Fréttablaðið - 30.01.2009, Page 4
4 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
flugfelag.is
Burt úr bænum
Hópaferðir fyrir öll tilefni
Upplýsingar:
Sími 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
LYFJAMÁL „Það ríkir vaxandi ótti
meðal heilbrigðisyfirvalda víða
um lönd vegna sölu falsaðra lyfja
á Netinu. Sú netverslun er ólögleg
og án allra landamæra. Hún hefur
verið að færast nær okkur og mál
af þessu tagi hafa komið upp á
Norðurlöndunum.“
Þetta segir Mímir Arnórsson
lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun.
Ólögleg netverslun með lyf fer
vaxandi um allan heim. Fram-
leiðsla og sala ólöglegra lyfja er
arðbært en glæpsamlegt athæfi,
að því er fram kemur á vef stofn-
unarinnar. Heilsu og jafnvel lífi
neytenda er stefnt í hættu með því
að selja þeim lyf sem uppfylla ekki
innihaldslýsingar og framleiðslu-
staðla. Rannsóknir á lyfjum sem
seld eru á Netinu hafa sýnt að virkt
innihaldsefni er allt frá því að vera
ekkert í það að vera allt annað en
tilgreint er á umbúðum.
Á síðustu árum hefur netversl-
un færst mjög í vöxt á öllum svið-
um og þar með talin verslun með
lyf. Svokölluð lífsstílslyf eru til
sölu á Netinu á mun lægra verði
en eftir hefðbundnum, löglegum
leiðum. Einnig færist í vöxt að
önnur lyf séu föl á Netinu. Líkur
eru á því að meira en helmingur
þeirra lyfja sem boðin eru á Net-
inu séu fölsuð.
„Við erum að fá fréttir frá
nágrannaþjóðunum um að net-
verslun með lyf fari mjög vaxandi,“
segir Mímir. „Það er sterklega
varað við þessu hjá fjölþjóðlegum
stofnunum eins og Lyfjastofnun
Evrópu.
Hvað stöðu mála hér áhrærir er
ekki vitað hvort fölsuð lyf hafibor-
ist hingað til lands. Öll netverslun
með lyf er ólögleg og þau gerð upp-
tæk í tolli ef þau finnast. Við höfum
hins vegar ekki lagt út í þann auka-
kostnað að láta rannsaka hvort um
fölsuð lyf sé að ræða í einhverjum
tilvikum eða ekki. Athæfið er allt
að einu ólöglegt.“
Nýjustu fyrirliggjandi tölur um
fjölda stöðvaðra sendinga hér á
landi eru frá árinu 2007. Á síðustu
sex mánuðum þess árs voru skoð-
aðir 1.228 pakkar og í þeim voru
274 lyf sem ekki var heimilt að fá
send með pósti. Ein kæra var send
til lögreglu vegna innflutnings ein-
staklings á lyfi.
Lyfjastofnunin í Svíþjóð hefur
nú hafið herferð gegn sölu af
þessu tagi, samkvæmt fyrirmæl-
um sænsku ríkisstjórnarinnar.
„Við reynum að hafa eftirlitið
hér á landi eins öflugt og kostur
er,“ segir Mímir. jss@frettabladid.is
Vaxandi ótti við
fölsuð lyf á Netinu
Sala falsaðra lyfja á Netinu veldur heilbrigðisyfirvöldum ótta. Sú netverslun er
ólögleg og án allra landamæra, segir lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun. Um er að
ræða arðbært en glæpsamlegt athæfi sem getur stefnt lífi fólks í hættu.
ÍRAK, AP Íraksstjórn sagðist í gær
hafa ákveðið að öryggisverðir á
vegum bandaríska verktakafyr-
irtækisins Blackwater fái ekki
framar að starfa í landinu.
Ákvörðunin er byggð á því að
þeir hafi „hagað sér með óviðeig-
andi hætti og beitt valdi í óhófi“,
segir Abdul-Karim Khalaf, tals-
maður innanríkisráðuneytisins.
Í september 2007 urðu verðir
frá Blackwater 17 manns að bana,
allt almennum borgurum, úti á
götu í Bagdad. Réttarhöld standa
yfir í Bandaríkjunum vegna
þessa atviks.
Blackwater-fyrirtækið hefur
séð um öryggisgæslu flestra
bandarískra embættismanna í
Írak. - gb
Hingað og ekki lengra:
Íraksstjórn vill
ekki Blackwater
Á VEGUM BLACKWATER Bandarískir
embættismenn í Írak þurfa að finna sér
aðra verði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sekt vegna húsnæðis
Slökkvilið höfðuborgarsvæðisins hefur
fengið heimild bæjarráðs Mosfells-
bæjar til að beita tíu þúsund króna
dagsektum vegna óleyfilegra íbúða
sem nokkuð er um að séu í atvinnu-
húsnæði í bænum.
BRUNAVARNIR
Notuðu kreditkortið mest
Íslendingar notuðu kreditkort langoft-
ast allra þjóða í Evrópu í fyrra. Aðeins
Norðmenn komust nálægt korta-
notkun Íslendinga en þeir framvísuðu
kreditkortinu í meira en 36 prósent-
um af sínum viðskiptum.
NORÐURLÖND
KASAKSTAN Forseti Kasakstans,
Nursultan Nazarbayev, hefur
skipað Grigorí Marsjenkó,
bankastjóra Halyk-banka, eins
stærsta banka landsins, í stöðu
seðlabankastjóra. Frá þessu er
greint á fréttavef Dow Jones.
Í tilkynningu frá forsetanum
er sagt frá reynslu Marsjenkós
við að kljást við efnahagsóstöð-
ugleika með góðum árangri en
hann var seðlabankastjóri árin
1999-2004.
Ekki segir hvers vegna Anvar
Saidenov, fráfarandi seðlabanka-
stjóra, er vikið úr embætti. - ghs
Efnahagsmál í Kasakstan:
Skipt um seðla-
bankastjóra
HRÓKERING Nursultan Nazarbayev,
forseti Kasakstans. NORDICPHOTOS/AFP
REYKJAVÍK Matjurtagörðum verður
fjölgað í Reykjavík í sumar. Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, formað-
ur umhverfis- og samgöngusviðs
borgarinnar, segir hugmyndina
sprottna úr grasrótinni. „Lilja
Sigrún Jónsdóttir skrifaði grein
um málið og Garðyrkjufélagið
hafði samband við okkur. Þetta
er mjög mikilvægt, ekki síst í því
efnahagsástandi sem nú ríkir.“
Um 200 görðum verður bætt
við þá sem fyrir eru. Þorbjörg
segir einnig verða reynt að færa
garðana nær fólki, en nýir garðar
verða í Elliðaárdal og Fossvogs-
dal. „Þetta mun henta fjölskyldu-
fólki vel.“ - kóp
Viðbrögð við kreppu:
Matjurtagörð-
um fjölgar í vor KÖNNUN Á LYFJAÖRYGGI Á NETINU
EFTIRLÍKINGAR Mjög erfitt getur verið að sjá hvort lyf eru fölsuð eða ekki. Falsar-
arnir hafa núorðið yfir fullkomnum búnaði að ráða sem gerir það að verkum að
falsanirnar eru mjög líkar löglegum lyfjum.
■ 94 prósent netapóteka hafa ekki starfandi lyfjafræðing
■ 96 prósent netapóteka starfa ólöglega
■ 62 prósent lyfseðilsskyldra lyfja sem seld eru á Netinu eru fölsuð
■ 90 prósent netapóteka selja lyfseðilsskyld lyf án lyfseðils
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
4°
2°
3°
5°
3°
6°
3°
3°
19°
6°
15°
3°
15°
-3°
6°
16°
1°
Á MORGUN
Stíf norðlæg átt,
8-13 m/s.
SUNNUDAGUR
Hæg breytileg átt og
yfi rleitt úrkomulaust.
-2
-2
-3
-1
-2
0
0
2
2
1
6
5
6
6
4
3
5
13
8
7
8
-3
-2
0
2
-1
-1
-1
-3
-4
-3
HELGARVEÐRIÐ
Það verður heldur
hvasst fyrri partinn
á morgun en lægir
eftir því sem líður
á daginn og verður
komið hægviðri
á sunnudag. Á
morgun verður
dálítil snjókoma
fyrir norðan en á
sunnudag er útlit
fyrir bjartviðri um
nánast allt land.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
GENGIÐ 29.01.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
183,1202
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,56 114,10
161,54 162,32
148,26 149,08
19,893 20,009
16,821 16,921
14,072 14,154
1,2625 1,2699
170,31 171,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SAMGÖNGUR Miklabraut verð-
ur sett í stokk og fallið frá hug-
myndum um mislæg gatnamót á
mótum Kringlumýra- og Miklu-
brautar. Þetta staðfesti borgarráð
í gær, eftir tillögu samráðshóps,
sem í sátu íbúar og stjórnmála-
menn. Lausnin hefur verið kynnt
Vegagerðinni og er nú í umhverf-
ismati.
Þorbjörg Helga Vigfúsdótt-
ir, formaður umhverfis- og sam-
gönguráðs Reykjavíkur, segir
þetta góða lausn. „Við reyndum að
lenda málinu í eins mikilli sátt og
hægt var og ég held að það hafi
tekist. Við setjum ekki stór gatna-
mót þarna heldur stokk í eina átt.
Flæði umferðar úr Garðabæ og
Kópavogi verður því mun betra
en nú er.“
Fyrirhugað er að Miklabraut
fari niður í tvöfaldan stokk á
móts við Kringluna og komi aftur
upp til móts við Stakkahlíð. Hún
fari síðan ofan í annan stokk við
Lönguhlíð og komi upp á móts við
Snorrabraut. „Þetta tengir allt
Hlíðahverfið saman,“ segir Þor-
björg.
Óvíst er hvenær af fram-
kvæmdum verður. Það er nú í
umhverfismati og Þorbjörg segir
að ákvarðanir um framkvæmdir
ráðist af efnahagsástandi. Verkið
sé á áætlun og matsferli taki mik-
inn tíma. „Áætlun getur því vel
staðist og þetta verið tilbúið 2010
til 2011.“ - kóp
Fallið frá mislægum gatnamótum við Kringlumýrar- og Miklubraut:
Miklabraut verður sett í stokk
GATNAMÓTIN Miklabraut verður sett í
stokk við gatnamót Miklu- og Kringlu-
mýrabrautar og einnig á móts við
Klambratún. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFGANISTAN, AP Forsetakosningum
í Afganistan, sem halda átti seint
í apríl, hefur verið frestað til 20.
ágúst vegna þess hve ástandið í
landinu er ótryggt.
Vonir standa til að alþjóðlega
herliðið í landinu fái með þessu
nægan tíma til að bæta öryggis-
ástandið svo óhætt þyki að efna
til kosninga.
Sumir þingmenn gagnrýna
þó þessa ákvörðun, segja hana
brjóta í bága við stjórnarskrána
og vara við stjórnarkreppu.
Samkvæmt stjórnskipan lands-
ins rennur kjörtímabil núverandi
forseta, Hamids Karzaí, út þann
22. maí næstkomandi. - gb
Kosningar í Afganistan:
Frestað af ör-
yggisástæðum