Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 6
6 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR BRETLAND „Það að fá svona flíkur er ómetanlegt. Fólk er ofsalega þakklátt og viðbrögðin eru ótrú- lega jákvæð,“ segir útvarps- maðurinn Heimir Karlsson, sem ásamt Kolbrúnu Björnsdóttur, samstarfskonu sinni á Bylgj- unni, afhenti í gærmorgun full- an gám af lopafatnaði og lopat- eppum í Hull í Bretlandi. Heimir segir að ullarklæðnað- inum hafi verið „rosalega vel“ tekið og gjöfin hafi vakið mikla athygli og reyndar hughrif líka því að í heimsóknunum hafi þau séð aðstoð Íslendinga koma að beinum notum. Þau fóru líka í heimsókn í félagsmiðstöð eldri borgara og áttu góða stund með þeim. „Við áttum viðtöl við þau og klæddum þau í lopapeysur,“ segir Heimir. - ghs, kg Komdu í Fjármálaviðtal Fáðu yfirsýn yfir fjármálin www.glitnir.is/markmid Við veitum þér persónulega þjónustu með vandaðri heildarráðgjöf um fjárhagslega stöðu heimilisins. Fjármálaviðtal er góð leið til að fá skýra yfirsýn yfir fjármál heimilisins og ræða leiðir til úrbóta. Á glitnir.is og í útibúinu þínu getur þú líka nálgast einfaldar og öflugar lausnir til að setja heimilinu fjárhagsleg markmið. Í Fjármálaviðtali förum við m.a. yfir: Eignir á móti skuldum Gjöld og tekjur Útgjaldaáætlun og heimilisbókhald Lánamat og greiðsluáætlun lána Skilmálabreytingar og sameiningu lána Í Fjármálaviðtali förum við saman yfir eignir og skuldir, tekjur og útgjöld og gerum greiðsluáætlun fyrir þín lán. STJÓRNMÁL Það myndi koma sér illa fyrir ný framboð ef kosið yrði strax í apríl, að mati Margrétar Sverr- isdóttur, framkvæmdastjóra Íslandshreyfingar- innar. „Mér finnst öfugsnúið þegar flokkarnir sem fyrir eru krefjast kosninga eins fljótt og auðið er. Þeir eru komnir í bátana, eru til dæmis með kjör- dæmafélögin klár. Með þessu móti er yngri fram- boðum ekki gefið færi á að undirbúa sig.“ Hún telur að best væri, fyrir nýju framboðin og þjóðarhag, að gengið yrði til kosninga næsta haust. „Að skipta um stjórn á þessum tímum, aftur og aftur, held ég að sé mjög slæmt. Það væri æski- legast fyrir þjóðina að bíða með kosningar fram á haust. Maí væri nógu erfitt fyrir ný framboð. En alls ekki í apríl.“ Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur frestinn ekki of stuttan. Hún bendir á að komið hafi verið fram í febrúar þegar Vinstri græn urðu til, í þeim tilgangi að sameina vinstri- sinna og náttúruverndarsinna í einum flokki fyrir alþingiskosningar í maí árið 1999. „Ég tel að gras- rótarhreyfingar séu að átta sig á því að það þurfi umfram allt að gefa Alþingi og stjórnmálamönnum nýtt umboð, þannig að sú stjórn sem nú yrði mynd- uð yrði bráðabirgðastjórn.“ - hhs Framkvæmdastjóri Íslandshreyfingarinnar hefur áhyggjur af yngri framboðum: Vill alls ekki kosningar strax Eiga Íslendingar að reyna að fá betri kjör hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum? Já 89,4% Nei 10,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Fyllir myndun nýrrar ríkis- stjórnar þig bjartsýni? Segðu skoðun þína á Vísir.is Íslensk ull til Englands: Ómetanlegt að fá lopaflíkur LÖGREGLUMÁL Á síðasta ári voru skráð hraðakstursbrot hér á landi rúmlega 39 þúsund talsins, sam- kvæmt málaskrá lögreglunnar. Rúmlega sextán þúsund af þeim voru skráð með stafrænum hraðamyndavélum. Með tilkomu hraðamyndavél- anna hefur hraðakstursbrotunum fjölgað til muna. Sjö stafrænar hraðamyndavélar voru tekn- ar í notkun á síðasta ári, tvær í Fáskrúðsfjarðargöngum, ein í Hvalfjarðargöngum og fjórar á Reykjanesi. Samtals eru stafræn- ar hraðamyndavélar á Íslandi orðnar níu. Áætlað er að fjölga þeim í sextán á næstu árum. - jss Málaskrá lögreglu 2008: Rúm 39 þúsund hraðakstursbrot Það væri æskilegast fyrir þjóðina að bíða með kosn- ingar fram á haust. Maí væri nógu erfitt fyrir ný framboð. En alls ekki apríl. MARGRÉT SVERRISDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍSLANDSHREYFINGARINNAR FASTEIGNIR Á heimasíðu Fast- eignamats ríkisins kemur fram að Sigurjón Þ. Árnason, fyrrver- andi bankastjóri Landsbankans, hafi í október 2008 afsalað sér sínum hluta í fasteign við Gran- askjól og skráð á nafn eiginkonu sinnar. Sigurjón segir þessar upplýs- ingar rangar og að þær orsakist af skráningarvillu hjá Fasteigna- matinu. Eiginkona Sigurjóns sýndi blaðamanni Fréttablaðsins stimplaða pappíra þessu til sönn- unar í gær. Þar kemur fram að Sigurjón lét skrá helming eignar- innar á eiginkonu sína 15. októb- er. - kg Fyrrverandi Landsbankastjóri: Villa í skrán- ingu hjá Fast- eignamati HEILBRIGÐISMÁL „Það er engu líkara en systurnar haldi verndarhendi yfir spítalanum,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnar- fjarðar. Hann lítur svo á að ekki verði af breytingum á St. Jósefs- spítala sem Guðlaugur Þór Þórð- arson, fráfarandi heilbrigðisráð- herra, kynnti fyrr í mánuðnum. Hann átti fund í vikunni með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, starf- andi heilbrigðisráðherra, og Ögmundi Jónassyni sem líklegast tekur við heilbrigðisráðuneytinu. „Ég hvatti hann [Guðlaug Þór] til að ljúka sinni aðkomu að mál- inu með því að senda okkur form- legt erindi og bjóða fyrir hönd ráðuneytisins upp á viðræður um framtíðarskipan heilbrigðismála í bænum. Hann er allavega ekki í neinni aðstöðu til að fara í nein- ar stórar aðgerðir núna. Nýr ráð- herra mun svo væntanlega taka upp málið og vega það og meta upp á nýtt og ég vænti þess að ef uppi verða hugmyndir um að fara fram með einhverjar breyting- ar þá verði það ekki öðruvísi en í samstarfi og samvinnu við bæj- aryfirvöld og aðra sem að þessum málum koma.“ Árið 1992 var ráðgert að dreg- ið yrði verulega úr fjárframlögum til spítalans og gera átti verulegar breytingar á honum. Fallið var frá því eftir að bæjaryfirvöld og íbúar höfðu látið í ljós óánægju sína og skráðu um tíu þúsund manns sig á undirskriftalista sem afhentur var þáverandi heilbrigðisráðherra, Sighvati Björgvinssyni. - jse Ríkisstjórnarskipti bjarga St. Jósefsspítala segir bæjarstjórinn í Hafnarfirði: Umdeildar breytingar ganga til baka ST. JÓSEFSSPÍTALI Bæjarstjórinn í Hafnarfirði vonast til að breytingar á spítalanum gangi til baka. STJÓRNMÁL Verið var að leggja loka- hönd á málefnasamning og ráð- herralista nýrrar ríkisstjórnar í gærkvöldi en hann verður líklega endanlega afgreiddur í dag. Síðan á eftir að bera hann undir flokks- stjórn Samfylkingar sem kemur saman klukkan fjögur í dag. Flokksráð Vinstri grænna hefur hins vegar veitt sinni forystu sitt umboð til að leiða málin til lykta. Framsóknarflokkurinn stefn- ir að því halda miðstjórnarfund í fyrramálið þar sem afstaða verð- ur tekin til málefnasamningsins. Ríkisstjórnin verður því formlega mynduð á morgun ef allt gengur að óskum. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrri grænna, sagði skilyrði Framsóknar um að kosið verði til stjórnlagaþings smellpassa við þær áætlanir sem gert var ráð fyrir í mál- efnasamningi nýrrar rík- isstjórnar. „Það var löngu samþykkt að vera með það í málefnavinnunni, þannig að þetta passar prýðilega. Allir þessir þrír f lokkar [VG, Samfylking og Framsóknarflokk- urinn] hafa verið með það í sinni stefnu að setja stjórnarskrárvinn- una í þennan farveg. Þannig að það er enginn ágreiningur um það.“ Hann segir þó engan veginn frá- gengið hvenær kosið verði til stjórnlagaþings. Steingrímur segir að þetta verði tíma- mótastjórn hvað varð- ar jafnrétti kynjanna. En hvað með væntan- lega utanþingsráðherra? „Við höfum verið opin fyrir því að fá ráðherra utan þings en það er allt í skoð- un og lending hefur ekki náðst.“ Hann sagði í gærkvöldi að enginn utan þings hefði enn verið beð- inn að taka ráðherrasæti. Heim- ildir Fréttablaðsins herma að Björg Thorarensen lagaprófessor og Gylfi Magnússon, dósent í við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, hafi verið nefnd sem ráðherrar. Björg sem dómsmálaráðherra en Gylfi sem viðskiptaráðherra. Einn- ig hefur verið rætt um að Brynd- ís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor við Háskólann á Bifröst, taki sæti í ríkisstjórninni. Spurður hvort verðandi stjórn- arflokkar hafi deilt um aðgerðir í skattamálum sagði Steingrím- ur: „Þetta er ekki pakki sem snýr mikið að slíku þar sem við erum að afgreiða hér aðgerðapakka sem tekur til skamms tíma. Við erum jú inni á fjárlaga- og skattaári þannig að aðgerðir sem hér eru til umræðu ná ekki til næstu fjárlaga. Þetta sem verið er að semja nær til takmarkaðs tímabils en hvað framtíðina varðar þá er það önnur saga.“ Jóhanna Sigurðardóttir, forsæt- isráðherraefni Samfylkingarinn- ar, sagði að ný ríkisstjórn væri jákvæð gagnvart því að breyta eft- irlaunalögunum. jse@frettabladid.is Málefnasamningur kynntur síðdegis Ráðherralisti og málefnasamningur verða bornir undir flokksstjórn Samfylk- ingar klukkan fjögur í dag. Gylfi Magnússon og Björg Thorarensen hafa verið nefnd sem líklegir utanþingsráðherrar. Steingrímur J. boðar tímamótastjórn. BREYTINGAR SEM VÆNTA MÁ Í MÁLEFNASAMNINGNUM ■ á yfirstjórn Seðlabankans ■ á eftirlaunalögunum ■ á stjórnarskrá og verður kostið til stjórnlagaþings í þeim tilgangi ■ sett verði lög um greiðsluaðlögun STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Ný ríkis- stjórn verður líklega ekki formlega kynnt fyrr en á laugardaginn kemur en mál- efnasamningurinn verður kláraður í dag. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.