Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 12
12 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Feb.
06
Jan.
07
Sep.
07
Feb.
08
Okt.
08
Nóv.
08
Jan.
09
34,3
Nei
Já
65,7
48,9
51,1
68,8
31,3
40,2
59,8
70
60
50
40
30
Stuðningur við Evrópusambandið
SKOÐANAKÖNNUN „Það er athygl-
isvert hversu mikið afstaða fólks
sveiflast,“ segir Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Íslands, um nýja skoðanakönnun
Fréttablaðsins um vilja almenn-
ings til aðildarumsóknar að Evr-
ópusambandinu.
Í könnuninni segjast 59,8 pró-
sent ekki vilja að Ísland sæki um
aðild að sambandinu en í nóvember
í fyrra sögðust 59,6 prósent vera
fylgjandi aðildarumsókn.
Finnur telur þessa sveiflu sýna
að frekari dýpt vanti í umræðuna.
„Þess vegna er þeim mun brýnna
að það verði leitt til lykta hverjir
kostir og gallar aðildar eru raun-
verulega og það gert sem allra
fyrst,“ segir Finnur. Hann segir
verkefnin fram undan ráðast að
miklu á því hvaða leið verði farin í
Evrópumálum.
Vilhjálmi Egilssyni, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnu-
lífsins, þykir sveiflurnar einnig
athyglisverðar. „Maður sér ekki
að það sé nokkur einhlít skýr-
ing á þessu en það er greinilegt
að núna er fólk að hugsa um aðra
hluti en Evrópusambandið,“ segir
Vilhjálmur. Hann segir að í ljósi
atburða í þjóðfélaginu sé það ekki
óeðlilegt.
„Það væri áhugavert að sjá
dýpri kannanir þar sem skýringar
á þessum sveiflum kæmu fram,“
segir Vilhjálmur.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
telur að allt sem viðkemur stjórn-
málum á Íslandi sé í uppnámi. „Ég
hygg að þetta endurspegli meira
almenna vantrú fólks á stjórnmál-
um,“ segir Gylfi.
Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins, minnir á að SI hafi að
undanförnu staðið að reglulegum
skoðanakönnunum um afstöðu
Íslendinga til Evrópusambands-
aðildar. Nýjasta könnun SI var
gerð 8. til 18. janúar síðastliðinn
þar sem 56 prósent sögðust hlynnt
aðild, 25 prósent voru andvíg og
18 prósent voru hvorki fylgjandi
né andvíg aðild.
„Mér þykir ósennilegt að þjóðin
hafi á fáeinum dögum skipt svona
gersamlega um skoðun en hins
vegar er rétt að undanfarið hefur
dregið saman með þeim sem eru
fylgjandi aðild og þeim sem eru
henni andsnúnir. Það hafa kann-
anir okkar sýnt,“ segir Jón Stein-
dór.
„Ég held að það megi að sumu
leyti skýra þetta með almennu
upplausnarástandi í samfélaginu,
fólk veit ekki almennilega í hvorn
fótinn það á að stíga,“ segir Jón
Steindór.
olav@frettabladid.is
Athyglisverðar
fylgissveiflur
Stuðningur við aðild Íslands að Evrópusambandinu
fer dvínandi samkvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir
athyglisvert hversu mikið afstaða fólks sveiflast.
HÖFUÐSTÖÐVAR EVRÓPUSAMBANDSINS Skoðanakannanir sýna að afstaða íslend-
inga til aðildar Íslands að Evrópusambandinu sveiflast mjög mikið. NORDICPHOTOS/AFP
Áður en allt hrundi var Ísland fokdýrt
land. Ekki skánar það núna. Sigursteinn
Óskarsson í Vestmannaeyjum hringdi
inn með dæmi: „Ég var á Kanarí og þar í
apóteki kostar 60 g túba af Voltaren-geli
þrjár evrur (476 kr.). Í Lyfjum og heilsu
hér í Eyjum kostar túba með 50
g af sams konar kremi 2.367 kr!
Hvernig stendur eiginlega á þess-
um mun?“
Það er ekki nema von að spurt
sé. Voltaren er bólgueyðandi og
verkjastillandi gel og ekki lyfseð-
ilsskylt. Það er tæplega 600 pró-
sentum dýrara hér en á Kanarí!
Artasan flytur lyfið inn. Þar talaði ég
við sölu- og markaðsstjórann Brynjúlf
Guðmundsson. „Suður-Evrópa er á allt
öðrum verðskala en Norður-Evrópa svo
eðlilegra væri að bera verð saman á
milli til dæmis Danmerkur og Íslands.
Eitt sem þarf að hafa í huga er í hvern-
ig apóteki Sigursteinn keypti lyfið. Sum
apótek eru ódýrari en önnur og
því ekki rétt að bera
saman
tvö gjörólík apótek. Og annað sem
þarf að athuga er hvort lyfið hafi verið
á tilboði þegar það var keypt,“ segir
Brynjúlfur og bætir við: „Meirihluti
aðfluttra lyfja kemur frá Danmörku.
Lyfjagreiðslunefnd ákveður gengi bak
við heildsöluverð mánaðarlega og
danska krónan hefur hækkað mest und-
anfarið. Framleiðsluupplag á Voltar-
en fyrir Ísland er lítið og því dýrt,
en nú er verið að vinna í því að fá
sameiginlegar pakkningar fyrir
danska og íslenska markaðinn. Ef
það tekst verður lyfið bæði ódýrara
og fleiri og hagstæðari pakkningar
verða í boði.“
Neytendur: Verðmunur á Spáni og Íslandi
Bólgulyf 600 prósentum dýrara hér
ÓDÝRARA Á SPÁNI Voltaren-bólgulyf.
Dagskrá
28. janúar kl. 15:00 til 17:30
Opinn fundur um tækniþróun og nýsköpun
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar
- Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
- Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun, Listaháskóla Íslands
- Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir á sviði upplýsingatækni
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
4. mars kl. 15:00 til 17:00
Kynning og umræður um drög að nýrri stefnu Vísinda- og tækniráðs
Fundarstaður er Nýi Kaupþing banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 515 5800 eða með tölvupósti á netfangið
rannis@rannis.is í síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 28. janúar.
Vísindanefnd og tækninefnd boða til opinna funda um
mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu miðvikudaginn
28. janúar kl. 15:00-17:30. Kynningarfundur um drög að
nýrri stefnu verður síðan haldinn miðvikudaginn 4. mars.
2009-2012
VÍSINDA- &
TÆKNISTEFNA
FJÖLMIÐLAR Áhugasamir fjárfest-
ar um hlut í Árvakri, útgáfufé-
lagi Morgunblaðsins, skulu gefa
áhuga sinn til kynna fyrir 30. jan-
úar. Bindandi tilboð skal svo leggja
fram 17. febrúar.
Árvakur hefur falið Nýja Glitni,
helsta lánardrottni sínum, að ann-
ast formlega öflun hlutafjár fyrir
félagið. Eftir að núverandi eigend-
ur færa niður eign sína í félaginu
verður auglýst eftir tilboðum fag-
fjárfesta.
Einar Sigurðsson, forstjóri
Árvakurs, segir að ýmsar breyt-
ingar í rekstri hafi lengt sölu-
ferlið, svo sem þær sem kynnt-
ar voru í gær um launalækkun
starfsmanna. Einnig séu fyrir-
hugaðar breytingar á vinnuferl-
um við prentun og dreifingu, sem
hann vill ekki greina frá að svo
stöddu. Ekki standi til að leggja
niður sunnudagsblaðið eða draga
úr dreifingu.
Rekstur hafi gengið betur en á
horfðist eftir efnahagshrunið; aug-
lýsingasala og áskrift hafi ekki
minnkað jafn mikið og óttast var.
Einnig hafi Glitnir veitt fjárhags-
legt svigrúm, en Einar vill ekki
gefa upp hversu há fyrirgreiðsl-
an var.
„En það verða engin vanhöld á
launagreiðslum næstu mánaða-
mót,“ segir hann. Þeim sem leggi
fram hæstu tilboðin verði boðin
áframhaldandi þátttaka. Engir
aðrir skilmálar en um greiðslugetu
verði settir fyrir kaupunum. - kóþ
Nýi Glitnir annast öflun hlutafjár fyrir Árvakur:
Hreyfing komin á
söluferli ÁrvakursHOLLAND, AP Thomas Lubunga, fyrrverandi leiðtogi uppreisnar-hóps í Kongó, lýsti sig saklausan af
tíu ákærum um að hafa notað börn,
sum ekki nema
tíu ára gömul,
í uppreisnar-
sveitum sínum.
Mörg þessara
barna létu lífið
í átökum. Mál
Lubungas er
fyrsta málið
sem kemur til
kasta alþjóðlega
sakadómstólsins í Haag, og hófust
réttarhöldin í gær.
„Stríðsherrar heima í Kongó
munu nú læra það að enginn er
ósnertanlegur,“ segir Bukeni War-
uzi, Kongóbúi sem hefur hjálpað
til við að bjarga börnum úr klóm
vopnaðra sveita í Kongó. - gb
Söguleg réttarhöld hefjast:
Lubunga lýsir
yfir sakleysi
THOMAS LUBUNGA
GENGIÐ 26.01.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
195,7758
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,46 123,04
169 169,82
158,61 159,49
21,277 21,401
17,785 17,889
14,998 15,086
1,372 1,38
182,87 183,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR