Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 4
4 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Ég held það sé óhætt að segja,
hvað sem líður afstöðu manna til
einstakra verka fráfarandi rík-
isstjórnar, að engir ráðherrar,
engin ríkisstjórn, enginn forsæt-
isráðherra í sögu lýðveldisins hafa
þurft að glíma við jafn mörg og
alvarleg vandamál og fráfarandi
ríkisstjórn,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, þegar
hann greindi frá því í gær að hann
hefði fallist á lausnarbeiðni Geirs
H. Haarde.
Hann greindi frá fjórum atriðum
sem hann telur brýnt að hafa beri í
huga við myndun nýrrar stjórnar
þótt ekki sé hefð fyrir því að for-
seti greini frá slíku fyrir stjórnar-
myndun. Í fyrsta lagi sagði hann
að vinna yrði að því að skapa sam-
félagslega sátt og búa þannig um
hnútana að fólk gengi til starfa á
friðsaman og öruggan hátt. „Við
höfum öll orðið vitni að því,“ sagði
hann til frekari útskýringar, „að
íslenskt samfélag hefur liðið fyrir
átök og atburði á undanförnum
dögum sem er ný reynsla fyrir
okkur sem þjóð og getur stefnt
þeirri samfélagslegu sáttargerð
og friðsemd sem hefur verið stolt
okkar Íslendinga í voða. Og enginn
veit hvert slíkt samfélag kann að
stefna ef svo heldur áfram.“ Í öðru
lagi sagði hann mikilvægt að unnið
yrði skjótt að farsælli lausn á þeim
vandamálum sem blasa við íslensk-
um fjölskyldum og fyrirtækjum. Í
þriðja lagi að boðað yrði til þing-
kosninga og í fjórða lagi að fund-
inn yrði farvegur fyrir þá umræðu
að lagfæra eða semja nýja stjórn-
arskrá eða stofnun nýs lýðveld-
is, eins og heyrst hefur talað um.
Hann sagðist hafa heyrt því fleygt
í fjölmiðlum að forsætisráðherra
einn og sér hefði vald til að rjúfa
þing. „Þetta er misskilningur á
íslenskri stjórnskipan. Forsætisráð-
herra hefur tillögurétt um þingrof
og síðan er það sjálfstætt mat for-
seta, eins og dæmin sanna í okkar
sögu, hvort hann verður við þeirri
ósk eða ekki. En fráfarandi forsæt-
isráðherra Geir H. Haarde bar ekki
fram slíka ósk.“ Í framhaldi sagði
hann að ekki væri starfandi neinn
forsætisráðherra sem gæti lagt
fram slíka kröfu og því væri þetta
vald eingöngu í höndum forsetans
eins og sakir standa.
Hann sagði brýnt að stjórn yrði
mynduð sem fyrst en hann myndi
þó ekki setja nein tímamörk, að
minnsta kosti ekki að sinni.
jse@frettabladid.is
Forseti lagði línurnar
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands braut hefð og lagði línurnar fyrir myndun nýrrar stjórnar. Vald til
að rjúfa þing er í hans höndum. Hann sagði enga stjórn í sögu lýðveldisins hafa þurft að þola annað eins.
FRÁ BLAÐAMANNAFUNDINUM Á BESSASTÖÐUM Ólafur Ragnar Grímsson gerir grein fyrir fundi sínum með fráfarandi forsætisráðherra og við sama tækifæri greindi hann frá
því sem hafa bæri í huga við stjórnarmyndum en það er nýlunda að forsetinn geri opinberlega grein fyrir slíkum áherslum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Orð forseta um þingrofsréttinn
annars vegar og verkefnalista nýrrar
ríkisstjórnar hins vegar vöktu athygli.
Sagði forsetinn þingrofsvaldið hjá
sér.
Ragnhildur Helgadóttir, laga-
prófessor við Háskólann í Reykja-
vík, segir alveg skýrt samkvæmt
stjórnarskránni að forseti beri ekki
ábyrgð á stjórnarathöfnum og að
hann láti ráðherra framkvæma vald
sitt. Nítjánda greinin kveði svo á um
að undirskrift forseta veiti ákvörð-
unum aðeins gildi þegar ráðherra
ritar undir mál eða erindi með
honum. „Forseti getur því ekki rofið
þing nema ráðherra geri það með
honum,“ segir Ragnhildur.
Forsetinn sagði nýja ríkisstjórn
þurfa að sinna tilteknum verkefn-
um. „Hann hefur enga heimild til
að leggja ríkisstjórn pólitískar línur,“
segir Ragnhildur. „Hann bindur
ekki þingið og eina afdráttarlausa
lagareglan varðandi stjórnarmyndun
er þingræðisreglan sem segir til um
að ríkisstjórn verði að hafa stuðning
eða hlutleysi meirihluta Alþingis.“
Ragnhildur segir að þar af leiðandi
geti forseti ekki sagt ríkisstjórn fyrir
verkum. Og í raun túlki hún orð
hans ekki á þann veg. „Mér virðist
hann vera að túlka undirölduna í
samfélaginu fyrir stjórnmálamenn-
ina og það má líta svo á að það sé
hjálplegt og gott að einhver gerir
það.“ - bþs
RAGNHILDUR HELGADÓTTIR Prófessor
við Háskólann í Reykjavík.
19. gr. stjórnarskrárinnar.
■ Undirskrift forseta lýðveldisins
undir löggjafarmál eða stjórnarer-
indi veitir þeim gildi, er ráðherra
ritar undir þau með honum.
BÁÐIR RITI UNDIR
FORSETINN RÝFUR EKKI ÞING EINN
Gunnar Helgi
Kristins-
son segir að
forsetinn sé
greinilega að
koma sér inn í
umræðuna með
þeim fjórum
atriðum sem
hann vill að ný
stjórn nái saman um. „Hann stýr-
ir þessu ekki mjög mikið í raun
og veru núna. Hann getur ekkert
gert sem stjórnmálaforingjarnir
og flokkarnir sætta sig ekki við.“
Gunnar Helgi segir minni-
hlutastjórn Samfylkingar og VG
líklegasta í stöðunni. Þjóðstjórn
sé veik stjórn þar sem hver flokk-
ur hafi neitunarvald. Þá sé utan-
þingsstjórn ólíkleg. „Ef forset-
inn ætlar að reyna að fara fram
í andstöðu við stjórnmálaöflin
er hætt við að það fari ekki vel,“
segir Gunnar. - kóp
Gunnar Helgi Kristinsson:
Forsetinn ekki
gerandi núna
Ólafur Þ. Harð-
arson segir
óvenjulega
staðið að veit-
ingu stjórnar-
myndunarum-
boðs hjá
forsetan-
um. Ekki sé
nákvæmlega
ljóst hvað fyrirmæli hans þýði,
en svo verði að líta á að hann hafi
verið að lýsa skoðunum sínum.
„Hann getur komið sjónarmiðum
sínum á framfæri við forystu-
menn flokkanna, en í raun kemur
ekki til hans kasta nema óljóst sé
hver eigi að fá umboðið.“
Ólafur segir að greinilega hafi
verið kominn pirringur í stjórnar-
flokkana. Krafa Samfylkingar-
innar um að fá forsætisráðherra
hafi verið erfiður biti fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. - kóp
Ólafur Þ. Harðarson:
Óvenjulega að
þessu staðið
Jón Sigurðsson óskaði formlega
eftir að láta af starfi sem vara-
formaður Seðlabanka Íslands í
gær. Jón hætti í gær sem formað-
ur stjórnar Fjármálaeftirlitsins,
eftir að Björgvin G. Sigurðsson,
fráfarandi viðskiptaráðherra, fór
fram á það. Ekki náðist í Jón við
vinnslu fréttarinnar. - kóp
Hættir í bankaráðinu:
Jón hættir sem
varaformaður
Ný ríkisstjórn í mótun
Xerodent 28,6 mg/0,25 mg munnsogstöflur.
Notkunarsvið og skömmtun: Hver tafla inniheldur eplasýru 28,6 mg og natríumflúoríð samsvarandi 0,25
mg af flúor. Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks
og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má
auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal
skammtinum jafnt yfir daginn.
Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna ættu ekki að nota
Xerodent. Við meðhöndlun með Xerodent skal forðast að nota önnur lyf sem innihalda flúor. Xerodent má
ekki nota á landsvæðum þar sem flúorinnihald drykkjarvatns er hátt. Vegna þess að Xerodent inniheldur
xylitól getur það haft hægðalosandi verkun.
Meðganga/brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta við notkun á meðgöngu. Natríumflúoríð skilst ekki út í
brjóstamjólk. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. 29. nóvember 2007.
Þreföld virkni Xerodents
Eplasýra – örvar munnvatnsframleiðslu
Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum
Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni
Xerodent
Við munnþurrki
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
17°
4°
6°
3°
2°
4°
3°
1°
3°
3°
18°
8°
1°
26°
-1°
7°
11°
1°
Á MORGUN
Hæg suðlæg átt.
0
FIMMTUDAGUR
5-8 m/s.
0
0
-2 -2
-1
0
2
3
0
-7
0
1
-2
-2
1 0
0
-2 -4
-4
HELDUR KÓLNANDI
Það verður éljaloft
yfi r sunnan- og
vestanverðu landinu
í dag og jafnvel með
austurströndinni einn-
ig en norðanlands
verður úrkomulaust
þegar kemur fram á
morguninn og upp úr
því léttir þar til. Svipað
veður verður á morg-
un en úrkoman verð-
ur þó heldur minni
en í dag. Þróunin er
síðan að heldur kólni
næstu daga.
5
6
6 5
5
5
5
5
8
5
5Sigurður Þ. Ragnarsson
veður-
fræðingur