Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 2009 17
Kvikmyndagerðarkonan Vera Sölva-
dóttir var ekki sérlega ánægð með
nafnið sitt þegar hún var lítil.
„Ég vildi helst heita venjulegra
nafni og langaði mest að heita
Heiða eins og besta vinkona mín.
Það endaði með því að hamstur-
inn minn fékk að heita Heiða. Lengi
vel kallaði ég mig líka Línu af því
að mig langaði svo til að vera Lína
langsokkur,“ upplýsir Vera. Upp úr
átta ára aldri fór hún þó að taka
nafnið sitt í sátt og í dag er hún
hæstánægð með það.
En af hverju var þér gefið þetta
nafn? „Mamma heyrði það kallað
í rútu þegar hún gekk með mig
og fannst það fallegt. Pabbi vildi
þó að ég héti Magga Stína eins og
önnur hver kona í föðurfjölskyld-
unni en mömmu fannst komið nóg
af þeim.“
Vera heldur að nafnið sé dregið
af orðinu verdad sem þýðir sann-
leikur á latínu. „Mér finnst það fal-
leg merking. Eins veit ég til þess að
það er mjög algengt í Rússlandi,“
segir Vera en henni finnst alltaf jafn
merkilegt að rekast á aðrar Verur
enda nafnið enn fremur sjaldgæft.
NAFNIÐ MITT: VERA SÖLVADÓTTIR
Hefur tekið nafnið fullkomlega í sátt
SÁTT VIÐ NAFNIÐ Veru langaði mest til
að að heita Heiða þegar hún var yngri
en er nú hæstánægð með nafnið sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kvikmyndasafn Íslands og Japanska
sendiráðið sýna þessa dagana japanskar
kvikmyndir. Kvikmyndin Floating Weeds,
sem nefnist Reikult er þangið á íslensku en
Ukigusa á japönsku, verður sýnd í kvöld,
þriðjudaginn 27. janúar klukkan 20. Hún
verður aftur til sýnis næstkomandi laugar-
dag klukkan 16.
Leikstjóri Floating Weeds er Yasuj-
iro Ozu en hún hefur oft verið talin áferð-
arfallegust mynda Ozu. Hann breytti lítt
upprunalegri sögu myndarinnar þótt ald-
arfjórðungur hefði liðið frá því að mynd-
in kom fyrst út árið 1934 og þar til hún var
endurgerð með hljóði og lit árið 1959.
Áhugasamir geta einnig barið augum
handbragð tökumannsins Kazuo Miyagawa
síðar í vordagskrá Kvikmyndasafns Ís-
lands í myndunum Rashomon og Sansho the
Bailiff. Sýningarnar eru haldnar í tengsl-
um við námskeið í Háskóla Íslands sem
Björn Ægir Norðfjörð kvikmyndafræðing-
ur kennir. Frekari upplýsingar er að finna í
bækl ingi Kvikmyndasafnsins á www.kvik-
myndasafn.is.
Á undan hverri sýningu munu nemendur
í kvikmyndafræði við HÍ halda stutta kynn-
ingu á viðkomandi leikstjóra og mynd. Að-
gangur að sýningum á japönsku kvikmynd-
unum verður ókeypis og opinn almenningi.
Japanskar kvikmyndir til sýnis
REIKULT ER ÞANGIÐ Árið 1959 endurgerði japanski
leikstjórinn Yasujiro Ozu eina af sínum vinsælustu
myndum, A Story of Floating Weeds, frá árinu 1934.
MYND/KVIKMYNDASAFN ÍSLANDS
Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Guðrún Skagfjörð
Stefánsdóttir
áður til heimilis í Hrísalundi 6e, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 20. janúar.
Útför hennar fer fram frá Höfðakapellu föstudaginn
30. janúar kl. 13.30.
Heiðdís Haraldsdóttir Bjarnhéðinn Gíslason
Sigrún Bjarnhéðinsdóttir Jón Pétur Karlsson
Stefán Bjarnhéðinsson Soffía Margrét Sigurðardóttir
Gísli Örn Bjarnhéðinsson Rannveig Tanya Kristinsdóttir
og langömmubörnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, amma og langamma,
Guðrún Sigríður
Björnsdóttir
Þorragötu 5, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 24. janúar sl. Útförin
fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúar kl.
15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Jón Reynir Magnússon
Magnús Reynir Jónsson Bjarnveig Sigríður
Guðjónsdóttir
Birna Gerður Jónsdóttir Guðlaugur Gíslason
Sigrún Dóra Jónsdóttir Jóhann Gunnar Stefánsson
barnabörn og langömmubarn.
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
Aðalsteinn P. Maack
húsasmíðameistari og fv. forstöðumaður
Byggingareftirlits ríkisins áður til heimilis
að Hvassaleiti 56, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn
24. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Aðalheiður Maack Óðinn Geirsson
Pétur A. Maack Kristjana Kristjánsdóttir
Þórhallur Maack Gyða Bárðardóttir
Gísli Maack Kara Margrét Svafarsdóttir
Sigríður Maack Már Másson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Jakob Björgvin Þorsteinsson
Sléttuvegi 13, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala, föstudaginn
23. janúar sl.
Þóra Jakobsdóttir Friðrik S. Kristinsson
Þorsteinn Þ. Jakobsson Guðrún Óðinsdóttir
Óskar M. Jakobsson Angela Jakobsson
Halldór Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegasta eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helga Jóhannesdóttir
Brúnavegi 9, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 23. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju nk. föstudag, 30.
janúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast Helgu er bent
á SOS barnaþorpin.
Svavar Jóhannsson
Edda Svavarsdóttir Birgir Hólm Björgvinsson
Jóhannes Svavarsson Unnur Guðjónsdóttir
Gunnar Svavarsson
Bragi Svavarsson Áslaug Þórðardóttir
barnabörn og makar og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Hjálmars Jónssonar,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
sérstakar þakkir eru til starfsfólks á Hjúkrunar-
heimilinu Eir, 3. hæð, fyrir góða umönnun.
Stefanía G. Guðnadóttir
Herbert Hjálmarsson Guðrún Skarphéðinsdóttir
Jón Ingi Hjálmarsson Svanhvít J. Jónsdóttir
Elva Hjálmarsdóttir
Þráinn Hjálmarsson Málfríður Vilbergsdóttir
Stefán Ragnar Hjálmarsson Hansína Ásta Jóhannsdóttir
Guðný Hjálmarsdóttir Ellert Ingason
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
Magnús Eyjólfsson,
fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma,
Hafnarfirði,
er látinn. Útför hans hefur farið fram.
Þórunn Ingólfsdóttir Flygenring
Kristín Magnúsdóttir Sigurður Helgason
Ásta Magnúsdóttir Oddur Borgar Björnsson
Hugheilar þakkir fyrir samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar eiginmanns míns,
Tryggva Eggertssonar
Gröf, Vatnsnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar-
innar á Hvammstanga fyrir umönnun og hlýju.
Kristín Jóhannesdóttir
Ástkær eiginkona mín og vinur, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Einarína Einarsdóttir
Skólabraut 15, Innri-Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, föstudaginn 23.
janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudag-
inn 30. janúar, kl.14.00.
Skafti Þórisson
Jónína Helga Skaftadóttir Karl Heiðar Brynleifsson
Einar Þórir Skaftason Sjöfn Þórgrímsdóttir
Margrét Ósk Heimisdóttir Gunnar Jón Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Marinó Sigurðsson
Selási 6, Egilsstöðum,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn
31. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á minningarkort Sjúkrahúss Egilsstaða.
Ólöf E. Gísladóttir
Eyþór Ólafsson Aðalbjörg Sigurðardóttir
Sigurður Ólafsson Kristrún Pálsdóttir
Baldur Ólafsson Þóra Kristín Jónsdóttir
María Rebekka Ólafsdóttir Þórarinn Þórhallsson
Aðalheiður Ólafsdóttir Ágúst Sigurður Sigurðsson
Einar Ólafsson Þórunn Guðgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Sigurður Jónsson,
Selvogsgötu 6, Hafnarfirði,
er lést 17. jan. sl., verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 28. jan kl. 13.00.
F.h. aðstandenda,
Nanna Hálfdánardóttir