Tíminn - 16.12.1982, Blaðsíða 24

Tíminn - 16.12.1982, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 IFAÐMI ORIAGANNA I.illi Ihhner IDUNN .PKTTA KR SPENNU- OG ÁSTARSAGA EINS OG ÞÆR GERAST 8ESTAR.. "(THE GUARDfÁN) AMcffý Stewart BRODIR MINN MIKAEL Hver var Courtney Marsh? ÓUUR FORTÍÐAR, níunda bók Phyllis A. Whitney, hörkuspennandi og rómantísk saga sem gefur fyrri sögum hennar ekkert eftir. Courtney Marsh hafði verið vöruð við að grafast fyrir um upp- runa sinn, hverjir hinir raunverulegu for- eldrar hennar voru. Samt gat hún ekki annað. Og nú var hún komin til Long Island, til einnar fremstu fjölskyldu fyrir- fólksins par. En móttökumar voru vœg- ast sagt ekki góðar: pað er setið um líf hennar! Getur ástin bjargað henni? A brún sjálfstortímingar í FAÐMI ÖRLAGANNA, skáld- saga Lilli Palmer, er sagan af Sophie og örlögum hennar, saga sem snertir hvern lesanda djúpt. Við fylgjumst með upp- vexti Sophie í Berlín á árunum fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Hún berst ce lengra fram á brún sjálfstortímingar, en varðveitir allt til loka hina heitu lífs- skynjun sína, svo að hún getur að lokum gert upp Itf sitt af vœgðarlausri hrein- skilni. Spennu- og ástarsaga af bestu gerð BRÓÐIR MINN MIKAEL, rómantísk og œsispennandi saga frá Mary Stewart. Camilla Haven fœr skilaboð um að koma til Delft, par sem hún er stödd í Apenu, ein í sumarleyfi. í Delfí á hún að hitta mann sem er að grafast fyrir um dular- fullan dauðdaga bróður síns Mikaels fyrirfjórtán árum. Svo virðist sem Mikael hafi verið ráðinn af dögum. Og Camilla fœr að reyna aðþað er ekki hœttulaust að flœkjast í þetta mál... Ósvikin Mary- Stewart-saga. Fegurst og fremst — „vanstillt daðurdrós“ Listræn lýsing á kynnautn kvenna UNAÐSREITUR hefur að geyma þrett- án gleðisögur eftir einn listfengasta höf- und erótískra sagna á þessari öld. Hér er sagt frá fjölbreytilegum hliðum kynlífs- reynslunnar og tilbrigðum hennar. Hin holdlega gleði og lífsþorsti sem sögurnar lýsa gera þœr að einstœðum lestri. Um bókina má segja eins og sagt var um aðra bók sama höfundar: Þetta er bók sem ekki er hœgt að lýsa, það verður að lesa hana. ELIZABETH TAYLOR, ástir, líf og leikur, er œvisaga skœrustu stjömu hvíta tjaldsins, konunnar sem kölluð hefur verið ein hin fegursta í heimi. Lífhennar hefur verið óvenju stórbrotið, oft skammt á milli djúprar örvœntingar og ríkulegr- ar gleði. Hún hefur baðað sig í Ijóma frcegðarinnar, tvisvar fengið Óskarsverð- laun, en líka verið niðurlœgð og kölluð ,,vanstillt daðurdrós“. Andleg og líkam- leg heilsa hennar hefur hangið á blá- þrœði. Sjö sinnum hefur hún gengið í hjónaband, og hemjulausir lifnaðarhcett- ir hennar ollu þvílíku hneyksli að heims- sögulegir atburðir á stjómmálasviði féllu í skuggann. — Elizabeth gerði líka einn stcersta kvikmyndaframleiðanda heims ncer gjaldþrota, með kenjum sínum og heimtufrekju. Auður og ríkidcemi kvik- myndastjarnanna á sér engin takmörk og eyðslusemi þeirra og lifnaðarhcettir oft utan allra velscemismarka. í bókinni eru fjölmargar myndir, úr einkalífi Eliza- bethar og af henni í ýmsum sínum frceg- ustu hlutverkum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.