
annars valinn besti leikmaður
lokakeppni Evrópukeppni U-19
ára landsliða síðasta sumar, sem
Þýskaland vann.
Nsereko hafði verið orðað-
ur við Roma, Lazio og Napoli
á Ítalíu en það sem hafi hins
vegar orðið til þess að
leikmaðurinn ákvað að
velja West Ham hafi
verið vilji hans að
vinna með knatt-
spyrnustjóran-
um Gianfranco
Zola.
„Savio
hlakkar
mikið til
þess að vinna með jafn frábærum
þjálfara og Zola og hann býðst við
því að læra mikið af honum og
ná að bæta sinn leik til muna hjá
West Ham,“ segir Patrick Basti-
anelli, umboðsmaður Nserko.
Hlutverk Gianluca Nani, yfir-
manns knattspyrnumála hjá
West Ham, er einnig talið hafa
vegið þungt í félagaskiptunum
en hann gegndi áður sama starfi
hjá Brescia og þekkir því vel til
leikmannsins. Nani fékk Nsereko
til að mynda á sínum tíma til þess
að koma til ítalska félagsins frá
1860 München í Þýskalandi.
Nsereko verður að öllu
óbreyttu kynntur til sögunnar hjá
West Ham á heimaleik félagsins
gegn Hull annað kvöld og gæti
þess vegna farið beint inn í leik-
mannahópinn ef engir hnökrar
verða á atvinnuleyfinu.
Þá komst West Ham í gær
að samkomulagi við Port-
smouth um sölu á miðju-
manninum Hayden
Mullins á 3 milljónir
punda. - óþ
Savio Nsereko kominn til West Ham frá Brescia:
Dýrasti leikmaður
í sögu West Ham
NSEREKO Varð í gær dýrasti
leikmaður í sögu West Ham
en hann er talinn hafa kostað
á bilinu 9-10 milljónir punda.
NORDIC PHOTOS/GETTY
* LEIKURINN Á MÓTI FSU TALINN MEÐ.