Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 6
6 27. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Ný ríkisstjórn í mótun
Með breyttu hugarfari getur þú öðlast
það líf sem þú óskar þér.
NLP er notað af fólki um allan heim sem
hefur náð frábærum árangri í lífinu.
NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið
sem völ er á.
Námskeið í NLP tækni verður haldið
13. - 15.feb. og 20. - 22.feb. 2009.
www.ckari.com; Mail: rosa@ckari.com; Sími: 894-2992
Kári Eyþórsson MPNLP
„Hugurinn ber þig alla leið“
- Er sjálfstraustið í ólagi?
- Viltu betri líðan?
- Skilja þig fáir?
- Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu?
- Gengur öðrum betur í lífinu en þér?
- Gengur illa að klára verkefni?
- Er erfitt að höndla gagnrýni?
© cKari.com
Hef fl utt læknastofu mína
í Læknastöð Vesturbæjar, Melhaga 20-22.
Tímapantanir í síma 562 8090 kl. 10-18.
Einar Már Valdimarsson
sérgrein: heila- og taugasjúkdómar.
Bæði Geir H.
Haarde og Þor-
gerður Katrín
Gunnarsdóttir
segja að Sjálf-
stæðisflokkur-
inn hafi verið
tilbúinn til að
gera breyt-
ingar á stjórn
Seðlabankans.
Þorgerður sagði flokkinn hafa
verið reiðubúinn til að gefa út
yfirlýsingar um að klára þyrfti
frumvarp um Seðlabankann
sem fyrst sem myndi hafa í för
með sér breytingar á yfirstjórn-
inni.
Þá sagði Geir að hægt hefði
verið að semja um ágreinings-
atriði. „Ég er sannfærður um að
við hefðum náð niðurstöðu varð-
andi öll þau atriði, þar með talið
Seðlabankann.“
Fréttablaðið leitaði viðbragða
seðlabankastjóra við þessu en
þau fengust ekki. - kóp
Seðlabanki svarar ekki:
Hefðu breytt
bankastjórn
DAVÍÐ ODDSSON
Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður
Vinstri hreyfing-
arinnar - græns
framboðs, sagði
eftir fund með for-
seta Íslands í gær
að flokkur sinn
væri opinn fyrir
myndun þjóð-
stjórnar. Hann
telur þó ólíklegt
að fráfarandi
stjórnarflokkar
séu tilbúnir til að koma aftur að borðinu og því sé
hann nokkuð svartsýnn á að slík stjórn taki við.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið nefnd sem lík-
legur næsti forsætisráðherra og því var hann spurð-
ur hvernig honum litist á það? „Mér líst vel á hana
og þekki hana af langri samveru,“ sagði hann. Hann
sagði enn fremur að vinstri grænir hefðu ekki gert
neinar kröfur um forsætisráðuneytið, slíkt væri
aukaatriði eins og sakir stæðu. - jse
Steingrímur J. Sigfússon:
Líst vel á Jóhönnu
í forsætisráðuneyti
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
formaður Fram-
sóknarflokksins,
ítrekaði á fundi
sínum með Ólafi
Ragnari Gríms-
syni, forseta
Íslands, að fram-
sókn væri til í að
verja minnihluta-
stjórn vantrausti
svo lengi sem slík
stjórn kæmi fram
með trúverðuga stefnu. Hann lagði mikla áherslu á
að hún yrði að leggja mikið upp úr aðstoð við skuld-
sett heimili en einnig atvinnulífið.
Spurður að því hvernig honum litist á Jóhönnu
Sigurðardóttir sem hugsanlegan forsætisráðherra
sagðist hann ekki vilja tjá sig sérstaklega um ráð-
herraskipan. Framsóknarmenn myndu ekki hlutast
til um það en hins vegar setja viss skilyrði varðandi
málefnin. - kóþ / jse
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson:
Ver stjórn sem
styður heimilin
„Tappinn var Davíð Oddsson,“
segir Skúli Helgason, fram-
kvæmdastjóri Samfylkingarinn-
ar, um aðgerðaáætlun sem sam-
fylkingarfólk lagði fram á fyrsta
fundi sérstaks aðgerðahóps ríkis-
stjórnarinnar sem tók til starfa í
nóvemberbyrjun.
Í hópnum sátu framkvæmda-
stjórar stjórnarflokkanna, ráð-
herrar og þingmenn en fyrir
honum fóru Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
Skúli segir Samfylkinguna hafa
lagt skjalið fram sem innlegg í
nýjan stjórnarsáttmála enda hafi
forsendur sáttmálans sem samið
var um á Þingvöllum verið svo
gott sem brostnar. Ýmislegt úr
tillögupakkanum hafi náð inn í
aðgerðaáætlanir ríkisstjórnar-
innar fyrir heimilin og atvinnu-
lífið en annað náði aldrei fram að
ganga.
„Við lögðum þunga áherslu á
það sem við kölluðum hreinsunar-
áætlunina; tiltektina í Fjármála-
eftirlitinu og Seðlabankanum og
ýmislegt er varðar siðferðislega
ábyrgð, endurskoðun ráðherra-
ábyrgðar og fleira. Þetta komst
aldrei áfram, tappinn var Davíð
Oddsson.“
Hann segir samstarfið í hópnum
hafa verið ágætt, Sjálfstæðismenn
hafi leikið alls kyns leiki og lofað
ýmsu, „en svo gerðist aldrei neitt.
Þeir gátu ekki klárað þetta“.
Skúli segir Samfylkinguna hafa
þrýst mjög á um að búið yrði svo
um hnúta að ríkisstjórnin tæki
ákvörðun um Evrópusambands-
mál í febrúar. Þjóðin stæði þá
klár á hvert stjórnin stefndi. „Þeir
tóku ekki illa í það í byrjun en svo
fór það í sama far og annað,“ segir
hann um undirtektir sjálfstæðis-
manna. bjorn@frettabladid.is
Tappinn var Davíð
Samfylkingin lagði fram í byrjun nóvember tillögu um aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar í 55 liðum með 48 undirliðum. Framkvæmdastjóri flokksins segir
sumt hafa komist í framkvæmd en annað strandað hjá Sjálfstæðismönnum.
Innlegg Samfylkingarinnar að því
sem nefnt var nýr stjórnarsáttmáli er
í 55 liðum með 48 undirliðum í sjö
köflum. Þeir eru: Endurmat og upp-
gjör, hagur heimilanna, hagur fyrir-
tækja, sprotafyrirtæki og nýsköpun,
auðlindir og orkufrekur iðnaður,
ferðaþjónusta og umhverfisvernd og
samvinna og samráð.
Endurmat og uppgjör:
■ Eftirlaunakjör þingmanna og ráð-
herra færð nær rétti almennings.
■ Siðareglur fyrir ráðamenn verði
samþykktar sem feli í sér reglur og
upplýsingaskyldu um fjárhagsleg
hagsmunatengsl.
■ Lög um ráðherraábyrgð verði
endurskoðuð.
■ Reglur um tryggingasjóð inn-
stæðueigenda verði endurskoðaðar.
■ Rannsóknarnefnd sett á fót
sem skýri orsakir og aðdraganda
fjármálakreppunnar.
■ Lögum um Seðlabankann
verði breytt með þeim hætti að
fyrir bankanum sé einn banka-
stjóri skipaður út frá alþjóðlegum
hæfniskröfum og að komið verði
á fót peningastefnuráði sem fari
með ákvarðanir um beitingu allra
stjórntækja bankans, þ.e. stýrivaxta,
bindiskyldu og lausafjárreglna.
■ Lagaumhverfi fjármálamarkaðar
verði tekið til endurskoðunar.
■ Ríkisstjórnin lýsir því yfir að
þegar í stað verði hafinn undirbún-
ingur að því að sækja um aðeild að
Evrópusambandinu og búa Ísland
undir upptöku evru eins fljótt og
auðið er.
Þá vildi Samfylkingin meðal ann-
ars auka fiskveiðiheimildir um 50
þúsund þorskígildistonn og bjóða
þær til leigu á markaði. Jafnframt
setja lög sem tryggi að allur afli
fari á markað.
PENINGASTEFNURÁÐ Í SEÐLABANKANN
Á BESSTASTÖÐUM Steingrímur fundaði
með forsetanum í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
AÐ LOKNUM FUNDI Sigmundur sagði
Framsókn styðja minnihlutastjórn.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UPPLÝST UM STÖÐUNA Ingibjörg Sólrún Gísladóttir greindi frá gangi mála að loknum þingflokksfundi Samfylkingarinnar. Skömmu
síðar gekk hún á fund Geirs H. Haarde og á honum varð ljóst að ríkisstjórnarsamstarfinu væri lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Guðjón Arnar
Kristjáns-
son, formað-
ur Frjálslynda
flokksins, segir
vænsta kostinn
í stöðunni þann
að mynda þjóð-
stjórn.
Hann hefur
ekki tekið
afstöðu til þess
hvort hann
verji minnihlutastjórn VG og
Samfylkingar vantrausti. Guðjón
veit ekki til þess að aðrir flokkar
sýni þjóðstjórnarmynstri áhuga.
Engar formlegar þreifingar hafi
farið fram milli þeirra og ann-
arra flokka.
Spurður um niðurstöðu af
fundi sínum með forseta, nefnir
hann fyrst að ekkert sé á hreinu
um hugsanlega ríkisstjórn.
Frjálslyndi flokkurinn vilji
auka aflaheimildir, úr 130.000
tonnum og í 220.000 tonn. - kóþ
Formaður frjálslyndra:
Leggur áherslu
á þjóðstjórnina
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON