Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 10
10 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld þurfa sjálf að ákveða hvort þörf er á reglubundnu eftirlitsflugi hér á landi, segir Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins (NATO). Eftir brotthvarf varnarliðsins árið 2006 óskuðu íslensk stjórn- völd eftir því að ríki NATO tækju að sér loftvarnir hér á landi. Samið hefur verið við einstök ríki um að senda hingað sveitir orrustuþotna til æfinga. „Persónulega tel ég að þetta sé gott fyrirkomulag, og helstu bandalagsþjóðir eru vafalaust til- búnar til að halda þessu eftirliti áfram,“ sagði Scheffer á fundi með fjölmiðlum á ráðstefnu NATO um öryggi á norðurslóðum á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu í gær. „Ég vona að þetta haldi áfram, en lokaákvörðunin er ekki mín eða annarra bandalagsríkja, heldur nýrrar íslenskrar ríkisstjórnar,“ sagði Scheffer. Samkvæmt gildandi áætlun um loftrýmiseftirlitið er gert ráð fyrir að dönsk flughersveit komi hingað í mars, spænsk í maí og bandarísk í sumarlok. Danski varnarmála- ráðherrann Søren Gade, sem var meðal gesta á ráðstefnunni, sagði aðspurður að það „yrði enginn fúll“ þótt ný ríkisstjórn Íslands ákvæði að afþakka komu þotn- anna vegna efnahagsþrenging- anna. Hann lagði þó áherslu á að hann tryði á gildi loftrýmiseftir- litsins fyrir Ísland og bandalagið í heild. Gade tók þannig undir orð de Hoop Scheffers um þetta efni í ávarpi framkvæmdastjórans á ráðstefnunni, en þar sagði hann: „Þetta fyrirkomulag undirstrikar að öryggi innan bandalagsins nær til allra, og skuldbindingar banda- lagsins gagnvart Íslandi.“ Hið sama gerði Geir H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra. „Þetta fyrirkomulag hefur gefið góða raun fyrir bandalagið, þau lönd sem tekið hafa þátt, og okkur,“ sagði Geir í ávarpi sínu og bætti við: „Ég vonast til þess að þetta haldi áfram.“ Þingflokkur Vinstri grænna lagði í október síðastliðnum til að utanríkismálanefnd Alþingis yrði falið að endurskoða áætlun NATO um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi, með það að markmiði að hætta slíkum æfingum. Á síðasta ári var gert ráð fyrir 200 milljóna króna kostnaði við eftirlitsflugið, eða um 50 milljónum króna fyrir komu hverrar flugsveitar. Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að með róttækum sparnaðaraðgerð- um muni takast að lækka þann kostnað umtalsvert. brjann@frettabladid.is, audunn@frettabladid.is Ný stjórn meti þörf fyrir loftrýmiseftirlit Framkvæmdastjóri NATO vonast til þess að loftrýmisgæsla hér á landi haldi áfram þrátt fyrir stjórnarskipti. Ákveði ný stjórn að afþakka eftirlitið um sinn segist varnarmálaráðherra Danmerkur vænta þess að því yrði sýndur skilningur. KVADDUR JAAP Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, sagði það heiður að vera viðstaddur eitt af síðustu embættisverkum Geirs H. Haarde, fráfarandi for- sætisráðherra, sem setti málþing NATO um öryggi á norðurslóðum á hótelinu Hilton Reykjavík Nordica í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LEIKUR Á FLAUTU Skrautbúinn indíáni lék á flautu sína í Brasilíu þar sem nú stendur yfir alþjóðleg félagsmálaráð- stefna, sem jafnan er haldin á hverju ári til mótvægis við alþjóðlegu efna- hagsráðstefnuna í Davos í Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur sýknað mann sem ákærður var fyrir kynferðislega áreitni. Hann var sakaður um að hafa klip- ið konu í rassinn í rúllustiga í Smáralind. Maðurinn hélt því fram að hann hefði snert mjóbak konunnar. Dóminum þótti ekki sannað að maðurinn hefði klipið í rass kon- unnar, heldur hafi hann snert mjóbak hennar. Þá sé ósannað að snerting mannsins falli undir ákvæði um kynferðislega áreitni. Einn dómara í málinu, Ingi- björg Benediktsdóttir, skilaði sér- atkvæði, og taldi rétt að sakfella manninn. - bj Meint áreitni í Smáralind: Sýknaður af rassaklípu Sigríður vararíkissaksóknari Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Friðjónsdóttur, settan vararíkissaksóknara, í embætti vararíkissaksóknara frá og með 1. febrúar 2009. Auk Sigríðar sótti Egill Stephensen saksóknari um embættið. DÓMSTÓLAR Ungur drengur í innbroti Lögreglan handtók 14 ára dreng sem brotist hafði inn í fiskbúð við Sogaveg í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags- ins. Foreldrar drengsins sóttu hann á lögreglustöð auk þess sem barna- verndaryfirvöldum var gert viðvart. LÖGREGLUFRÉTTIR „Ég tel þessar breytingar vera jákvæðar en svo er að sjá hvað þessi nýja stjórn gerir,“ segir Algirdas sem fylgist vel með þjóðmálum hér á landi og hræring- um stjórnmálanna. „Þessi mótmæli fóru nokkuð vel fram, þetta er ekki eins og í Grikklandi þar sem allt fór í bál og brand. Og breytingin sem fólkið bað um er nú í burðarliðnum. Ég mun að sjálfsögðu kjósa í vor en það á ýmislegt eftir að gerast þangað til og atkvæðið veltur svolít- ið á þeirri framvindu en ég er bara nokkuð bjartsýnn um að nú fari betri tímar í hönd.“ Algirdas Slapikas: Betri tímar með blóm í haga Sá portúgalski hefur haft nóg að gera og dregur þann gula úr vestfirskum sjó. „Reyndar tökum við þá úr eldis- kvíum og slátrum þeim um borð en svo förum við með aflann í sýnatöku í fiskvinnslu á Súðavík,“ segir Filipe. „Þetta hefur í raun verið afar ströng vinnuvika þar sem rannsóknarverk- efninu fer að ljúka. Sumir segja að þetta sé skítaverk að vera að slægja þorsk en ég kann vel við þetta. Svo hafa samleigjendur mínir notið góðs af en þeir eru frá Bandaríkjunum og þykir afar gott að fá ferskan þorsk í soðið.“ Filipe Figueiredo: Hreint ekkert slor í slorinu „Ég er að hjálpa til við skipulagningu á starfi greendrinks. org á Íslandi en það eru samtök sem starfa víða um heim. Þetta snýst um að fólk sem vinnur að umhverf- ismálum hittist og ræði saman. Við ætlum að reyna að koma þessu á fót í Reykjavík og stefnum á að byrja í mars. Svo er bara nóg að gera í skólanum. Ann- ars er ég alltaf að detta í hálkunni en ég er ekki ein um það þessa dagana. Kærasti minn meiddi sig á olnboganum og vinkona mín skarst á hökunni en ég er bara marin eftir allar mínar byltur.“ Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier: Alltaf að detta í hálkunni VIKA 47 DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár. Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast. Þvottavélar - verð frá kr. 154.995 Þurrkarar - verð frá kr. 129.995 TILBOÐ Sparðu með Miele A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið MÓTMÆLI Ekki er ólöglegt að kveikja í fána NATO, miðað við almenn hegningarlög. Einungis má sekta þá sem opinberlega smána fána erlendrar þjóðar, fána Sam- einuðu þjóðanna eða fána Evrópu- ráðs. Í blaðinu í gær sagðist lögregl- an hafa handtekið tvo menn fyrir utan móttöku NATO á Hótel Nord- ica Reykjavík þar sem þeir kveiktu í fána NATO. Nú segir lögreglan hins vegar að þeir hafi verið hand- teknir vegna óhlýðni. Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson segist hafa borið fánann eftir að kveikt var í honum. Hann hafi ekki verið handtekinn. „Þetta var nælonfáni sem brenn- ur upp á fjórum sekúndum. Lögg- an sá þetta þegar hann var kominn í tætlur. Þá hlupu þeir að mér og tóku fánann,“ segir Snorri. Hinir handteknu hafi hins vegar reynt að hrifsa fánastöngina af lögreglu. Ragnar Aðalsteinsson hæsta- réttarlögmaður segir að ef ákært væri út af slíku yrði líklega beitt sömu rökum og í Bandaríkjunum 1989. Þá var ákært fyrir flagg- brennu sem fór fram í pólitískum tilgangi. Hinn ákærði var sýknað- ur þar sem hann nyti tjáningar- frelsis. Slík ákæra yrði skemmti- legt álitaefni hér á landi, segir Ragnar. - kóþ Sá sem brenndi fánann við NATO-móttöku var alls ekki handtekinn: Má brenna NATO-fána á Íslandi LANDRÁÐAMENN Í frásögn Ragnars Aðalsteinssonar í blaðinu í gær runnu tveir dómar í einn. Er honum ljúft að leiðrétta það. Steinn Steinarr var árið 1935 dæmdur í fangelsi fyrir að hafa tekið niður hakakrossfána nasista á Siglufirði. Fáninn var rifinn og á honum traðkað í forarpolli. Steinn var dæmdur í fangelsi sem land- ráðamaður, ásamt nokkrum félög- um sínum. Dómnum var þó aldrei fullnægt. Þórbergur Þórðarson var hins vegar dæmdur fyrir að skrifa í blöðin um kvalir og pyntingar í Þýskalandi Adolfs Hitler.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.