Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
30. janúar 2009 — 27. tölublað — 9. árgangur
Humarmedalíur18 humarhalar
Humarinn pillaður og snyrtur, settur á pinna og steiktur í 1 mínútu á hvorri hlið á sjóðandi heitri pönnu. Blómkálstoppar100 bl
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég útskrifaðist fyrir þremur
árum sem kokkur frá Hótel Sögu,
síðan þá hef ég unnið á veitinga-
staðnum Grillinu á milli þess
sem ég fer utan í matreiðsluferð-
ir, ef svo má segja,“ segir Þrá-
inn Freyr Vigfússon, aðstoðar-
yfirmatreiðslumaður á Grillinu á
Hótel Sögu.
„Ég byrjaði á því að fara til
Suður-Frakklands fyrst eftir að
ég útskrifaðist og vann á veitinga-
stað þar í nokkra máíð
Gómsætir humarpinnar
Þráinn Freyr Vigfússon, meðlimur kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins 2007, lumar á girnilegri
uppskrift að humri, en hugmyndina fékk hann þegar hann vann á veitingastað í Chicago.
Þráinn hefur unnið á veitingastöðum víðs vegar um heiminn en snýr þó alltaf aftur til Íslands, oftar en ekki með nýjar og ferskar
hugmyndir á matseðilinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HUMARMEDALÍUR með mangói og blómkáli FYRIR 6
SKAUTAFERÐ með fjölskyldunni er tilvalin helgar-
skemmtun. Í Egilshöll er til dæmis boðið upp á sérstakt
fjölskylduverð sem miðast við tvo fullorðna og tvö
börn og skautaleiga er á staðnum.
H
rin
gb
ro
t
2. janúar -28. febrúarHinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“með fíkjum, salati og ferskum parmesanostiRJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPAmeð humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI
með ristuðu grænmeti, kartöflumaukiog hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖNDmeð appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)NAUTALUNDBéarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati og sperglum (6.590 kr.)
LOGANDI CRÈME BRÛLÉEmeð súkkulaði ís
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA
föstudagur
BREYTIR
ÍMYND
Í
Vala Matt
er að vinna
að nýju og
spennandi
verkefni
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 30. janúar 2009
VALA MATT
Ný vinna
– ný tækifæri
FÖSTUDAGUR FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÞRÁINN FREYR VIGFÚSSON
Safnar uppskriftum í
utanlandsferðunum
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
PAKKAÐ NIÐUR Geir H. Haarde var í óða önn að pakka niður á skrifstofu sinni í Stjórnarráðinu í gær þegar ljósmyndara Frétta-
blaðsins bar að garði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sókn til
mannréttinda
Kvennasamningur Sam-
einuðu þjóðanna er
þrjátíu ára.
TÍMAMÓT 18
®
YFIR 1000 VÖRUTEG. MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSL.
ALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
ÚTVÖRP
BÍLTÆKI
HLJÓMBORÐ
BÍLHÁTALARAR
HEYRNARTÓL
HÁTALARAR
FERÐATÆKIDVD SPILARAR
MP3 SPILARAR
MAGNARAR
REIKNIVÉLAR
BÍLMAGNARAR ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
MYNDAVÉLAR
SJÓNVÖRP
HÁFAR
STRAUJÁRN
ELDAVÉLAR
UPPÞVOTTAVÉLARHRÆRIVÉLAR
ÖRBYLGJUOFNAR
ÞVOTTAVÉLAR
ÍSSKÁPAR
RYKSUGUR
VÖFFLUJÁRN
RAKVÉLAR
FRYSTIKISTUR
KAFFIVÉLAR
SAMLOKUGRILL
BLANDARAR ÞURRKARAR
HELLUBORÐ OFNAR
ÚTSÖLULOK Á
LAUGARDAG
LOKADAGAR
MARÍA HULD MARKAN
Seldu lag í breska
tölvuauglýsingu
Amiina hugsar sér aftur til hreyfings
FÓLK 30
Gaukur
sýknaður
Hæstiréttur sýkn-
aði Gauk Úlfars-
son í meiðyrðamáli
vegna bloggskrifa.
FÓLK 30
FÓLK Aðeins tvö lög af þeim átta
sem keppa um farseðilinn á Eur-
ovision í Moskvu verða sungin á
íslensku.
Höfundar laganna hyggj-
ast ekki þýða textana yfir á
ensku sigri
þeir í keppn-
inni. Í fyrra
voru fjögur af
þeim átta lögum
sem kepptu til
úrslita sungin á
íslensku.
Þórhallur
Gunnarsson,
dagskrárstjóri
RÚV, útilokar
ekki að reglum
næstu keppni
verði breytt.
Mörður Árnason segir það skrítið
að hafa enska texta í íslenskum
tónlistarþætti.
- fgg / sjá síðu 24
Eurovisionkeppnin:
Íslenskan á
undanhaldi
ÚRKOMA EYSTRA Í dag verða
norðaustan 5-10 m/s en 8-15
síðdegis. Slydda eða snjókoma A-
og NA-lands eftir hádegi og fram á
nóttu. Yfireitt úrkomulaust og bjart
vestra. Frost 0-5 stig.
VEÐUR 4
-3
-2
0
2
-2
Taktlaus ríkisútgjöld
Þegar hið opinbera sýnir aðhald
í uppsveiflu aukast möguleikar
á að halda hjólum atvinnulífsins
gangandi þegar að kreppir, skrifar
Sigríður Dís Guðjónsdóttir.
UMRÆÐAN 16
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde frá-
farandi forsætisráðherra kveð-
ur stjórnmálin í dag. Í gær tók
hann sér tíma til að taka til á
skrifstofunni sinni fyrir eftir-
mann sinn, sem að öllum líkind-
um verður Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Geir hefur setið á Alþingi frá
árinu 1987 en áður var hann
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra og þar áður hagfræðing-
ur í Seðlabankanum. Geir var
skipaður fjármálaráðherra árið
1999 en hefur gegnt starfi for-
sætisráðherra frá 2006.
Geir greindist nýlega með ill-
kynja æxli í vélinda og heldur til
Hollands í aðgerð í næstu viku.
Geir mun halda ræðu á stjórn-
málafundi Sjálfstæðisflokksins
á Grand hóteli klukkan 13.00
í dag. Þar mun hann fara yfir
stjórnmálaástandið, stjórnar-
slitin og horfurnar í íslensku
þjóðfélagi. - kg
Fráfarandi forsætisráðherra:
Geir kveður
stjórnmálin
Haukar á
toppinn
Haukar rúlluðu
yfir Framara
í uppgjöri
toppliðanna
í handbolt-
anum.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
EFNAHAGSMÁL Tveir af helstu
forkólfum Existu, aðaleiganda
Kaupþings þar til bankinn féll,
skráðu íbúðarhús sín á maka sína
í kringum hrun fjármálakerfis-
ins í haust. Hið sama gerðu þó
nokkrir aðrir bankamenn um
svipað leyti.
Nokkrum dögum fyrir banka-
hrunið eða 25. september afsal-
aði Erlendur Hjaltason, forstjóri
Existu og formaður Viðskipta-
ráðs, sér sínum hluta í húsinu
við Auðarstræti og færði yfir á
konu sína. Fáeinum vikum síðar,
hinn 20. október, gerði hinn for-
stjóri Existu, Sigurður Valtýsson,
það sama og afsalaði sér sínum
hluta í húsinu í Iðalind og lét skrá
á konu sína.
Forstjóri MP verðbréfa hefur
einnig skráð hús sitt og konu sinn-
ar á hennar nafn. Það gerði Styrm-
ir Þór Bragason sama dag og Geir
Haarde forsætisráðherra bað guð
að blessa Ísland í frægu sjón-
varpsávarpi. Frá og með 6. októb-
er hefur hús þeirra við Bakkavör
verið skráð á eiginkonu Styrmis.
Svo virðist sem fleiri sem tengj-
ast fjármálaumsýslu hafi viljað
breyta eignarhaldi á íbúðarhúsum
sínum í kring um fall bankanna.
Um tveimur vikum fyrir hrun-
ið skráði fjármálastjóri Baugs
hús sitt á Laufásvegi á náinn ætt-
ingja. Eins og kunnugt er höfðu
aðilar tengdir Baugi mikil ítök í
Glitni. Hinn 18. september færði
fjármálastjórinn, Stefán Hilmar
Hilmarsson, húsið af sínu nafni á
einkahlutafélagið Vegvísi. Skráð-
ur eigandi þess er móðir Stefáns.
Í fréttum Ríkissjónvarpsins í
fyrrakvöld voru einnig nefndir
sjö millistjórnendur hjá Kaup-
þingi sem um og eftir bankahrun-
ið skráðu hús sín á nafn makans.
Sigurður Valtýsson gaf sér ekki
tíma til að ræða við blaðamann
um þessi mál í gær. Ekki náðist í
þá Erlend Hjaltason, Styrmi Þór
Bragason og Stefán Hilmarsson.
- gar, kg
Báðir forstjórar Existu
skráðu eignir á maka
Margir bankamenn skráðu fasteignir á maka sína um og eftir fall bankanna í
haust. Meðal þeirra eru forstjórar Existu og forstjóri MP-verðbréfa.
MÖRÐUR
ÁRNASON
STJÓRNMÁL Ný ríkisstjórn Samfylk-
ingar og Vinstri grænna tekur að
öllum líkindum ekki til starfa fyrr
en á morgun. Verið var að leggja
lokahönd á málefnasamning og
ráðherraskipan í gærkvöldi. Þá á
eftir að kynna það á flokksstjórn-
arfundi Samfylkingarinnar sem
haldinn verður seinni partinn í
dag.
Björg Thorarensen, lagaprófess-
or við Háskóla Íslands, hefur verið
nefnd sem líklegur dómsmálaráð-
herra. Þá hefur Gylfi Magnús-
son, dósent í viðskiptafræði, verið
nefndur sem líklegur viðskiptaráð-
herra. Már Guðmundsson, fyrrver-
andi aðalhagfræðingur Seðlabank-
ans, hefur verið nefndur sem næsti
seðlabankastjóri. Hann starfar
nú sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri peninga- og hagfræðisviðs
Alþjóðagreiðslubankans í Basel.
„Ég hef ekki verið beðinn um
að taka þetta starf að mér enda
er það mér vitanlega ekki á lausu
nú, hvað sem síðar kann að verða,“
segir Már. Hann vill ekki svara
því hvort hann myndi sækja um
eða þiggja starfið ef honum yrði
boðið það. „Það myndi fara eftir
ýmsu, væntanlega meðal annars
því hversu vel þær tímasetningar
hentuðu mér og hversu trausta ég
teldi umgjörð málsins,“ segir Már.
- jse, kóþ / sjá síðu 6
Líklegar breytingar í viðskipta- og dómsmálaráðuneyti:
Tveir fræðimenn ráðherrar