Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 16
„Það kemur mér oft á óvart hvað
fólk er illa upplýst um hvað það
getur gert til að fyrirbyggja fóta-
mein,“ segir Helga Stefánsdóttir
fótaaðgerðafræðingur á Fótaað-
gerðarstofu Reykjavíkur. „Fólk
velur sér yfirleitt of litla skó og
það skapar núningssár, liðir verða
krepptir og líkþorn myndast. Við
getum tekið líkþornin en þau koma
aftur ef fólk fer aftur í sama skó-
inn. Einnig geta sveppir myndast
í nöglum vegna lélegs blóðflæðis
í tánum.“
Helga bendir á að skóstærð
breytist með árunum og fæturnir
verði meiri umfangs.
„Við þurfum að geta vingsað
tánum inni í skónum. Sumir þurfa
líka innlegg eða tábergspúða sem
rétta rangstöðu á fætinum.“
Fylgjast þarf með sliti innan í
skónum og ójöfnum sem geta sært.
Mikilvægt er að skipta reglulega
um skó til að leyfa skónum að anda
en örverur geta lifað inni í lokuð-
um skóm og leiðinleg lykt mynd-
ast. Helga mælir með því að þrífa
skó reglulega að innan og setja þá
jafnvel í plastpoka í frystinn til að
drepa örverur. Hún mælir með því
að ganga í sokkum innan í skónum
en ekki hvaða sokkum sem er.
„Fæturnir verða rakir í bóm-
ullarsokkum. Ullin er betri því
hún andar en við leggjum áherslu
á að fólk sé í stuðningssokkum.
Bláæðarnar flytja blóðið úr fót-
unum á móti þyngdaraflinu og ef
við hreyfum okkur lítið þenjast
þær út af blóði og bjúgur safnast
upp. Stuðningssokkarnir þrýsta á
svo blóðið gengur hraðar upp. Þeir
eru sérstaklega hentugir fyrir fólk
sem situr mikið við tölvur og eldra
fólk.“
Helga ráðleggur fólki að klippa
táneglurnar eftir bað þegar þær
eru mjúkar. Klippa þvert fyrir
og rúnna endana svo þeir sting-
ist ekki inn í kjöt. Hún segir mik-
ilvægt að þurrka vel milli tánna
eftir bað og mælir ekki með því
að smyrja kremi milli tánna.
„Best er að halda svæðinu alveg
þurru og svo er gott eftir sturtuna
að kæla fæturna niður, þá halda
þeir ekki áfram að svitna þegar
komið er í sokkana. Það getur eyði-
lagt lífsgæði fyrir fólki að líða illa
í fótunum og huga ekki að skófatn-
aði. Þetta er alveg eins og með
dekkin á bílnum, maður kemst
ekki langt á felgunni.“
Helga veitir ókeypis ráðgjöf alla
fimmtudaga í skóversluninni Ilja-
skinn í Miðbæ á Háaleitisbraut.
heida@frettabladid.is
Förum stutt á felgunni
Heilbrigðir fætur eru grundvöllur að almennri vellíðan. Helga Stefánsdóttir fótaaðgerðafræðingur segir
rétt val á skóm lykilatriði að heilbrigðum fótum og mælir með því að fólk gangi í ullarsokkum.
Helga Stefánsdóttir er fótameinafræðingur og annar eigandi Fótaaðgerðarstofu
Reykjavíkur. Hún veitir ráðgjöf í skóversluninni Iljaskinn á fimmtudögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MORGUNVERÐARFUNDUR undir yfirskriftinni
Stöndum við vörð um velferð barna? verður haldinn
í fyrramálið á Grand hóteli á vegum Náum áttum.
Skráning á fundinn er á www.lydheilsustod.is/skraning.
Árskort í tækjasal
aðeins 3.333 kr. á mánuði*
Aðeins 2.990 kr. á mann á mánuði fyrir þig og vin þinn í eitt ár.
Ertu með eitthvað
gott á prjónunum?
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna
og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn,
sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og
prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð,
miðvikudaginn 28. janúar kl. 16-18.
Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist
reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að
taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn
í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn-
unni og með því.
Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 .
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl.10-16 sími 554 6626
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Næstu fyrirlestrar og námskeið
27. jan. Ég fitna sama hvað ég geri. Hvernig næ
ég jafnvægi?
Esther Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi
03. feb. Hvað er heilun?
Kristján Viðar Haraldsson ráðgjafi
07. feb. Hláturfundur Hláturkætiklúbbsins
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
10. feb. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi
Haraldur Magnússon osteópati
12. feb. Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?
Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennariwww.madurlifandi.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki